Tíminn - 05.09.1976, Side 7
Sunnudagur 5. september 1976
TÍMINN
7
HELGARSPJALL
Steingrímur Hermannsson:
PÓLITÍSKT SIDFERÐI
t Dagblaðinu 28. þ.m. birtist
furðulegur leiðari. Þar er reynt
að færa rök að þvi, að flestir
afbrotamenn f þjóðfélaginu séu
Framsóknarmenn. Og ástaÆan
á að vera augljós. Framsóknar-
menn eigi enga hugsjón, þvi
samvinnustefnan er ekki hug-
sjón að mati höfundarins. Hins
vegar eigi Sjálfstæðisflokkurinn
enn hina háleitu hugsjón einka-
framtaksins og þvi að sjálf-
sögðu stórum færri afbrota-
menn. Hvilikt furðuverk.
Löngu er orðið ljóst, að
ihaldssömustu öflin i Sjálf-
stæðisflokknum vinna mark-
visst að þvi að breiða út róg um
Framsóknarmenn og hafa i þvi
skyni beitt óspart hinum svo-
nefndu „frjálsu” dagblöðum
sinum, ,,gulu pressunni”,
Dagblaðinu og Visi, með
Alþýðublaðið i vasanum, sem
Visir gefur út. Þó má segja, að
þessi staðreynd hafi aldrei verið
opinberuð svo vel sem i fyrr-
nefndum leiðara.
Liklega er það rétt, sem
glöggir menn hafa bent á, að
þessi ihaldssömustu öfl i Sjálf-
stæðisflokknum hafi staðið að
baki fólskulegum árásum á Ólaf
Jóhannesson og undirbúið það
lengi, en notað fávisa krata sem
verkfæri sitt. Vaxandi álit Ólafs
hefur verið þessum mönnum
ákaflega mikill þyrnir I augum.
Það vildu þeir umfram allt eyði-
leggja. Þetta mistókst, en iðj-
unni er haldiö látlaust áfram og
öllum spjótum beint að forustu-
mönnum Framsóknarflokksins.
Við skulum lita á dæmi.
Nánaster látið að þvi liggja,
að skattsvik séu einkamál
Framsóknarmanna og slikir
menn, sem taldir eru greiða
óeðlilega lága skatta, óspart
dregnir fram. En hvers vegna
eru ekki skoðaðar stjórnmála-
skoðanir þeirra fjölmörgu
skattlausu fasteignasala, lög-
fræðinga og annarra máttar-
stólpa einkaframtaksins,
grundvallarhugsjónar Sjálf-
stæðisflokksins? Fróðlegt væri
að sjá talið upp úr þeim
atkvæðakassa. Það er löngu
orðið ljóst, að skattarnir eru
orðnir litið annað en launþega-
skattar. Athafnamennirnir, sér-
staklega þeir, sem berast mest
á og lifa giæsilegast, borga
nánast enga skatta. Þetta er
vitanlega ekkert annað en stór-
kostlegur þjófnaður. Það skyldi
ekki vera, að ótrúiegur fjöldi
þessara manna séu innstu
kokkar I búri hjá Sjálfstæðis-
flokknum. Framsóknar-
flokkurinn mun taka virkan þátt
i þvi að uppræta skattsvikin
hvar sem þau finnast og hegna
þeim, sem þau stunda. Og það
ættu aðrir flokkar einnig að
gera, en ekki láta við það sitja,
að nota stórgallað skattakerfi,
sem allir flokkar eiga sök á, i
pólitiskum rógstilgangi.
Varla hafði frétzt af ávisana-
málinu svonefnda þegar um
bæinn fóru að ganga listar með
nöfnum manna, sem sekir áttu
að vera. A þeim voru fyrst og
Steingrimur Iiermannsson
fremst nöfn nokkurra þekktra
Framsóknarmanna, oft með
nokkrum alþekktum brösk-
urum. Það skyldi þó ekki fara
svo, þegar nöfnin verða birt, að
mennirnir reynist vera heldur
litils metnir postular einka-
framtaksins. Allir vita, að
þessir listar eru runnir undan
rifjum „gulu pressunnar” og
þeirra, sem henni stjórna.
Þannig mætti lengi rdcja
dæmin um vinnubrögðin. Einnig
er athyglisvert, að þagað er
þunnu Ujóði yfir ýmsu,sem gæti
reynzt skeinuhætt vinum þess-
ara postula siðferðisins.
Hvers vegna eru t.d. ekki
fjármálhinna ýmsu hlutafélaga
Alþýðuflokksins og Alþýðu-
blaðsins skoðuð, og skatta-
málin, sem þeim eru tengd?
Það mun vera um auðugan garð
að gresja.
Einnig virðist sjálfsagt að
vekja athygli á þvi, að það er
orðið ótrúlega algengt, að hug-
sjónamenn sjálfshyggjunnar,
sem sitja i opinberum stöðum,
stofna verktakafélög, heildsölur
o.fl. á sviði, sem nátengt er
þeirra starfi. Þetta er augsýni-
lega gert i þeim tiigangi einum,
að geta beint þangað
viðskiptum og mataðsinn krók.
Þetta er að sjálfsögðu fullkomið
siðleysi og verður að stöðva.
Það skyldi þó ekki vera, að
þarnaséu ýmis þekkt nöfn, sem
þurfa friðviðsitt einkaframtak.
Blöðin geta unnið þarft verk
með þvi að rannsaka og fjalla
um þá þætti, sem betur mætti
fara I okkar þjóðfelagi. Þvi
miður er af nógu að taka. En ef
það á að koma að fullu liði, er
nauðsynlegt, að slikt sé gert af
einurð og drengskap. Þarna
mega ekki ráða annarle.g
sjónarmið öfgaafla i stjTJfn-
mála flokkunum.
Grundvallarhugsjón Fram-
sóknarmanna er félagshyggja.
Framsóknarmenn eru sann-
færðir um, að hin stóru verkefni
verða bezt unnin af mörgum,
sterkum, frjálsum einstak-
lingum, sem vinna saman á
félagslegum grundvelli, t.d. á
grundvelli samvinnuhreyf-
ingarinnar, verkalýðsfélag-
anna, bændasamtakanna, o.fl.
Ef það er ekki hugsjón, verð ég
að viðurkenna, að ég hef mis-
skilið hugtakið. Við styðjum
einnig heilbrigt einkaframtak,
enda striðir það ekki gegn hags-
munum fjöldans og þjóð-
félagsins. Sem betur fer eru
fjölmargir einstaklingar sem
þannig starfa.
Innan Framsóknarflokksins
eru margir óánægðir með sam-
starfið við Sjálfstæðisflokkinn
og kjósa fremur, að Fram-
sóknarflokkurinn vinni með
hinum svonefndu vinstri
flokkum. Þessir menn hafa hins
vegar sætt sig við þetta sam-
starf, þvi þeim er ljóst, að ekki
hefúr verið kostur á öðru betra.
Framsóknrmenn ganga jafn-
framt til samstarfsins af dreng-
skap og ákveðnir i þvi að láta
það takast.
Innan Sjálfstæðisflokksins er
stór hópur manna, sem tekur
einnig einlægan þótti þessu sam-
starfi, og vel er unnt að starfa
með. Þar er hins vegar annar
hópur manna, sem er óánægður
með samstarfið og vill nýja
viðreisnarstjórn. Þeir sætta sig
ekki við ákvarðanir meiri
hlutans og gera allt til þess að
eyðileggja stjórarsamstarfið.
Þetta eru þeir ihaldssömustu.
Þeir svifast einskis og leita liðs
hjá stjórnarandstöðunni,
Alþýðuflokknum og Alþýðu-
bandalaginu. Hjá þeim helgar
tilgangurinn meðalið. Sjálf-
stæðisflokkurinn verður vitan-
lega að hafa hemil á þessum
mönnum.
P. Stefánsson hf. hefur gert samning við eftirtalda aðila um viðgerðir og varahluta-
þjónustu á Land Rover, Range Rover, Austin og Morris bifreiðum.
BOLUNGARVÍK
Vélsmiöja Bolungarvíkur.
ISAFJÖRÐUR:
Vélsmiöjan Þór
SAUÐÁRKRÓKUR:
Kaupfélag Skagfiróinga.
PATREKSFJÖRÐUR:
Vélsmiöjan Logi
HRÚTAFJÖRÐUR:
Bílaverkstæöi Steiós Eyjólfss. Boröeyri.
BÚÐARDALUR:
Kaupfélag Hvammsfjaröar.
VÍÐIDALUR:
Vélaverkstæöiö Víðir.
BORGARNES:
Bifreiöa og trésmiöjan
KEFLAVÍK:
Bílasprautun Birgis GuönaS/
SELFOSS:
Kaupfélag Árnesinga.'
KÓPASKER:
Kaupfélag N.Þingeyinga.
ÞÓRSHÖFN:
Kaupfélag Langnesinga.
SIGLUFJÖRÐUR:
Bílaverkstæöi Magnúsar Guöbrandss.
HÚSAVÍK:
.Vélaverkstæöiö Foss.
ÓLAFSFJÖRÐUR:
Bilaverkstæöiö Múlatindur.
© LÍVLAfJÖ Austin Jaguar Morris Rover Triumph
AKUREYRI:
Baugur H/F.
EGILSSTAÐIR:
Arnljótur Einarsson,
REYÐARFJÖRÐUR:
Bilaverkstæöið Lykill.
HORNAFJÖRÐUR:
.Vélsmiöja Hornafjaröar.
VÍK í MÝRDAL:
Kaupfélag Skaftfellinga.
HVOLSVÖLLUR:
Kaupfélag Rangæinga.
P. STEFANSSON HF.
HVERFISGÖTU 103 REYKJAVÍK SÍMI 26911 PÓSTHOLF 5092
PART