Tíminn - 05.09.1976, Page 14
14
TÍMINN
Sunnudagur 5. september 1976
Lúðvik B. ögmundsson, sem er yfir skápadeild Samvirkis,en þar er
framleiddur ýmis nýtizku rafbúnaður og töflur.
Kafvirkjar við leiðslubrautir. Talið er að rafkaplarnir I Sigölduvirkjun séu um 60.000 metrar.
— I fyrsta lagi er nauösynlegt
að hafa nægan mannafla eða fjöl-
efli til þess að geta boðið í öll verk
sem i gangi eru. Stórfram-
kvæmdir eru á hinn bóginn ekki
ávallt á döfinni og þvi örðugt að
finna samfelld verkefni, sem
hæfa.
Stórverkefni hafa gengið mjög
vel hjá okkur og höfum við mik-
inn áhuga á þvi að taka þau að
okkur eftir þvi sem framboð leyf-
ir. Framleiðsla á töflubúnaöi og
öðrum rafbúnaði verður lika
verkefni I framtiðinni, sér I lagi
eftir að allt húsrýmið hefur verið
tekið i notkun.
— 1 dag erum við sem áður
sagði stærsta fyrirtæki landsins i
rafmagnsiðnaði og höfum þvi
meira bolmagn en aðrir til þess
að standa við samninga og standa
að samningum um stór verk.
— Hvernig hefur rekstrarform-
ið reynzt?
— Mjög vel. Menn finna til
ábyrgðar og að þeir hafa raun-
verulega aðild að þvf sem verið er
að gera. Þetta hvetur þá til að
efla félagið og vinna þvi gott orð.
— Má segja að rekstrarform
okkar hafi gerbreytt rafiönaöin-
um i landinu, samvinnuformið
kemur i staðinn fyrir einkarekst-
ur og allir eru ánægðir.
— Hvert rennur arðurinn?
Samvinnufélagið á
húsnæðið — ekki
einstaklingarnir
— Aröur af fyrirtækinu rennur
til félagsmanna þeirra sem vinna
viðfyrirtækið. Að visu var ákveö-
ið á siðasta aðalfundi að greiða
ekki arð, vegna húsbyggingarinn-
ar, sem látin var sitja i fyrirrúmi,
þvi það var talið grundvallarskil-
yrði að fyrirtækið ætti eigin hús-
næði undir starfsemina.
Arðurinn rennur þvi I húsnæðið.
— Hvað kostar að gerast með-
limur?
— Það kostar 1000 i almennu
deildina en kostaði 10.000 i raf-
virkjadeildina. Nú hefur verið
reynt að veröbæta þetta eitthvað
og færa til raunvirðis.
— Ef einhver vill hætta, hvao
verður þá um eignarhluta hans i
fasteign um?
— Samvinnufélagiö á fasteign-
ina. Þetta er eins og i kaupfé-
lögunum. Ef einhver flyzt burtu
eða hættir, þá á hann ekki kröfu i
fasteignir kaupfélagsins aðsinum
hluta. Það er fyrirtækið sjálft
sem á húsnæðið.
— Hverjir skipa stjórn Sam-
virkis sf.
— Sameiginlega stjórn skipa
Jón Baldvin Pálsson, formaður,
Eyþór Steinsson, varaformaður,
Ilafsteinn Guðmundsson vinnur viö nýjar töflur, sem fara eiga I
birgðastöð SIS, sem er stærsta hús landsins sinnar tegundar.
Guömundur Pétursson verkfræðingur með electróniskan stjórnbúnað (hiuta) fyrir Sigölduvirkjun, en
þessi búnaöur er sá fyrsti sinnar tegundar I orkuveri hér á landi. (túrbinustýring)
>! I ' P X -
Æv-..
Guðmundur Pétursson, verkfræðingur, Kaztmeier sem er yfirmaöur þýzka fyrirtækisins og Guðbrand-
urBenediktsson, yfirverkstjóri Samvirkis svf. við Sigöldu. Þeir eru viö „segulmögnunarskáp” sem er
ný tækni viö straumstýringu.
Lúðvik B.ögmundss. ritari.Guö-
brandur Benediktsson, gjaldkeri,
en meðstjórnendur eru örn
Haraldsson, Benedikt Benedikts-
son, Eyjólfur Magnússon og As-
geir Eyjólfsson.
Framkvæmdastjóri er Asgeir
Eyjólfsson
— JG