Fréttablaðið - 04.12.2005, Qupperneq 20
4. desember 2005 SUNNUDAGUR20
www.skifan.is
...skemmtir þér ; )
ÁRITANIR Í
SKÍFUNNI Í DAG!
Mesta úrvalið
er í Skífunni
Kringlankl.14.00
Guðrún og Friðrik
Helgartilboð
1.698 kr.
Kringlankl.15.00
Jónsi
Helgartilboð
1.698 kr.
Kringlankl.16.00
Spark
Helgartilboð
1.698 kr.
Smáralindkl.14.00Regína Ósk
Helgartilboð
1.698 kr.
Garðar Cortez
Smáralin
d
kl.15.00
Helgartilboð
1.698 kr.
Smáralind
kl.16.00
Heitar lummur
Helgartilboð
1.698 kr.
Við Aðalstræti á Ísafirði er veitinga-
og kaffhúsið Langi Mangi; nafnið að
sjálfsögðu borið fram að vestfirskum
hætti. Þetta er vistlegur staður í
gömlu íbúðarhúsnæði; samsettur
af nokkrum misstórum herbergjum
utan um barinn í miðju hússins,
þar sem eldhúsið hefur vísast verið
á árum áður. Ljósmyndasýning
stendur yfir á veggjunum; svart/
hvítar myndir frá Ísafirði og víðar.
Mark Knopfler sér um ómþýðan
undirleik.
Loðmundur að austan
Finnbogi er vörpulegur maður
á alla kanta; stór og þrekinn.
Gráskeggjaður og góðlegur; höndin
þykk og hlý. Hann er hress í bragði,
hlær dillandi hlátri; tekur í nefið
og snýtir sér hraustlega. Öryggið
er í fyrirrúmi hjá Finnboga; hann
gengur bæði með belti og axlabönd.
Hann hefur gaman af alls kyns
spaugsemi og skemmtisögum. Segir
eina af sjálfum sér. „Ég kom þarna
suður til ykkar á Fréttablaðinu að
hitta Kára Jónasson ritstjóra og
gerði það af skömm minni að segja
við stúlkuna í afgreiðslunni að ég
héti Loðmundur og kæmi að austan
að hitta Kára. Hún lét sér hvergi
bregða heldur hringdi í Kára og
sagði honum að það væri einhver
Loðmundur kominn að hitta hann.
Hleyptu honum inn sagði Kári og
hafði eflaust grun um hver væri á
ferðinni.“
Banghagur maður
Flestir landsmenn kannast við
Finnboga úr útvarpinu og síðar
sjónvarpinu en hann hefur verið
forstöðumaður Svæðisútvarps
Vestfjarða frá stofnun 1989. Það
var þó ekki útvarpsmennskan
sem dró hann hingað vestur á
sínum tíma, heldur kennsla. Fyrst
í Súðavík og síðar á Núpi, þar
sem útvarpsmennskan hófst með
þættinum Að vestan.
Annars er Finnbogi kominn af
smiðum í ættir fram og ólst upp við
smíðavinnu. Hann gerir þó lítið úr
afrekum sínum á því sviði. „Maður
er banghagur eins og það er kallað“,
segir hann kímileitur, „og nokkuð
liðtækur í bílaviðgerðum“, bætir
hann við og strýkur skeggið.
Tvírifað í stúf
Við fáum rjúkandi kaffi á borð og
Finnbogi fær sér í nefið. Talið berst
að bílum en Finnbogi er sérstakur
áhugamaður um bíla og bílasögu.
Hann er hafsjór af fróðleik um
bíla og kann aragrúa af sögum um
einstaka bíla og eigendur þeirra. En
myndi hann kalla þetta bíladellu?
„Áreiðanlega“, segir hann og brosir.
„En svo blandast þetta saman við
almennan sagnfræðiáhuga og
almennan fróðleik“.
Eitt af því sem sameinar þetta
er stálminni Finnboga á bílnúmer,
sérstaklega þau gömlu og það nægir
að nefna gamalt númer; Finnbogi er
vís til að muna á hvaða bíl það var og
hver átti hann. „Þau hafa stimplast
ótrúlega inn“, segir hann hugsi.
„Það er sagt að sumt fólk, sem
stundum er talið andlega bjagað,
hafi svona sérgáfu... þetta er líkast á
því rólinu“, bætir hann íbygginn við
og skellihlær.
Og það hangir fleira á þessari
spýtu því Finnbogi man gjörla
fjármarkið hjá Páli Árnasyni bónda
á Litlu-Reykjum þar sem hann
var í sveit. „Það var tvírifað í stúf
og gagnbitað vinstra“, segir hann
hikstalaust.
Hefur gaman af drossíum
Sem bílaáhugamaður hefur
Finnbogi átt marga bíla um dagana
en hann segir þá þó færri en tilefni
gefur til. Og skýringin er sú að hann
er frekar fastheldinn á bíla. „Þeir
safnast upp hjá mér“, útskýrir hann
og glottir. „Ég á reyndar ekki nema
fjóra núna og þar af einn í varahluti“,
bætir hann við og snýtir sér.
Hann á sem sagt tvo Volvobíla;
240 gerðina, módel 1987 og 1988,
Subaru og loks Grand Cherokee
jeppa. Er þó enginn jeppakall að
sögn. „Nei, ég er það ekki... þið
afsakið“, segir hann og skellir upp
úr. „Ég hef ekkert gaman af jeppum
en ég hef gaman af drossíum“, bætir
hann við með hlýju í röddinni og
rifjar upp nokkrar gamlar og góðar
drossíur sem hann hefur átt um
dagana.
Hákarlstugga Jaggers
Flesta fréttamenn dreymir um
að landa stóru fréttinni einhvern
tímann á ferlinum. Sumir
myndu segja að stóra fréttin
hans Finnboga hafi verið koma
Micks Jagger til Ísafjarðar um
verslunarmannahelgina 1999.
„Ég stóð uppi á stillans og var að
mála þegar Kári Jónasson hringdi
frá Fréttastofunni í Reykjavík og
tjáði mér að Mick Jagger væri á
Ísafirði“, rifjar Finnbogi upp með
bros á vör.
Og hann dreif sig í bæinn, niður
í Neðstakaupstað en þá var Jagger
nýfarinn úr Byggðasafninu þar sem
einhver hafði gefið honum hákarl.
„Jagger spýtti hákarlinum út úr sér
en sem betur fer var þarna drengur
sem hafði vit á að hirða tugguna
og setja hana í krukku“, segir
Finnbogi og nú hlæjum við svo dátt
að fólk á næstu borðum lítur forviða
á okkur.
Stones mínir menn
Finnbogi fann svo Jagger í
minjagripaverslun í miðbænum og
tókst með lagni að ná tali af goðinu.
„Ég náði bara augnsambandi við
hann svona eins og maður nær
augnsambandi við hund eða kött“,
segir Finnbogi og hristist allur af
hlátri. Og þeir áttu ágætisspjall
saman, þar sem Finnbogi sagði
Jagger meðal annars frá því að
hann hefði alla tíð haldið upp á
Rolling Stones. „Þetta hafa alltaf
verið mínir menn“, segir Finnbogi
sannfærandi röddu.
Hættir á næsta ári
Á næsta ári hyggst Finnbogi láta
af störfum hjá útvarpinu; verður
þá kominn á hina gullnu 95 ára
reglu hjá ríkinu. Hann segir starfið
oft á tíðum lýjandi; í mörgu að
mæðast og álagið hafi aukist með
árunum. „Maður er kannski að
vinna fyrir útvarpið, sjónvarpið og
svæðisfréttirnar allt í senn og það
eru erfiðar dagar þegar maður er
svona margklofinn, maður er eins
og Ingjaldsfíflið, deilist sem víðast“,
segir hann hlæjandi og fær sér svo
korn í aðra nösina.
Eftirmælin
Hann segist í raun hlakka til að
hætta, þó að hann hætti að sjálfsögðu
ekki að vinna. „Það eru mörg
verkefni framundan, en ég segi oft
eins og Jón Helgason prófessor:“
Senn er þess von að úr sessinum
mínum ég víki,
senn skal mér stefnt inn í
skugganna fjölmenna ríki,
spyrji þá einhver hvar athafna
minna sér staði
er það í fáeinum línum á gulnuðu
blaði.
Við segjum bara amen eftir efninu;
kveðjum Finnboga og notaleg
húsakynni Langa Manga og göngum
út í ísfirskt kvöldkulið. ■
Eins og Ingjaldsfíflið
> SUNNUDAGUR MEÐ SIGURÐI ÞÓR
Finnbogi Hermannsson er ákaflega vestfirskt nafn og
maðurinn sömuleiðis vestfirskur að sjá. Hann er þó
fæddur og uppalinn Reykvíkingur; ólst upp á Njálsgötunni
og fór ekki vestur fyrr en á fullorðinsárum. Gerir engu að
síður ráð fyrir að bera beinin fyrir vestan.