Fréttablaðið - 04.12.2005, Page 78
4. desember 2005 SUNNUDAGUR50
Loðhúfur
Hafnarstræti 19 Sími 551 1122
ný sending
Verð frá
9.990 kr.
HRÓSIÐ
... fær hljómsveitin Benni Hemm
Hemm fyrir að halda áfram
útrás íslenskrar tónlistar í
Austurlöndum.
Hvað er að frétta? Allt það besta.
Augnlitur? Brúnn.
Starf? Læknir og borgarfulltrúi.
Fjölskylduhagir? Giftur, tveggja barna faðir.
Hvaðan ertu? Árbænum.
Ertu hjátrúarfull/ur? Já.
Uppáhaldssjónvarpsþáttur? Little Britain.
Uppáhaldsútvarpsþáttur? Morgunvaktin.
Uppáhaldsmatur? Eitthvað óvænt.
Fallegasti staður? Heima er best
ipod eða geislaspilari? Geislaspilari.
Hvað er skemmtilegast? Kraftur.
Hvað er leiðinlegast? Bið.
Helsti veikleiki? Get verið utan við mig.
Helsti kostur? Næmi.
Helsta afrek? Bakvörður í fyrsta
Íslandsmeistaraliði Fylkis.
Mestu vonbrigði? Að baki.
Hver er draumurinn? Betri heim í dag en
í gær.
Hver er fyndnastur/fyndnust? Þorsteinn
Guðmundsson.
Á hvað trúirðu? Fólk.
Hvað fer mest í taugarnar á þér? Leti.
Uppáhaldskvikmynd? City of God.
Uppáhaldsbók? Stúfur er lesinn á hverju
kvöldi.
HIN HLIÐIN DAGUR B. EGGERTSSON BORGARFULLTRÚI
Tveggja barna faðir með geislaspilara
Eins og glöggir áhorfendur nýju
fréttastöðvarinnar NFS hafa
kannski tekið eftir þá er margt
líkt á þeim bænum og hjá Sirrý
í Fólki á Skjá einum. Sófasettin
eru nefnilega nákvæmlega eins
á báðum stöðum. Hefur þetta
vakið furðu margra og spurning
hvort nokkuð hafi verið hugsað
út í þetta þegar húsgögnin voru
keypt. Að sögn Róberts Marshall,
framkvæmdastjóra NFS, stendur
ekki til að skipta um sett einungis
vegna þess að Sirrý sé með sams
konar sófasett í sínum þætti. ,,Við
munum nú samt örugglega koma
til með að breyta settinu í stúdíóinu
nokkrum sinnum á ári. Þetta er því
ekki sófasett sem verður þarna
um ókomna framtíð.“
Að sögn Sigríðar Arnardóttur,
þáttarstjórnanda er þetta einungis
staðfesting á þeim smekkmönnum
sem vinna við hönnunina á settinu
hjá Skjá einum. ,,Mér finnst þetta
bara viðurkenning fyrir okkur
og þá sem hönnuðu settið okkar,
það er auðvitað stórglæsilegt.
Reyndar hef ég fengið töluvert
af hringingum og fyrirspurnum
í gegnum tíðina um það hvar
sé hægt að kaupa svona sett og
einnig hvort það sé möguleiki
að fá það þegar við hættum að
nota það. Þrátt fyrir það höfum
við ákveðið að nota það áfram af
þeirri einföldu ástæðu að okkur
finnst það rosalega flott.“
Þessir sófar hafa fengist
undanfarið í versluninni Habitat
en nýlega hafa þeir verið teknir
úr sölu vegna þess að hætt er að
framleiða þá. Nýrri
gerð af þessum
sömu sófum
fæst hins
vegar hjá
Habitat og er
verðið á milli
hundrað og
tvö hundruð
þúsund eftir
stærð sófans.
Alveg eins sófar á tveimur sjónvarpsstöðvum
SÓFINN Í SETTINU HJÁ NFS
Strákunum í Sigur Rós hefur aldeilis tekist að koma sér á kortið erlendis
þótt þeir fylgi síður en svo hinum helstu
tískustraumum í tónlist. Þeir héldu eins
og flestir vita tónleika hér á landi þann
27. nóvember og er hægt að horfa á
þá í heild sinni á heimasíðu þeirra.
Nú hefur svo tónlistarsíðan NME tekið
upp á því að bjóða einnig
upp á tónleikana á
síðunni en þeir bjóða
reglulega lesendum
síðunnar að hlusta á
nýjustu og flottustu
tónlistina og skoða
nýjustu og flottustu
tónlistarmyndböndin.
Ekki svo slæmt
fyrir íslensku
álfadrengina
okkar að vera
þar á meðal.
FRÉTTIR AF FÓLKI
Starfsmenn BT á Ísafirði sýndu mikinn rausnarskap fyrir helgi þegar þeir
mættu með fullt fang af gjöfum
á sjúkrahús bæjarins í
tilefni af eins árs afmælis
verslunarinnar. Svo
óheppilega vildi hins vegar
til að á vef sjúkrahússins
kom fram að
gjafirnar miðuðu
„fyrst og fremst
að því að stytta
yngri sjúklingum
lífið“. Kunni spítalinn
versluninni miklar
þakkir þar sem gjafirnar
ættu sjálfsagt eftir að „gleðja marga
sem hefðu annars átt langa daga á
legudeildinni“.
Við nánari athugun kom í ljós að hér var vissulega ekki um að
ræða nýstárlega útrýmingu biðlista að
ræða af hálfu BT heldur var algengum
orðatiltækjum blandað saman með
svo óheppilegum afleiðingum. BT vildi
auðvitað stytta sjúklingum stundir og
létta þeim lífið og gaf sjúkrahúsinu því
sjónvarp með DVD-spilara, Playstation
tölvu og þrettán tölvuleiki og myndir
ætlaðar yngsta fólkinu.
Mörgum Íslendingum
finnst jólakveðjur Rásar 1
á Þorláksmessu vera jafn
ómissandi hlutur af jólahaldinu
og kæsta skatan eða jólagangan
niður Laugaveginn. Það er ekki
síður rödd þulanna sem ómar í
viðtækjum landsmanna þennan
dag en kveðjurnar sjálfar sem
ylja. Tveir þulir sem hvað lengst
hafa lesið jólakveðjurnar, Gerður
G. Bjarklind og Ragnheiður Ásta
Pétursdóttir, hafa valið jólalög
á disk fyrir þessi jól. „Ramminn
utan um þetta eru gömlu jólalögin
sem ekki eru til á geisladiskum
en inni á milli eru nýlegri lög,“
segir Gerður, en hún hefur lesið
jólakveðjurnar í þrjátíu ár en
stalla hennar Ragnheiður hefur
þó vinninginn þar sem hún hefur
flutt kveðjur landsmanna í rúm
fjörutíu ár.
Gerður segir að Þorláksmessa
sé ákaflega sérstakur dagur
hjá þulunum fjórum sem lesi
kveðjurnar og þeir reyni að gera
sér glaðan dag þótt fyrir höndum
sé langur og strangur dagur. Þau
byrji hann á því að borða saman
en svo sé ekki seinna vænna en
að hefja störf. „Þetta er mikið
þolinmæðisverk,“ segir Gerður en
bætir við að hún sjái ekki mikið
eftir þeim tíma sem hún hefuri
eytt í þetta.
Gerður hefur ekki tölu á hvað
kveðjurnar sem hún hefur flutt
eru orðnar margar en það sem
kemur henni mest á óvart er að
ekkert lát virðist vera á vinsældum
þeirra. „Ég hefði haldið að með
nútímatækni á borð við vefpóst
væru dagar þeirra taldir en fyrir
tveimur árum höfðu okkur aldrei
borist jafnmargar,“ segir Gerður
en þá voru þau að lesa kveðjur
til klukkan hálf þrjú um nóttina.
Í fyrra var því brugðið á það ráð
að taka út allar viðskiptatengdar
kveðjur. „Það bragð heppnaðist
mjög vel og við komumst heim
á miðnætti,“ segir Gerður og
hlær. Hún hefur sínar skýringar
á vinsældunum. „Fólk vill halda
í hefðina og hafa jólin eins og
þau voru í æsku,“ segir Gerður,
og bætir við að eflaust snerti
kveðjurnar einnig einhverjar
taugar og það ylji landanum um
hjartaræturnar að heyra kveðjur
frá öfum og ömmum um land allt.
Gerður hafði ekki gert ráð fyrir
því að lesa jólakveðjurnar í ár þar
sem hún er hætt sem þulur hjá Rás
1 og stjórnar eingöngu þættinum
Óskastundinni í útvarpinu. „Það
kom bláókunnug kona að máli við
mig fyrir nokkru og sagðist hafa
tekið upp jólakveðjurnar frá því
í fyrra. Ég gat glatt hana með
því að ég ætlaði að lesa þær í ár
og hún sagðist því ætla geyma
upptökurnar fram á næsta ár,“
segir hún og hlær.
GERÐUR G. OG RAGNHEIÐUR ÁSTA: VELJA JÓLALÖG Á GEISLADISK
Jólakveðjurnar ylja landanum
um hjartaræturnar
GERÐUR OG RAGNHEIÐUR ÁSTA Mörgum finnst jólin fyrst vera að nálgast þegar þulirnir á
Rás 1 lesa jólakveðjur landsmanna.
FRÉTTIR AF FÓLKI
Myndlistarmaðurinn Daníel Björnsson opnaði fyrstu
einkasýningu sýna með pompi og
pragt í Gallerí Banananas á Laugavegi
80 í gær. Galleríið þykir eitt það
framsæknasta í borginni í dag og fólk
var spennt að sjá sýningu Daníels
sem er einn forsprakki gallerís Kling
og Bang á Laugaveginum og rak
líka listamiðstöðina Klink og Bank á
meðan hún lifði. Sýningin, sem er titluð
Inngarður, vakti góðar undirtektir enda
um mikið ljósasjóv og gosbrunna að
ræða. Það sem kom enn meira á óvart
var nærvera bandarísku goðsagnarinnar
Bob Log sem spilaði fyrir sýningargesti,
en hann var einmitt staddur á Íslandi
um helgina. Bob Log er dularfullur
einstaklingur sem spilar á trommur með
fótunum, glamrar á gítar og vískíglös
með höndunum og syngur í gegnum
flugmannahjálm á höfðinu á sér.
Kjaftasögur ganga um heim allan að
þetta sé í raun og veru söngvarinn Tom
Waits í dulargervi eða einn meðlima
hljómsveitarinnar The Strokes. Það
er spurning hvort íslendingar hafi
orðið nokkru nær eftir hljómleikana á
Banananas og svo á Grand Rokki þar
sem hann spilaði síðar um kvöldið
ásamt pönkhljómsveitinni Rass. Augljóst
var þó að þessi einstaki tónlistarmaður
hefur eignast fjölda aðdáenda á Íslandi
eftir snilldartilþrifin í gær.
Daníel Björnsson, myndlistarmaður, einn
forsvarsmanna Klink og Bank.
Bob Log III
19. 06. 1972