Fréttablaðið - 04.12.2005, Side 75
SUNNUDAGUR 4. desember 2005 47
góða skemmtun!
JÓLASKRAUT
Frábær ný jólaplata þar sem Jónsi, Birgitta, Nylon,
Sveppi, Heiða og Friðrik Ómar fara á kostum.
Jólaskraut fyrir unga sem aldna!
Jól alla daga · Jónsi
Snjókorn falla · Sveppi
Aðfangadagskvöld · Heiða
Heima um jólin · Birgitta
Allt það sem ég óska · Friðrik Ómar
Hátíðarskap · Nylon
Rokkað út jólin · Sveppi
Gleðileg jól (allir saman) · Jónsi
Minn eini jólasveinn · Heiða
Ég verð heima um jólin · Friðrik Ómar
KOMIN Í VERSLANIR
FÓTBOLTI Ruud van Nistelrooy,
framherji Manchester United,
segist ekki bitur út í stjóra sinn
Alex Ferguson fyrir að taka Gary
Neville fram yfir hann sjálfan
þegar hann valdi nýjan fyrirliða
liðsins. Nistelrooy hafði borið
fyrirliðabandið í síðustu leikjum
í fjarveru Roys Keane og töldu
margir að hann myndi fá að bera
það áfram.
„Ég er mjög stoltur yfir því að
hafa fengið að leiða liðið á erfiðum
tíma. Ég naut þess og hefði viljað
halda því áfram en ég virði
ákvörðun knattspyrnustjórans.
Ég tel að Gary sé hinn fullkomni
fyrirliði fyrir Man. Utd,“ sagði
Nistelrooy í gær.
Ferguson segir að það hafi
verið hin mikla tryggð Nevilles
við félagið sem hafi gert útslagið í
ákvörðuninni. „Það var ekki hægt
að líta framhjá henni. Hann hefur
lagt sig allan fram fyrir Man. Utd
allan sinn feril.“ - vig
Gary Neville fyrirliði Man. Utd:
Nistelrooy er
ekki sár
FÉLAGAR Það er enginn biturleiki í
herbúðum Man. Utd.
FÓTBOLTI Miðjumaðurinn Roy
Keane mun ákveða innan sjö
daga til hvaða liðs hann ætlar að
fara eftir óvænt brotthvarf hans
frá Manchester United í síðasta
mánuði, að sögn umboðsmanns
hans. Yfir 50 lið hafa áhuga á
því að fá Keane í sínar raðir en
Celtic í Skotlandi er ennþá talinn
líklegasti áfangastaður hans þó að
Real Madrid sé nýjasta liðið til að
sýna honum áhuga.
„Hann hefur rætt við fjölda
félaga en á enn eftir að ræða við
1-2 félög áður en hann ákveður
sig,“ segir umboðsmaðurinn
Michael Kennedy. Alex Ferguson,
stjóri Man. Utd, virðist vera vel
meðvitaður um stöðu Keanes og
segist hann telja að Keane fari til
stórliðs Real Madrid. „Það hefur
verið rætt um að hann fari þangað
í lán í fjóra mánuði, frá janúar
til maí. Það er góður möguleiki á
því,“ sagði Ferguson í gær.
Roy Keane og nýja liðið:
Ákvörðun eftir
sjö daga
ROY KEANE Er hugsanlega á leið til Real
Madrid.
FÓTBOLTI Jose Mourinho,
knattspyrnustjóri Chelsea, segist
ekki kippa sér upp við þær fréttir
sem bárust í fyrradag af því að
John Terry hefði sést ásamt Eiði
Smára Guðjohnsen hjá þekktum
veðmangara í London. Fullyrt er
að Terry veðji fyrir tæpar 100
þúsund krónur á viku en hann
hefur áður viðurkennt að eiga við
spilafíkn að stríða. En Mourinho
segir Terry ekkert öðruvísi en
aðra , veðmál séu einfaldlega hluti
af menningunni í Englandi.
„Ég er mjög hissa á því að
fjölmiðlar skuli blása þetta upp.
Af hverju? Jú, því að í hverri götu
sem ég geng verð ég var við þrjár
veðmangarastofur að minnsta
kosti. Svona er þetta bara í þessu
landi og veðmál er það sem þið
elskið,“ segir Mourinho og bætir
því við að það væri öðruvísi
menning í Portúgal.
„Ég hef áhyggjur ef
portúgalskur leikmaður er að
stunda veðmál. Þar í landi er
menningin á þann veg að það má
ekki eyða einni einustu krónu í
veðmál,“ segir Mourinho.
„Mér finnst fullkomlega
eðlilegt að Terry veðji. 1000 pund
fyrir John Terry er líklega eins
og 20 pund fyrir þig. Sú upphæð
ætti ekki að raska fjárhag
meðalfjölskyldu,“ sagði Mourinho
að lokum.
- vig
Jose Mourinho um veðmál Johns Terry:
Veðmangarar eru alls staðar
STJÓRINN OG FYRIRLIÐINN Eru mestu mátar.
FÓTBOLTI Jose Mourinho,
knattspyrnustjóri Chelsea, segist
ekki ætla að fá neinn nýjan
leikmann til síns liðs þegar
leikmannaglugginn opnast í
janúar. Mourinho kveðst ekki
einu sinni hafa leitt hugann að
nýjum leikmönnum, svo öflugur
sé sá hópur sem hann hafi yfir að
ráða nú um stundir.
„Ég hugsa ekkert um þetta
og hef engan áhuga á nýjum
leikmönnum. Í augnablikinu
er ég aðeins að einbeita mér að
þeim mönnum sem hef í liðinu á
þessari stundu,“ segir Mourinho,
en tveir leikmanna hans eru á leið
á Afríkumótið í janúar. - vig
Jose Mourinho:
Engin kaup í
janúar
FÓTBOLTI Spútniklið Doncaster
Rovers datt í lukkupottinn
þegar dregið var í 8-liða úrslit
enska deildarbikarsins í gær en
liðið mun þar mæta Arsenal á
heimavelli. Doncaster hefur þegar
slegið Man. City og Aston Villa út
úr bikarnum en Arsenal hefur
líklega spilað liða best í keppninni
það sem af er.
Í öðrum leikjum mun Bolton
mæta Wigan, Man. Utd heimsækir
Birmingham og Middlesbrough
tekur á móti Blackburn. - vig
Lið Doncaster heppið:
Mætir Arsenal