Fréttablaðið - 04.12.2005, Blaðsíða 27
ER ÞÍN ATVINNUAUGLÝSING HÉR? MEST LESNA ATVINNUBLAÐ LANDSINS
��������������
�������
������������������
�������������
��������
������
�����������������
��� ����
�������������������
�������
�������
�������������
��������������
��������������
���������������
��������������
� ��������
Góðan dag
Í dag er sunnudagurinn 4. desember
338. dagur ársins 2005
Umsóknir um styrki í styrktar-
og sjúkrasjóði BHM sem
bundnir eru við almanaksárið
2005, verða að hafa borist
skrifstofu BHM eða verið
póstlagðar þann 9. desember
næstkomandi. Umsóknir sem
berast síðar verða afgreiddar í
janúar 2006 og munu tilheyra
almanaksárinu 2006. Ekki
verður um undanþágur að
ræða frá þessu. Þetta
er fyrst og fremst
mikilvægt vegna
líkamsræktarstyrkja,
meðferðarstyrkja
og tannvið-
gerðarstyrkja.
Feður í
fæðingarorlofi taka
aðeins fjóra daga umfram
sjálfstæðan rétt samkvæmt
nýrri töflu í Staðtölum
Tryggingastofnunnar fyrir árið
2004. Feður barna sem fæddust
á árinu 2004 taka að jafnaði
aðeins fjóra daga í fæðingarorlof
umfram þriggja mánaða
sjálfstæðan rétt sinn. Það merkir
að mæður taka yfirleitt allan
sameiginlega tímann eða sex
mánuði.
Verslunarmannafélag
Reykjavíkur hefur ákveðið
senda ekki út jólakort í ár
og lætur í staðinn FAAS,
Félags aðstandenda
alzheimerssjúkra
og annarra
minnissjúkra
njóta góðs af.
Á heimasíðu
þeirra alzheimer.
is er að finna
upplýsingar
um margþætta
starfsemi félagsins en félagið
stendur meðal annars fyrir
öflugri fræðslu um alzheimer
sjúkdóminn og aðstæður þeirra
sem við hann búa.
LIGGUR Í LOFTINU
[ ATVINNA ]
Sóley Halla Möller er hundasnyrtir og
vinnur við að snyrta hunda í Dýrabæ.
Hún segir að það sé mjög mikið að gera
fyrir jólin.
Sóley hefur verið hundasnyrtir í tíu ár en hún
fór á sex vikna námskeið í Bretlandi til þess að
öðlast réttindi. Hún átti sjálf risa púðulhund á
þeim tíma og hann þurfti að snyrta reglulega
og það vakti áhuga hennar á því að leggja
starfið fyrir sig. „Það verður hins vegar
enginn útlærður hundasnyrtir eftir sex vikna
námskeið því þetta er eilífðarnám,“ segir
Sóley. Hún segir að til þess að verða góður
hundasnyrtir þurfi fólk að vera duglegt að æfa
sig og vera vakandi fyrir tískunni. „Það eru
ákveðnir tískustraumar í hundasnyrtingu eins
og öðru og svo eru alltaf að koma ný tól og tæki
og það þarf að fylgjast með því líka.“
Sóley segir að það séu mismunandi klippingar
fyrir hverja hundategund og hundasnyrtar
fylgi þeim yfirleitt nema eigendurnir séu með
einhverjar sérstakar óskir. „Sumir vilja kannski
að hundarnir séu klipptir styttra en hefðbundið
er og þá gerir maður það bara.“ Hún segir að
það sé líka misjafnt eftir tegundum hversu oft
þurfi að láta snyrta hundana. „Flestir koma
með hundana sína fyrir jólin og það er brjálað
að gera núna og margir löngu búnir að panta
tíma.“
Sóley segir að nánast undantekningarlaust
séu hundarnir prúðir og stilltir og þær séu
mjög þolinmóðar við þá í Dýrabæ. „Það er
ekki hægt að vinna við þetta nema hafa gott
skap og fólk sem hefur ekki stjórn á skapi sínu
á ekki að vinna með dýr.“ Hún segir að starfið
sé mjög gefandi og það sé gaman að sjá hunda
sem koma skítugir inn, fara snyrtilega og vel
lyktandi út. „Það er bara yndislegt að fá að
vinna með dýrum fyrir þá sem hafa þolinmæði
í það,“ segir Sóley. emilia@frettabladid.is
Jólaklipping í Dýrabæ
Margs konar aðstoð hjá Vinnumiðlun ungs fólks bls. 2
Rapparinn Bent farinn að vinna í plötubúð bls. 8
Sóley Halla Möller og Kristján Henrý Richter sonur hennar með pomeranian-tíkinni Lukku.FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík 10.53 13.18 15.42
Akureyri 11.03 13.03 15.02
Heimild: Almanak Háskólans
Samband íslenskra sparisjóða vantar hagfræðing,
viðskiptafræðing eða verkfræðing í nýtt starf.
Ítarlegar upplýsingar og umsóknir á www.job.is
FJÖLBREYTT OG
SPENNANDI STARF HJÁ
SAMBANDI ÍSLENSKRA
SPARISJÓÐA
AUGL†SINGASÍMI
550 5000