Fréttablaðið - 04.12.2005, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 04.12.2005, Blaðsíða 2
2 4. desember 2005 SUNNUDAGUR Yfirgripsmesta verk sem út hefur komið um íslenska málnotkun. ������������������������������������� �������������������������������������������� ORÐABÓK FRAMTÍÐARINNAR Bókin er yfir 1600 bls. í stóru broti. ���������� ������������ ���������� ������������������ BAUGSMÁL Stjórnmálamenn eru áberandi flestir af þeim sem tjá sig um Baugsmálið í umræðuþátt- um ljósvakamiðlanna, eða 35 prósent. Þeim næstir eru einstakl- ingar tengdir starfi við fjölmiðla, en þeir koma fram í 22 prósent- um umræðuþátta. Þetta er meðal þess sem fram kemur í skýrslunni Baugsmálið í fjölmiðlum, sem Fjölmiðlavaktin ehf. gaf út í byrj- un vikunnar. Björn Bjarnason dómsmála- ráðherra er meðal þeirra sem oftast tjá sig um málið í fréttum. Hann skipar sér þar í hóp með ein- staklingum sem annaðhvort eru málsaðilar eða vinna við málflutn- inginn. Björn kemur þarna fast á hæla Gests Jónssonar lögmanns, Jóns H. B. Snorrasonar saksóknara og Jóns Ásgeirs Jóhann- essonar, framkvæmdastjóra Baugs. Samhliða þessari greiningu lét Fjölmiðlavaktin IMG Gallup gera símakönnun þar sem spurt var hvað hafi haft mest áhrif á skoðanir fólks á Baugsmálinu. Þar kemur í ljós að tæp 17 pró- sent almennings mótuðu skoðanir sínar út frá eigin stjórnmála- skoðunum. Skoðuð var öll fjölmiðla- umfjöllun um Baugsmálið á tíma- bilinu 10. ágúst til 18. október. Skoðaðar voru fréttir, aðsendar greinar, umræðuþættir og hvert það sem fallið gat u n d i r hið svokallaða B a u g s m á l , hvort sem um var að ræða lög- reglurannsókn, birtingu ákæra eða aðkomu stjórnmála- og fjöl- miðlafólks. „Það er athyglisvert í þessari greiningu að þegar kemur að prent- miðlum þá er hlutfallslega mun meira af aðsendu efni og skoðun- um en við eigum að venjast í greiningum á umfjöllun um til dæmis fjármála- markað eða önnur við- fangsefni,“ segir Magnús Heimisson, sérfræðingur hjá Fjölmiðlavaktinni. Hann bendir á að fréttir og fréttaskýringar hafi verið 58 prósent af blaðaefni um Baugsmálið, annað efni hafi verið 42 prósent. „Við eigum því að ven- jast að önnur umfjöllun en fréttir sé einungis um fimmtungur,“ segir Magnús. saj@frettabladid.is Stjórnmálamenn tjá sig oftast um Baug Björn Bjarnason dómsmálaráðherra hefur tjáð sig nánast jafn oft um Baugsmálið og málsaðilar sjálfir. Almenningur lætur skoðanir sínar á málinu mótast af stjórnmálaskoðunum. Svo segir í skýrslu frá Fjölmiðlavaktinni ehf. BJÖRN BJARNASON DÓMSMÁLARÁÐHERRA Björn er einn þeirra sem oftast hafa tjáð sig um málefni Baugs samkvæmt skýrslunni. MAGNÚS HEIMISSON SÉRFRÆÐINGUR Magnús segir athyglisvert hve mikil umfjöllun er um Baugsmálið, önnur en fréttir. ������ ��������� ���� ������ ��������� �� ���������� ������ �� ������������������������������ ������������������������������ ���� ������ ������ ������ ����� ����������������������������� �������� ���� ��������� ������� ��� ������� ��� ������� ������ ���� ���� ����� �������� �������� ��� ���������������������� ����� ������������������������������ ��� ��� ������ ����������� ������ ������� �������������� ��� ���� ���������������������������������� �������� ��� ���������� ���� ���� ��������������������������������� ������������������������������ �� ����� ��������� ����������� ����� ������ �������������� ����� ������������������ ����� ���� �������� ��������� VERJENDUR Í BAUGSMÁLINU Gestur Jónsson verjandi Jóns Ásgeirs í Baugsmálinu hefur næstoftast tjáð sig um málið í fjölmiðlum á eftir Birni Bjarnasyni. Bíll valt undir Hafnarfjalli Bíll fór þrjár veltur undir Hafnarfjalli um hádegisbil í gær. Ökumaður var í belti og slapp því ómeiddur. Lögreglan í Borgarnesi varar við þessum stutta vegarkafla sem er sunnanvert við Mótel Venus hjá Hafnarskógi en þar verður oft hált þótt engin hálka sé sitt hvoru megin við þennan kafla vegarins. Líkamsárás á Laugarvegi Ráðist var á mann við Laugaveg 18 um sex leytið í morgun. Hinn slasaði var sendur með sjúkrabíl á slysadeild illa haldinn og eru tveir menn í haldi vegna þessa. Málið telst alvarlegt og hefur verið sent til rannsóknadeildar en ekki fengust nánari upplýsingar að svo stöddu. LÖGREGLUFRÉTTIR NOREGUR, AP Norska krónprinsessan Mette-Marit fæddi dreng í gær og heilsast bæði móður og barni vel. Prinsinn var 16 merkur við fæð- ingu og er ljóshærður með blá augu. Saman eiga Hákon krónprins og Mette-Marit eitt barn fyrir, Ingiríði Alexöndru. Hún á tilkall til krúnunnar eftir lagabreytingu frá árinu 1990 sem leyfir kvenkyns þjóðhöfðingja. Nýi prinsinn er því þriðji í röðinni til að erfa ríkið á eftir föður sínum og systur. Mette-Marit og Hákon giftust árið 2001 en Mette-Marit á soninn Maríus frá fyrra hjónabandi. Hann á hins vegar ekkert tilkall til krúnunnar. Nýfædda prinsinum hefur enn ekki verið gefið nafn.  Prins er fæddur í Noregi: Ljóshærður og með blá augu PRINS HÁKON Krónprinsinn var hæstánægður þegar hann lýsti nýfæddum syni sínum fyrir blaðamönnum. LÖGREGLAN Hald var lagt á eitt kíló af marijúana á Akureyri aðfararnótt laugardags. Efnin fundust við leit heima hjá manni á þrítugsaldri sem grunaður hefur verið um fíkniefnasölu um nokkurt skeið. Einnig fannst töluvert magn peninga sem taldir eru tilkomnir vegna fíkniefnasölu ásamt þó nokkrum varningi sem talið er að sé þýfi. Málið er á byrjunarstigi en tollgæslan aðstoðaði við aðgerðirnar og lagði til mann og fíkniefnahund. Lögreglan á Akureyri hefur á nokkrum dögum lagt hald á eitt og hálft kíló fíkniefna sem talið er ætlað til sölu í bænum.  Sölumaður dauðans stöðvaður: Með eitt kíló af efni og fé JÓLALJÓS Ljósin verða tendruð á Óslóartrénu á Austurvelli klukkan 15.30 í dag. Frændur okkar í Noregi hafa sent Reykvíkingum stæðilegt jólatré allt frá árinu 1951 og hafa Íslendingar hingað til þyrpst til að fylgjast með ljósadýrðinni. Lúðrasveit Reykjavíkur leikur jólalög og Dómkórinn mun syngja. Enn fremur verða jólasveinar á svæðinu ásamt ýmsum leik- og skemmtiatriðum. Röng dagsetning kom fram í auglýsingu í blaðinu í gær.  Kveikt á Óslóartrénu í dag. Ljósadýrð á Austurvelli JÓLATRÉÐ Á AUSTURVELLI Óslóarbúar hafa gefið Reykvíkingum jólatré í 54 ár. DÓMSMÁL Seafood Union skoðar mögulegan bótarétt eftir að Hæstiréttur hafnaði því að staðfesta lögbann sýslumannsins í Reykjavík á að fjórir af átta fyrrverandi starfsmönnum Ice- land Seafood International (áður SÍF) mættu starfa hjá Seafood Union. SÍF fór í byrjun árs fram á lögbann á að fimm starfsmenn af þeim átta sem stofnuðu Seafood Union mættu starfa þar, en sýslumaður hafnaði einni beiðn- inni. Lögbann sýslumanns varði í sex mánuði eða til júníloka í sumar. Hæstiréttur féllst á að einn af mönnunum fjórum hefði um tíma ekki mátt ráða sig hjá Seafood Union, en sýknaði þrjá. Kröfu Iceland Seafood um að viðurkennt væri að starfsmönn- unum væri óheimilt að nýta sér atvinnuleyndarmál eða trúnaðar- upplýsingar í eigu fyrirtækisins var vísað frá dómi, enda hefði ekki verið tilgreint hvaða leyndarmál eða upplýsingar um væri að ræða og hvort mennirnir hafi haft aðgang að slíkum upplýsingum. Þá var vísað frá Hæstarétti kröfu um að staðfest yrði lögbann á að mennirnir réðu sig til starfa hjá Seafood Union vegna þess að sá tími sem lögbannið náði til var liðinn. Kristinn Bjarnason, lögmaður mannanna og Seafood Union segir ljóst að sá sem fer fram á lögbann sem ekki stenst beri skaðabótaskyldu. Hann vildi ekki tjá sig um mögulegar upphæðir en benti á að bæði hafi mönnum verið meinað að vinna við sérhæfð störf í hálft ár auk þess sem til greina komi miskakrafa vegna álitshnekkis. - óká Lögbanni SÍF á starfsmenn Seafood Union var hafnað í Hæstarétti: Bótakröfur eru í athugun HÖFUÐSTÖÐVAR SÍF Í HAFNARFIRÐI Í mars var skipulagi SÍF breytt með þeim hætti að hluti starfseminnar var færður undir hatt Iceland Seafood International. BJÖRGUNARSTÖRF Björgunarsveitir frá Þórshöfn til Egilsstaða hófu leit um hádegi í gær að tveimur karlmönnum sem saknað var. Mennirnir lögðu af stað akandi frá Þórshöfn á föstudagskvöldið til Egilsstaða, þaðan sem þeir áttu bókað flug. Þegar mennirnir skiluðu sér ekki þótti ástæða til að senda út leitarsveitir. Talið var að þeir hefðu ætlað að fara yfir Hellisheiðina og því voru leitarflokkar sendir þangað. Fljótlega eftir að björgunarsveitir hófu leit komu mennirnir fram heilir á húfi. Það var björgunarsveitin á Vopnafirði sem fann mennina þar sem þeir komu gangandi niður af Hellisheiði, en þeir höfðu fest bílinn. Mennirnir voru ekki komn- ir langt upp á heiðina á föstu- dagskvöldið þegar þeir festu bílinn. Þar sem veður var frekar vont tóku þeir þá ákvörðun að halda kyrru fyrir í bílnum fram á morgun. Þeir lögðu síðan af stað fótgangandi til Vopnafjarðar þar sem björgunarsveitin fann þá laust upp úr hádegi. - eö Menn sem leitað var að komu fram heilir á húfi: Biðu næturlangt í bílnum BJÖRGUNARSVEIT Í ÚTKALLI Tveir starfsmenn Símans héldu kyrru fyrir í bíl sínum yfir nótt en hann sat fastur á Hellisheiði. Þeir gengu af stað í dögun og í flasið á björgunarsveitarmönnum. SPURNING DAGSINS Björk, er stjórnin á réttri leið? „Já, stjórnin er á réttri leið og ætlar að fara allar mögulegar leiðir.“ Björk Vilhelmsdóttir er formaður stjórnar Strætó bs. sem ræðir nú breytingar á nýja leiðakerfinu sem felast meðal annars í því að bæta við þremur nýjum leiðum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.