Fréttablaðið


Fréttablaðið - 04.12.2005, Qupperneq 27

Fréttablaðið - 04.12.2005, Qupperneq 27
ER ÞÍN ATVINNUAUGLÝSING HÉR? MEST LESNA ATVINNUBLAÐ LANDSINS �������������� ������� ������������������ ������������� �������� ������ ����������������� ��� ���� ������������������� ������� ������� ������������� �������������� �������������� ��������������� �������������� � �������� Góðan dag Í dag er sunnudagurinn 4. desember 338. dagur ársins 2005 Umsóknir um styrki í styrktar- og sjúkrasjóði BHM sem bundnir eru við almanaksárið 2005, verða að hafa borist skrifstofu BHM eða verið póstlagðar þann 9. desember næstkomandi. Umsóknir sem berast síðar verða afgreiddar í janúar 2006 og munu tilheyra almanaksárinu 2006. Ekki verður um undanþágur að ræða frá þessu. Þetta er fyrst og fremst mikilvægt vegna líkamsræktarstyrkja, meðferðarstyrkja og tannvið- gerðarstyrkja. Feður í fæðingarorlofi taka aðeins fjóra daga umfram sjálfstæðan rétt samkvæmt nýrri töflu í Staðtölum Tryggingastofnunnar fyrir árið 2004. Feður barna sem fæddust á árinu 2004 taka að jafnaði aðeins fjóra daga í fæðingarorlof umfram þriggja mánaða sjálfstæðan rétt sinn. Það merkir að mæður taka yfirleitt allan sameiginlega tímann eða sex mánuði. Verslunarmannafélag Reykjavíkur hefur ákveðið senda ekki út jólakort í ár og lætur í staðinn FAAS, Félags aðstandenda alzheimerssjúkra og annarra minnissjúkra njóta góðs af. Á heimasíðu þeirra alzheimer. is er að finna upplýsingar um margþætta starfsemi félagsins en félagið stendur meðal annars fyrir öflugri fræðslu um alzheimer sjúkdóminn og aðstæður þeirra sem við hann búa. LIGGUR Í LOFTINU [ ATVINNA ] Sóley Halla Möller er hundasnyrtir og vinnur við að snyrta hunda í Dýrabæ. Hún segir að það sé mjög mikið að gera fyrir jólin. Sóley hefur verið hundasnyrtir í tíu ár en hún fór á sex vikna námskeið í Bretlandi til þess að öðlast réttindi. Hún átti sjálf risa púðulhund á þeim tíma og hann þurfti að snyrta reglulega og það vakti áhuga hennar á því að leggja starfið fyrir sig. „Það verður hins vegar enginn útlærður hundasnyrtir eftir sex vikna námskeið því þetta er eilífðarnám,“ segir Sóley. Hún segir að til þess að verða góður hundasnyrtir þurfi fólk að vera duglegt að æfa sig og vera vakandi fyrir tískunni. „Það eru ákveðnir tískustraumar í hundasnyrtingu eins og öðru og svo eru alltaf að koma ný tól og tæki og það þarf að fylgjast með því líka.“ Sóley segir að það séu mismunandi klippingar fyrir hverja hundategund og hundasnyrtar fylgi þeim yfirleitt nema eigendurnir séu með einhverjar sérstakar óskir. „Sumir vilja kannski að hundarnir séu klipptir styttra en hefðbundið er og þá gerir maður það bara.“ Hún segir að það sé líka misjafnt eftir tegundum hversu oft þurfi að láta snyrta hundana. „Flestir koma með hundana sína fyrir jólin og það er brjálað að gera núna og margir löngu búnir að panta tíma.“ Sóley segir að nánast undantekningarlaust séu hundarnir prúðir og stilltir og þær séu mjög þolinmóðar við þá í Dýrabæ. „Það er ekki hægt að vinna við þetta nema hafa gott skap og fólk sem hefur ekki stjórn á skapi sínu á ekki að vinna með dýr.“ Hún segir að starfið sé mjög gefandi og það sé gaman að sjá hunda sem koma skítugir inn, fara snyrtilega og vel lyktandi út. „Það er bara yndislegt að fá að vinna með dýrum fyrir þá sem hafa þolinmæði í það,“ segir Sóley. emilia@frettabladid.is Jólaklipping í Dýrabæ Margs konar aðstoð hjá Vinnumiðlun ungs fólks bls. 2 Rapparinn Bent farinn að vinna í plötubúð bls. 8 Sóley Halla Möller og Kristján Henrý Richter sonur hennar með pomeranian-tíkinni Lukku.FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík 10.53 13.18 15.42 Akureyri 11.03 13.03 15.02 Heimild: Almanak Háskólans Samband íslenskra sparisjóða vantar hagfræðing, viðskiptafræðing eða verkfræðing í nýtt starf. Ítarlegar upplýsingar og umsóknir á www.job.is FJÖLBREYTT OG SPENNANDI STARF HJÁ SAMBANDI ÍSLENSKRA SPARISJÓÐA AUGL†SINGASÍMI 550 5000
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.