Fréttablaðið - 15.12.2005, Blaðsíða 2
2 15. desember 2005 FIMMTUDAGUR
����������
��������������
��������������������
�������������������������
��������������������������������
���������� �������������
����� ������������� �����������
������������������������
�������
�����������������������
�������������������
Egótónleikum frestað
Tónleikum hljómsveitarinnar Egó, og
annarra hljómsveita og listamanna sem
vísað er til í viðtali við Magnús Stefáns-
son í blaðinu í dag, hefur verið frestað
vegna óviðráðanlegra orsaka. Að sögn
Magnúsar verða þeir hins vegar haldnir í
Austurbæ 21. janúar.
ATHUGASEMD
LÖGREGLUMÁL Maður á fertugsaldri,
sem lögreglan í Reykjavík tók 65
kannabisplöntur hjá á mánudag,
hefur játað að hafa ræktað og átt
plönturnar.
Það var við húsleit hjá mannin-
um sem lögreglan fann plönt urnar.
Skorin höfðu verið niður um 40
grömm af þeim til undirbúnings
fyrir neyslu. Maðurinn hefur ekki
komið við sögu lögreglu fyrr. -jss
Fíkniefnamál upplýst:
Kannabisrækt-
andi játaði
SPURNING DAGSINS
Sigvaldi, ert þú þessi
Gluggagægir?
„Já, já, ég er hann.“
Sigvaldi Snær Kaldalóns hefur þvegið glugga
í 40 ár. Í gær birtist mynd af honum á
forsíðu Fréttablaðsins að gera glugga Lands-
bankans hreina fyrir jólahátíðina.
MATVÖRUMARKAÐUR Íslendingar og
Norðmenn eiga eitt sameiginlegt,
hátt matvöruverð. Verð á matvör-
um í verslunum á Íslandi er 42 pró-
sentum hærra á Íslandi og 38 pró-
sentum hærra í Noregi en í löndum
Evrópusambandsins. Helsta ástæð-
an er talin samkeppnishöft í inn-
flutningi á búvörum.
Árið 2003 greiddu neytendur á
Norðurlöndunum 12-42 prósent-
um hærra meðalverð fyrir mat-
og drykkjarvörur en neytendur í
15 löndum Evrópusambandsins.
Lægst var verðið í Grikklandi.
Verð á mat og drykkjarvörum
hefur hækkað meira á Íslandi en á
hinum norðurlöndunum, eða um 14
prósent, 1999-2005.
Þetta kemur fram í norrænni
matvöruskýrslu sem Samkeppnis-
eftirlitið kynnti í gær. Í henni segir
að neytendur á Norðurlöndunum
hafi úr færri vörutegundum að
velja í stórmörkuðum en neytendur
í Frakklandi. Minnst sé vöruvalið á
Íslandi og í Noregi.
Mikil samþjöppun hefur átt
sér stað í smásöluverslun á norð-
urlöndum og er Ísland þar engin
undantekning, ekki síst ef litið
er til markaðshlutdeildar þriggja
stærstu verslanakeðjanna. Þá
kemur í ljós að meiri samþjöppun
hefur átt sér stað á Norðurlöndum
en í Þýskalandi og Bretlandi.
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri
Samkeppniseftirlitsins, segir að
kraftar samkeppninnar vinni ekki
nógu vel neytendum í hag og vill til
dæmis minnka samkeppnishöml-
ur í innflutningi. Hann vill leggja
áherslu á eftirlit með samkeppnis-
háttum á matvörumarkaði og mun
á næstu vikum og mánuðum eiga
viðræður við stjórnvöld og hags-
munaaðila um hvað sé tilráða og
hvernig eigi að forgangsraða verk-
efnum.
Auka þurfi aðgang birgja að
hilluplássi þannig að vöruval auk-
ist og skipuleggja aðgang verslana
að húsnæði og byggingarlóðum
með tilliti til samkeppni. Fara þurfi
yfir alla frekari samruna á þessum
markaði og skoða hvort hugsanleg-
ar samkeppnishindranir tengist
aukinni samþjöppun og fákeppni.
Ásta Möller alþingismaður
segir að 42 prósent séu geysimik-
ill verðmunur og telur sjálfsagt
að skoða innflutningshömlur á
landbúnaðarvörum. „Ég held samt
að Íslendingar séu tilbúnir til að
greiða hærra verð fyrir innlendar
vörur. Ég held að það séu töluverð-
ir möguleikar á hagræðingu í land-
búnaði þannig að það getur verið
gott að fá samkeppni utan frá. Það
kemur mér á óvart að samþjöppun
sé svipuð hér og á öðrum Norður-
löndum,“ segir Ásta Möller, alþing-
ismaður. ghs@frettabladid.is
sjá nánar bls. 14 í aukablaði
Fréttablaðsins í dag
Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra
kveðst ekki vita hvort sanngjarnt sé að
stjórnvöld skoði einhliða innflutnings-
hömlur á búvörum fyrir utan þá vinnu
sem fer fram í Hong Kong þessa dag-
ana. Hann telur að innflutningshöml-
urnar séu ekki eina ástæðan fyrir háu
matvælaverði hér. Vöruverð hækki í
hafi.
„Íslenskur landbúnaður er íslenskri
þjóð mikilvægur. Það er sjálfstæðri
þjóð mikilvægt að brauðfæða sig.
Landbúnaðurinn hefur staðið sig vel
og íslenskir neytendur eru sáttir. Ég
held þeir vilji ekki rústa landbúnaðin-
um. Þeir vilja gefa honum tíma til að
mæta þeirri þróun sem verið hefur,“
segir hann.
Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra:
Þjóðinni mikilvægt að brauðfæða sig
Sigurður Arnar Sigurðsson, forstjóri
Kaupáss, fagnar skýrslunni um mat-
vörumarkaðinn á Norðurlöndum og
er sammála því að innflutningshöft á
búvörum skýri að langstærstum hluta
verðmuninn hér á landi og innan Evr-
ópusambandsins. Verð myndi lækka
verulega yrðu þau afnumin. Hann telur
mikið verk bíða samkeppnisyfirvalda á
þessu sviði.
„Stærsta verslanakeðjan á smásölu-
markaði er með 43 prósenta markaðs-
hlutdeild. Ég held að það sé eðlilegt að
samkeppnisyfirvöld skoði hvort mark-
aðsráðandi aðili hafi svo stóra sneið
af kökunni. Ég tel að það hafi áhrif á
markaðinn að einn aðili hafi svo mikla
yfirburðastöðu,“ segir hann.
Jóhannes Jónsson í Bónus telur að
vöruverð á Íslandi myndi snarlækka
og þá sérstaklega verð á landbún-
aðarvörum ef innflutningshömlur á
búvörum yrðu afnumdar. Verðið yrði
aldrei það sama og gerist innan ESB
en kannski ekki nema 15 prósentum
hærra en þar.
„Verðmunurinn getur aldrei þurrk-
ast út því að við erum í þeirri fjarlægð
frá framleiðslulöndunum en það yrði
veruleg lækkun á þessum vörum. Við
höfum margoft lýst því yfir að vöru-
verð í landbúnaðarvöruflokkunum
myndi snarlækka ef það skapaðist
samkeppni,“ segir hann.
Jóhannes í Bónus og Sigurður Arnar forstjóri Kaupáss:
Afnám hafta lækkar vöruverð
Matvörur dýrastar á Íslandi
Verð á matvörum í verslunum á Íslandi er 42 prósentum hærra en í löndum Evrópusambandsins. Páll
Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, segir að þetta sé vísbending um að kraftar samkeppninn-
ar vinni ekki nógu vel neytendum í hag og vill beina kastljósinu að aukinni samkeppni.
47%
40%
24%
21%
14%15%
8% 8%
10%13%
������ ��������� ���� ������
��������� �� ���������� ������ ��
������������������������������
������������������������������
���� ������ ������ ������ �����
�����������������������������
�������� ���� ��������� �������
��� ������� ��� ������� ������ ����
���� ����� �������� �������� ���
���������������������� �����
������������������������������
��� ��� ������ ����������� ������
������� �������������� ��� ����
����������������������������������
�������� ��� ���������� ���� ����
���������������������������������
������������������������������
�� ����� ��������� �����������
����� ������ �������������� �����
������������������ ����� ����
��������
���������
SAMÞJÖPPUN Í SMÁSÖLUVERSLUN 2002-2003
ÞÝSKALAND
58%
25%
SVÍÞJÓÐ
93%
45%
79%
ÍSLAND
43%
NOREGUR
83%
35%36%
FINNLAND
80%
38%
DANMÖRK
90%
59%
28%
BRETLAND
Markaðshlutdeild
stærsta aðilans
Markaðshlutdeild þriggja
stærstu aðilanna
Eins og sjá má hefur stærsta verslanakeðjan töluvert stærri mark-
aðshlutdeild á Íslandi en í hinum löndunum. Staðan er þó svipuð
hér og á hinum Norðurlöndunum þegar litið er á þrjár þær stærstu.
HAGAR
SAMKAUP
AÐRAR VERSLANIR OG KEÐJUR
KAUPÁS
AÐRAR MINNI
‘00 ‘01 ‘02 ‘03 ‘04
ÞRÓUN Á MARKAÐSHLUTDEILD
Efling samþykkti kjarasamning
Mikill meirihluti félagsmanna Eflingar
samþykkti samning stéttarfélagsins við
Reykjavíkurborg. Á kjörskrá voru 1.922
félagsmenn og greiddu 694 atkvæði.
Alls sögðu 659 manns já eða um 95%
og 35 sögðu nei eða um 5%.
KJARAMÁL
KJARAMÁL Stór hluti leikskólakenn-
ara Reykjavík mun segja upp störf-
um taki Launanefnd sveitarfélaga
ekki kjarasamning leikskólakenn-
ara strax til endurskoðunar. Þetta
segir Guðrún Jóna Thorarensen
leikskólakennari sem flutti erindi
á fundi Reykjavíkurdeildar Félags
leikskólakennara á Grand hóteli í
gærkvöldi.
Í kjölfar fundarins sendi stjórn
félagsins frá sér harðorða álykt-
un þar sem meðal annars segir:
„Fundurinn skorar á Launanefnd
sveitarfélaga að taka strax til
endurskoðunar kjarasamning
leikskólakennara. Ella blasir við
að leikskólakennarar í Reykjavík
grípi til örþrifaráða og segi upp
störfum.“
Í ályktuninni
segjast leikskóla-
kennarar fagna
k j a r a b ó t u m
réttindalausra
s t a r f s m a n n a
leikskóla en segj-
ast jafnframt
ekki munu líða
að vera lægra
launaðir en þeir.
„Ályktunin var
lesin upp og það stóðu allir upp og
klöppuðu fyrir þessu,“ segir Guð-
rún Jóna. Hún segist jafnframt
geta séð fyrir sér að verði ekk-
ert gert í málunum á allra næstu
dögum geti komið til fjöldaupp-
sagna fyrir áramót.
Björg Bjarnadóttir, formaður
Félags leikskólakennara, tekur í
sama streng. „Uppsagnir eru auð-
vitað eitthvað sem hver verður að
gera upp við sig en mér heyrist á
fólki að það muni ekki líða þenn-
an launamun. Það eru nokkuð
skýr skilaboð sem við fáum frá
félagsmönnum og þeir hafa ófáir
látið í sér heyra,“ segir Björg og
bætir við að hún voni innilega að
ekki þurfi að grípa til örþrifaráða
á borð við fjöldauppsagnir og að
farsælli lausn finnist á málinu.
- sh
Leikskólakennarar í Reykjavík krefjast kjaraviðræðna strax:
Hóta fjöldauppsögnum
BJÖRG
BJARNADÓTTIR
LÖGREGLA Lögreglan í Reykjavík
óskar eftir upplýsingum um ferðir
Einars Haraldssonar, 18 ára pilts.
Síðast var vitað um ferðir hans við
Laugarásbíó klukkan hálf eitt á
þriðjudagskvöld. Einar er um 180
sentímetrar á hæð, ljósskolhærð-
ur með millistutt hár, þrekvaxinn
um 85 kg, og gráeygður.
Að sögn lögreglu leikur grunur á
að Einar hafi farið í átt að Öskjuhlíð
en þar stóð yfir víðtæk leit í gær-
kvöldi og hafði þá staðið frá því um
miðjan dag í gær. Við leitina naut
lögregla aðstoðar liðmanna Slysa-
varnafélagsins Landsbjargar.
Þeir sem geta gefið upplýsing-
ar um ferðir Einars eru beðnir
að snúa sér til lögreglu í síma
444-1100. - óká
Lögregla lýsir eftir pilti:
Leit í Öskjuhlíð