Fréttablaðið - 15.12.2005, Blaðsíða 62
15. desember 2005 FIMMTUDAGUR38
Ólafur Ragnar Grímsson á skilið
mikið þakklæti þjóðar sinnar fyrir
að hafa stöðvað fjölmiðlafrum-
varpið á síðasta ári.
Þetta segi ég ekki vegna þess
að það frumvarp hefði líklega
komið illa því fyrirtæki sem rekur
núna þessa sjónvarpsstöð og ég
hef unnið fyrir allar götur síðan
fjölmiðlafrumvarpið var á döf-
inni. Ég vona að enginn ætli mér
þá skammsýni að taka afstöðu
til mála á grundvelli þess – enda
ætti ég vonandi ekki í vandræðum
með að finna mér vinnu þótt þetta
fyrirtæki væri ekki til.
Nei – það sem var þakkarvert
við að Ólafur Ragnar stöðvaði
fjölmiðlafrumvarpið var að með
því kenndi hann nauðsynlega
lexíu stjórnvaldi sem orðið var
blint, firrt og grimmt. Stjórn-
valdi sem taldi að ríkið, það væri
fámenn valdaklíka sem gæti og
ætti að ráðskast með alla hluti í
samfélagi okkar eftir sínum eigin
kenjum, fordómum og hagsmun-
um. Hann kenndi lexíu stjórn-
valdi sem orðið var gegnsýrt
af valdníðslu og valdhroka – og
fyrir þá lexíu eigum við að vera
Ólafi Ragnari Grímssyni þakklát,
hvaða skoðun sem við kunnum að
hafa á einstökum fjölmiðlum eða
fjölmiðlakóngum.
Með því að neita að skrifa undir
fjölmiðlafrumvarpið gerði Ólafur
Ragnar þjóðinni mikið gagn – ef
það hefði gengið í gegn, þá hefði
valdaklíkan litið svo á að henni
væri bókstaflega allt leyfilegt,
heimilt og gerlegt. En í staðinn er
nú svolítið farið að létta til eftir
grimmþoku valdaklíkunnar.
En þá bregður svo við að Ólafur
Ragnar Grímsson, þessi forseti
sem í fyrra var bandamaður þjóð-
arinnar, hann virðist nú sjálfur
genginn í einhver einkennileg
björg og ráfa þar um í villu og
svíma án tengsla við þjóð sína.
Hinir nýju auðmenn
Því hvað á að kalla þá furðulegu
uppákomu sem hér átti sér stað í
síðustu viku þegar Sinfóníuhljóm-
sveit Íslands hélt lokaða tónleika
með einhverjum frægum og vafa-
laust frábærum velskum söngv-
ara og enginn fékk að mæta nema
sérstakir boðsgestir hljómsveit-
arinnar sjálfrar og svo KB banka
sem kostaði uppátækið í einhverju
dularfullu samkrulli við ... já,
embætti forseta Íslands.
Forsetinn bauð sínum eigin
gestum á þessa fínu tónleika og
allir áttu að mæta í sínu fínasta
skarti og svo var haldið eitthvað
fínt partí á eftir – dinner eða eitt-
hvað – og forsetaembættið útveg-
aði sérstakan heiðursgest, sem var
einhver barónessa frá Bretlandi,
talsmaður bresku ríkisstjórnar-
innar í lávarðadeildinni.
Nú er það svo að ég hef hneigst
til að sýna hinum nýju auðmönnum
Íslands ákveðið umburðarlyndi.
Þó þeir séu stundum hallæris-
legir í sínum nýríka flottræfils-
hætti, þá hefur það ekkert káfað
svo mjög upp á mig. Bæði vegna
þess að ég fæ í allri einlægni ekki
séð að þessir nýríku kappar allir
stundi verulegt arðrán – þvert á
móti verður því ekkert móti mælt
að ýmsir þeirra virðast hreinlega
hinir gagnlegustu menn. Og því er
mér svosem alveg sama þótt þeir
séu stundum dálítið eins og fílar í
postulínssjoppu með alla pening-
ana sína. Og það er altént fáránleg
bábilja þegar sumir eru að fárast
út í hina nýju auðmenn og tala
þá eins og hinir fyrri auðmenn
okkar Íslendinga hafi á einhvern
hátt verið miklu kúltíveraðri og
dannaðri og „betri“ auðkýfingar
heldur en þessir nýju, sem séu svo
dónalegir.
Eini munurinn er í hæsta lagi
sá að ríku kallarnir núna eru lík-
lega miklu ríkari en ríku kallarn-
ir í gamla daga – annars eru ríkir
kallar alltaf eins og engin ástæða
til að fjargviðrast mikið yfir
uppátækjum þeirra, þótt vissu-
lega eigum við að hafa áhyggjur
af vaxandi launamun í samfélag-
inu. En það sem ég vildi sagt hafa
– ef ríku kallarnir í KB banka
vilja eyða sínum peningum, eða
réttara sagt peningum bankans,
þeim peningum sem þeir hafa
grætt meðal annars á viðskipta-
vinum sínum hér á landi, ef þeir
vilja eyða þessum peningum í að
halda fína tónleika og fínan dinn-
er með fínum boðsgestum fyrir
fínustu viðskiptavini sína, þá get
ég svosem ekkert annað gert en
yppt öxlum. Kannski viðskipta-
vinir KB banka hafi einhverjar
athugasemdir við þetta, eða hlut-
hafarnir, en mér er svosem sama.
Sinfónían skuldar þjóðinni afsök-
unarbeiðni
En hvað var Sinfóníuhljómsveit
Íslands að gera í þessu kompaníi?
Sinfóníuhljómsveitin er rekin af
peningum skattgreiðenda og hver
gaf stjórnendum hennar leyfi til
að eyða tíma og orku og kannski
peningum líka í að halda lokaða
tónleika fyrir hið svokallaða fína
fólk? Sem alþýða manna hafði
engan aðgang að? Sú alþýða sem
litið hefur á það sem menningar-
lega skyldu sína áratugum saman
að halda uppi þessari hljómsveit,
jafnvel þótt sáralítill hluti þjóðar-
innar sæki tónleika hennar.
Sinfóníuhljómsveit Íslands
skuldar þjóðinni skýringu á þess-
ari dónalegu dellu og ekki bara
skýringu, heldur afsökunarbeiðni
líka. Það er svo fjarri því að
hljómsveitin eigi að fá að komast
upp með að gera svona snobbtón-
leika að árlegum viðburði, eins
og boðað var; þvert á móti þarf
Sinfóníuhljómsveit Íslands að
strengja þess heit að gera þetta
aldrei aftur. Og hún þarf helst að
fá þennan ágæta velska söngvara
hið fyrsta til landsins aftur og
halda með honum ókeypis tónleika
– í yfirbótarskyni.
Ella fæ ég ekki séð að þessi
hljómsveit hafi neitt að gera á
fjárlögum íslenska ríkisins, hún
getur bara hunskast til þess að
lifa á betli hjá ríka og fína fólkinu,
ef það er hvort sem er þangað sem
hljómsveitin leitar þegar hún vill
mest við hafa.
En hafi Sinfóníuhljómsveit
Íslands gert í buxurnar með
þessum tónleikum, þá er þó ekki
nema vægur fnykur af því miðað
við þá stækju sem þessi uppák-
oma hefur gert embætti forseta
Íslands og Ólafi Ragnari Gríms-
syni persónulega.
Hvað var Ólafur Ragnar Gríms-
son eiginlega að hugsa þegar hann
lagði nafn embættisins við þetta
fáránlega snobbfíflerí? Það má
Ólafur Ragnar altént vita að sá
stóri hluti íslensku þjóðarinnar
sem kaus hann til æðsta embættis
þjóðarinnar gerði það ekki til að
hann gæti blandað geði við fínt
fólk á fínum tónleikum og fínum
dinner – allt innan gæsalappa.
Á sínum tíma var talað um Séð
og heyrt-væðingu forsetaembætt-
isins, það var nú líklega að meira
eða minna leyti óhjákvæmileg
þróun – en þetta, þetta tekur út
yfir allan þjófabálk. Upp á síðkast-
ið hefur dufl og daður forsetaemb-
ættisins við eitthvert evrópskt
aðalsfólk gert það að verkum að
maður er farinn að fyrirverða sig
fyrir embættið.
Evrópskt aðalsfólk á vorum
dögum er, með varla nokkurri
einustu undantekningu, eitthvert
hæfileikalausasta og innihalds-
lausasta og tilgangslausasta fólk í
veröldinni, og það er Ólafi Ragn-
ari Grímssyni og embætti forseta
Íslands til algerrar vansæmdar að
vera hið minnsta að viðra sig upp
við þetta fólk.
Hingað streyma prinsessur
En hingað virðast nú streyma
einhverjar Habsborgaraprinsess-
ur og barónessur og forsetinn að
drífa sig til útlanda í brúðkaup hjá
þessu slekti – en hvað hefur hann
til dæmis til málanna að leggja um
málefni aldraðra á Íslandi sem svo
mjög eru á döfinni þessa dagana?
Hvað hefur Ólafur Ragnar Gríms-
son lagt af mörkum til aðstoðar
íslenskum öryrkjum? Hvar hefur
hann tekið til máls nýlega um kyn-
ferðisafbrot gegn börnum?
Hann hefur ekkert haft um
þetta að segja nýlega, svo ég viti
til.
Nei, hann hefur verið í Mónakó
að vera þar viðstaddur brúðkaup
einhvers furstaræfils – forseti
Íslands, einn þjóðkjörinna þjóð-
höfðingja. Ekki sá Frakklands-
forseti neina ástæðu til að heiðra
þetta spilavítisskattaparadísar-
viðrini með nærveru sinni. Ekki
einu sinni forseti Möltu mætti
í gillið, og er þó smáríki eins og
bæði við og Mónakó og með okkur
á Smáþjóðaleikunum!
Nei, þarna kom bara eitt-
hvert aðalshyski – og svo forseti
Íslands.
Og svo bítur Ólafur Ragnar
hausinn af skömminni með því
að taka þátt í hinum lokuðu einka-
tónleikum Sinfóníuhljómsveitar
Íslands og KB banka fyrir fína
fólkið á Íslandi! Og býður þangað
sérstaklega breskri barónessu. Nú
er það að vísu svo að umrædd bar-
ónessa er víst ekki fædd til þeirr-
ar „tignar“ ef tign skyldi kalla,
og er því kannski ekki alveg jafn
feyskin og venjulegar kynbornar
barónessur, heldur var hún sæmd
þessum titli eftir dygga þjónustu
við Tony Blair – en af hverju í
veröldinni eru íslenskir skatt-
greiðendur að heiðra einhvern
sérstakan talsmann Tony Blair í
lávarðadeildinni með því að bjóða
henni hingað til lands? Til hvers?
Forseti Íslands skuldar íslensku
þjóðinni skýringu á því af hverju
hann notaði fé hennar til að bjóða
þessari konu til landsins. Og hann
skuldar þjóðinni afsökunarbeiðni
fyrir að hafa misst – vonandi bara
um stund – svo illilega tengsl-
in við þjóð sína að hafa látið sér
detta í hug að þetta væri hlutverk
embættis forseta Íslands.
Og reyndar – hver einasti ráð-
herra sem þarna mætti, með Hall-
dór Ásgrímsson forsætisráðherra
í broddi fylkingar, skuldar líka
skýringu á þeim dómgreindar-
bresti að hafa látið sjá sig þarna.
Svei þessu öllu saman!
Pistillinn var áður fluttur á
NFS.
Komdu í spennandi heim
afþreyingar og upplýsinga
Smelltu þér á www.ogvodafone.is, farðu í næstu verslun Og Vodafone
eða hringdu í 1414 fyrir nánari upplýsingar.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
O
G
V
3
06
37
12
/2
00
5
KOMDU Í SPENNANDI HEIM
AFÞREYINGAR OG UPPLÝSINGA
19.900 kr.
NOKIA 6101
SÍMI
af flví besta!Brot
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
/
N
M
18
9
4
2
Duni gerir flér kleift a› töfra fram glæsilega servíettu-
skreytingu í takt vi› tilefni›. Fjölbreytt litaúrval au›veldar
flér a› ná fram fleirri stemningu sem flú leitar eftir.
Í verslunum liggur frammi bæklingur frá Duni flar sem
finna má fjölmargar hugmyndir a› servíettubrotum og
bor›skreytingum.
Svei þessu öllu saman!
UMRÆÐAN
LOKAÐIR TÓNLEIKAR
SINFÓNÍUHLJÓM-
SVEITAR ÍSLANDS
ILLUGI JÖKULSSON
En hvað var Sinfóníuhljómsveit
Íslands að gera í þessu komp-
aníi? Sinfóníuhljómsveitin er
rekin af peningum skattgreið-
enda og hver gaf stjórnendum
hennar leyfi til að eyða tíma
og orku og kannski peningum
líka í að halda lokaða tónleika
fyrir hið svokallaða fína fólk?
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS Skuldar þjóðinni skýringu og afsökunarbeiðni á þessari
„dellu“ að mati greinarhöfundar.
En hafi Sinfóníuhljómsveit
Íslands gert í buxurnar með
þessum tónleikum, þá er
þó ekki nema vægur fnykur
af því miðað við þá stækju
sem þessi uppákoma hefur
gert embætti forseta Íslands
og Ólafi Ragnari Grímssyni
persónulega.