Fréttablaðið - 15.12.2005, Blaðsíða 49
FIMMTUDAGUR 15. desember 2005 13
Þvörusleikir heimsækir Þjóðminja-
safnið kl. 11.
Jólahrollur í hádeginu - Ævar Örn
Jósepsson les úr bók sinni Blóðberg
í Þjóðmenningarhúsinu kl. 12.15.
Jól í hjarta - Aðventutónleikar
verða haldnir í Hallgrímskirkju undir
stjórn Margrétar J. Pálmadóttur kl.
20. Kórarnir sem fram koma eru:
Gospelsystur Reykjavíkur, Stúlknakór
Reykjavíkur, Vox Feminae og Vox
Junior.
á jóladöfinni }
15.desember
Sá fimmti, Pottaskefill,
var skrítið kuldastrá.
– Þegar börnin fengu skófir
hann barði dyrnar á.
Höf. Jóhannes úr Kötlum
Þegar börnin ruku svo til dyra til
að sjá hver væri að banka á dyrnar
tók Pottaskefill á rás, rauk inn í
eldhúsið, flýtti sér að pottinum og
fékk sér góðan verð upp úr honum.
Pottaskefill situr um alla þá potta
sem ekki er búið að þvo upp og
sleikir skófirnar innan úr þeim.
Pottaskefill ætlar að gefa í skóinn
í kvöld og vonandi að hann hafi
nægan tíma til að komast í einn eða
tvo potta í leiðinni.
jólasveinar }
Pottaskefill
MYND ÞJÓÐMINJASAFNIÐ
Undir jólatrénu í Kringlunni
er komið safn af pökkum. Í
fyllingu tímans verður þeim
úthlutað af Mæðrastyrksnefnd.
„Það er orðinn siður hjá mörgum
sem kaupa leikföng til jólagjafa að
kaupa tvennt og setja annað undir
tréð,“ segir Hólmfríður á skrifstofu
Kringlunnar þegar hún er spurð
hverju þetta pakkafjall sæti. Hún
segir komna hefð á þennan sið og
afraksturinn fari til Mæðrastyrks-
nefndar sem síðan útdeili pökkun-
um til þeirra sem þurfi á þeim að
halda. „Upphæðin sem menn leggja
í þetta er algerlega frjáls og það
eina sem þarf að gera er að merkja
pakkann þannig að nefndin viti
hvort hann hentar dreng eða stúlku
og á hvaða aldri,“ segir Hólmfríður
og bætir við að síðustu forvöð til að
gefa sé þann 21. desember.
Hvað er í pökkunum?
Gjafir undir Kringlutré
Jólatréð í Kringlunni er til mikillar prýði og
þar fær gjafmildi landans líka útrás.
Ætli þær verði ekki svona tíu talsins.
jólaspurningin }
Hvað ætlar þú
að kaupa margar
jólagjafir?
Guðrún Helga Gísladóttir