Fréttablaðið - 15.12.2005, Blaðsíða 40
15. desember 2005 FIMMTUDAGUR4
Harpa Birgisdóttir er ung,
fjölhæf kona sem nýverið
hefur varið doktorsritgerð í
Umhverfisverkfræði frá DTU
í Danmörku. Eftir áralanga
dvöl í Danmörku er hún að
koma sér fyrir í miðbæ Reykja-
víkur ásamt því að hefja störf
sem umhverfisverkfræðingur
hjá Línuhönnun. Við höfð-
um spurnir af því að Harpa
stundaði annars konar hönnun
í frístundum og tókum hús
hjá henni og grennsluðumst
fyrir um þessa sköpunarþörf
hennar.
Allt frá því að Harpa var ung að
árum hefur hún dundað sér við að
skapa með höndunum: „Ég hef eig-
inlega alltaf verið að búa eitthvað
til, allt frá því ég var lítil stelpa og
á mínum yngri árum stefndi ég
á nám í fatahönnun.“.Af því varð
nú ekki, en þess í stað hefur hún
stundað nám í verkfræði undan-
farin 10 ár.
Meðfram náminu hefur hún
svalað sköpunarþörf sinni og þróað
hönnun á handgerðum skartgrip-
um fyrir konur. Upphafið af því
ævintýri hófst af tilviljun fyrir
tveimur árum. Harpa var sjálf að
panta sér skartgripi af netinu sem
létu eitthvað á sér standa. Óþolin-
móð á biðinni fór hún að fikta sjálf
við að útbúa sína eigin skartgripi,
hálsmen og lokka. Sérstæðir og
áberandi sem þeir eru, fóru þeir
að vekja mikla athygli og fyrr en
varði var hún farin að framleiða í
eldhúsinu, komin með heimasíðu
og selja eftir pöntunum. Eftir-
spurn eftir skartgripum hennar
sem hún nefnir Gyðjuskart, hefur
bara aukist og í kjölfar þátttöku
hennar á sýningunni Hús og híbýli
um miðjan nóvember hefur hún
ekki undan að framleiða.
Gyðjuskart segir Harpa vera
einstakt skart fyrir sannar gyðj-
ur. Gyðjurnar eru sumar með
trúarleg tákn til að mynda Búdda,
Maríu mey og Jesú á krossinum.
Hugsun Hörpu er að skartgripur-
inn veiti þeirri konu sem hann ber
stuðning í hinu daglega amstri og
minni hana á hvert hún geti leitað.
„Ég hef tekið eftir því að sumar
konur sem eignast Gyðjuskart
bera það nánast daglega. Trú-
artáknin veita þeim stuðning og
þær treysta þannig enn frekar á
trúna.“
Efniviðurinn í menin, arm-
böndin og lokkana er ýmist nýjar
eða gamlar ferskvatnsperlur,
glerperlur, steinar og kristallar.
Lásar, vírar og skrautefni er allt
úr silfri og gullhúðuðu messing og
silfri. Það er áhugavert að Harpa
sækir mikið á antíkmarkaði á
erlendi grundu með það að mark-
miði að finna gamlar festar, nælur
og skreyti með þeim tilgangi að
gefa því nýtt líf. Hún endurnýtir
sem sannur umhverfisverkfræð-
ingur.
En hvert stefnir hún með þessa
ástríðu og hvernig mun hún svara
eftirspurninni? „Ég er búin að
mennta mig í mörg ár í verkfræð-
inni og það er mitt starf og mun
vera. Ég er ekki að fara fjölda-
framleiða skartgripi. Hef hugsað
mér að sérhanna hvern hlut og
hanna í hjáverkum. Þetta er meira
ástríða og þörf fyrir að svala sköp-
unarþörfinni frekar en að útfæra
viðskiptahugmynd.“
Gyðjuskart er hægt að nálg-
ast í gegnum heimasíðuna www.
gydjur.com eða í gegnum tölvu-
póst gydjur@gydjur.com
Hafnarstræti 106, Akureyri, sími 462 4010
Ármúli 15, Reykjavík, 588 8050 • Grímsbæ v/Bústaðarveg S: 588 8488
NÝTT • JÓLAGJÖFIN Í ÁR
Leðurskór með flecce fóðri og mjúkum botni.
Bæði fyrir hana og hann. Hægt að nota
sem inniskó eða sem innlegg
í skíðaskó. Tilvalið í leikfimi.
Falleg gjöf.
Ásnum - Hraunbæ 119 - Sími 567 7776
Opið virka daga kl. 11:00-18:00 • Opið laugardaga
Fallegir bolir úr ull/silki
og ull/bómull.
Glæsileg nærfatasett.
15% afsl. af öllum vörum til jóla
SKARTHÚSIÐ
Laugavegi 12, s. 562 2466
Sendum í póstkröfu
Ný sending af
PILGRIM skarti
Jólabónus
20% afsláttur
af öllum vörum
frá fimmtudegi til
sunnudags.
Opnunartími:
fimmtud-föstud 16-18
laugard 12-18
sunnud 14-16
Hver hlutur er handgerður og enginn er eins.
Einstakt skart fyrir glæstar gyðjur.
Umhverfisvæn
& skapandi Skartgripunum fylgir poki með mynd af þeirri gyðju sem einkennir gripinn.
Skart fyrir hina glæstu
gyðju.