Fréttablaðið - 15.12.2005, Blaðsíða 19
Da
gat
al S
par
isjóð
sins 2006 er komið!
... og bjóðum upp á ilmandi kaffi og piparkökur.
Verið velkomin í jólastemninguna.
www.spar.is
FIMMTUDAGUR 15. desember 2005
Strákarnir árita!
Í TILEFNI AF GULLSÖLU Á ÞVÍ BESTA MEÐ STRÁKUNUM MÆTA SVEPPI, AUDDI OG PÉTUR
KLUKKAN 15:00 FIMMTUDAGINN 15. DESEMBER Í BT SMÁRALIND OG ÁRITA!
TRYGGÐU ÞÉR ÁRITAÐ EINTAK AF ÞVÍ BESTA MEÐ STRÁKUNUM!
SVÍÞJÓÐ Hópur þekktra Svía greið-
ir Ahmed Yusuf, manni sem er
á lista Sameinuðu þjóðanna yfir
grunaða hryðjuverkamenn, fyrir
að koma fram þó að honum sé
bannað að vinna. Dagens Nyheter
segir að þar á meðal séu nokkrir
fyrrverandi ráðherrar.
Yusuf Ahmed hefur verið á list-
anum í fjögur ár. Allir hans banka-
reikningar hafa verið frystir.
Bandaríska alríkislögreglan hefur
rannsakað hans mál en ekki fundið
neitt sem styður grun um hryðju-
verkastarfsemi eða samskipti við
liðsmenn al-Kaída. ■
Hópur þekktra Svía:
Styður hryðju-
verkamann
STOFNANIR Lokað verður hjá
Tryggingastofnun ríkisins á Þor-
láksmessu samkvæmt ákvörðun
Karls Steinars Guðnasonar for-
stjóra.
Ekki er hefð fyrir því að rík-
isstofnunum sé lokað á þessum
degi, sem kemur upp á föstudegi
í ár, en samkvæmt heimildum er
þetta gert þar sem reynslan hefur
sýnt að lítið er að gera þennan dag
og að auki til að gefa starfsfólki
lengra frí enda eru jólin að þessu
sinni um helgi og lítið um frídaga
þess vegna. - aöe
Tryggingastofnun ríkisins:
Lokað á
Þorláksmessu
Bæjarstjórn Seyðisfjarðar ákvað á
fundi sínum í gær að bjóða gjaldfrjálsa
leikskólavist hálfan daginn fyrir börn á
aldrinum eins til fjögurra ára frá og með
áramótum. Þetta stendur foreldrum
fimm ára barna til boða, en nú bætast
23 börn í þann hóp. Áætlaður kostnaður
af hálfu sveitarfélagsins vegna þessa er
um tvær og hálf milljón króna.
SEYÐISFJÖRÐUR
Fermingar gegnum netið Sænskur
söfnuður hefur ákveðið að bjóða upp á
nýjung, fermingarfræðslu á netinu fyrir
unglinga sem eru mjög uppteknir og
hafa lítinn tíma til að sinna fermingar-
fræðslunni. Unglingarnir þurfa samt að
hitta prestinn sinn af og til og mæta svo
í kirkjuna á fermingardaginn.
SVÍÞJÓÐ
SPÁNN Samtök leigubílstjóra á
Spáni hafi krafist þess að öryggi
bílstjóra sé aukið til mikilla muna
eftir að leigubílstjóri sem skorinn
var í háls í borginni Bilbao lést af
sárum sínum um helgina.
Þykir öryggi bílstjóranna lítið
miðað við það sem gerist víða ann-
ars staðar. Óalgengt er að öryggis-
skilrúm sé milli bílstjóra og farþega
eins og víða þekkist og sjaldgæft
er að þeir beri einhver vopn til að
verja sig með ef á þá er ráðist. ■
Leigubílstjórar á Spáni:
Vilja að öryggi
sitt verði aukið