Fréttablaðið - 15.12.2005, Blaðsíða 61

Fréttablaðið - 15.12.2005, Blaðsíða 61
THURSDAY 15. desember 2005 37 AF NETINU Mjúkt núggat, rista›ar heslihnetur, dökkt gæ›asúkkula›i Me› hverjum Baci súkkula›ikossi fylgja skemmtileg skilabo› um ást og vináttu. Heill pakki af kossum! Baci súkkula›ikossarnir fást í mismunandi umbú›um sem henta til gjafa vi› öll tækifæri. E N N E M M / S ÍA / N M 19 10 6 Tjá›u flig me› kossum Senn líður að jólum og vert er að huga að þeim fjölmörgu öryrkjum sem finna meira fyrir einmanaleik- anum á þessum árstíma en öðrum. Í baráttu okkar fyrir bættum hag öryrkja gleymist stundum hvað hið einfalda skiptir líka miklu máli í lífinu. Í fjölbýlishúsunum við Hátún 10 búa nærri þrjú hundruð öryrkj- ar. Flestir búa í litlum einstaklings- íbúðum og oft við félagslega einangrun. Ég heiti nú á aðstand- endur öryrkja að huga vel að þeim um hátíðarnar. Sumir eru í þeirri stöðu að aðstandendur eru fáir eða nokkrir. Mikilvægt er að nærsam- félag þeirra hugi að þeim sem svo er komið fyrir. Vinkona mín hafði samband við mig um daginn og spurði hvort ég vissi um einhvern sem hefði í engin hús að venda um jólin. Þá vildi hún bjóða viðkom- andi að verja jólunum með sér og fjölskyldu sinni. Í þessu boði felst inntak hins kristilega kærleiks- boðskaps. Í þessu ætti líka að felast inntak jólanna sem fyrir mörgum er því miður löngu gleymt. Hvernig það gat gerst að við gleymdum þeim sem minnst mega sín í samfélaginu? Þegar Danir og Svíar voru á fullri ferð í byrjun tíunda áratugarins að þróa fram- úrstefnulegar lausnir í málefnum fatlaðra og langveikra þá stöðnuð- um við, sem er raunverulega aft- urför. Skýringarnar eru að hluta til pólitískar og að hluta til einhver værukærð sem gripið hefur um sig í þjóðfélaginu. Við urðum skyndi- lega svo upptekin af því að verða rík í landi tækifæranna. En tæki- færin voru bara sumra og flestir eignuðust aðallega skuldir. Nú býr fatlað fólk og sjúkt við bágari kjör en í þeim löndum sem við höfum borið okkur saman við til þessa. Hið norræna velferðarkerfi á ekki við um Ísland nútímans og það staðfestir skýrsla Stefáns Ólafssonar prófessors. Þessu verð- um við að breyta. Íslendingar hafa réttlætiskennd. Þeir vilja ekki að stórir hópar fólks verði útundan í samfélaginu. Þeir vilja ekki amer- íska gervivelferð þar sem fólki er vísað út á guð og gaddinn. Á nýju ári skulum við taka höndum saman, öll sem eitt, um breytingar til bætts hags öryrkja. Tvennt er mikilvægast að ganga í strax. Í fyrsta lagi þurfum við að breyta lögum um almanntrygging- ar og afnema ýmsar vondar reglu- gerðir sem Tryggingastofnun ríkisins vinnur eftir. Grunnbætur þurfa að hækka verulega, verða mannsæmandi og þær gerðar ótekjutengdar. Afnema þarf ýmsar aðrar tekjutengingar svo sem vegna lífeyrisréttinda og þá þarf að skapa hvata til atvinnuþátttöku. Hvað endurhæfingu og atvinnuþát- töku snertir þarf stórátak til að við stöndum jafnfætis hinum Norður- landaþjóðunum. Svo vel takist til þarf að skapa samráðsgrundvöll Samtaka atvinnulífsins auk ríkis- stjórnar og stjórnarandstöðu. Það á að geta orðið þverpólitísk sátt um uppbyggingu hins íslenska velferðarkerfis og ég treysti því að aðilar komi með opnum hug að þessu borði. Það verður eftir því tekið ef einhver skorast undan ábyrgð. Fyrir hönd ÖBÍ óska ég landsmönnum öllum gleðilegrar hátíðar og gæfu á komandi ári. Höfundur er formaður Öryrkja- bandalags Íslands. Sýnum samstöðu um nauðsynlegar breytingar UMRÆÐAN ÖRYRKJAR SIGURSTEINN MÁSSON Verður það sama sagt um X-D? Breski Íhaldsflokkur hefur lengi verið í tilvistarkreppu, í raun allt frá því járnfrúin sté úr hásætinu, en reynslan hefur sýnt að flokkar eru jafnan lengi að jafna sig eftir að sterkir leiðtogar víkja frá. Margir hafa reynt að blása lífi í Íhaldsflokkinn og gert tilraunir til þess að leiða flokk- inn til sigurs, en án árangurs. Núna er hins vegar mikil bjartsýni ríkjandi meðal Íhaldsmanna og miklar vonir eru bundn- ar við hinn nýja leiðtoga. Erla Tryggvadóttir á tikin.is Doktor í fegurðarsamkeppnum Ég er ekki á móti fegurðarsamkeppn- um. Raunar gæti ég verið dómari í slíkri keppni, svo vel hef ég stúderað þær. Mér finnst fegurðarsamkeppnir ekki síðri skemmtun en lestrarkeppni grunnskól- anna, Ædolið eða spurningakeppni fram- haldsskólanna. Svo fer það eftir hverjum og einum hvort viðkomandi finnst mest um vert að muna nafnið á höfuðborg Malawi, lesa vel, syngja ófalskt eða vera flínkur í að ganga á sundbol og brosa eðlilega. Ármann Jakobsson á murinn.is Hinn staðlaði inngangur Hún er í hvimleið sú umræða um störf Alþingis sem grípur um sig í fjölmiðl- um með reglulegu millibili og snýst um afköst þingmanna, ráðherra og starfstíma þingsins. Ætla mætti að fréttamenn og aðrir sem taka þátt í þessari undarlegu umræðu telji að magn og gæði löggjaf- arstarfs fari ævinlega saman þannig að landsmönnum farnist þeim mun betur sem fleiri lög eru samþykkt á Alþingi. Vefþjóðviljinn á andriki.is Helsta vandamál kaupmannsins Eitt helsta vandamál margra verslunareig- anda vill reynast vera skari af eirðarlaus- um krökkum og unglingum sem oft vill safnast saman fyrir framan verslun hans. Blessuð ungmennin eiga það til að fæla í burtu viðskiptavini sem vilja ekki eiga á hættu að verða fyrir áreiti eða hvers konar ónotum sem oft fylgir athyglissjúk- um unglingum. Hvaða verslunareigandi í Kringlunni eða Smáralind óskar sér ekki tækis sem tekur af honum ómakið við að sussa í burtu krakkaskarann? Samúel T. Pétursson á deiglan.com Sænskir dyntir Laxness sækir sér innblástur í „þjóðar- djúpið“ og er gagnrýninn og fær verð- laun. Það gerði Pinter líka og fékk verð- laun. Tolstoj og Gunnar gagnrýndu líka en fengu engin verðlaun. Rithöfundar mega hvorki vera menningarfjandsamlegir né dulúðlegir. En þeir mega vera róttækling- ar og andófsmenn. Allt eftir duttlungum sænsku akademíunnar. Sverrir Ingi Gunnarsson á djoflaeyjan. com Gamall boli Valdís Borgarstjóri sem hefur átt nokkuð undir högg að sækja lyfti sér til flugs með aðsópsmiklu vængjataki þegar Borgar- stjórinn tók afgerandi frumkvæði með aðdáunarverðum kjarasamningum við láglaunakonur í Borginni. Pólitískir fjendur í ýmsum flokkum skóku skellum að Valdísi þegar í stað. Kristján Þór Júlíusson, íhald á Akureyri, virtist missa alla rökræna hugsun og kom í sjónvarp þar sem hann bölvaði einsog gamall boli kolfastur í mýri. Össur Skarphéðinsson á hexia.net/roll- er/page/ossur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.