Fréttablaðið - 15.12.2005, Side 49

Fréttablaðið - 15.12.2005, Side 49
FIMMTUDAGUR 15. desember 2005 13 Þvörusleikir heimsækir Þjóðminja- safnið kl. 11. Jólahrollur í hádeginu - Ævar Örn Jósepsson les úr bók sinni Blóðberg í Þjóðmenningarhúsinu kl. 12.15. Jól í hjarta - Aðventutónleikar verða haldnir í Hallgrímskirkju undir stjórn Margrétar J. Pálmadóttur kl. 20. Kórarnir sem fram koma eru: Gospelsystur Reykjavíkur, Stúlknakór Reykjavíkur, Vox Feminae og Vox Junior. á jóladöfinni } 15.desember Sá fimmti, Pottaskefill, var skrítið kuldastrá. – Þegar börnin fengu skófir hann barði dyrnar á. Höf. Jóhannes úr Kötlum Þegar börnin ruku svo til dyra til að sjá hver væri að banka á dyrnar tók Pottaskefill á rás, rauk inn í eldhúsið, flýtti sér að pottinum og fékk sér góðan verð upp úr honum. Pottaskefill situr um alla þá potta sem ekki er búið að þvo upp og sleikir skófirnar innan úr þeim. Pottaskefill ætlar að gefa í skóinn í kvöld og vonandi að hann hafi nægan tíma til að komast í einn eða tvo potta í leiðinni. jólasveinar } Pottaskefill MYND ÞJÓÐMINJASAFNIÐ Undir jólatrénu í Kringlunni er komið safn af pökkum. Í fyllingu tímans verður þeim úthlutað af Mæðrastyrksnefnd. „Það er orðinn siður hjá mörgum sem kaupa leikföng til jólagjafa að kaupa tvennt og setja annað undir tréð,“ segir Hólmfríður á skrifstofu Kringlunnar þegar hún er spurð hverju þetta pakkafjall sæti. Hún segir komna hefð á þennan sið og afraksturinn fari til Mæðrastyrks- nefndar sem síðan útdeili pökkun- um til þeirra sem þurfi á þeim að halda. „Upphæðin sem menn leggja í þetta er algerlega frjáls og það eina sem þarf að gera er að merkja pakkann þannig að nefndin viti hvort hann hentar dreng eða stúlku og á hvaða aldri,“ segir Hólmfríður og bætir við að síðustu forvöð til að gefa sé þann 21. desember. Hvað er í pökkunum? Gjafir undir Kringlutré Jólatréð í Kringlunni er til mikillar prýði og þar fær gjafmildi landans líka útrás. Ætli þær verði ekki svona tíu talsins. jólaspurningin } Hvað ætlar þú að kaupa margar jólagjafir? Guðrún Helga Gísladóttir

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.