Fréttablaðið - 15.12.2005, Side 47

Fréttablaðið - 15.12.2005, Side 47
FIMMTUDAGUR 15. desember 2005 Húsgögn og gjafavara Skeifan 3A við hlið Atlantsolíu 108 Reykjavík Sími: 517 3600 • Fax: 517 3604 mylogo@mmedia.is www.local1.is 20% afsláttur af öllum ljósum og gjafavörum fram til jóla Víst fylgir það jólum þörfin að hafa allt skínandi hreint á heimilinu. Ætlir þú að gera hreint fyrir jólin er ekki seinna vænna að hefjast handa. Þá er um að gera að ganga skipulega til verks og virkja alla á heimilinu. Best er að skipta heimilinu upp í hluta og gera hreingerninguna á nokkrum dögum. Byrjaðu á þeim hluta heimil- isins sem kámugir litlir fingur eyða síður stundum og endaðu á barnaherbergjunum nokkrum dögum fyrir jól. Geymdu eitt her- bergi eða svæði á heimilinu sem getur verið birgðastöð fyrir drasl fram að jólum. Þar inni má geyma pappakassa og þar má dreifa glimmeri yfir pakka en hvergi annars staðar. Þetta herbergi er svo þrifið síðast. Ef þú ert komin(n) í tímaþröng skaltu sleppa því að þrífa skápa að innanverðu. Komist þú upp með að þurfa ekki að horfa á óhrein- indin á aðfangadag þá geta þau þrif beðið. Gleymdu samt ekki silfrinu í borðstofuskápnum sem væntanlega þarf að pússa. Umfram allt skaltu ekki fara offari. Jólin verða alveg jafn góð þó svo að nokkur rykkorn leynist hér og þar. Jólahrein- gerningin Hátíðarskapið kemur með fallegu skrauti, góðri tónlist og ljúfum jólailmi. Þó svo að heimilið sé alskreytt og jólatónar hljómi úr útvarpinu þá getur stundum vantað upp á jóla- skapið. Þá grípa margir til þess að baka og fylla húsið af jólalegum ilmi. Samt er hægt að fá jólalega lykt án þess að þurfa að leggjast í stórbakstur. Klassíska ráðið er að stinga negulnöglum í mandarínu og dreifa um húsið. Annað ráð og ilmríkara er að setja negulnaglana í skál sem þolir vel hita og setja skálina yfir kerti. Innan skamms leitar ilmurinn út um allt. Einnig er lítið mál að skera niður nokkra eplabáta og hita á pönnu með kanil, bragðast vel og ilmar vel. Ilmurinn úr eldhúsinu... Alíslensk glös með þjóðlegum myndum eru meðal nýjunga á markaðnum. Nýju glösin sem ganga undir nafn- inu Fjölskyldan mín eru sköpuð til að brjóta upp hversdagsleikann á heimilinu, að sögn hönnuðanna, Ingibjargar Hönnu Bjarnadótt- ur og Dagnýjar Kristjánsdóttur. Myndirnar minna á fortíðina, sveitina, húsdýrin og þjóðbúning- ana. „Við vildum huga að þeim rótum sem þjóðin er sprottin úr,“ segja listakonurnar ungu. Saman skipa þær hönnunarfyrirtækið Stella sem sérhæfir sig í grafík á gler og postulín. Glösin frá Stella þola uppþvottavélar. Fjölskyldan mín Glösin eru skreytt þjóðlegum myndum og umbúðirnar minna á íslenska torfbæinn. Lítið mál er að gefa heimilinu góðan ilm án þess að þurfa að demba sér í jólabakstur.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.