Fréttablaðið - 15.12.2005, Síða 68

Fréttablaðið - 15.12.2005, Síða 68
 15. desember 2005 FIMMTUDAGUR44 Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Ingimar Sigurðsson Kópavogsbraut 1b, Kópavogi, verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju fimmtudaginn 15. desember kl. 13.00. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á Hjúkrunarheimil- ið Sunnuhlíð í Kópavogi, sími 560 4100. Guðrún Kristinsdóttir Helgi Stefánsson Alexander Ingimarsson Edda Ástvaldsdóttir Guðmundur S. Ingimarsson Birna Rún Ingimarsdóttir Friðþjófur Thorsteinsson Ruiz barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og systir, María Erla Kjartansdóttir Vogatungu 85a, Kópavogi, lést 7. desember sl. Útför hennar fer fram frá Kópavogskirkju föstudaginn 16. desember kl. 15.00. Kjartan Árnason Edda Ólafsdóttir Helga Aðalbjörg Árnadóttir Finnur Frímann ömmubörn, systkini og fjölskyldur þeirra. Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, Magnús Kolbeinsson Stóra - Ási, Borgarfirði, sem lést þann 5. desember síðastliðinn, verður jarðsunginn frá Reykholtskirkju laugardaginn 17. desember kl. 11.00. Þórunn Andrésdóttir Andrés Magnússon Martha Eiríksdóttir Kolbeinn Magnússon Lára Kristín Gísladóttir Jón Magnússon Halla Magnúsdóttir Hreiðar Gunnarsson og barnabörn. timamot@frettabladid.is Hafsteinn Jóhannsson bind- ur ekki bagga sína sömu hnútum og samferðamenn hans. Flestum stundum ævi sinnar hefur hann varið í siglingar eða bátasmíðar og komst hann meðal annars í heimsfréttirnar þegar hann sigldi umhverfis jörðina á 241 degi á heimasmíðuðu skútunni sinni Eldingu. Ferð- in hófst í ágúst 1990 og lauk í apríl 1991. Ekki hafa aðrir Norðurlandabúar leikið afrek Hafsteins eftir. Hann hefur nú búsetu í Noregi en er á Íslandi þessa dagana. „Mér var gefinn bátur og er að standsetja hann,“ segir Hafsteinn, sem býr í bátnum á meðan á dvölinni hér stendur. Hann veit ekki hversu langt stoppið verður en fjölmörg verkefni bíða. „Þegar þessu er lokið fer ég til Spánar og sigli Sóma 900 báti til Noregs. Það verður tveggja mán- aða túr. Svo þarf ég að koma hingað og sigla þessum báti til Noregs og að því loknu tekur við árssigling á Eld- ingu.“ Í þá siglingu ræðst Hafsteinn ásamt ungum norskum vini sínum. „Hann ætlaði að kaupa bátinn af mér en hafði ekki efni á honum þannig að hann verð- ur að hafa mig með. Strák- urinn kaupir nýtt segl og ræður ferð.“ Það kemur ekki á óvart að Hafsteini líður best á sjón- um. „Þá er maður laus við allt vesen því það er aldrei vesen á sjó,“ segir hann. Spurður um hvað hann hugsi annað en báta svarar hann: „Bara um hvert verður farið næst.“ Hafsteinn Jóhannsson er lítið fyrir afmælisstúss og ætlar að verja deginum við hefðbundna vinnu. „Ég held aldrei upp á afmæli, hef aldrei staðið í svoleiðis veseni. Ég hefði ekki munað eftir afmælinu ef þú hefðir ekki minnt mig á það,“ segir hann blaðamanni. Á æskuárunum var sjald- gæft að hann fengi afmæl- isgjafir vegna nálægðar afmælis hans við jólin. „Það var bara beðið með það allt saman,“ segir Hafsteinn, sem ver jólunum í ár um borð í bátnum góða sem hann gerir nú upp af kappi. ■ ANDLÁT Anna Pedersen Ingebretsen lést í Stavern, Noregi, miðvikudaginn 7. desember. Guðríður Svala Káradóttir, frá Presthúsum í Vestmannaeyjum, lést á Landspítala háskólasjúrka- húsi í Kópavogi, þriðjudaginn 13. desember. Guðrún Ruth H. Barker, lést á heimili sínu, mánudaginn 14. nóvember. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Ómar Hlíðkvist Jóhannsson, Ásbúð 31, Garðabæ, lést sunnu- daginn 11. desember. Þorsteinn Þorsteinsson, Skóla- vegi 27, Vestmannaeyjum, lést á krabbameinsdeild Landspítalans við Hringbraut föstudaginn 9. desember. Þórunn Viðarsdóttir, Eyjabakka 8, Reykjavík, lést á Landspítala Foss- vogi, föstudaginn 9. desember. JARÐARFARIR 13.00 Helgi Loftsson, Krumma- hólum 57, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Reykjavík. 13.00 Ingimar Sigurðsson járn- smiður, Kópavogsbraut 1b, Kópavogi, verður jarðsung- inn frá Kópavogskirkju. 13.00 Katrín Sveina Pétursdóttir, frá Engidal, verður jarð- sungin frá Grafarvogskirkju. 13.00 Ómar S. Zóphóníasson, Fögruhlíð 5, Hafnarfirði, verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði. 14.00 Steinunn Hafstað, hótel- stýra, verður jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju. 15.00 Fanney Andrésdóttir, frá Þórisstöðum, Gufudals- sveit, verður jarðsungin frá Fossvogskapellu. 15.00 Helgi Jósefsson Vápni, Mávahlíð 13, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Laugarneskirkju. HAFSTEINN Á ELDINGU Myndin er tekin í Reykjavíkurhöfn árið 1993, tveimur árum eftir að Hafsteinn hafði lokið siglingunni umhverfis jörðina. HAFSTEINN JÓHANNSSON SIGLINGAKAPPI: ER SJÖTUGUR Aldrei vesen á sjónumIndriði Pálsson, fyrrverandi forstjóri Skeljungs, er 78 ára. Sigfús A. Schopka fiskifræðingur er 62 ára. Kristinn Svavarsson tónlistarmað- ur er 58 ára. Herbert Guðmundsson, tónlistar- maður og íssali, er 52 ára. Birgir Þór Bieltvedt, kaupsýslu- maður í Danmörku, er 38 ára. Ármann Þorvaldsson, yfirmaður hjá KB banka í Bretlandi, er 38 ára. Jón Atli Jónsson rithöfundur er 33 ára. Katla Margrét Þorgeirsdóttir leikkona er 35 ára. Gísli Örn Garð- arsson leikari er 32 ára. Það var á þessum degi árið 1791 sem mannrétt- indahluti stjórnarskrár Bandaríkjanna, þekktur undir heitinu „Bill of rights“, varð að lögum. Þegar stjórnarskrá Bandaríkja Norður-Amer- íku var samþykkt árið 1789 þóttu réttindi á borð við trúfrelsi, prentfrelsi og friðhelgi einkalífs- ins svo sjálfsögð að þau voru ekki sett inn í stjórnarskrána. Þeir sem voru andstæðir því að stjórnarskráin yrði samþykkt sögðu að mann- réttindi væru ekki hluti af henni vegna þess að ráðamenn vildu afnema frelsi íbúanna. Fylgjend- ur stjórnarskrárinnar sem kölluðu sig sambands- sinna sögðu að áður en þing landsins kæmi saman yrði búið að bæta mannrétt- indaákvæðum við stjórnarskránna. Þegar þingið kom saman voru flestir þingmanna sammála um að það þyrfti að bæta mannréttinda- ákvæðum inn í stjórnarskrána. Þeir voru líka sammála um að ákvæð- unum yrði ekki bætt við upprunalegan texta stjórnarskrárinnar heldur yrði þeim bætt við sem stjórnarskrárbreytingu. Þetta var gert til að koma í veg fyrir að öll ríkin þyrftu að samþykkja alla stjórnarskrána upp á nýtt, en það hefði verið mikil fyrirhöfn og tekið langan tíma. James Madison, sem síðar varð forseti Banda- ríkjanna, var fenginn til að skrifa uppkastið að ákvæðunum. Um sumarið 1789 lagði hann uppkastið fyrir þingið og hans tillaga var að tólf mannréttinda- ákvæðum yrði bætt við stjórnarskrána. Það var svo í september sama ár sem þingið samþykkti uppkastið. Tíu þeirra hlutu samþykki ríkjanna. New Jersey var fyrst ríkja til að samþykkja ákvæðin og önnur ríki fylgdu í kjölfarið. Hinn 15. desember 1791 urðu svo mannréttindaákvæði bandarísku stjórnarskrárinnar að lögum. ÞETTA GERÐIST > 15. DESEMBER 1791 FREEMAN DYSON (1923-) FÆDDIST ÞENNAN DAG „Það er betra að vera rændur en að lifa í ótta.“ Freeman Dyson er breskur eðlis- fræðingur. MERKISATBURÐIR 1891 James Naismith kynnir körfubolta til sögunnar. 1939 Kvikmyndin Gone with the Wind frumsýnd í Bandaríkj- unum. 1945 Bandaríski hershöfðinginn Douglas MacArthur fyrir- skipar að ríkistrú Japana, shinto, skuli aflögð. 1961 Dómstóll í Ísrael dæmir Adolf Eichmann, nasistafor- ingja úr síðari heimstyrjöld- inni, til dauða fyrir sinn þátt í helförinni gegn gyðingum. 1995 Bosman-reglan, sem segir að íþróttamenn innan evr- ópska efnahagssvæðisins geti leikið með hvaða liði sem er innan þess, verður að veruleika. Jólakvíði er efni fundar EA- samtakanna í Kórkjallara Hallgrímskirkju klukkan 18 í dag. EA-samtökin heita í raun Emotions Anonymous og á fundum ræða félags- menn um tilfinningar sínar. „Við tölum um allt sem hvíl- ir á okkur og þetta snýst um að hjálpa hverju öðru til að segja sannleikann,“ segir Kristbjörg Árnadóttir, einn félagsmanna. Samtökin hafa nú verið starfrækt á Íslandi í um þrjú ár. Að sögn Kristbjargar berst vaxandi hópur fólks við mikinn jólakvíða, fólk sem til dæmis hefur misst ástvini á liðnu ári, hefur skilið, glímir við fjárhagsörðugleika, sjúk- dóma eða fjölskylduvanda af einhverjum toga. Um 25 manns hafa sótt jólakvíða- fundina undanfarin tvö ár en það eru talsvert fleiri en sækja reglulega fundi EA- samtakanna sem haldnir eru á hverjum fimmtudegi í Kórkjallaranum. „Það eru aldrei rauðir dagar hjá okkur því tilfinningarnar fara aldrei í frí,“ segir Kristbjörg. Allir eru hjartanlega vel- komnir á fundinn í kvöld. HALLGRÍMSKIRKJA Fundir EA sam- takanna eru haldnir í Kórkjallara kirkjunnar. Tilfinningarnar fara aldrei í frí HAFSTEINN JÓHANNSSON SIGL- INGAKAPPI Hefur aldrei haldið upp á afmælið sitt og hefði ekki munað eftir sjötugsafmælinu, sem er í dag, ef blaðamaður hefði ekki minnt hann á það. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA AFMÆLI Tilkynningar um merkisatburði, stórafmæli, andlát og jarðarfarir í smáletursdálkinn hér að ofan má senda á netfangið timamot@frettabladid.is.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.