Fréttablaðið - 15.12.2005, Blaðsíða 86

Fréttablaðið - 15.12.2005, Blaðsíða 86
������������������������ ������������������ ����������������� ������������������������ ������������������������� �������������������������������� ������������������������������ Framganga B-liðs KR í bikarkeppni KKÍ og Lýsingar hefur vakið mikla athygli en í síðustu viku lagði liðið 1. deildarlið Stjörnunnar í 32-liða úrslitum. KR-b liðið, sem gárungar kalla Bumbuna, mætir Grindavík í sextán liða úrslitum keppninnar 7. janúar næstkomandi og segir Lárus Þór Árnason, gömul kempa hjá KR en núverandi forsvarsmaður Bumbunnar, að hann og félagar hans í liðinu séu staðráðnir í að stríða Grindvíkingum. „Við þekkjum nátt- úrlega til Friðriks Inga (Rúnarssonar) þjálf- ara og það kæmi mér ekki á óvart ef hann bætti við sig mönnum fyrir leikinn gegn okkur,“ sagði Lárus kím- inn við Fréttablaðið í gær. Í Bumbunni er að finna mörg kunnugleg nöfn, svo sem Birgi Mikaelsson og Hermann Hauksson, sem augljóslega kunna ennþá sitthvað fyrir sér í íþróttinni. Að sögn Lárusar er nafnið á liðinu tilkomið vegna misjafns líkamlegs ástand leikmanna, en hjá nokkrum er ístran farin að ná örlítið yfir beltisstað. Það aftraði liðinu þó ekki frá því að vinna 83-78 sigur á Stjörnunni, sem meðal ann- ars er með öflugan Banda- ríkjamann í sínum röðum. „Þetta byrjaði fyrir nokkrum árum síðan og hefur smám saman verið að vinda upp á sig, gamlir leikmann hafa verið að koma inn og í dag æfum við einu sinni til tvisvar í viku og spilum í 2. deildinni. En í svona bikarkeppni fá menn alltaf aukinn kraft og í leiknum gegn Stjörnunni náðum við að hanga í þeim fram á síðustu mínútu. Þá getur allt gerst og að lokum skilaði reynslan okkur sigri,“ segir Lárus og bætir því við að Bumban óttist ekki úrvals- deildarlið Grindavíkur. „Að sjálfsögðu eigum við séns en ég held að við þurfum að koma upp með einhverja snilldarlega hernaðaráætlun til að eiga möguleika. Við erum í samninga- viðræðum við Pál Kolbeinsson og Ólaf Jón Ormsson um að koma til okkar og með þá innanborðs eigum við að geta staðið í Grindvíkingum,“ sagði Lárus að lokum. B-LIÐ KR Í KÖRFUBOLTANUM: MÆTIR GRINDAVÍK Í SEXTÁN LIÐA ÚRSLITUM BIKARKEPPNINNAR Bumban slær í gegn í bikarkeppninni HANDBOLTI Héðinn Gilsson, aðstoð- arþjálfari HK, var í gær dæmdur í tveggja leikja bann fyrir hegðan sína í leik HK og Hauka 6. desem- ber sl. Í úrskurði aganefndarinnar segir að Héðinn hafi sýnt grófa óíþróttamannslega hegðun en hann var mjög ósáttur með dóm- gæsluna í leiknum og endaði á því að fá rauða spjaldið fyrir kjaft- brúk. „Ég átti alveg von á þessu fyrst ég missti mig í þessa vitleysu og verð að taka afleiðingum þess,“ sagði Héðinn við Fréttablaðið í gær. „En hins vegar stend ég alveg við það sem ég sagði um dómgæsl- una á þessum tíma.” - vig Héðinn Gilsson, aðstoðarþjálfari HK í handknattleik: Fékk tveggja leikja bann ÍÞRÓTTIR FATLAÐRA „Þetta var svona frekar rólegt ár hjá mér en það gekk nú samt vel á öllum mótum,“ sagði sundkonan Kristín Rós Hákonardóttir eftir að hún tók á móti verðlaunum fyrir að vera valin íþróttakona ársins hjá Íþróttasambandi fatlaðra, tólfta árið í röð. Krístín Rós, sem er grafískur hönnuður að mennt og starfar nú sem sérkennari við Öskjuhlíðar- skóla, tók þátt í einu alþjóðlegu móti á árinu en það var Opna þýska meistaramótið, og setti hún þar eitt heimsmet og tvö Íslands- met. Kristín keppir í flokki hreyfi- hamlaðra S7 og á öll Íslandsmetin í greinunum í hennar flokki. Það eru mörg krefjandi verk- efni framundan hjá Kristínu Rós á komandi ári. „Ég mun fara í þrígang að keppa á erlendum vettvangi fyrripart árs, og svo er heimsmeistaramótið í desember.“ Aðspurð um það hvort hún stefni enn einu sinni að því að bæta árangur sinn á næsta ári, segist hún ekki vera farin að hugsa út í það. „Ég gef nú aldrei upp mín markmið en það verður bara að koma í ljós hvernig gengur hjá mér,“ sagði Kristín jarðbundin. Afrekaskrá Kristínar er löng, en hún á heimsmet í níu greinum í 25 metra laug og sex í fimmtíu metra laug. Sannarlega glæsileg- ur afrekalisti það. Erna Maríusdóttir fékk Guð- rúnarbikarinn að þessu sinni en þann bikar gaf Össur Aðalsteins- son til minningar um eiginkonu sína, Guðrúnu Pálsdóttur, árið 2000. Bikarinn er afhentur árlega konu sem starfað hefur sérlega vel á liðnu ári í þágu fatlaðs fólks, en Erna hefur verið keiluþjálfari og aðstoðarkeiluþjálfari í um fimmt- án ár hjá íþróttafélaginu Ösp. Hún hefur að auki verið fararstjóri og þjálfari á vegum Íþróttasam- bands fatlaðra á ólympíuleikum og margoft á mótum hérlendis. Erna fékk bikarinn ekki síst fyrir að beita sér fyrir þátttöku þroskaheftra í golfi, en hún hefur lengi verið mikill hvatamaður fatlaðra í golfi. magnush@frettabladid.is Bætti við fimmtánda heimsmetinu á árinu Kristín Rós Hákonardóttir var í gær útnefnd íþróttakona ársins hjá Íþróttasam- bandi fatlaðra. Kristín setti eitt heimsmet á árinu og á nú í heildina fimmtán heimsmet í sínum fötlunarflokki. KRISTÍN RÓS HÁKONARDÓTTIR Árið í ár var frekar rólegt hjá Kristínu Rós en hún keppti aðeins einu sinni á erlendum vettvangi og setti þar eitt heimsmet og tvö Íslandsmet. FRETTABLAÐIÐ/E.ÓL ÍÞRÓTTIR FATLAÐRA „Ég er mjög sáttur með árangur minn á þessu ári. Ég hef æft samviskusamlega og vonandi næ ég að bæta mig enn meira á næsta ári. Ég stefni að góðum árangri á heimsmeistara- mótinu sem fer fram í september á næsta ári,“ sagði frjálsíþrótta- maðurinn Jón Oddur Halldórsson en hann var í gær valinn íþrótta- maður ársins hjá Íþróttasambandi fatlaðra. Jón Oddur leggur gríðarlega hart að sér við æfingar og segir hann að fátt annað komist að hjá honum en skólinn og æfingar. „Dæmigerður dagur hjá mér er að vakna, fara í skólann, æfa seinni partinn og fara svo að sofa. Þannig er þetta eiginlega alltaf hjá mér. Æfing- arnar eru einn og hálfur til tveir klukkutímar.“ Jón segist eiga mikið inni og ætlar hann sér að ná fram því besta á heimsmeistaramótinu sem fer fram í Hollandi í september á næsta ári. „Ég fer á tvö eða þrjú opin mót en þau eru eins konar undirbúningsmót fyrir stóra mótið í september. Þar ætla ég að reyna að ná fram mínu besta og mínar æfingar miðast við það. Ég hef notið leiðsagnar frábærra þjálfara, Stefáns Jóhannssonar hjá Ármanni og Kára Jónssonar landsliðsþjálfara, og það er að sjálfsögðu stefna mín að ná enn lengra.“ - mh Jón Oddur Halldórsson valinn íþróttamaður ársins: Frábært ár hjá Jóni Oddi JÓN ODDUR HALLDÓRSSON Jón Oddur ætlar sér stóra hluti á næsta ári en heimsmeistaramótið fer fram í september í Hollandi. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL HEIMSMET KRISTÍNAR RÓSAR: 25 METRA LAUG: 50 OG 100 METRA SKRIÐSUNDI, 50, 100 OG 200 METRA BAKSUND OG 50, 100 OG 200 BRINGUSUND. AÐ AUKI Á HÚN METIÐ Í 100 METRA FJÓRSUNDI. 50 METRA LAUG: 50, 100 OG 200 METRA BAKSUND OG 50, 100 OG 200 BRINGUSUND. > Indriði vinsæll Stoke City í Englandi er ekki eina liðið sem hefur hug á því að krækja í landsliðsmanninn Indriða Sigurðsson hjá Genk í Belgíu því að sögn Ariel Jak- obs, yfirmanns knattspyrnumála hjá Genk, hafa lið frá Frakklandi og Tyrk- landi spurst fyrir um Indriða. „Samningur Indriða við okkur rennur út í lok tíma- bilsins en það er möguleiki á f ram- lengingu svo að við sjáum til hvað verður. Ég talaði við Indriða á þriðjudaginn og tjáði honum að það væri áhugi frá Frakk- landi og Tyrklandi,“ segir Jakobs. „En það er allt opið og við erum tilbúnir að ræða við alla þá sem hafa áhuga á Indriða.“ Björgvin í 28. sæti Skíðafólkið Björgvin Björgvinsson og Dagný Linda Kristjánsdóttir voru bæði á ferðinni á stórsvigsmóti á Ítalíu. Björgvin varð í 28. sæti en Dagný Linda kom í mark á fertugasta besta tímanum. 62 15. desember 2005 FIMMTUDAGUR sport@frettabladid.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.