Fréttablaðið - 15.12.2005, Síða 94
15. desember 2005 FIMMTUDAGUR70
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
AÐ MÍNU SKAPI SÓLVEIG SAMÚELSDÓTTIR SÖNGKONA
Thelma, Brynja, Chopin og Aida
LÁRÉTT
2 drykkur 6 í röð 8 flan 9 stansa 11 2
eins 12 japla 14 bragðbætir 16 skóli
17 rotnun 18 kærleikur 20 gangþófi
21 yfirbragð.
LÓÐRÉTT
1 vond 3 rykkorn 4 páfagaukur 5 þrá
7 þokast 10 for 13 meðal 15 krydd
16 blástur 19 golf áhald.
LAUSN
OPIÐ ALLA LAUGARDAGA 10-14
STÓR HUMAR
RISARÆKJUR
HÖRPUSKEL
TUNFISKUR
SALTSÍLD
KRYDDSÍLD
TÓNLIST Góð tónlist er að mínu mati sú
tónlist sem hefur góð áhrif á mig. Það getur
jafnt verið endurreisnartónlist, píanókonsert
eftir Chopin, ballaða með George Michael,
fönk eða óperuaríur. Allt eftir því í hvaða
skapi ég er þann daginn. Undanfarið hef
ég mest hlustað á kvikmyndatónlist frá
sjöunda og áttunda áratugnum í tengslum
við nýju plötuna mína, Melodiu.
BÓK Ég vildi óska að ég gæti nefnt eitthvað
menningarlegt afþreyingarefni, en því
miður gefst mér afar sjaldan tími til að
lesa. Það eru helst skólabækurnar sem hafa
fengið athygli mína undanfarið, en ég er í
kennaranámi við Listaháskóla Íslands. Sú
síðasta sem ég gluggaði í heitir „Stefnur og
straumar í uppeldissögu“. Annars langar
mig mikið í góðar bækur í jólagjöf og hef til
dæmis áhuga á sögu Thelmu Ásdísardóttur;
Myndinni af pabba.
BÚÐ Ég er algjör ísæta og væri ekki
samkvæm sjálfri mér ef ég nefndi ekki
einhverjar af ísbúðum landsins. Verslunin
Brynja á Akureyri býr til einn besta ís sem
ég hef smakkað. Ég get ekki farið norður án
þess að kaupa mér ís í Brynju og helst fleiri
en einn. Svo er það að sjálfsögðu Ísbúðin á
Hagamel. Þessar tvær eru alveg toppurinn í
mínum huga.
BÍÓMYND Það er eins með bíómyndir
og bækur að ég hef ekki gefið mér tíma
undanfarið til að fara í bíó eða horfa á
sjónvarp. Það vill oft verða svo þegar börn
eru komin í spilið að maður endar á barna-
myndunum og hef ég ákveðið að fara með
börnin á Litla kjúllann fyrir jól. Væri líka til í
að sjá heimildarmyndina um mörgæsirnar
„La marche de l‘empereur“. Ég sá sýnt úr
henni og það var mjög skondið.
BORG Í fyrra fór ég í menningarreisu til
Vínarborgar með skólafélögum úr Lista-
háskólanum og þar fórum við á nokkrar
óperusýningar og tónleika. Merkasta afrekið
var þó fyrsta skiptið til Bandaríkjanna þegar
ég heimsótti New York og Chicago. Það
var mjög skemmtileg upplifun en ég sá
söngleikinn Aidu á Broadway og kíkti í
nokkur af hæstu háhýsum heimsins. An-
nars er Reykjavík alltaf í uppáhaldi. Þar býr
fjölskyldan mín og flestir vinir mínir.
VERKEFNI Það sem stendur hæst þessa
dagana er nýútkomin sólóplata mín Mel-
odia, sem ég vann í samstarfi við Samma
bróður. Svo er ég að leggja lokahönd á próf
og verkefnaskil í Listaháskólanum þannig
að jólagjafakaup, bakstur og jólakortaskrif
hafa alveg setið á hakanum, enda er ég
ákveðin í að stressa mig ekki um of fyrir
þessi jól og láta góða skapið halda sér.
LÁRÉTT: 2 kakó, 6 lm, 8 ras, 9 æja, 11
kk, 12 maula, 14 krydd, 16 ma, 17 fúi,
18 ást, 20 il, 21 stíl.
LÓÐRÉTT: 1 slæm, 3 ar, 4 kakadúi, 5
ósk, 7 mjakast, 10 aur, 13 lyf, 15 dill,
16 más, 19 tí.
HRÓSIÐ
...fá hönnuðirnir María Ólafs-
dóttir og Sunneva Vigfúsdóttir
sem hannað hafa smekklegan
kvenfatnað úr íslensku loðskinni
en fötin eiga að gera konum kleift
að klæða af sér íslenska veðráttu
með stæl.
Það virðist hafa kastast í kekki
milli rithöfundarins Stefáns Mána
og útgáfufélagi hans, Eddu. Rit-
höfundurinn er ómyrkur í máli
hvað samstarfið varðar og telur
sig ekki njóta sannmælis.
Fyrir þessi jól kom út bókin
Túristi sem Stefán Máni vill meina
að sé hálfgert olnbogabarn í öllu
jólabókaflóðinu. „Þetta var bók
sem þeir hjá Eddu vildu ekki gefa
út en létu til leiðast svo að þeir
misstu mig ekki,“ segir Stefán.
Hann bendir á að bókin hafi nán-
ast ekkert verið auglýst og útgáf-
an hljóti því að hafa fengið harka-
leg viðbrögð frá rithöfundum hjá
þeirri útgáfu en Túristi fjallar ein-
mitt um heim bókmenntanna hér
á landi. „Ég veit ekki hvað vakir
fyrir þeim,“ bætir rithöfundurinn
við og er augljóslega mjög sár yfir
þessari meðferð.
Þá segir Stefán Máni farir sínar
ekki sléttar hvað þýðingu skáld-
sögunnar Svartur á leik varðar en
hún er tilnefnd til Glerlykilsins,
Norrænu glæpasagnaverðlaun-
anna. „Þeir eru hættir við að þýða
hana sem getur þýtt að hún verði
alls ekki tilnefnd,“ segir Stefán
Máni en bókin seldist mjög vel á
sínum tíma og verður að öllum lík-
indum kvikmynduð innan tveggja
ára.
Rithöfundurinn útilokar ekki rót-
tækar aðgerðar og segir ekki
lokum fyrir það skotið að hann
hætti hjá Eddu. „Þetta gengur
ekki til lengdar og þeir verða að
hífa upp um sig buxurnar ef þeir
ætla ekki að klúðra þessu endan-
lega,“ lýsir Stefán yfir.
Kristján B. Jónasson, þróunar-
stjóri hjá Eddu útgáfu, var mjög
leiður yfir því í hvernig farvegi
þetta mál væri nú komið en sagði
fullkomlega eðlilegar skýringar á
þessu öllu. „Bókin Túristi hefur
ekki fengið góða dóma eða viðtök-
ur yfir í það heila,“ útskýrir hann
og segir að þeir hafi mætt ákveðn-
um mótbyr. „Það breytir því ekki
að ég hef fulla trú á Stefáni Mána
og tel að hann eigi öll sín bestu
verk eftir,“ segir hann.
Kristján viðurkennir á hinn
boginn að þýðingin á bókinni
Svartur á leik sé erfiðleikum bund-
in. „Þegar aðrar bækur hafa verið
tilnefndar til þessara verðlauna
hafa útgáfusamningar verið fyrir
hendi og menn því getað samnýtt
þá. Svo er ekki í þessu máli og
því verður Edda að standa allan
straum af kostnaðinum við þýð-
inguna,“ segir Kristján en telur af
og frá að þeir séu búnir að loka á
alla möguleika heldur verði leitað
STEFÁN MÁNI: ÓSÁTTUR VIÐ EDDU ÚTGÁFU
Segir hana draga lappirnar í
þýðingu Svartur á leik
KRISTJÁN B. JÓNAS-
SON „Bókin Túristi
hefur ekki fengið
góða dóma eða
viðtökur í það
heila,“ segir
Kristján.
STEFÁN MÁNI Er reiður yfir þeirri meðferð sem nýjasta bókin hans, Túristi, hefur fengið. Hann útilokar ekki að hætta hjá Eddu útgáfu.
FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL.
[ VEISTU SVARIÐ ]
1 Hong Kong
2 Stanley Tookie Williams
3 Theo Walcott
1 dálkur 9.9.2005 15:22 Page 9
Vegleg forkeppni fyrir Söngva-
keppni evrópskra sjónvarpsstöðva
verður haldin í byrjun næsta árs.
Að sögn Jónatans Garðarssonar,
talsmanns keppninnar, er þetta gert
vegna þess að á næsta ári verða tut-
tugu ár liðin síðan Icy-tríóið steig
á sviðið í Björgvin og flutti lagið
Gleðibankinn. „Ríkisjónvarpið
fagnar einnig fjörutíu ára afmæli
og því var ákveðið að gera keppnina
sem veglegasta,“ segir hann.
Alls voru send inn 226 lög til val-
nefndar og heldur Jónatan að aldrei
hafi borist jafnmörg lög. „Valnefnd,
skipuð fimm aðilum frá FÍH, FTT
og RÚV, sjá um að velja lögin en
nöfn þeirra verða ekki gefin upp,“
útskýrir Jónatan en leyndin trygg-
ir þeim frið fyrir hvers kyns áreiti.
Keppnin á næsta ári verður með
óvenjulegu sniði en um er að ræða
þrjár forkeppnir þar sem átta lög
berjast um fjögur laus sæti hverju
sinni. Fyrsta keppnin verður 21.
janúar og sú síðasta tveim vikum
seinna. „Tólf lög keppa því pott-
þétt í lokakeppninni 18. febrúar en
við verðum einnig með svokallað
„Wildcard“ sem þýðir að við getum
tekið lög inn sem eiga kannski fylli-
legt erindi inn í keppnina,“ útskýrir
Jónatan og því er ekki öll von úti hjá
þeim sem koma vel út úr atkvæða-
greiðslunni en lenda ekki í fjórum
efstu sætunum.
Margir góðkunningjar keppn-
innar komust áfram í gegnum nið-
urskurðinn og má þar nefna Önnu
Mjöll Ólafsdóttur, Eyjólf Kristjáns-
son og Þorvald Bjarna Þorvalds-
son. Jónatan segir hópinn þó vera
góða blöndu af reynsluboltum og
nýgræðingum. „Það sem kom mér
mest á óvart var hversu fjölbreytt
lögin voru.“
Nú tekur við blóðug barátta hjá
lagahöfundum að finna flytjendur
fyrir lagið en endanlegri útgáfu
verður að skila fyrir 15. janúar.
„Það vilja auðvitað allir að söngv-
arinn eða söngkonan syngi bara
þeirra lag.“ Að sögn Jónatans
hefur ekkert verið ákveðið hvort
þessi keppni verði hér eftir árviss
atburður en það ráðist auðvitað
mikið af því hvernig til tekst. „Það
hefur verið rætt að halda forkeppni
af þessu tagi á tveggja til þriggja
ára fresti,“ sagði hann.
freyrgigja@frettabladid.is
Lagahöfundar berjast
JÓNATAN GARÐARSSON Er ánægður með
þann fjölda sem sendi inn lög fyrir for-
keppni söngvakeppni evrópskra sjónvarps-
stöðva. FRÉTTABLAÐIÐ / E.ÓL