Fréttablaðið - 18.12.2005, Page 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 550 5000
SUNNUDAGUR
18. desember 2005 — 342. tölublað — 5. árgangur
risa
SMÁR
Nýr Yaris
6
DAGAR
TIL JÓLA
SNYRTIFRÆÐINGAR
Mög mikið að
gera fyrir jólin
atvinna
Í MIÐJU BLAÐSINS
POPPPUNKTUR
Felix og Dr. Gunni
kveðja Skjá einn
FÓLK 70
VEÐRIÐ Í DAG
S Ö N G B Ó K B J Ö R G V I N S H A L L D Ó R S S O N A R
1 9 7 0 - 2 0 0 5
Stórkostleg safnplata
í næstu verslun
3CD
Hátíðartónleikar
Sinfóníunnar
„Ef Sinfóníuhljómsveit Íslands á að
fá dafna og þrífast og þroskast af list
sinni verðum við að fá tækifæri til að
laða að okkur bestu listamenn heims,“
segir framkvæmdastjóri hennar.
UMRÆÐAN 16
KÓLNAR EFTIR ÞVÍ SEM LÍÐUR
Á DAGINN Suðvestan strekkingur
með skúrum og síðar slyddu- eða
snjóéljum. Bjart með köflum allra
austast. Hiti 0-5 stig, mildast fyrripartinn.
VEÐUR 4
HONG KONG, AP Mótmælendum úr
röðum hnattvæðingarandstæð-
inga og óeirðalögreglu laust
saman í Hong Kong í gær, þar
sem ráðherrar hinna 149 aðildar-
ríkja Heimsviðskiptastofnunar-
innar, WTO, sátu á rökstólum til
að reyna að ná samkomulagi um
nýjan áfanga að frjálsari alþjóða-
viðskiptum.
Horfur á samkomulagi virtust
ekki góðar og leit út fyrir að á
lokasprettinum snerust viðræð-
urnar fyrst og fremst um það
að ná samstöðu um smááfanga
að settu marki svo að fundurinn
færi ekki alveg út um þúfur.
Hinum sex daga langa fundi
á að ljúka í dag. Viðræðurnar
stóðu fram á nótt í von um að
takast myndi að leysa einhver
ágreiningsefnanna. Í brennidepli
var afnám hafta á viðskipti með
búvörur, einkum að rík ríki skuld-
bindi sig til að hætta greiðslu
útflutningsbóta.
Fyrir utan ráðstefnumiðstöð-
ina sló í brýnu milli lögreglu og
mótmælenda sem gerðu tilraun til
að brjótast til inngöngu á fundar-
staðinn. Nokkrum hinna herskáu
hnattvæðingarandstæðinga tókst
það nærri því en lögregla beitti
kylfum, piparúða, þrýstivatni og
táragasi til að hrekja þá út fyrir
öryggisgirðingarnar.
Þetta voru verstu götumótmæli
sem átt hafa sér stað í Hong Kong
í áratugi. Um 900 manns voru
handteknir og 41 særðist, þar af
fimm lögreglumenn, að sögn lög-
reglustjórans Dick Lee. - aa
Hart tekist á fyrir utan ráðherrafund Heimsviðskiptastofnunarinnar í Hong Kong:
Lítil hreyfing innandyra
ÞAKTIR PIPARÚÐA Óeirðalögregla í
Hong Kong fór óblíðum höndum um
hnattvæðingarandstæðinga. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
LANDBÚNAÐUR „Við fögnum því ef
stjórnmálamenn vilja gera breyting-
ar sem orðið geta til þess að lækka
matvöruverð,“ segir Sigurður Arnar
Sigurðarson, forstjóri Kaupáss. Geir
H. Haarde utanríkisráðherra sagði í
ræðu á fundi Alþjóðaviðskiptastofn-
unarinnar í Hong Kong á föstudag
að Ísland væri reiðubúið til þess
að lækka verulega tolla og minnka
framleiðslustuðning við innlendan
landbúnað. „Ef álögur á innflutt
matvæli lækka og losað verður um
innflutningshöft má búast við að
það leiði til verðlækkunar,“ segir
Sigurður Arnar.
Jóhannes Jónsson í Bónus fagn-
ar einnig tíðindunum. „Ég tel allar
sérgreiðslur skekkja samkeppnis-
stöðuna,“ segir Jóhannes, sem
leggur áherslu á að frjálsræði þurfi
samhliða að aukast. „Það verður
jafnframt að slaka á klónni um inn-
flutninginn þannig að einhliða verð-
hækkanir fylgi ekki í kjölfarið.“
„Við treystum á að fá góðan
aðlögunartíma að breyttum
aðstæðum,“ segir Haraldur Bene-
diktsson, formaður Bændasamtaka
Íslands. „Tíðindi sem utanríkisráð-
herra flytur nú eru okkur þó ekki
ný, í raun hefur undirbúningur
staðið yfir síðastliðin ár.“ Haraldur
segir þó alls ekki hægt að fullyrða
að verðlækkanir fylgi í kjölfarið.
„Breytingarnar gætu leitt til þess
að heimsmarkaðsverð á búvöru
hækkaði,“ segir Haraldur.
Guðni Ágústsson landbúnaðar-
ráðherra telur brýnt að fara yfir
málið. Skipa þurfi stýrihóp sem
fari yfir stöðuna og velti fyrir sér
tollastefnu og stuðningi við land-
búnaðinn til framtíðar.
Guðni bendir þó á að allt verðlag
á Íslandi sé hátt, það einskorðist alls
ekki við íslenskar landbúnaðarvör-
ur. Tollalausar innfluttar landbún-
aðarafurðir séu einnig hlutfalls-
lega dýrari en víða annars staðar.
- ht/sjá síður 2 og 4
Ekki víst að verð á
matvælum lækki
Forsvarsmenn matvöruverslana fagna orðum Geirs H. Haarde um að Ísland sé
reiðubúið að lækka tolla og minnka framleiðslustuðning við innlendan landbúnað.
Formaður Bændasamtakanna segir ekki víst að matvöruverð lækki í kjölfarið.
DROTTNINGIN KOMIN HEIM Unnur Birna Vilhjálmsdóttir kom til landsins í gær og var henni mikið fagnað þegar hún mætti í móttökuhátíð
sem haldin var henni til heiðurs í Vetrargarðinum í Smáralind. Þúsundir manns höfðu safnast saman til að taka á móti fegurðardísinni og á
myndinni sést Halldór Ásgrímsson óska henni innilega til hamingju. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
NOREGUR, AP Finnskur ríkisborg-
ari, sem var handtekinn um borð í
strætisvagni í Björgvin kófdrukk-
inn og á nærbuxunum einum
klæða, hefur sett nýtt Noregsmet
í vangoldnum sektum, að sögn lög-
reglu. Sektirnar eru 99 talsins, að
því er dagblaðið Bergens Tidende
greindi frá.
Samkvæmt frásögn blaðsins
er maðurinn góðkunningi lögregl-
unnar og þekktur fyrir að fækka
fötum á almannafæri eftir því sem
hann gerist drukknari. Alls hljóða
ógreiddu sektirnar upp á andvirði
um einnar milljónar íslenskra
króna. Manninum ku ítrekað hafa
verið vísað frá Noregi en hann
birtist jafnan aftur.
Drukkinn Finni í Björgvin:
Met í ógreidd-
um sektum
KRÁ Í BJÖRGVIN Drykkfelldi Finninn birtist
jafnan aftur í borginni.
VIÐSKIPTI Dagsbrún, móðurfélag
365 miðla, skoðar nú kaup á norska
fjölmiðlafyrirtæk-
inu Orkla Media.
Félagið er nú til
sölu en það á og
rekur meðal annars
dönsku blöðin Berl-
ingske Tidende og
BT og stendur jafn-
framt í blaðaútgáfu
í Noregi og Austur-
Evrópu.
Rætt er um að
andvirði félagsins sé um níutíu
milljarðar íslenskra króna, að sögn
Þórdísar Sigurðardóttur, stjórn-
arformanns Dagsbrúnar. Þórdís
segir engar ákvarðanir þó hafa
verið teknar um hvort fest verði
kaup á félaginu. - ht
Móðurfélag 365 miðla:
Skoðar BT
ÞÓRDÍS
SIGURÐARDÓTTIR
Dagsbrún skoðar
kaup á Berlingske
Tidende.
Áttu allt?
Þegar fólk er
komið í þrot með
jólagjafahugmyndir
handa fólki sem á allt
kemur Fréttablaðið til bjargar
með hugmyndir.
FÓLK 56
Fram á mikilli siglingu
Framarar lögðu Íslandsmeistara Hauka
að velli í gær, 26-33, að Ásvöllum í
Hafnarfirði í DHL-deild karla
í handbolta. Fram
spilaði glimrandi
vel og virðist ætla
að blanda sér í
baráttuna um
Íslandsmeist-
aratitilinn.
ÍÞRÓTTIR 79
Akademískum dyrum Asíu
lokið upp
Mikil hátíðarsamkunda var haldin í
Háskólanum á Akureyri þegar upphafi
Asíuvers Íslands var fagnað.
TÍMAMÓT 24