Fréttablaðið - 18.12.2005, Page 4
„... er opinská, leiftrandi og
heillandi ... Hér er vissulega
um eigulega bók að ræða,
ekki aðeins fyrir aðdáendur
Lennons, heldur alla þá sem
... láta sig sögu dægurtón-
listar einhverju varða.“
Sveinn Guðjónsson, Mbl.
Frábær bók sem varpar
nýju ljósi á eina helstu
rokkstjörnu 20. aldar.
„... leiftrandi og heillandi“
SKRUDDA
Eyjarslóð 9 - 101 Reykjavík
s. 552 8866 - skrudda@skrudda.is
www.skrudda.is
4 18. desember 2005 SUNNUDAGUR
MATVÖRUMARKAÐUR Fákeppni á
matvörumarkaði heldur matvöru-
verði háu hér á landi, ekki bara
innflutningshömlur á búvörum.
Verslunarkeðjurnar hafa á síð-
ari árum skipulagt innkaup sín
þannig að fáir annast innkaupin.
Samþjöppunin er meiri hér en á
hinum Norðurlöndunum. Hér sjá
tvö innkaupa- og vöruhús um yfir
80 prósent innkaupanna í hillur
stórmarkaðanna.
Samþjöppun í innkaupum
hefur aukið afköst og lækkað
innkaupsverð matvöruverslana.
Aukin magninnkaup hafa styrkt
keðjurnar í viðskiptum við birgja
en á smásölumarkaði hefur þetta
leitt til einsleitni í vöruvali og
færri valkosta fyrir neytendur.
Þó að launakostnaður sé hærri
á Norðurlöndunum en annars
staðar í Evrópu geti verðmunur
milli stórmarkaða lækkað fyrir
tilstilli ofurlágvöruverðsversl-
ana. Þessar verslanir hafa ekki
enn rutt sér til rúms hér á landi.
Þá geti aukin útboð á vöruinn-
kaupum verslunarkeðja leitt til
aukinnar samkeppni birgja, fjöl-
breyttara vöruúrvals og lægra
innkaupaverðs.
Þetta kemur fram í skýrslu
Samkeppniseftirlitsins um nor-
rænan matvörumarkað. Þar
segir jafnframt að mikil sam-
þjöppun á smásölustigi hafi haft
áhrif á samkeppnina og dregið úr
samkeppnisstöðu lítilla og nýrra
birgja. Þessa samkeppnisstöðu
þurfi að styrkja á nýjan leik, til
dæmis með því að auka aðgang
nýrra birgja að hilluplássi í
verslunum.
Gylfi Arnbjörnsson, fram-
kvæmdastjóri Alþýðusambands
Íslands, segir að skýrsla norrænu
samkeppniseftirlitanna sé „áfell-
isdómur um samkeppnina“. „Hér
er nauðsynlegt að tvennt gerist.
Stjórnvöld verða að axla ábyrgð á
því að fara í breytingar á vernd-
un landbúnaðarins og finna leið-
ir til þess að hagsmunir neytenda
og bænda fari saman. Það verður
síðan að skoða kostnaðarupp-
gjör í verslunarfyrirtækjum og
kanna hvers vegna vöruverðið er
svona hátt og afkoman lág, hvað
það er í bókhaldi þessara fyrir-
tækja. Stór aðili á matvörumark-
aði, sem á fasteignafyrirtæki og
leigir sjálfum sér, tekur hagnað-
inn bara út í fasteignarekstrin-
um.“
Samkeppniseftirlitið hyggst
á næstunni beina tilmælum til
stjórnvalda um að skoða inn-
flutningshömlur á búvörum. Í
skýrslunni segir að flutnings-
kostnaður hingað vegi æ minna í
matarverði og útskýri ekki nema
að litlum hluta hærra verð á mat-
vörum hér en í nágrannalöndun-
um.
ghs@frettabladid.is
Áfellisdómur um samkeppni
Samþjöppun er mikil bæði á smásölumarkaði og hjá birgjum. Birgjar þurfa aukinn aðgang að hilluplássi
og markaði í matvöruverslunum hér á landi. Verslunarrými þarf að skipuleggja á nýjum lóðum með tilliti
til virkrar samkeppni. Áfellisdómur, telur framkvæmdastjóri ASÍ.
MATVARA Vöruúrval í stórmörkuðum hér er minna en í flestum öðrum Evrópulöndum.
Samkeppniseftirlitið telur að það þurfi að auka samkeppni meðal birgja og opna nýjum
birgjum greiðari leið að hilluplássi í verslunum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
GYLFI ARNBJÖRNSSON
„Ef það er slegið á
samkeppnina og
dregið úr henni
eða það á sér stað
á matvörumarkaði
þá hefur það líka
áhrif til hækkunar á
matvöruverði.“
Vöruúrval í verslunum
Samkvæmt skýrslu Samkeppniseftirlitsins um matvörumarkað á Norðurlöndum.
155 153
105
198
279
254
113
127
91
164
195
209
MJÓLKURVÖRUR KJÖTVÖRUR OG ÁLEGG DRYKKJARVÖRUR
ÍS
LA
N
D
D
A
N
M
Ö
R
K
N
O
R
EG
U
R
SV
ÍÞ
JÓ
Ð
FI
N
N
LA
N
D
FR
A
K
K
LA
N
D
ÍS
LA
N
D
D
A
N
M
Ö
R
K
N
O
R
EG
U
R
SV
ÍÞ
JÓ
Ð
FI
N
N
LA
N
D
FR
A
K
K
LA
N
D
ÍS
LA
N
D
D
A
N
M
Ö
R
K
N
O
R
EG
U
R
SV
ÍÞ
JÓ
Ð
FI
N
N
LA
N
D
FR
A
K
K
LA
N
D
122
140
94
146
195
250
Matarkostnaður
Hlutfall af ráðstöfunartekjum í matar-
og drykkjarinnkaup 2004
ÍSLAND 16,3% (14%)
DANMÖRK 15,2% (25% VSK.)
FINNLAND 15,8% (17% VSK.)
SVÍÞJÓÐ 14,7% (12%)
NOREGUR 13,5% (12%)
BRETLAND 10,6% (ENGINN VSK.)
BELGÍA 16,8% (6%)
FRAKKLAND 16.6% (5,5%)
ÞÝSKALAND 11,8% (7%)
ÍTALÍA 16,9% (4%)
SPÁNN 22,2% (4%)
PORTÚGAL 18,6% (5% VSK)
MATVÖRUVERÐ Gunnar Gunnars-
son, svínabóndi á Hýrumel í Borg-
arfirði, gagnrýnir umræðuna um
hátt verðlag á Íslandi vegna inn-
flutningshafta á búvörum. Hann
telur sanngarnara að bera saman
hlutfall matvöru af ráðstöfunar-
tekjum íbúa í Evrópu og taka tillit
til virðisaukaskatts á matvæli.
Gunnar rekur svínabú í Borg-
arfirði og bendir á að vinnuaflið
sé dýrt. Hann greiðir pólskum
starfsmönnum samkvæmt íslensk-
um kjarasamningum. Væri þeim
greitt samkvæmt pólskum kjara-
samningum myndi launaliðurinn
lækka verulega. Taka þurfi tillit
til ýmissa slíkra þátta í umræð-
unni. - ghs
Svínabóndi um matarverðið:
Hlutfall ráð-
stöfunartekna
BÆJARSTJÓRNARMÁL „Ekkert hefur
verið ákveðið ennþá en við erum í
þreifingum við World Class og ef
allt gengur að óskum þá göngum
við til samninga við þá fljótlega,“
segir Jónmundur Guðmarsson,
bæjarstjóri á Seltjarnarnesi.
Skammt er síðan bæjarstjórnin
ákvað að ræða nánar við einn aðila
af þremur sem um sóttu varðandi
byggingu líkamsræktarstöðvar
við hlið sundlaugarinnar á Sel-
tjarnar nesi. Hefur sú ákvörðun
farið fyrir brjóstið á þeim tveimur
aðilum sem ekki var rætt við og
hefur annar þeirra sent formlega
stjórnsýslukæru vegna málsins.
Jónmundur segir engar ákvarð-
anir hafa verið teknar. Bæjarstjórn
hafi einróma viljað skoða tilboð
World Class nánar enda sá aðili sá
eini sem stendur í viðlíka rekstri
annars staðar. Það þýði ekki að
hinir tveir hafi verið útilokaðir en
flestum lítist vel á tillögur þær er
forsvarsmenn World Class hafa fram
fært og byggi á svipaðri hugmynd og
í Laugum í Reykjavík.
Gangi viðræður allar eftir
mega Seltirningar eiga von á að ný
líkamsræktarstöð verði risin við
sundlaugina strax næsta haust. - aöe
Stjórnsýslukæra á hendur Seltjarnarnesbæ vegna líkamsræktarstöðvar:
Rætt við einn af þremur
SUNDLAUG SELTJARNARNESS Til stendur að
líkamsræktarstöð World Class rísi við hlið
sundlaugarinnar og að laugin sjálf verði
jafnvel að einhverju eða öllu leyti yfirbyggð.
DÓMSMÁL Héraðsdómur hefur
sýknað tvo menn af ákæru um til-
raun til innflutnings á 137 grömm-
um af amfetamíni frá Kaupmanna-
höfn í september síðastliðnum.
Annar maðurinn, sem er um
þrítugt, var handtekinn af dönsku
lögreglunni á aðaljárnbrautarstöð-
inni í Kaupmannarhöfn þar sem
hann vitjaði eiturlyfja sem vitorðs-
maður hans hafði komið fyrir. Ekki
þótti fullsannað hjá ákæruvaldinu
að tilætlan sakborninga hafi verið
að flytja efnið til landsins og voru
þeir því sýknaðir. Hinn yngri var
þó sakfelldur fyrir ýmis önnur
afbrot og dæmdur til fangelsis-
vistar í þrjátíu daga. - æþe
Tveir sýknaðir í eiturlyfjamáli:
Tilætlan þeirra
ósönnuð
BANDARÍKIN, AP Ný innflytjendalög
sem samþykkt voru í fulltrúadeild
Bandaríkjaþings kveða meðal
annars á um að vinnuveitendum
beri að rannsaka lögmæti starfs-
manna sinna, að her og lögreglu
megi nýta til að hefta ólöglega
innkomu í landið og byggja megi
öryggisgirðingu meðfram landa-
mærum Mexíkó.
Einnig verður hætt að halda
happdrætti um bandarískt
atvinnuleyfi (græna kortið) en
ríkisborgurum landa, þar sem
lítið er um ásókn í bandarískan
ríkisborgararétt, hefur staðið
þátttaka í þessu happdrætti til
boða, þar á meðal Íslendingum.
Nýju lögin hafa verið gagnrýnd
af ráðamönnum í Mexíkó og sam-
tökum innflytjenda, sem telja þau
of harðneskjuleg. Talsmenn frum-
varpsins segja hörkuna nauðsyn-
lega svo að auka megi virðingu
fyrir lögum og reglum. Yfir tíu
milljónir manna eru innan landa-
mæra Bandaríkjanna án landvist-
arleyfis.
Hert innflytjendalög vestra:
Grænakorts-
happdrætti hætt
GENGIÐ
GENGI GJALDMIÐLA 16.12.2005
Gengisvísitala krónunnar
Bandaríkjadalur 62,16 62,46
Sterlingspund 110,07 110,61
Evra 74,57 74,99
Dönsk króna 10,007 10,065
Norsk króna 9,346 9,402
Sænsk króna 7,855 7,9018
Japanskt jen 0,5344 0,5376
SDR 89,65 90,19
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
KAUP SALA
104,7986