Fréttablaðið


Fréttablaðið - 18.12.2005, Qupperneq 6

Fréttablaðið - 18.12.2005, Qupperneq 6
FISKELDISSTÖÐ TIL SÖLU !! MIKLILAX AÐ HRAUNI I. Í FLJÓTUM. Fiskeldisstöðin Miklilax er staðsett á jörðinni Hraun I Fljótahreppi, skammt frá Siglufirði. Húsakostur: Vandað sláturhús úr límtré 485,3m2 stálklætt. Rafstöðvar- hús 153,7m2, (steypt) djúpdæluhús 38,8m2 (steypt ) og skúrar. Fiskeldisker: Steyptur. botn og hliðar úr glerjungsungshúðuðu stáli: 8 stk Ø 23,9 m og 3 stk Ø 12,9m. Véla og tækjabúnaður: Rafstöð Cummins 820 hp, keyrð 900 klst, Rafall Leroy-Somer 516kw, 4stk Framo djúpdælur, 4-5 stk loftdælur, krapavél Type B105, o.m.fl. Lausmunir: Talsvert magn af plaströrum Ø600mm og 170mm, og ýmsu öðru efni og búnaði. Upplýsingar verða gefnar í síma 444 - 8706 og einnig má senda fyrir- spurnir á henry@kbbanki.is og fax 444-8709. Óskað er eftir tilboðum í alla stöðina eða hluta. Þ.e. byggingar, vélar eða lausamuni. Senda skal inn formleg tilboð ásamt greiðsluskilmálum. Tilboðsfrestur er til 14. janúar 2006. Tilboð sendist til KB banka, Sóltúni 26. 105 R c/o Henrý Þór. Kaupþing banki hf. áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er, eða hafna öllum. 6 18. desember 2005 SUNNUDAGUR KJARAMÁL „Þarna var kannski gengið aðeins of langt en okkur finnst eðlilegt að kjör þeirra verst settu hækki án þess að allar aðrar stéttir hlaupi upp til handa og fóta líka,“ segir Hall- dóra Friðjónsdóttir, formaður Bandalags háskólamanna. Á fundi miðstjórnar banda- lagsins í vikunni var hart deilt á aðfinnslur þær sem Félag grunnskólakennara og Félag leikskólakennara hafa við nýja samninga Reykjavíkurborgar við Eflingu og Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar. Samning- arnir þýða að laun þeirra lægst launuðu hækka sem hlýtur að vera baráttumál allra í landinu. Halldóra segir þó meiri skiln- ing á máli leikskólakennara en bendir á að vart sé hægt að tala um að ófaglært fólk sé komið yfir faglært í launum eins og þeir hafi haldið fram. „Mjög margir í viðkomandi félögum eru háskólamenntaðir þó það sé kannski ekki sem leikskólakenn- arar og ekki sanngjarnt að tala um ófaglært fólk eins og gert er.“ Samningar borgarinnar hafa einnig haft þau áhrif að umsókn- ir um atvinnu á borð við heima- hjúkrun eru farnar að berast inn á borð starfsmannaskrifstofu borgarinnar. Steinunn Valdís Óskarsdóttir, borgarstjóri, segir það vera í fyrsta sinn sem slíkt eigi sér stað. „Í þessari viku hafa borist allnokkrar umsókn- ir sem vart hafa borist áður til okkar. Þar er komið fólk sem áður taldi kjörin ekki nógu góð en það hefur breyst og eingöngu vegna þessara nýju samninga.“ -aöe Bandalag háskólamanna gagnrýnir Félag leik- og grunnskólakennara: Fagna hækkun lægstu launa GAGNRÝNA LEIKSKÓLAKENNARA Talið er eðlilegt að laun lægstu stétta landsins og þeirra sem setið hafa eftir hækki án þess að til komi hækkanir fyrir alla aðra hópa í þjóðfélaginu einnig að mati Bandalags háskólanema. SAMFÉLAGSMÁL „Umsókn um félagsíbúð sem metin er sem for- gangsmál liggur ekki óafgreidd í fimm ár. Þá eru það einhverjir þættir þar á bak við sem eru þess valdandi að hún er ekki afgreidd,“ segir Ellý Þorsteinsdóttir frá Vel- ferðarsviði Reykjavíkurborgar. Hún getur þó ekki tjáð sig sér- staklega um málefni Sævars Arn- fjörð. „Við höfum ýmis úrræði fyrir fólk í svipuðum aðstæðum. Það eru til dæmis gistiskýlin í Þing- holtum sem eru ófullnýtt um þessar mundir og húsnæði fyrir heimilislausa við Miklubraut,“ segir hún. Heiðar Guðnason, forstöðu- maður Samhjálpar, segir að ætla megi að rúmlega fimmtíu manns séu á vergangi um þessar mundir. „Ég er þeirrar skoðunar að það sé brýn þörf á heildarendurskoð- un á húsnæðismálum fatlaðra og sjúkra,“ segir Sigursteinn Más- son, formaður Öryrkjabandalags- ins. „Við verðum að byggja upp virkan leigumarkað þar sem allir sitja við sama borð og að þar verði tryggt að öryrkjar og aðrir hafi efni á því að vera á þeim markaði en þurfi ekki á sérúrræðum að halda.“ - jse Formaður Öryrkjabandalagsins um húsnæðismál öryrkja: Þörf á heildarendurskoðun SÆVAR OG SIGURSTEINN Nokkur úrræði eru í boði fyrir heimilislausa í Reykjavík. Sigursteinn Másson vill heildarendurskoðun á húsnæðismálum öryrkja og annarra sem veikir eru. DÓMSMÁL Fiskistofa hefur verið dæmd til að greiða útgerðarfélag- inu Bjarti í Vík og Berki Hrafni Árnasyni 200.000 krónur hvorum í skaðabætur fyrir að samþykkja að flytja veiðileyfi ólöglega á milli báta. Samkvæmt dómi Héraðsdóms Reykjavíkur sem kveðinn var upp í gær var Fiskistofu óheimilt að flytja veiðileyfi af bátnum Sig- rúnu GK yfir á bátinn Einar HU. Útgerðarfélagið stefndi Fiski- stofu fyrir það tjón sem félagið varð fyrir vegna þessarar færslu á veiðileyfum. Fyrir héraðsdómi lá dómur hæstaréttar um að flutn- ingurinn hefði verið ólögmætur og því taldist sannað í héraði að Fiskistofu bæri að greiða skaða- bætur. - æþe Fiskistofa dæmd í héraði: Gert að greiða skaðabætur Einn lést í loftárás Einn lést og minnst þrír særðust þegar ísraelsk flugvél skaut flugskeyti á bíl á Gaza- svæðinu í gær, að sögn palestínsku öryggis- og neyðarþjónustunnar. Ísraelar hafa brugðist af hörku við sjálfsmorð- sárásinni hinn 5. desember þegar fimm Ísraelar létu lífið. Skotárás Á föstudag skutu palestínskir skæruliðar á bíl í borginni Hebron og drápu íbúa gyðingabyggðar í nágrenn- inu. Fatah-samtökin og samtökin Heilagt stríð lýstu sameiginlegri ábyrgð á hendur sér. Ísraelsmenn segja palestínsk stjórnvöld ekki gera nóg til að stemma stigu við öfgamönnum en þau hafa heitið auknum öryggisráðstöfunum á svæðinu er nær dregur kosningum í Palestínu hinn 25. janúar. Arabar í háskóla í gyðinga- byggð Vakið hefur athygli að 300 arabar stunda nám við háskóla í afar umdeildri gyðingabyggð, á landi sem Palestínumenn gera kröfu til. Fjárhags- legt bolmagn skólans virðist hafa brúað gjána milli Ísraela og Palestínumanna í þessu tilviki. VESTURBAKKINN KJÖRKASSINN Mun friður komast á í Írak nú eftir að búið er að kjósa til þings? já 13,3 nei 86,7 SPURNING DAGSINS Í DAG Mun ríkisstjórnin lækka landbúnaðarstyrki? Farðu inn á visir.is til að greiða atkvæði IÐNAÐUR Verksmiðjan Alpan á Eyrarbakka mun flytjast til Tar- goviste í Rúmeníu á næsta ári. Framkvæmdastjóri fyrirtækis- ins segir tvær ástæður vera fyrir þeirri ákvörðun. „Það er skortur á vinnuafli og hátt gengi íslensku krónunnar sem gerir okkur mjög erfitt um vik,“ segir Þórður Bach- mann framkvæmdastjóri en fyrir- tækið framleiðir álpönnur og potta og fara um níutíu prósent fram- leiðslunnar á erlendan markað. „Þetta eru störf sem er mjög erfitt að fá Íslendinga til að vinna. Við höfum verið að reyna að dekka þetta með erlendu starfsfólki en það dugar samt ekki,“ segir Þórð- ur en um helmingur starfsmanna Alpan er af erlendu bergi brotinn. „Við þurftum einfaldlega að taka ákvörðun um það hvort við vild- um flytja inn fólk í stórum stíl eða flytjast til útlanda. Við völd- um staðsetningu þar sem mikil þekking er á málmvinnslu og mjög greiður aðgangur að vinnuafli.“ Alpan kemur til með að aðstoða þá sem missa vinnuna við að finna ný störf en þetta eru um 25 manns. „Atvinnuástandið er þannig að við sjáum ekki fram á að það verði vandamál að útvega fólkinu vinnu því það er mikil eftirspurn eftir vinnuafli.“ Verksmiðjan heldur uppi fullri starfsemi til loka mars og mun flytjast um set í lok maí en sölu- starfseminni verður áfram stýrt frá Íslandi „Við hefjumst handa við flutning í apríl og líklega verð- ur verksmiðjan orðin fullgangsett í Rúmeníu í lok júní. Það eru mjög stórir samningar í burðarliðnum hjá okkur sem við höfum ekki getað sinnt hingað til vegna skorts á vinnuafli og það verður gott að geta uppfyllt allar fyrirliggj- andi pantanirnar. Ég býst við að starfsmannafjöldinn í fyrirtækinu muni fara úr fjörutíu manns upp í hundrað innan tveggja ára.“ Að sögn Einars Njálssonar, bæj- arstjóra á Eyrarbakka, mun þessi flutningur Alpan til Rúmeníu hafa mikil áhrif á sveitarfélagið. „Þetta kemur til með að hafa heilmikil áhrif þar sem þarna hverfur 25 manna vinnustaður úr sveitarfélaginu og það er ekki gott. Fólk sem hefur starfað þarna missir vinnuna og þó svo að það sé alls ekki slæmt atvinnuástand í sveitarfélaginu þá kemur þetta til með að hafa mikla röskun för með sér og sérstaklega á líf fólks sem þarna vann,“ segir Einar. „Þetta er verulegt áhyggju- efni og það virðist vera slík þróun í gangi hérlendis að iðnaðarfyrirtæki flytja starfsemi sína til láglauna- svæða og þetta virðist vera angi af því. Það er stór ástæða til að hafa áhyggjur af þeirri þróun.“ hilda@frettabladid.is Álpönnuverksmiðja flutt til Rúmeníu Stjórn fyrirtækisins Alpan á Eyrarbakka hefur ákveðið að flytja framleiðslu þess til Targoviste í Rúmeníu. Bæjarstjóri Árborgar segir það hafa mikil áhrif á sveitarfélagið að missa 25 manna vinnustað og segir þróunina áhyggjuefni. VIÐ STÖRF Í ALPAN Starfsmenn fyrirtækisins missa vinnuna þegar starfsemi fyrirtækisins verður flutt til Rúmeníu.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.