Fréttablaðið - 18.12.2005, Side 20
18. desember 2005 SUNNUDAGUR
Magnús Þorsteinsson hefur ekki
verið mjög áberandi í íslensku
samfélagi þrátt fyrir að umsvif
hans séu umtalsverð.
Hann var viðskiptafélagi Björg-
ólfsfeðga í Pétursborg og keypti
með þeim Landsbanka Íslands
þegar íslenska ríkið einkavæddi
bankann. Hann fylgdi þeim feðg-
um á leið en hefur síðustu miss-
erin einbeitt sér að uppbyggingu
flutningafélags með kaupum á
félögum sem hann hefur unnið að
hörðum höndum að gera úr heild.
Avion Group var stofnað fyrir
tæpu ári en Magnús steig sín
fyrstu skref í átt að núverandi
fyrirtæki með kaupum á helm-
ingshlut í flugfélaginu Atlanta.
Atlanta á sér merkilega sögu.
Frumkvöðlar fyrirtækisins voru
Arngrímur Jóhannsson og Þóra
Guðmundsdóttir, sem stofnuðu
það árið 1986. Félagið óx hröðum
skrefum og stefndi á sínum tíma á
skráningu í Kauphöll Íslands. Af
því varð þó ekki.
Fókus á flutninga
Mikð vatn hefur runnið til sjáv-
ar og tíminn verið notaður til að
byggja upp fjárfestingarfélag
sem einbeitir sér að flutninga-
starfsemi með stoð í flugstarf-
semi, leiguflugi og sjó- og land-
flutningum. „Við erum mjög
fókuseruð,“ segir Magnús þegar
hann er spurður hvort annars
konar fjárfestingar kunni að vera
á dagskrá.
Avion ætlar sér að einbeita
sér að flutningastarfsemi. Sá
geiri er spennandi, sérstak-
lega í ljósi þess að með aukinni
alþjóðavæðingu eykst sérhæf-
ing svæða í framleiðslu á til-
teknum vörutegundum. Þeirri
framleiðslu þarf síðan að koma
á markaði víða um heim. Því er
talið að flutningar muni vaxa
verulega, ekki síst kæliflutn-
ingar með matvöru. Þá munu
vaxandi kröfur um ferskleika
auka flutninga með flugi. Því
geta legið ýmis tækifæri í því að
vera með skipaflutninga og flug-
rekstur undir sama hatti.
Ekkert félag sambærilegt
Avion er sem fyrr segir fjárfest-
ingarfélag og undir hatti þess
eru þrjú megin fyrirtæki: Eim-
skip í sjó- og landflutningum,
Atlanta í flugvéla og áhafnaleigu
en einnig viðhaldsþjónustu flug-
véla og annan stoðrekstur við
kjarnastarfsemina. Þriðja stoðin
er svo leiguflug með farþega og
ferðaþjónusta. Excel Airways er
leiguflugfélag og undir þá starf-
semi heyrir einnig rekstur ferða-
skrifstofa í Bretlandi. Magnús
segir að ekkert sambærilegt
félag við Avion sé til í heiminum
og samsetning þessara þriggja
þátta einstök. Félögin eru rekin
sem sjálfstæð fyrirtæki en nýta
kosti þess að vera undir sama
móðurfélagi sem bæði býr til
samlegð í ýmis konar stoðþjón-
ustu og betri kjör í innkaupum á
eldsneyti og ýmis konar þjónustu
í krafti stærðar.
Bið eftir íslenskri skráningu
Starfsemin er að stærstum hluta
erlendis. Leiguflug og ferðaþjón-
usta félagsins er með höfuðstöðv-
ar í Bretlandi og Atlanta hefur
frá upphafi sinnt verkefnum
um allan heim. Eimskip hefur
markvisst verið að byggja upp
erlenda starfsemi. Avion passar
því vel inn í hóp stærstu félag-
anna í Kauphöll Íslands sem eru
með stærstan hluta tekna sinna
af erlendri starfsemi eða útflutn-
ingi. Um fimmtán prósent tekna
Avion eru af innlendri starfsemi
og vegur þar langþyngst flutn-
ingastarfsemi Eimskipa.
Í talsverðan tíma hefur verið
ljóst að Avion stefndi í Kauphöll
Íslands. Markaðsaðstæður hafa
verið einstaklega hagstæðar und-
anfarin misseri og ýmsir velt því
fyrir sér hversu lengi þetta blóma-
skeið muni standa. Ekki sér fyrir
endan á því og nú þegar Avion
stefnir á markaðinn eru aðstæð-
urnar góðar og því miklar líkur
á að útboð heppnist vel. Félögum
í Kauphöllinni hefur farið fækk-
andi og markaðnum því mikill
akkur að fá ný félög inn. Avion er
fyrsta íslenska félagið til að skrá
sig á markað í rúm tvö ár.
Félagið hefur gengið í gegnum
miklar breytingar undanfarið ár
og merki endurskipulagningar
farið að gæta þegar það stígur
inn í Kauphöllina. Lykilstjórn-
endur félagsins hafa unnið að því
hörðum höndum undanfarið ár að
móta stefnuna og samþætta rekst-
ur félaga sem hafa verið samein-
uð inn í samstæðuna. Erfitt hefði
verið fyrir félag á svo róttæku
mótunarskeiði að stíga skrefið til
skráningar mikið fyrr.
Eimskip aftur til fyrri hluthafa
Útboðið nú er til fagfjárfesta, en
við kaupin á Eimskipafélaginu
fékk Straumur Burðarás hlut í
Avion sem væntanlega verður
greiddur hluthöfum Straums sem
arður að fengnu samþykki hlut-
hafafundar. Sex milljarðar verða
því boðnir út nú en ef marka má
hlutafjárútboð FL Group ætti
Avion ekki að þurfa að kvíða
miklu um niðurstöðuna. Búast
má við talsverðri eftirspurn.
Sú lausn að Straumur láti bréf í
Avion til hluthafa sinna er nokk-
uð snjöll. Það tryggir Avion stór-
an hluthafahóp og er sögulega
skemmtilegt þar sem stór hópur
þeirra sem áttu áður hlut í Eim-
skipafélaginu eignast nú hlut í
því aftur.
Áttunda stærsta í höllinni
Miðað við að útboðsgengið sé á
bilinu 34,3 til 38,3 er markaðs-
virði Avion 58 til 63 milljarðar
króna. Félagið verður áttunda
verðmætasta félagið í Kaup-
höll Íslands og það fjórða verð-
mætasta ef fjármálafyrirtækin
eru frátalin. Hjá félaginu starfa
4.500 manns og starfsemin er á
85 stöðum víða um heim. Tekj-
ur félagsins eru áætlaðar hátt í
tveir milljarðar dollara á næsta
ári, eða 120 milljarðar íslenskra
króna, og áætlanir félagsins gera
ráð fyrir að rekstrarhagnaður
fyrir afskriftir verði 165 milljón-
ir dollara eða rúmir tíu milljarð-
ar króna. Rekstrahagnaður þessa
árs fyrir afskriftir nam 7,4 millj-
örðum króna.
Avion hefur verið á fleygiferð
undanfarin misseri og keypt
önnur félög sem falla að fram-
tíðarsýn félagsins. Magnús
Þorsteinsson leiðir þá vinnu og
stefna hans er skýr. Avion er
stefnt til þess að verða leiðandi
fyrirtæki á sínu sviði á alþjóða-
vísu. Félagið ræður nú yfir tæp-
lega sextíu þotum, 25 skipum og
fimmtán frystigeymslum. Miðað
við ganginn í starfseminni og þá
stefnu sem mörkuð hefur verið
þarf enginn að búast við kyrr-
stöðu hjá félaginu. Það kæmi alla
vega engum á óvart ef frekari
fyrirtækjakaup sæju dagsins ljós
á næsta ári þegar félagið verð-
ur að fullu komið í hóp stærstu
íslensku almenningshlutafélag-
anna.
haflidi@frettabladid.is
Avion í innsiglingu
Kauphallarinnar
Avion Group er ungt félag sem hefur innanborðs rótgróinn öldung eins og
Eimskip. Félagið hefur verið í mótun og vexti undir stjórn Magnúsar Þor-
steinssonar. Nú er félagið ferðbúið og næsti áfangastaður er Kauphöll Íslands.
TILBÚINN Í KAUPHÖLLINA Magnús Þorsteinsson hefur skýra sýn um að heimurinn krefjist sífellt meiri flutninga. Hann hefur mótað Avion
Group og stefnir að því að sigla félaginu í fremstu röð fyrirtækja á sviði flutningaþjónustu.