Fréttablaðið - 18.12.2005, Qupperneq 24
18. desember 2005 SUNNUDAGUR24
timamot@frettabladid.is
V-dags samtökin gáfu Stíga-
mótum hálfa milljón króna í
gær. „Gjöfin er gefin af því
tilefni að fyrr í haust fengu
V-dags samtökin einnar
milljón króna í styrk frá
versluninni Debenhams og
samtökin vilja deila þeim
styrk með Stígamótum,“
segir Hildur Sverrisdóttir,
framkvæmdastjóri V-dags
samtakanna.
Hildur segir samtökin
vilja styðja við samtök sem
vinna nauðsynlegt starf í
þágu baráttu gegn ofbeldi á
konum. Að þessu sinni urðu
Stígamót fyrir valinu, enda
hafi Stígamót alltaf gefið V-
dags samtökunum mikinn
andlegan stuðning í barátt-
unni.
Þórey Vilhjálmsdóttir,
formaður V-dags samtak-
anna, afhenti Rúnu Jóns-
dóttur hjá Stígamótum
styrkinn. - óká
KEITH RICHARDS (1943-)
fæddist á þessum degi.
„Ég hef aldrei átt við
eiturlyfjavandmál að stríða,
einungis lögregluvandamál.“
Keith Richards er gítarleikari
hljómsveitarinnar The Rolling Stones.
MERKISATBURÐIR
1865 Þrælahald afnumið í
Bandaríkjunum samkvæmt
þrettándu stjórnarskrár-
breytingu.
1894 Konur í Suður-Ástralíu fá
rétt til að kjósa og bjóða sig
fram til þings fyrstar kvenna
þar í landi.
1642 Abel Tasman kemur til Nýja-
Sjálands fyrstur Evrópubúa.
1965 Japan og Suður-Kórea taka
upp stjórnmálasamband.
1966 Richard L. Walker finnur
tungl Satúrnusar, Epimet-
heus.
1969 Dauðarefsing afnumin í
Bretlandi.
Þennan dag árið 1996 ályktaði skólanefnd í Oak-
land í Kaliforníu að ebonics-tungumálið væri mál-
lýska.
Ebonics, sem einnig er kallað svört enska, móð-
urmál svartra eða Jive, er sérstök tegund
ensku sem á rætur sínar að rekja til þræl-
aflutninga Bandaríkjamanna frá Afríku.
Þá er hún líka skyld ensku sem töluð var
á Bretlandseyjum á 16. og 17. öld.
Sérstakar mállýskur svartra, afrískra
þræla og mismunandi beiting þeirra á
enskri tungu til að hafa samskipti við
þrælahaldarana urðu til þess að ebonics
varð til.
Stuðningsmenn mállýskunnar í
Bandaríkjum nútímans vilja margir hverjir að
ebonics verði formlega viðurkennt sem mállýska
en það hefði í för með sér fjárframlög til kennslu
mállýskunnar í skólum. Áðurnefnd skólanefnd gaf
út formlega ályktun þess efnis að ebonics væri góð
og gild mállýska sem kenna ætti í skólum. Hins
vegar stóð til að skipta um skólanefnd í Oakland
og ályktunin um ebonics-mállýskuna var síðasta
áyktun fráfarandi skólanefndar. Við tók
ný skólanefnd sem gaf fljótlega út álykt-
un þess efnis að ebonics væri ekki hluti
af indó-evrópska tungumálastofninum og
gæti nefndin ekki verið sammála því að
ebonics væri skylt ensku. Nefndin felldi
því ályktun fyrri skólanefndar úr gildi.
Þeir sem berjast fyrir því að ebonics-
mállýskan verði tekin til kennslu í skólum
segja ástæðu þess að hún er ekki kennd
stjórnmálalegs eðlis og segja að svartir
nemendur geti náð betri tökum á almennri ensku
ef þeir fá að kynnast málfræði ebonics. Í dag hefur
mállýskan ekki enn verið tekin til kennslu í skólum
í Bandaríkjunum.
ÞETTA GERÐIST > 18. DESEMBER 1996
AFMÆLI
Sigvaldi Arason verktaki í Borgar-
nesi er 68 ára.
Þorsteinn Gunnarsson, leikari og
arkitekt, er 65 ára.
Erlendur Sveinsson kvikmynda-
gerðarmaður er 57 ára.
Sif Ragnhildardóttir söngkona
er 53 ára.
Vilhjálmur Egilsson ráðuneytis-
stjóri er 53 ára.
Björg Eva Erlendsdóttir frétta-
maður er 45 ára.
Ingi Sigurðsson, fyrrverandi
bæjarstjóri og knattspyrnumaður,
er 37 ára.
FÆDDUST ÞENNAN DAG
1626 Kristín Svíadrottning.
1863 Frans Ferdinand, erkihertogi
og ríkiserfingi Austurríkis.
1878 Jósef Stalín, einræðisherra
Sovétríkjanna.
1913 Willy Brandt, kanslari
Þýskalands og friðarverðlaunahafi
Nóbels.
1946 Steve Biko, leiðtogi svartra
og baráttumaður gegn aðskilnað-
arstefnu í Suður-Afríku.
1963 Brad Pitt, bandarískur leikari.
Hugheilar þakkir sendum við öllum þeim
sem sýndi okkur samúð og hlýhug við
andlát og útför eiginmanns míns, föður
okkar, tengdaföður, afa og langafa,
Óskar Geirssonar
frá Hallanda, Miðengi 12, Selfossi.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Heilbrigðisstofnunar
Suðurlands, Selfossi, fyrir einstaka umönnun og hlýju.
Sigríður Ólafsdóttir, Hreggviður Óskarsson, Hafdís Hall-
dórsdóttir, Ólafur Gunnar Óskarsson, Sigríður Jónsdóttir,
Fjóla Margrét Óskarsdóttir, Sören Nagel, Óskar Þór Óskars-
son, barnabörn og barnabarnabarn.
V-DAGURINN OG STÍGAMÓT Fulltrúar V-dagsins og Stígamóta hittust í hádeginu í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Stígamót fengu hálfa milljón
Svört enska viðurkennd sem mállýska
Ástkær eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir og afi,
Arnkell Bergmann Guðmundsson
bókbandsmeistari,
lést á Landspítalanum fimmtudaginn 15. desember.
Útför hans fer fram frá Áskirkju fimmtudaginn 22.
desember kl. 11. Þeim sem vilja minnast hans er bent
á Hjartavernd.
Hulda Guðmundsdóttir
Ásdís J.B. Arnkelsdóttir Róbert V. Tómasson
Arnkell Bergmann Arnkelsson Hulda Nanna Lúðvíksdóttir
og barnabörn.
ANDLÁT
Bettý Marsellíusdóttir, Ásbyrgi,
Hofsósi, lést á Landspítalanum
miðvikudaginn 15. desember.
Guðný Maren Matthíasdóttir lést
mánudaginn 12. desember.
Hreinn Elíasson, listmálari,
Jörundarholti 108, Akranesi, lést á
Sjúkrahúsi Akraness fimmtudag-
inn 15. desember.
Jónas Sigurðsson lést á Hrafnistu
í Reykjavík miðvikudaginn 7.
desember. Útför hans hefur farið
fram í kyrrþey.
Magnús Eggert Pálsson, Ásvalla-
götu 17, lést miðvikudaginn 23.
nóvember. Jarðarförin hefur farið
fram í kyrrþey.
Níels Frímann Sveinsson, Kirkju-
teigi 23, er látinn.
Hátíðarsamkoma í Háskól-
anum á Akureyri síðastlið-
inn föstudag markaði tvenn
merk tímamót varðandi upp-
byggingu og þróun asískra
fræða á Íslandi. Í fyrsta lagi
var því fagnað að eftir ára-
mót hefst kennsla í kínversku
og kínverskum fræðum við
símenntunardeild Háskólans
á Akureyri og í öðru lagi var
Asíuver Íslands (ASÍS) form-
lega opnað.
Ólafur Ragnar Grímsson
forseti setti hátíðina og í kjöl-
farið voru flutt fjölmörg ávörp.
Á meðal þeirra sem kvöddu
sér hljóðs voru Wang Xinshi,
sendiherra Kína á Íslandi,
Ólafur Egilsson, sendiherra
Íslands í Kína árin 1998-2002,
Þorsteinn Gunnarsson, rekt-
or Háskólans á Akureyri, og
Kristín Ingólfsdóttir, rektor
Háskóla Íslands.
Hátíðargestum var boðið
upp á kínverska rétti sem gerð
voru góð skil og Arngrímur
Jóhannsson flugstjóri, Baldur
Guðnason hjá Avion Group og
Bjarni Ármannsson, forstjóri
Íslandsbanka, undirrituðu
stuðningsyfirlýsingu við nám
í kínversku og kínverskum
fræðum.
Fyrst um sinn mun
símenntunardeild Háskólans
á Akureyri bjóða upp á þrjú
námskeið: kínversku fyrir
byrjendur, kínverska nútíma-
menningu og viðskipti í Kína,
en gert er ráð fyrir að náms-
framboð verði aukið í náinni
framtíð. Boðið verður upp á
sameiginlegt BA-nám í Aust-
ur-Asíufræðum við Háskóla
Íslands og Háskólann á Akur-
eyri en skólarnir hafa ekki fyrr
átt í sambærilegu samstarfi.
Hægt verður að leggja stund
á námskeiðin með fjarnámi og
því verða þau aðgengileg fólki
víða um land.
Asíuver Íslands (ASÍS)
verður vettvangur fyrir
rannsóknir og fræðslu á sviði
asískra fræða á Íslandi. Að
stofnunun Asíuversins standa
Háskóli Íslands og Háskólinn
á Akureyri en stofnaðilar gera
ráð fyrir að aðrar íslenskar
mennta- og rannsóknastofn-
anir hafi hug á að gerast aðilar
að verinu í framtíðinni.
ASÍS mun beita sér fyrir
samhæfingu og aukinni
sérþekkingu fræðimanna
á Íslandi um asísk málefni,
meðal annars með ráðstefnu-
haldi og útgáfu.
kk@frettabladid.is
HÁSKÓLINN Á AKUREYRI: ASÍUVER ÍSLANDS STOFNAÐ
Akademískum dyrum Asíu lokið upp
MENNINGARHEIMAR MÆTAST Hátíðargestir voru af ýmsu þjóðerni en allir nutu ljúffengra kínverskra rétta sem boðið var upp á.
STAÐIÐ OG SNÆTT Forseti íslenska
lýðveldisins handlék kínversku
matarprjónanna af lipurð og Stein-
grímur J. Sigfússon naut veiting-
anna ekki síður þó áhöldin væru
með hefðbundnara sniði.