Fréttablaðið - 18.12.2005, Side 45
ATVINNA
Áhugaverð störf í boði
UMHVERFISSVIÐ
Umhverfis- og þróunarfulltrúi
Vinnuskóli Reykjavíkur á Umhverfissviði Reykjavíkur óskar að
ráða umhverfis- og þróunarfulltrúa. Næsti yfirmaður er
skólastjóri Vinnuskóla Reykjavíkur. Launakjör fara að
kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags og Reykjavíkurborgar.
Starfið felst meðal annars í að:
• Skipuleggja hópastarf nemenda í samstarfi við stjórnendur
verkbækistöðva borgarinnar
• Hafa umsjón ásamt yfirmanni á ráðningum
starfsmanna, samstarfsverkefnum og þróunarstarfi
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólamenntun í uppeldisfræðum og/eða umhverfismennt
eða skyldum fögum
• Hæfni til samvinnu og lipurð í samskiptum
• Tölvufærni
• Reynsla í að vinna með ungu fólki og getu til að taka þátt í
uppbyggilegu hópastarfi
• Sjálfstæði, frumkvæði og skipulagning í starfi
• Jákvæðni og vilja til að takast á við fjölbreytt og krefjandi
verkefni
Umsóknir skulu berast eigi síðar en 9. janúar 2005.
Umsóknum ásamt ferilskrá skal skilað til Vinnuskóla
Reykjavíkur, Umhverfissvið Reykjavíkurborgar, Skúlagötu 19,
101 Reykjavík.
Nánari upplýsingar veita:
Guðrún Þórsdóttir, skólastjóri. gudrun.thorsdottir@reykjavik.is
og Þórólfur Jónsson, garðyrkjustjóri, thorolfur@reykjavik.is
Sími: 411 8500
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum hjá borginni.
Atvinnuauglýsingar má einnig skoða á heimasíðu Reykjavíkurborgar:
www.reykjavik.is/storf
Hjá símaveri Reykjavíkurborgar, 4 11 11 11, færð þú allar upplýsingar um þjónustu
og starfsemi borgarinnar og samband við þá starfsmenn sem þú þarft að ná í.
Umhverfissvið Reykjavíkurborgar er eitt af sjö fagsviðum Reykjavíkurborgar. Helstu
verkefni Umhverfissviðs eru eftirfarandi: heilbrigðis- og mengunarvarnareftirlit,
náttúruvernd og garðyrkja, sorphirða frá heimilum, dýraeftirlit, Vinnuskóli Reykja-
víkur, Staðardagskrá 21 og stefnumótunar- og þróunarverkefni á sviði umhverfis-
og samgöngumála. Um 170 starfsmenn starfa hjá Umhverfissviði að framsæknum
og fjölbreyttum verkefnum á sviði umhverfismála. Á sumrin margfaldast sú tala
þegar nemendur Vinnuskólans taka þátt í að snyrta og fegra borgina.
Hjúkrunarstjóri
Staða hjúkrunarstjóra á heilsugæslusviði
stofnunarinnar er laus frá 15. febrúar 2006.
Aðalstarfsstöð er á Blönduósi en H-stöð er einnig
á Skagaströnd. Þrír grunnskólar eru á svæðinu.
Um er að ræða 100% starf. Umsækjendur skulu
hafa nám í heilsugæslu eða mikla reynslu af
störfum í heilsugæslu, auk stjórnunarreynslu.
Laun samkvæmt kjarasamningi Félags íslenskra
hjúkrunarfræðinga og stofnanasamningi Hsb.
Getum aðstoðað við útvegum á húsnæði.
Umsóknir með upplýsingum um náms og starfsferil
skulu berist til Sveinfríðar Sigurpálsdóttur
hjúkrunarforstjóra sem veitir upplýsingar um starfið í
síma 455 4128 og 452 4528, netfang: sveinfr@hsb.is.
Umsóknarfrestur er til og með 1. janúar. Öllum
umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um
ráðningu hefur verið tekin.
Heilbrigðisstofnunin Blönduósi, heilsugæslusvið,
veitir almenna heilsugæsluþjónustu og þjónar aðallega
íbúum Austur Húnavatnssýslu ásamt sjúkrasviði. Sjúkrasvið,
skiptist í bráða og öldrunarhjúkrun, auk dvalardeildar
aldraðra.
Heilbrigðisstofnunin Blönduósi
www.hsb.is
Flúðabakki 2, 540 Blönduós
Sími 455 4100 –Fax 455 4136