Fréttablaðið - 18.12.2005, Blaðsíða 64
Kl. 15.00
Hrafnhildur Schram verður með
leiðsögn um sýninguna Huldukonur
í íslenskri myndlist í Þjóðminjasafni
Íslands. Sýningin fjallar um ævi og
verk tíu kvenna sem voru nær allar
fæddar á síðari hluta 19. aldar. Þær
ruddu brautina fyrir aðra sem á
eftir komu og eiga sinn sess í sögu
íslenskrar myndlistar.
> Ekki missa af ...
... sýningum Tilraunaeldhússins og
Snorra Ásmundssonar í Nýlistasafninu.
Báðum sýningunum lýkur í dag.
... jólatónleikum í Dómkirkjunni í dag
klukkan 17 þar sem Unglingakór
Dómkirkjunnar undir stjórn Kristínar
Valsdóttur og Dómkórinn undir stjórn
Marteins H. Friðrikssonar syngja
jólasöngva.
... Guðrúnu Evu
Mínervudóttur
sem les í hádeginu
úr bók sinni, Yosoy
- af líkamslistum
og hugarvíli í
hryllingsleikhúsinu
við Álafoss,
í bókasal
Þjóðmenningar-
hússins.
Ljúf jólastemning við kerta-
ljós og piparkökuilm verður
á söngtónleikum í Norræna
húsinu í dag þar sem þau Björg
Þórhallsdóttir sópransöngkona,
Hjörleifur Valsson fiðluleikari og
Árni Heiðar Karlsson pínaóleikari
koma fram.
Þau ætla að bregða á leik og
flytja jólalög úr ýmsum áttum í
bland við klassískar söngperlur.
Á efnisskránni eru meðal annars
sönglög eftir Jón Ásgeirsson, Sig-
valda Kaldalóns, Regel, Rubbra
og Yon. Tónleikarnir eru í boði
hússins.
Listafólkið hefur allt verið
áberandi í íslensku tónlistarlífi
að undanförnu. Björg Þórhallsdóttir söng nýver-
ið með Sinfóníuhljómsveit Norðurlands og hefur
komið fram sem einsöngvari við
fjölda tækifæra hér á landi sem og
erlendis.
Hjörleifur Valsson hélt nýver-
ið tónleika til styrktar Barna- og
unglingageðdeild LSH í Grafarvog-
skirkju þar sem hann flutti Árstíð-
irnar eftir Vivaldi. Þessa dagana
má sjá og heyra Hjörleif í Þjóðleik-
húsinu þar sem hann spilar í Edith
Piaf og barnasýningunni Klaufar
og kóngsdætur.
Árni Heiðar Karlsson píanóleik-
ari og tónskáld er höfundur tón-
listar og tónlistarstjóri í leikritinu
Halldór í Hollywood sem frumsýnt
var hjá Þjóðleikhúsinu fyrr í vetur.
Fyrsta sólóplata Árna Heiðars „Q“
sem kom út árið 2001 var tilnefnd til íslensku tón-
listarverðlaunanna sem besta djassplata ársins.
Kertaljós og piparkökur
„Ég sýni ekkert en í nýju sam-
hengi,“ er yfirskrift sýningar
Erlings Þ.V. Klingenberg, sem
opnuð var í gallerí Kling og Bang
í gær.
„Ég sýni þarna afrit eða spegla
Safn, sem er á Laugavegi 37,“
segir Erling, „þannig að í raun og
veru er ég að sýna ekkert, en það
er svo margt á bak við þetta ekk-
ert, það er svo margt í engu.“
Til hliðar við sýninguna er
Erling enn fremur með annað verk
sem heitir Listamannsalbínóandi.
„Það er fígúra sem fær svolítið
annað samhengi í þessa speglun,
en er þó ekki nein útskýring.“
Sýning Erlings er á jarðhæð
gallerísins, en í kjallaranum var
í gær jafnframt opnuð sýning
Sirru, Sigrúnar Sigurðardóttur.
Hún hefur sagt um sýninguna
að þar blasi við „sjálfsmynd tog-
streitunnar. Sjálfið leggst á bæn -
er með höfuðið falið eins og strút-
urinn í kassalaga heimi þar sem
vindurinn og straumarnir leika
um.“
Sirra sýnir þarna tvö vídeóverk
og tvo skúlptúra, en yfirskrift
sýningarinnar er Hreyfing.
„Þetta er í rauninni sami hlut-
urinn, vídeóin og skúlptúrarnir,“
segir Sirra. „Með Hreyfingu er
bæði vísað til myndlistarhreyf-
inga í gegnum tíðina, og svo
kemur skákin inn í þetta líka. Þar
er líka hreyfing.“
Hún segir sýningar þeirra
beggja, Erlings og hennar, fjalla
um umhverfi myndlistarinnar,
þótt með ólíkum hætti sé.
„Þetta eru skuggar og eftir-
myndir.“ ■
HREYFINGAR Mynd eftir Sirru á
sýningu hennar í gallerí
Kling og Bang.
Margt er á bak við ekkert
������������������������������������������������������������������������� ������������������������������������
���������������������
�������������������
Kammersveit Reykjavíkur heldur
sína árlegu jólatónleika í Áskirkju í
dag klukkan 17. Á efnisskránni eru
fjögur verk eftir Leopold Mozart,
föður undrabarnsins Wolfgangs
Amadeusar.
Á næsta ári verða liðin 250 ár
frá fæðingu Wolfgangs Amadeusar
Mozart og verður þess minnst víða
um heim með tónleikum og öðrum
uppákomum af ýmsu tagi.
Kammersveitinni þótti vert,
sem upptakt að því ári, að kynna
föður tónskáldsins mikla, sem
sjálfur var gott tónskáld og samdi
fjölda verka. Hann skrifaði einnig
og gaf út kennslubók í fiðluleik.
Nú á síðustu áratugum, þegar
áhugi á hljóðfæraleik í barokkstíl
hefur kviknað, hefur sú bók verið
góð heimild um hvernig leikið var
á fiðluna á hans tíma.
Einleikarar á tónleikunum
verða hornleikararnir Jósef
Ognibene, Emil Friðfinnsson,
Stefán Jón Bernharðsson og Þor-
kell Jóelsson ásamt Eiríki Erni
Pálssyni trompetleikara og Unu
Sveinbjarnardóttur fiðluleikara.
Með þeim leikur fjórtán manna
strengjasveit undir forystu Rutar
Ingólfsdóttur fiðluleikara, sem
jafnframt er listrænn stjórnandi
Kammersveitarinnar. ■
RUT INGÓLFSDÓTTIR Listrænn stjórnandi
Kammersveitar Reykjavíkur.
Faðir snillingsins
18. desember 2005 SUNNUDAGUR48
menning@frettabladid.is
!