Fréttablaðið - 18.12.2005, Qupperneq 67
51
80% fleiri lesa
fasteignablað Fréttablaðsins
35%
20%
Er fasteignin þín að seljast?
F
ré
tt
a
b
la
ð
ið
F
ré
tt
a
b
la
ð
ið
M
b
l.
M
b
l.
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Um 150.000 lesendur
Samkvæmt nýjustu fjölmiðlakönnun Gallup (okt. 2005) nærðu til um 80%
fleiri Íslendinga með því að auglýsa í fasteignablaði Fréttablaðsins frekar
en fasteignablaði Morgunblaðsins. Könnunin sýnir að 35% fólks á aldrinum
25 - 54 ára á höfuðborgarsvæðinu les Allt – fasteignir, sem berst frítt með
Fréttablaðinu á mánudögum, á meðan einungis 20% lesa fasteignablað
Morgunblaðsins. Allar eignir eru einnig skráðar á visir.is.
Þegar horft er á allar staðreyndir málsins ætti að vera einfalt að sjá hvar
borgar sig að auglýsa.
Hvar birtist auglýsingin þín?
– mest lesna fasteignablaðið
Í kvöld klukkkan níu verður
upplestur á Kaffi Hljómalind
þar sem lesið verður úr nokkrum
verkum sem koma út fyrir þessi
jól. Meðal þeirra sem koma fram
eru Kristjón Kormákur sem les
úr Frægasti maður í heimi og
Eyvindur P. Eiríksson sem ætlar
að lesa úr Örfoki. Þá verður
einnig boðið upp á tónlistaratriði
en um það sjá þeir Simon Jermyn
og Eiríkur Orri Ólafsson sem eru
báðir meðlimir í Benna Hemm
Hemm.
Upplestur
á Kaffi
Hljómalind
KRISTJÓN KORMÁKUR Les úr bók sinni
Frægasti maður í heimi á upplestrarkvöldi
á Kaffi Hljómalind í kvöld.
„Ég starfa mjög mikið á and-
legu nótunum,“ segir Reynir
Katrínarson myndlistarmaður,
sem er með sýningu núna um
helgina á vinnustofu sinni að
Uppsalavegi 2 í Sandgerði.
Reynir kemur víða við og segist
vera bæði myndlistarmaður og
miðill, kallar sig galdrameistara
og nefnir sig Hvít Víðbláin.
„En núna er ég að sýna
olíumálverk. Á sýningunni er ég
reyndar líka með litla skúlptúra,
steina sem ég er búinn að grafa
goð og gyðjur í. Þetta eru hálsmen
og orkusteinar.“
Reynir kallar þessa steina
Djúpalónsperlur. „Þær eru týndar
á Snæfellsnesi. Þetta tengist
allt ákveðinni speki, heilun og
spádómum.“
Á sýningunni eru líka ljós-
myndir af þurrkuðum þorsk-
hausum, sem við fyrstu sýn
virðast þó vera myndir af
einhverju allt öðru.
„Þegar þú sérð þessar
ljósmyndir geturðu ekki ímyndað
þér að þetta séu þorskhausar,“
segir Reynir býsna hreykinn.
„Þetta eru ævintýralegar
myndir. Þegar ég er að mynda
inni í þorskhausunum sé ég
alveg hvaða fígúra er í gangi. Ég
þarf ekkert annað en að stækka
myndina aðeins upp. En þetta er
tíu ára gömul hugmynd hjá mér.
Ég hef tekið ákveðið efni fyrir í
einu og núna er ég byrjaður að
vinna með vatn.“
Sýning Reynis var opin í
gær og síðan aftur í dag frá tíu
að morgni til klukkan tíu um
kvöldið. ■
Ævintýralegir
þorskhausar
REYNIR KATRÍNARSON Tekur ljósmyndir af þorskhausum, málar málverk og býr til hálsmen
úr steinvölum frá Djúpalóni.