Fréttablaðið - 18.12.2005, Page 76
60 SEK SIGURÐUR
EGGERTSSON
> Dagný fékk ekki að
spreyta sig
Dagný Linda Kristjánsdóttir, skíðakona
frá Akureyri, fékk ekki tækifæri til þess
reyna sig í heimsbikarkeppninni í bruni í
Val d‘Isere í Frakklandi, þar sem keppni
var hætt áður en Dagný átti að renna
sér niður. Tíu konur af 46 fyrstu kepp-
endunum féllu úr keppni, en brautar-
skilyrði voru afar erfið í Frakklandi og
ákváðu mótshaldarar að
best væri að hætta
keppni. Dagný
hefur æft vel að
undanförnu og
fær vonandi að
renna sér niður
brautina í
næstu
keppni.
60 18. desember 2005 SUNNUDAGUR
sport@frettabladid.is
Góður árangur Kristjönu
Kristjana Sæunn Ólafsdóttir, úr fim-
leikafélaginu Gerplu, varð þriðja í úrslit-
um í stökki á móti í Moskvu. Kristjana
fékk 8,65 í einkunn fyrir æfingar sínar.
Eitt þekktasta fimleikafélag heimsins,
Dinamo Moskva, var mótshaldari en
tveir aðrir íslenskir keppendur voru á
mótinu, þær Inga Rós Gunnarsdóttir og
Thelma Rut Hermannsdóttir.
FÓTBOLTI Gunnar Heiðar Þor-
valdsson, markahæsti leikmaður
sænsku úrvalsdeildarinnar á síð-
asta tímabili, er að öllum líkindum
á leiðinni frá Halmstad í janúar.
Samkvæmt áreiðanlegum heimild-
um Fréttablaðsins munu sænsku
meistararnir í Djurgården bjóða í
Gunnar Heiðar en með liðinu leika
Kári Árnason og Sölvi Geir Otte-
sen.
Auk þess hafa nokkur sterk lið
úr ensku 1. deildinni staðfest að
þau vilji Gunnar, auk liðs í þýsku
úrvalsdeildinni og 1. deildinni í
Frakklandi. „Ég vil ekki staðfesta
neitt að svo stöddu en ég get þó
staðfest að það séu yfirgnæfandi
líkur á því að hann fari frá Halm-
stad í janúar,“ sagði Ólafur Garð-
arsson, umboðsmaður Gunnars, í
gær.
Gunnar sagði svo sjálfur við
Fréttablaðið að áttatíu prósent
líkur væru á því að hann yfirgæfi
Svíþjóð: „Þýskaland og England
eru mjög spennandi kostir og það
væri gaman að komast þangað
en þetta gæti farið eftir því hvað
Halmstad vill fá fyrir mig. Ég
vona að þeir verði ekkert erfiðir
í þessu enda gæti ég farið frítt
næsta sumar og þar sem deild-
in byrjar í apríl gæti ég spilað í
tvo mánuði og farið svo,“ sagði
Gunnar Heiðar, sem er kominn til
Íslands í jólafrí.
Gunnar vildi ekki staðfesta
hvaða lið á Englandi hefðu áhuga
á honum en sex Íslendingar leika
í deildinni: Brynjar Björn Gunn-
arsson og Ívar Ingimarsson með
Reading, Gylfi Einarsson með
Leeds, Hannes Þ. Sigurðsson með
Stoke, Jóhannes Karl Guðjóns-
son með Leicester og bróðir hans
Bjarni með Plymouth.
„Maður verður að vanda valið
vel á liðinu, það má ekki vera of
gott og ekki of lélegt, maður verð-
ur jú að fá að spila. Ég vona bara
að þetta skýrist sem allra fyrst og
það er líkegt að það gerist núna
á næstu vikum. Það væri frábær
jólagjöf að fá samning frá ein-
hverju stórliði,“ sagði Gunnar
Heiðar á léttu nótunum að lokum
en hann skoraði sextán mörk fyrir
Halmstad á tímabilinu auk þess að
stimpla sig rækilega inn í íslenska
landsliðið. hjalti@frettabladid.is
Samningstilboð frá nýju
félagi besta jólagjöfin
Nokkur félög ætla sér að gera kauptilboð í Gunnar Heiðar Þorvaldsson, leik-
mann Halmstad. Þar á meðal er Íslendingaliðið Djurgården.
GUNNAR HEIÐAR ÞORVALDSSON Gunnar Heiðar mun að öllum líkindum yfirgefa herbúðir
Halmstad í janúar en hefur staðið sig frábærlega í sænsku úrvalsdeildinni síðan hann kom
frá ÍBV.
HANDBOLTI „Ég er alls ekki svekktur,
því það eru góðir leikmenn í minni
stöðu,“ sagði Heimir Örn Árnason,
leikmaður Fylkis. sem var ekki val-
inn í íslenska landsliðið sem fer á
EM í Sviss.
Sigurður Eggertsson var val-
inn í hans stað
en Heimir er
sammála Viggó
í valinu. „Ég
vil meina að
Siggi sé svona
týpa sem þarf
að vera þarna,
svona jóker eins
og Viggó segir.
Hann getur
breytt leikjum og klúðrað þeim líka
en ég er kannski heilsteyptari leik-
maður og öruggari. Þannig að ég skil
Viggó vel, ég hefði valið Sigga líka
ef ég væri þjálfari.“
Heimir gerir sér ekki miklar
vonir um að fá síðasta sætið í hópn-
um en hann mun halda sér í formi um
jólin. „Ég held að það sé greinilegt
að það er á milli Loga og Baldvins
því þó svo að Guðjón Valur Sigurðs-
son spili nánast allar mínúturnar á
mótinu þá notar hann eflaust Guðjón
í skyttunni líka og því verður hann
að hafa hornamenn til vara líka. Ég
tel mig alveg vera fjölhæfan líka og
ekkert lakari en Sigga en mín staða
er bara full eins og er.“ - hþh
Heimir Árnason:
Hefði sjálfur
valið Sigga
HEIMIR ÁRNASON
Heimir hefur verið
einn besti leikmaður
DHL-deildarinnar í
vetur.
KÖRFUBOLTI „Ég er mjög spenntur
fyrir þessum leik, ég hef ekki séð
ÍS spila mjög lengi eða frá því við
mættum því um miðjan október
en síðan þá hefur liðið bætt við sig
töluvert af mannskap.
Það er með mikið af landsliðskon-
um sem eru hoknar af reynslu og
á pappírunum er ÍS með eitt allra
besta lið deildarinnar ef ekki það
besta miðað við aldur og fyrri störf.
Þó svo að þær eigi kannski ekkert
svo mikið eftir vega þær það upp á
móti með reynslunni,“ sagði Ágúst
Björgvinsson þjálfari kvennaliðs
Hauka í körfubolta, sem tekur á
móti ÍS á Ásvöllum klukkan 17.00
í dag.
Haukar sigruðu Breiðablik á
fimmtudaginn í fyrsta leiknum
eftir að liðið varð bikarmeistari
og viðurkenndi Ágúst að vissulega
tæki tíma að koma niður á jörðina:
„Jú, það gerir það og við vorum
nokkuð smeyk fyrir leikinn gegn
Breiðablik en stelpurnar mættu
mjög einbeittar og tilbúnar til leiks
og við unnum þægilegan sigur. Ef
við spilum okkar leik þá eigum við
að vinna þetta.“ - hþh
Ágúst Björgvinsson:
Verður erfitt
gegn ÍS í dag
HELENA SVERRISDÓTTIR Helena hefur
leikið vel með Haukum í vetur, þrátt fyrir
að glíma við erfið meiðsli. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL
FÓTBOLTI Hugsanlega er að KR
semji við 24 ára gamlan Norðmann,
Nahom Debesay, sem hefur verið til
reynslu hjá liðinu í vikunni. Debes-
ay er fjölhæfur leikmaður sem finn-
ur sig þó best á vinstri kantinum.
„Debesay hefur góða tækni sem
er hans helsti kostur auk fjölhæfn-
innar. Það var flott
að geta borið hann
saman við ungu
strákana okkar og
hvernig hann pass-
ar inn í hópinn,“
sagði Teitur Þórðar-
son, þjálfari KR, við
Fréttablaðið í gær.
Teitur býst ekki
við því að fá til sín
marga útlendinga
en fyrir hjá KR er
varnarmaður inn
Dalibor Paulet-
ic. „Það getur verið að við kíkjum
á fleiri leikmenn en það er ekki
ákveðið. Það sækjast margir eftir
því að koma til mín hjá KR og það er
bara besta mál. Annars hafa ungu
strákarnir verið að standa sig frá-
bærlega og ég er virkilega ánægður
með þá. Það er ljóst að þeir munu fá
tækifæri næsta sumar,“ sagði Teit-
ur. - hþh
KR að skoða leikmenn:
Debesay gæti
farið til KR
TEITUR ÞÓRÐ-
ARSON Teitur er
þessa dagana
að vega og meta
leikmannahóp
sinn.
Landsliðssætið er... Toppurinn.
Besti samherjinn? Bjarni Ólafur Eiríksson, lands-
liðsmaður í fótbolta. Hann hefði átt að velja hand-
boltann.
Sætasti sigurinn? Sigur á Esso-mótinu í fótbolta
í 5. flokki.
Kaffi eða te? Kók og vatn.
Alvöru konur? Þeim svipar til Tinnu Þorsteinsdótt-
ur.
Erfiðasti andstæðingur? Helvítið hann Roland
Valur Eradze.
Auðveldasti andstæðingur? Ægir Hrafn Jónsson.
Sálin hans Jóns míns eða Botnleðja... Valsband-
ið Sálin.
Skemmtilegast er... Að sofa hjá konunni minni.
Leiðinlegast er... Þegar konan neitar mér.
Sopranos eða Simpsons? Að sjálfsögðu Simp-
sons.
Besti íslenski handboltamaðurinn? Valsarinn
Bjarki Sigurðsson.
Ef ekki handbolti þá... Fótbolti. Er í raun betri
í fótbolta.
Er glasið hálftómt eða hálffullt? Tómt.
MEÐ SIGURÐI
EGGERTSSYNI
60
SEKÚNDUR