Fréttablaðið - 18.12.2005, Síða 78
18. desember 2005 SUNNUDAGUR62
FÓTBOLTI Heimsmeistarakeppnin
næsta sumar verður einstakur við-
burður fyrir Holland á fleiri vegu
en þann að landslið þjóðarinnar
er á meðal þátttakenda. Hvorki
fleiri né færri en fjórir hollensk-
ir þjálfarar verða þar í eldlínunni
Þetta eru þeir Marco van Basten
með Holland, Dick Advocaat með
Suður-Kóreu, Leo Beenhakker með
með Trínidad og Tóbagó og Guus
Hiddink með Ástralíu, en hann er
að taka þátt í sinni fjórðu heims-
meistarakeppni. Ljóst er að hróður
hollenska þjálfara fer ört vaxandi
á alþjóðavettvangi því fjórar aðrar
þjóðir sem keppa ekki á HM eru
með hollenskan landsliðsþjálfara.
„Ég held að ástæðan fyrir
þessu sé margþætt,“ segir Jan
Reker, formaður hollenska þjálf-
arasambandsins. „Hollendingar
eiga almennt mjög auðvelt með
að aðlagast nýjum löndum, siðum
þeirra og venjum. Þeir eiga auð-
velt með að læra ný tungumál og
eru mjög ævintýragjarnir. Síðan
má ekki gleyma hollenskum þjálf-
unaraðferðum, sem fyrir löngu eru
orðnar heimsfrægar,“ segir Reker.
Þessi fjöldi þjálfara af sama
þjóðerni á HM er þó ekki eins-
dæmi því á HM árið 1998 voru
fimm lið undir stjórn Frakka. Alls
eru 93 starfandi þjálfarar frá Hol-
landi sem stunda sína vinnu úti um
allan heim. Segja má að þeir séu
afsprengi Rinus Michels, upphafs-
manns hins „fullkomna fótbolta“
og fyrrverandi þjálfara hollenska
landsliðsins en hann lést fyrr á
árinu. Hann þróaði öðruvísi leikstíl
í fótbolta sem byggir að mestu leyti
á mjög svo áhorfendavænum sókn-
arleik sem síðan þá hefur fylgt hol-
lenskum þjálfurum almennt.
„Stór hluti af þessari eftir-
sókn í hollenska þjálfara er vegna
hæfileika þeirra til miðla hug-
myndafræði sinni um fótboltann
til leikmanna. Þjálfarar í Hollandi
hafa ekki peninga til að ná fram
hagstæðum úrslitum, þeir þurfa
sjálfir að framleiða leikmenn sem
eru nógu góðir til að ná árangri,“
segir Reker og bendir réttilega á
að oftast séu Hollendingar ráðnir
af þjóðum sem búi yfir landslið-
um sem hafa innanborðs fáar eða
engar stjórstjörnur.
„Sjáið bara Guus Hiddink og
Suður-Kóreu á síðustu heims-
meistarakeppni. Hann var besti
sendiherra sem Holland gat óskað
sér og komst í guðatölu hjá þjóð
sem hafði aldrei gert neitt í fót-
bolta. Með slíka þjálfara til að
setja fordæmin má gera ráð fyrir
því að vinsældir hollenskra þjálf-
ara muni aukast enn frekar í fram-
tíðinni,“ segir Reker.
vignir@frettabladid.is
Hollenskir þjálfarar eru
þeir eftirsóttustu í heimi
Orðspor hollenskra þjálfara í knattspyrnu fer ört vaxandi, sem sést líklega best
á því að fjögur af þeim landsliðum sem taka þátt í HM á Þýskalandi næsta
sumar eru undir stjórn Hollendinga.
FÓTBOLTI David Moyes, knatt-
spyrnustjóri Everton, greindi frá
því gær að framherjinn litríki
Duncan Ferguson þyrfti líklega
að hætta að leika knattspyrnu.
„Duncan hefur átt í erfiðleikum
vegna meiðsla aftan í læri. Hann
er að hugsa um að hætta að leika
knattspyrnu. Ég hef fylgst náið
með honum og ég skil vel að hann
sé að velta því fyrir sér að hætta
því hann er sárkvalinn í hvert
einasta skipti sem hann reynir að
æfa.“
Moyes vonast þó til þess að
Ferguson nái bata sem allra
fyrst en efast þó um að hann
muni hjálpa liðinu mikið á næstu
mánuðum. „Ég ber mikla virð-
ingu fyrir Duncan því hann
hefur reynst Everton gríðarlega
vel. Hann er frábær leikmaður
sem leggur allt sitt í alla leiki
sem hann spilar. En í sannleika
sagt hef ég ekki trú á því að hann
muni geta beitt sér að fullum
krafti vegna meiðsla. Ég vor-
kenni honum mikið því hann er
allur af vilja gerður og er alltaf
tilbúinn að leggja mikið á sig. Á
einhverjum tímapunkti verður
hann samt að velja og hafna og
því miður er útlit fyrir að hann
þurfi að hætta að spila. En það
má aldrei afskrifa Duncan Ferg-
uson. Kannski nær hann á ein-
hvern undraverðan hátt að vinna
sig út úr þessu.“ - mh
Skotinn harðskeytti Duncan Ferguson á í erfiðleikum þessa dagana:
Hættir að óbreyttu í janúar
DUNCAN FERGUSON Ferguson hefur lengi
verið í uppáhaldi hjá stuðningsmönnum
Everton en nú er útlit fyrir að hann þurfi að
hætt að spila vegna meiðsla.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
GUUS HIDDINK Hefur náð mögnuðum
árangri með lítil lið í heimsmeistarmótum
í gegnum tíðina og lagt grunninn fyrir aðra
þjálfara að fá tækifæri. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
GOÐSAGNIR Marco van Basten og Johan Cruyff eru á meðal bestu knattspyrnumanna
sem Holland hefur alið af sér en eftir að ferlinum lauk hafa þeir báðir snúið sér að þjálf-
un. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
FÓTBOLTI Joan Laporta, forseti
Barcelona, var ánægður með að
lið hans hefði dregist gegn Chel-
sea í sextán liða úrslitum Meist-
aradeildar Evrópu. „Ég vonast
til þess að Barcelona hefni fyrir
ósigur knattspyrnunnar á síðustu
leiktíð, því við áttum alls ekki skil-
ið að falla út úr keppninni. Eins og
þúsundir aðdáenda Barcelona vil
ég hefnd fyrir það sem mér þótti
afar ósanngjörn niðurstaða í ein-
vígi liðana í fyrra.“
Laporta segist eiga sér þann
draum að Barcelona vinni Meist-
aradeildina í vor. „Það var allan
tímann ljóst að við þyrftum að etja
kappi við Chelsea á einhverjum
tímapunkti. Ég er viss um að Bar-
celona sé besta lið í Evrópu eins
og staða mála er nú en ég er veit
að hlutirnir eru fljótir að breytast
í knattspyrnuheiminum og það er
langt þangað til við munum mæta
Chelsea. Leikmennirnir eru hins
vegar þegar farnir að hugsa um
þessa leiki.“
Brasilíumaðurinn Ronaldinho
segir leikina gegn Chelsea á síð-
ustu leiktíð hafa verið einstaklega
eftirminnilega. „Við klúðruðum
þessu sjálfir síðast. Við áttum að
skora fleiri mörk á heimavelli og
ef við hefðum gert það hefðum við
komist áfram. En við erum reynsl-
unni ríkari nú og ætlum okkur að
vinna keppnina.“
- mh
Sálfræðistríðið hafið hjá forseta Barcelona:
Knattspyrnuleg
hefnd fram undan
RONALDINHO Ronaldinho lék frábærlega gegn Chelsea á síðustu leiktíð. Hann er hér í
baráttu við Eið Smára Guðjohnsen. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
FÓTBOLTI Sænski landsliðsmaðurinn
Henrik Larsson hefur að undan-
förnu verið orðaður
við félög í heima-
landi sínu en hann
er ekki sáttur við
að þurfa að verma
varamannabekkinn
hjá Barcelona. „Þó
ég sé ósáttur við að
sitja á bekknum er
ég ekki á leið til Sví-
þjóðar. Ég hef tvo
kosti. Það er að gef-
ast upp eða að halda
áfram að reyna að
komast í liðið. Ég hef
valið seinni kostinn og ætla að halda
mínu striki.“ - mh
Svíar spenntir yfir Larsson:
Er ekki á
heimleið
HENRIK LARS-
SON Larsson
er án efa einn
besti knatt-
spyrnumaður
Svíþjóðar, fyrr
og síðar.