Fréttablaðið - 18.12.2005, Síða 79

Fréttablaðið - 18.12.2005, Síða 79
SUNNUDAGUR 18. desember 2005 63 FÓTBOLTI „Leikur okkar var full- komið svar við gagnrýninni sem við höfum fengið á okkur að undan- förnu,“ sagði Alex Ferguson, knatt- spyrnustjóri Manchester United, eftir að lið hans lagði Aston Villa að velli með tveimur mörkum gegn engu, á Villa Park í Birmingham. Man. Utd. lék einstaklega vel í leiknum og var Wayne Rooney þar fremstur flokki. Rooney var allt í öllu í sókninni hjá liðinu og var greinilegt að leikmenn Aston Villa hræddust hann mikið. Ruud van Nistelrooy skor- aði fyrsta mark leiksins á tíundu mínútu eftir fallega sendingu frá skoska landsliðsmanninum Darren Fletcher. Wayne Rooney bætti svo öðru marki við byrjun seinni hálfleiks. David O’Leary, knatt- spyrnustjóri Aston Villa, var ósátt- ur við leik sinna manna en hrósaði Rooney í hástert eftir leikinn. „Við lékum skelfilegan varnarleik í dag og áttum í miklum erfiðleikum með Rooney og van Nistelrooy. Ef Rooney heldur áfram að spila eins og hann hefur gert að undanförnu verður hann orðinn besti leikmað- ur sem Englendingar hafa átt, áður en ég veit af. Það var stórkostlega gaman að fylgjast með hreyfingum hans í dag en á móti kom að það var niðurlægjandi að sjá hann fara illa með lið mitt.“ Fulham sigraði í Blackburn á heimavelli sínum, Craven Cottage, og lék Heiðar Helguson frá 35. mín- útu leiksins en hann kom þá inn á fyrir Collins John sem fór meiddur af velli. Heiðar fékk að líta gula spjaldið eftir að hafa verið inn á sjö mínútur en hann lagði upp seinn mark Fulham sem Luis Boa Morte skoraði. Michael Owen og Alan Shearer náðu vel saman í framlínunni hjá Newcastle gegn West Ham á Upton Park, Newcastle hafði sigur í leikn- um, 2-4. Michael Owen skoraði tvö fyrstu mörk Newcastle en Alan Shearer skoraði þriðja markið. Owen bætti svo fjórða marki New- castle við og fullkomnaði þar með þrennu sína í leiknum. Nolberto Solano skoraði sjálfs- mark fyrir Newcastle og jafnaði þar með leikinn 1-1 eftir að Owen hafði komið Newcastle yfir. Marlon Harewood minnkaði svo muninn í 3-2 undir lok leiksins en lengra komust heimamenn ekki, þrátt fyrir mikla pressu á lokamínútun- um, og bætti Owen við fjórða mark- inu í uppbótartíma. magnush@frettabladid.is Wayne Rooney virðist óstöðvandi þessa dagana Manchester United lagði Aston Villa að velli í ensku úrvalsdeildinni í gær. Wayne Rooney, sem er tvítugur að aldri, átti enn einn stórleikinn fyrir Man. Utd. WAYNE ROONEY Rooney hefur leikið frábærlega á leiktíðinni. Á myndinni sést þegar hann skýtur að marki í leiknum gegn Aston Villa í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY FÓTBOLTI Gordon Strachan, knatt- spyrnustjóri Celtic, leitaði til Neil Lennon, fyrirliða Celtic, áður en ákveðið var að falast eftir Roy Keane. Neil Lennon og Roy Keane leika sömu stöðu á vell- inum og því þótti Strachan það mik- ilvægt að Lennon yrði hafður með í ráðum. „Ég ákvað að ræða við Lennon því hann er þrosk- aður leikmaður sem veit hvað hann syngur. Hann sagði mér að fá Keane til félagsins og það hafði áhrif á ákvörð- un mína. Þegar svona stór mál koma upp verður maður að ræða við alla þá sem að málinu koma og mér þótti eðlilegt að segja Lennon frá þessu á undan öðrum leikmönn- um. Ég mun ekki láta Keane bera fyrirliðabandið þó hann hafi verið fyrirliði hjá Manchester United. Lennon er fyrirliði Celtic og ég get ekki ímyndað mér betri fyrirliða en hann.“ - mh Gordon Strachan: Spurði Lennon ráða um Keane NEIL LENNON Lennon hefur leikið vel á miðjunni hjá Celtic í vetur og er lykilmaður liðsins í vörn og sókn. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY FÓTBOLTI Húsvíkingurinn Hall- grímur Jónasson er gekk í gær til liðs við úrvalsdeildarlið Keflavík- ur frá Þór á Akureyri. Hallgrímur lék með yngri flokkum Völsungs og steig sín fyrstu skref með meistaraflokki félagsins árið 2002. Þaðan fór hann til Þórs á Akureyri. Hallgrímur hefur átt við meiðsl að stríða undanfarið ár en hann lék fjóra leiki með Þór á síðast- liðnu sumri. - mh Nýr leikmaður hjá Keflavík: Hallgrímur til Keflavíkur FÓTBOLTI „Michael Owen verður markakóngur í vor,“ sagði Alan Shearer, fyrirliði Newcastle, eftir 2-4 sigurleik Newcastle á West Ham United, en Owen skoraði þrennu í leiknum. Shearer sagði Owen stórkost- legan markaskorara. „Fyrir mér er ekki til betri markaskorari í heiminum en Michael Owen. Hann er ótrúlega góður í að koma sér í marktækifæri og það er að auki erfitt að finna leikmenn sem er jafn einbeittur og hann. Hann lætur aldrei neitt slá sig út af lag- inu og það er gott fyrir ungu leik- mennina hjá Newcastle að kynn- ast því hvernig er að spila gegn leikamanni eins og Owen.“ Þetta var annar sigurleikur Newcastle í röð og má því segja að þungu fargi sé létt af knatt- spyrnustjóranum Graeme Sou- ness, sem hefur verið undir miklu álagi síðustu misseri. - mh Shearer um Owen: Owen verður markakóngur MICHAEL OWEN Owen hefur byrjað feril sinn hjá Newcastle af miklum krafti og er nú kominn í hóp markahæstu leikmanna liðsins. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY FÓTBOLTI Paul Scholes, leikmaður Manchester United, segir sam- herja sinn Wayne Rooney vera besta leikmann heims. „Rooney var keyptur hingað til þess að leika rétt fyrir aftan fremsta mann. Hann hefur hins vegar sýnt mikla fjölhæfni og fyrir mér er hann besti leikmaður heims. Hann er gríðarlega góður í því að snúa sér snöggt við með boltann og sækja hratt að vörn andstæðingana.“ Scholes segir Rooney líklegan til þess að verða stjarna heims- meistaramótsins í Þýskalandi. „Rooney hefur ótrúlega hæfileika og hann gæti orðið stjarna næsta heimsmeistaramóts ef hann nær fram sínu besta.“ - mh Paul Scholes um Rooney: Rooney er best- ur í heiminum
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.