Fréttablaðið - 18.12.2005, Blaðsíða 80
18. desember 2005 SUNNUDAGUR64
Enska úrvalsdeildin
ASTON VILLA - MAN. UTD. 0-2
0-1 Ruud van Nistelrooy (10.), 0-2 Wayne Roon-
ey (51.). EVERTON - B0LTON 0-4 0-1 K. Davies
(32.), 0-1 S. Giannakopulos (74.), 0-3 G. Speed v.
(78.), 0-4 S. Giannakopoulos (79.).
FULHAM - BLACKBURN 2-1
1-0 Diop (45.), 2-0 B. Morte (51.), 2-1 Z. Knight
sjm.(89.). Heiðar Helguson kom inn á 35. mínútu
og lagði upp síðara mark Fulham.
PORTSMOUTH - WEST BROM 1-0
1-0 S. Todorov (56.)
WEST HAM - NEWCASTLE 2-4
0-1 M. Owen (5.), 1-1 N. Solano sjm. (20.), 1-2 M.
Owen (43.), 1-3 Alan Shearer (65.), 2-3 M. Hare-
wood (72.), 2-4 M. Owen (90).
WIGAN - CHARLTON 3-0
1-0 H. Camara (9.), 2-0 H. Camara (51.), 3-0 H.
Camara (63.). Hermann Hreiðarsson lék allan
leikinn fyrir Charlton.
MAN. CITY - BIRMINGHAM 4-1
1-0 D. Sommeil (1.), 2-0 Joey Barton (15.), 3-0
A. Sibierski (40.), 4-0 B. Wright-Phillips (70.), 4-1
J.Jarosik (76.).
Enska 1. deildin
LUTON - STOKE CITY 2-3
Hannes Sigurðsson var í byrjunarliði Stoke en fór
útaf á 76. mínútu.
MILWALL - READING 0-2
Ívar Ingimarsson lék allan leikinnn fyrir Reading.
Brynjar Björn Gunnarsson byrjaði á bekknum en
lék síðustu tíu mínútur leiksins fyrir Reading.
LEICESTER - CREWE 1-1
Jóhannes Karl Guðjónsson lék allan leikinnn fyrir
Leicester.
WOLVES - LEEDS 1-0
Gylfi Einarsson var ekki leikmannahópi Leeds í
leiknum vegna meiðsla.
DHL-deild karla í handbolta
AFTURELDING - FH 26-32
HAUKAR - FRAM 26-33
Mörk Hauka: Arnar Pétursson 6, Jón Karl Björns-
son 5, Árni Þór Sigtryggsson 5, Guðmundur Ped-
ersen 4, Samúel Ívar Árnason 3, Andri Stefan 2,
Kári Kristjánsson 1.
Mörk Fram: Jóhann Einarsson 11/9, Sigfús Sig-
fússon 4, Sergiy Serenko 4, Þorri Gunnarsson 3,
Rúnar Kárason 3, Björgvin Björgvinsson 2, Harald-
ur Þorvarðarson 2, Stefán Stefánsson 2, Gunnar
Harðarson.
Magnús Erlendsson varði 24 skot á 45 mínútum
í marki Fram.
VÍKINGUR/FJÖLNIR - FYLKIR 25-32
Mörk Víkings/Fjölnis: Björn Guðmundsson 5,
Brjánn Bjarnason 4, Sverir Hermannsson 4, Pálm-
ar Sigurpálsson 3, Brynjar Loftsson 3, Andri Örn
Jakobsson 2, Brynjar Hreggviðsson 2, Sveinn Þor-
geirsson 1, Einar Steindórsson 1.
Mörk Fylkis: Arnar Agnarsson 11, Arnar Sæþórs-
son 6, Brynjar Hreinsson 3, Guðlaugur Arnarsson
5, Ásbjörn Stefánsson 2, Ingólfur Axelsson 2,
Heimir Örn Árnason 2, Davíð Óskarsson 1.
ÍR - ÍBV 28-32
Mörk ÍR: Hafsteinn Ingason 9, Ólafur Sigurjónsson
5, Björgvin Hólmgeirsson 4, Karl Gunnarsson 3,
Tryggvi Haraldsson 3, Ragnar Helgason 2, Davíð
Georgsson 1, Ísleifur Sigurðsson 1. Gísli Guð-
munsson varði 12 skot í marki ÍR.
Mörk ÍBV: Mladen Cacic 17, Ólafur Ólafsson 8,
Mikael Dostalik 4, Grétar Eyþórsson 3. Björgvin
Páll Gústavsson varði 19 skot.
Iceland Express-deild karla
GRINDAVÍK - SKALLAGRÍMUR 92-89
Stig Grindavíkur: Jeremiah Johnson 30, Páll Axel
Vilbergsson 20, Páll Kristinsson 16, Guðlaugur
Eyjólfsson 12, Hjörtur Harðarson 6, Pétur Guð-
mundsson 3, Helgi Jónas Guðfinsson 3, Þorleifur
Ólafsson 2.
Stig Skallagríms: Jovan Zdravevski 23, George
Byrd 16, Pétur Sigurðsson 14, Hafþór Gunnarsson
14, Dimitar Karadzovski 13, Axel Kárason 9.
Iceland Express-deild
kvenna
GRINDAVÍK - KEFLAVÍK 89-83
Stig Grindavíkur: Jerica Watson 39 (tók 30 fráköst
að auki), Jovana L. Stefánsdóttir 14, Alma Garðars-
dóttir 12, Hildur Sigurðardóttir 11, Erna Magnús-
dóttir 8, Ólöf Pálsdóttir 3, Harpa Hallgímsdóttir 2.
Stig Keflavíkur: María Erlingsdóttir 22, Bryndís
Guðmundsdóttir 17, Reshea Bristol 17, Birna Val-
garðdsóttir 16, Rannveig Randversdóttir 6, Bára
Bragadóttir 5.
FÓTBOLTI Hægri bakvörður Bayern
München og franska landsliðsins,
Willy Sagnol, mun í vor ganga til
liðs við Juventus en hann staðfesti
þetta við þýska fjölmiðla í gær.
„Juventus er stórkostlegt félag og
ég ber mikla virðingu fyrir leik-
mönnum og knattspyrnustjóra
félagsins.“
Sagnol hefur verið lykilmaður
í sterkri vörn Bayern undanfarin
ár en hann ætlar sér að breyta um
starfsumhverfi í von um að vinna
fleiri titla. „Ég hef alltaf fylgst vel
með ítalskri knattspyrnu því marg-
ir félaga minna úr franska lands-
liðinu leika þar. Ég vil vinna fleiri
titla og ég sé fram á bjarta tíma
með Juventus næsta sumar.“
Nokkrir franskir landsliðsmenn
eru fyrir í herbúðum Juventus og
má þar nefna Patrick Vieira, Lili-
an Thuram, David Trezeguet og
Jonathan Zebina. - mh
Willy Sagnol til Ítalíu:
Fer til Juventus
næsta sumar
KÖRFUBOLTI Grindavík vann góðan
sigur á Keflavík gær, 89-83, í Ice-
land Express-deild kvenna eftir
að Keflavíkurstúlkur höfðu haft
frumkvæðið í leiknum framan af.
Góð byrjun Keflavíkur lofaði
góðu á meðan Grindavíkurstúlk-
ur virtust slegnar út af laginu.
Með sigrinum er Grindavík nú
komið upp að hlið Hauka á toppi
deildarinnar.
Unndór Sigurðsson, þjálfari
Grindavíkur, var ánægður með
baráttu sinna stúlkna. „Ég er að
sjálfsögðu ánægður með leikinn.
Það er gott að taka þennan sigur
með sér í jólafríið. Það er mikil-
vægt að halda að minnsta kosti
öðru sætinu í deildinni. Ég var
mjög ánægður með baráttuna í
liðinu. Við lentum undir en náðum
að spila okkar leik og vorum ekk-
ert að hengja haus þrátt fyrir að
á móti hafi blásið. Leikur okkar
var kannski ekki sá fallegasti
en við sýndum karakter með því
að klára þetta og um leið og við
náuðm yfirhöndinni héldum við
haus allan tímann og létum ekk-
ert stressa okkur alveg sama hvað
þær reyndu að stressa okkur með
óþarfa villum og nánast grófum
leik.“
Unndór var ánægður með Jer-
icu Watson og framlag yngstu
leikmannana. „Jerica Watson stóð
sig mjög vel og Alma Rut Garð-
arsdóttir var alveg frábær. Hún
stígur upp fimmtán ára gömul í
svona spennuleik og skorar tíu
mikilvæg stig sem er alveg frá-
bært. Við erum með mjög ungt
lið og við spiluðum vel í vörninni
en það var smá hikst í sókninni
sem er kannski bara eðlilegt. Það
er ekki hægt að segja annað að
framtíðin sé björt með þessum
árgangi,“ sagði Unndór og bætti
við: „Stefnan er alltaf sett á titil-
inn og eins og deildin hefur þró-
ast þá skiptir hún alltaf aðeins um
takt eftir áramót en við ætlum að
æfa vel um jólin og reyna að halda
okkar striki.“ - hþh
Nágrannar börðust hetjulega á Suðurnesjum í gær:
Barátta Grindvíkinga skilaði
góðum sigri á Keflavík
HANDBOLTI ÍBV byrjaði leikinn
betur og náði fljótt þriggja marka
forskoti 4-7 en ÍR-ingar tóku sig
saman í andlitinu og jöfnuðu leik-
inn fljótt, 8-8.
Jafnræði var með liðunum það
sem eftir lifði fyrri hálfleiks og
skiptust liðin á að skora. Staðan í
hálfleik var 14-15 ÍBV í vil.
Heimamenn komu svo
grimmir til leiks í síðari hálf-
leik og tókst að ná undirtökunum
í leiknum, eftir að hafa komist
yfir í fyrsta skipti í leiknum, 19-
18. ÍR gekk svo á lagið og náði
þriggja marka forskoti, 21-18.
Leikmenn ÍBV voru ekki til-
búnir að gefast og með mikilli
baráttu tókst þeim að snúa leikn-
um sér í vil.
ÍBV náði undirtökunum
og leikmenn liðsins hreinlega
keyrðu yfir ÍR á lokasprettinum.
Kristinn Guðmundsson, þjálfari
ÍBV, var ánægður með leik sinna
manna. „Það vantaði taktinn í
sóknarleik beggja liða framan
af leik. Við vorum að gera mikið
af klaufalegum mistökum og það
hafði mikið að segja um gang
leiksins. En við höfum einn allra
besta markvörð landsins í okkar
röðum, Björgvin Gústavsson, og
hann varði vel á mikilvægum
augnablikum í leiknum.“
Mladen Cacic spilaði einstak-
lega vel í liði í ÍBV og skoraði
hvorki meira né minna en sautján
mörk, en einhverra hluta vegna
var hann ekki tekinn úr umferð
fyrr hann hafði skorað sextán
mörk. „Cacic er besta skytta
deildarinnar í dag. Hann er góður
spilari þó hann skjóti mikið, enda
þarf hann að gera það þegar hann
er að leika með okkur.“
Þetta var sjötti tapleikur ÍR í
röð og ljóst að leikmenn liðsins
þurfa að fara taka sig á ef ekki á
illa að fara. - egm
ÍR tók á móti ÍBV í Austurbergi í gær í DHL-deild karla:
Magnaður sigur ÍBV á ÍR
RAGNAR HELGASON SKÝTUR AÐ MARKI
Ragnar náði sér ekki á strik með ÍR í gær
en hann hefur leikið ágætlega í vetur.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
WILLY SAGNOL Sagnol hefur verið í hópi
bestu varnarmanna þýsku úrvalsdeildarinn-
ar undanfarin ár. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
STAÐAN Í ENSKU ÚRVALSDEILD-
INNI
1 CHELSEA 16 14 1 1 35 7 28 43
2 MAN. UTD. 17 11 4 2 31 14 17 37
3 LIVERPOOL 15 9 4 2 20 8 12 31
4 TOTTENHAM 16 8 6 2 22 13 9 30
5 BOLTON 16 9 3 4 22 14 8 30
6 WIGAN 17 9 1 7 19 18 1 28
7 MAN. CITY 17 8 3 6 24 17 7 27
8 ARSENAL 15 8 2 5 22 13 9 26
9 WEST HAM 17 7 4 6 25 22 3 25
10 NEWCASTLE 17 7 4 6 18 17 1 25
11 CHARLTON 16 7 1 8 21 26 -5 22
12 BLACKBURN 17 6 3 8 19 24 -5 21
13 MIDDLESBR. 16 5 4 7 20 23 -3 19
14 FULHAM 17 5 4 8 18 22 -4 19
15 ASTON VILLA 17 4 5 8 16 26 -10 17
16 EVERTON 17 5 2 10 9 23 -14 17
17 WEST BROM 17 4 4 9 17 25 -8 16
18 PORTSM. 17 3 4 10 13 26 -13 13
19 BIRMINGHAM 16 3 3 10 11 23 -12 12
20 SUNDERLAND 17 1 2 14 14 35 -21 5
FÓTBOLTI Örn Kató Hauksson, sem
leikið hefur með KA undanfarin ár,
gekk í gær í raðir Valsmanna. Örn
hefur verið einn af máttarstólpum
KA en samningur hans við KA rann
út fyrir nokkru síðan.
Örn, sem hefur leikið tvo U-21
landsleiki fyrir Ísland, hefur mikla
leikreynslu miðað við aldur en hann
er 23 ára gamall. Hann meiddist
illa fyrir einu og hálfu ári síðan og
lék ekki nema fimm leiki með KA í
fyrstu deild á síðustu leiktíð.
Valur að styrkja sig:
Örn Kató frá
KA til Vals
FÓTBOLTI Steve Bruce, knattspyrnu-
stjóri Birmingham City, segir Emile
Heskey vera betri leikmann en
Peter Crouch, framherja Liverpool,
en Sven Göran Eriksson, lands-
liðsþjálfari Englands, hefur tekið
Crouch fram yfir Heskey í enska
landsliðið. „Að mínu mati er Heskey
betri en Crouch. Hann hefur leikið
frábærlega í vetur og ég veit ekki
hvar við værum ef hann hefði ekki
verið í framlínunni. Hann spilar
í hverri viku og hann er sífellt að
bæta sig.“
Bruce segir Heskey og Crouch
vera svipaða leikmenn að mörgu
leyti. „Hlutverk þeirra í framlín-
unni er svipað. Þeir eiga báðir að
reyna að halda knettinum framar-
lega á vellinum til þess að hjálpa
öllu liðinu í sóknarleiknum. Ég
tel engan betri en Heskey í þessu.
Crouch hefur verið í landsliðinu að
undanförnu en ég trúi því að Heskey
vinni sér sæti í hópnum fyrir HM í
Þýskalandi,“ sagði Bruce. - mh
Steve Bruce um Heskey:
Heskey er betri
en Crouch
HANDBOLTI „Við erum í skýjunum
með þetta. Við héldum haus allan
leikinn og það var það sem reið
baggamuninn undir lokin. Þrátt
fyrir að við höfum verið undir
og á móti hafi blásið þá gáfumst
við aldrei upp og börðumst allt til
loka,“ sagði kampakátur Magnús
Erlendsson markmaður Fram sem
fór hamförum á þeim 45 mínút-
um sem hann spilaði og varði 24
bolta og lagði grunninn að 33-26
sigri Fram sem er nú komið á topp
deildarinnar en við tekur langt frá
vegna Evrópumótsins í handbolta.
„Við vorum lengi í gang en ég náði
að taka þessa auðveldu bolta sem
skiptir öllu og þá fór þetta í gang
hjá okkur. Það einkennir kannski
Fram þessi barátta og dugnaður,
við gefumst aldrei upp. Við erum
búnir að læra það á því að spila
alltof marga jafna leiki í vetur að
þetta er ekki búið fyrr en þetta er
búið og þetta er bara frábært og
gott að vera komnir á toppinn. Það
er mjög gott upp á sjálfstraustið
núna fyrir pásuna og þetta er allt
á réttri leið,“ sagði Magnús að
lokum.
Jóhann Gunnar Einarsson var
markahæstur Framara með ellefu
mörk, þar af níu úr vítum en Arnar
Pétursson skoraði sex fyrir Hauka
sem byrjuðu vel en staðan í hálf-
leik var 15-15. Í seínni hálfleik var
það sama uppi á teningnum þar til
Framarar sigu fram úr og undir
lokin voru Haukar kærulausir og
voru aldrei nálægt því að jafna.
„Því miður vorum við bara á
hælunum megnið af leiknum og
þrátt fyrir jafnan fyrri hálfleik
vorum við ekki að spila vel,“ sagði
Páll Ólafsson þjálfari Hauka eftir
leikinn. „Við vorum greinilega
þreyttir enda búið að vera mikið
álag á okkur undanfarið og það
kom klárlega í höfuðið á okkur í
dag, við réðum einfaldlega ekki
við þennan leik. Þeir voru mun
frískari en við og mér fannst
þeir vera með undirtökin megn-
ið af leiknum. Við vorum með
ótímabær skot og forum illa með
dauðafæri og það gerist oft þegar
menn eru ekki með kollinn í lagi,
þá eru menn að skjóta vitlaust og
taka rangar ákvarðanir sem varð
okkur að falli.
Framararnir voru klárlega miklu
betra liðið í dag og unnu sann-
gjarnan sigur og við verðum bara
að hysja upp um okkur buxurn-
ar.“
hjalti@frettabladid.is
Framskútan ill viðráðanleg
Framarar unnu enn einn sigurinn í DHL deild karla í handbolta í gær þegar
þeir unnu 33-26 sigur á Haukum að Ásvöllum og tylltu sér þar með á top deild-
arinnar.
JÓHANN EINARSSON ÞRUMAR AÐ MARKI Jóhann lék vel með Fram í gær og skoraði ellefu
mörk, þar af níu á vítalínunni. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN