Fréttablaðið - 18.12.2005, Side 86
18. desember 2005 SUNNUDAGUR70
HIN HLIÐIN RÚNA K. TETZCHNER RITHÖFUNDUR
Frá Íslandi með skrýtið ættarnafn
OPIÐ 12-16
SKATA
saltfiskur
siginn fiskur
Spurningaþátturinn Popppunktur
lýkur göngu sinni á Skjá einum
í kvöld þegar Geirfuglarnir og
Milljónamæringarnir eigast við í
úrslitum í þessari fjórðu þáttaröð
þar sem þeir bestu úr sögu Popp-
punkts keppa innbyrðis.
Geirfuglarnir unnu síðustu
þáttaröð en Milljónamæringarnir
duttu út í átta liða úrslitum í þeirri
fyrstu. Hefur árangur þeirra því
komið töluvert á óvart.
Þeir félagar Dr. Gunni og Felix
Bergsson hafa stjórnað Popp-
punkti með góðum árangri en nú
er komið að leiðarlokum, í það
minnsta þangað til annað kemur í
ljós. 66. og síðasti þátturinn verður
sem sagt í kvöld.
„Þetta er ágætis ending á spurn-
ingaþætti á Íslandi,“ segir Dr.
Gunni, sem er ánægður með útkom-
una. „Við hrúguðum öllum stærstu
og mest spennandi nöfnunum saman
sem okkur fannst þá. Síðan gátum
við gert tvær góðar seríur í viðbót
og núna erum við með „Créme de
la créme“. Það voru nokkur bönd
sem komust ekki. Það stóð til að fá
strákana í Sigur Rós og þeir voru
spenntir en voru alltaf eitthvað
uppteknir,“ segir Gunni. „Það gæti
kannski orðið og það má alveg end-
urvekja þáttinn eftir fimm til tíu ár.
Þá verður væntanlega búið að bæt-
ast eitthvað við. Kannski tekur Jak-
obínarína þátt, orðin heimsfræg,“
segir hann og hlær.
Felix Bergsson hefur rétt eins
og Gunni skemmt sér vel í Popp-
punktinum. „Þetta hefur verið mjög
skemmtilegur tími. Það er búið að
vera skemmtilegast að vinna með
þessum poppurum öllum sem taka
sig ekki ekki of hátíðlega. Það
mættu fleiri taka sér þá til fyrir-
myndar. Það er líka stutt í grínið
hjá þeim og þeir eru vanir að koma
fram. Það gerir mitt hlutverk mun
auðveldara,“ segir hann.
Gunni segir þá félaga ekkert
hafa pælt í mögulegum vinsæld-
um þáttarins í upphafi. „Ég bjóst
við því að þeir sem hefðu áhuga
á músík og tónlistarsögu myndu
hafa gaman af. Það var alls konar
fólk sem maður bjóst ekki við að
myndi horfa sem var að horfa. Það
eru oft eldri konur að víkja sér að
mér og þakka mér fyrir þáttinn, en
það er líklega bara út af Felix.“
Aðspurður segist Gunni vera að
íhuga að búa næst til sambland af
söngleik og rokkóperu. „Það vill
brenna við að maður gefi út plötu
og síðan séu allir búnir að gleyma
henni eftir að hún kemur út. Plöt-
ur eru dálítið einnota fyrirbæri.
Skáldsögur fá miklu meira vægi í
umræðunni og það væri því gaman
að geta sameinað skáldsögu og
plötu með blöndu af söngleik og
rokkóperu,“ segir hann. „Mest
seldu plöturnar núna eru með
„cover“ lögum. Kannski þyrfti ég
bara að finna sætan óperusöngv-
ara og láta hann jarma nokkur
popplög. Þá myndi ég kannski fara
í gull,“ segir doktorinn og hlær.
Þess má geta að Spaugstofan
heiðaði Felix og Dr. Gunna í þætti
sínum í gærkvöldi með því að gera
grín að Popppunkti og mátti vart á
milli sjá hver væri Dr. Gunni, Örn
Árnason eða doktorinn sjálfur.
freyr@frettabladid.is
POPPPUNKTUR: SÍÐASTI ÞÁTTURINN Í KVÖLD
Felix og Dr. Gunni kveðja
HVER ER HVAÐ? Örn Árnason brá sér í hlutverk Dr. Gunna í Spaugstofunni í gærkvöldi í tilefni af endalokum Popppunkts. Hér sést hann
með fyrirmyndinni og Felix Bergssyni, sem virðist eiga í erfiðleikum með að átta sig á hver sé hinn rétti doktor. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Leikarinn góðkunni Kiefer Suth-
erland er væntanlegur til lands-
ins í lok þessarar viku. Kemur
hann hingað ásamt hljómsveitinni
Rocco and the Burden sem er á
útgáfusamningi hjá plötufyrir-
tæki leikarans, Ironworks. Hljóm-
sveitin heldur tvenna tónleika hér
á landi. Fyrri tónleikarnir verða
á Nasa fimmtudaginn 22. desem-
ber og þeir seinni á Grand Rokk
á Þorláksmessu. Með Sutherland
og hljómsveitinni verður fimm
manna tökulið sem ætlar að taka
upp efni hér á landi sem síðan
verður notað í heimildarmynd um
ferðalag leikarans og hljómsveit-
arinnar um Evrópu.
Myndin hefur þegar verið seld
til breska sjónvarpsrisans Sky
One en þetta kemur fram í viðtali
við leikarann í Fréttablaðinu sem
birtist á morgun.
Þetta er í annað skiptið sem
Sutherland sækir landið heim en
hann var hér um áramótin í fyrra.
Heimsóknin vakti mikla athygli
enda er Kiefer einhver allra vin-
sælasti leikarinn þar vestra. Vakti
það athygli þegar hann sló sér upp
með íslenskri blómarós en sú saga
fór eins og eldur í sinu um heims-
byggðina.
Sutherland mun að öllum lík-
indum ekki eyða áramótunum hér
heldur fer af landi brott skömmu
eftir jólahaldið því Rocco á bók-
aða tónleika á Írlandi 27. desem-
ber og í Berlin 31. desember þar
sem þeir félagar fagna eflaust
nýju ári með Þjóðverjum.
Kiefer er mjög hrifinn af landi
af þjóð en mjög eftirminnilegt er
þegar hann lýsti upplifun sinni af
gamlárskvöldi hér í spjallþætti
David Letterman. „Þetta er eins
og stríðssvæði og það er ekkert
skipulag. Ég sá sex ára krakka
halda á fimmtán kílóa sprengju-
vörpu og sex ára krakki elti hann
með eldspýtur,“ sagði Kiefer.
- fgg
Heimildarmynd um Íslandsförina
KIEFER SUTHERLAND Á DILLON Kiefer
kemur hingað aftur í lok þessarar viku með
hljómsveitinni Rocco and the Burden og
fimm manna tökuliði sem vinnur að gerð
heimildarmyndar um ferðalag hans og
hljómsveitarinnar.
Hvað er að frétta? Fyrst og fremst
Ófétabörnin.
Augnlitur: Blár.
Starf: Myndlistakona, skáld, sérfræðingur
á Þjóðminjasafninu og skrautritari.
Fjölskylduhagir: Einhleyp.
Hvaðan ertu? Ég er frá Íslandi með
skrýtið ættarnafn.
Ertu hjátrúarfull? Nei, ekki hjátrúarfull
en kannski þjóðtrúarfull.
Uppáhaldssjónvarpsþáttur: Ég horfi
aldrei á sjónvarpið. Ég á ekki einu sinni
sjónvarp.
Uppáhaldsútvarpsþáttur: Víðsjá.
Uppáhaldsmatur: Lax.
Fallegasti staður: Snæfellsnes.
iPod eða geislaspilari: Geislaspilari.
Hvað er skemmtilegast? Að teikna og
yrkja.
Hvað er leiðinlegast? Að vakna á
morgnana.
Helsti veikleiki: Karlmenn.
Helsti kostur: Ég á auðvelt með að
umgangast fólk.
Helsta afrek: Þau eru svo mörg.
Mestu vonbrigði: Að Þorgeir Kjartansson,
maðurinn minn heitinn, hafi ekki getað
lifað lengur.
Hver er fyndnastur/fyndnust? Rakel
vinkona mín.
Hvað fer mest í taugarnar á
þér? Meðalmennska og hroki.
Uppáhaldskvikmynd: Delicat-
essen.
Uppáhaldsbók: Lord of
the Rings á ensku er eig-
inlega uppáhaldsbókin
mín, sem ég las fyrst
fyrir 20 árum.
Hvað er mikilvæg-
ast? Að vera sátt við
lífið og tilveruna.
HRÓSIÐ
...fær Aníta Ólöf Jónsdóttir fyrir
að fá hugmynd að styrktartón-
leikum fyrir fórnarlömb jarð-
skjálftans í Pakistan og Hjördís
Einarsdóttir fyrir að aðstoða
hana við að hrinda hugmyndinni
í framkvæmd.
06.03.67.
FRÉTTIR AF FÓLKI
Sala á kvikmyndinni A Little Trip to Heaven hefur tekið mikinn kipp
eftir að tilkynnt var um að hún færi á
Sundance-kvikmyndahátíðina. Í vikunni
voru gerðir stórir dreifingarsamningar til
Spánar og Portúgals en þeir eru víst stærri
og umfangsmeiri en nokkrir aðrir samn-
ingar sem gerðir hafa verið við „íslenskar“
myndir. A Little Trip verður til að mynda
sýnd í hundrað bíóhúsum á Spáni og
veðja kvikmyndahúsaeigendur þar í landi
á að hún gæti orðið nokkuð vinsæl því
þeir hafa lofað að eyða töluverðum pen-
ingum í kynningu og markaðssetningu.
Um þessar mundir standa
einnig yfir samningavið-
ræður við aðila í Banda-
ríkjunum og Bretlandi
en myndin hefur nú
þegar verið seld til yfir
fjörtíu landa. Hún verður
frumsýnd hér á landi á
annan í jólum.
Sigurjón Sighvatsson, einn framleiðandi myndarinnar, og Baltasar Kormákur,
leikstjóri hennar, ættu að geta andað
léttar. Eftir sýningu myndarinnar í Toronto
varð ljóst að myndin þyrfti andlitslyftingu
og þá settu misjafnir dómar smá strik í
reikningin. Sú viðurkenning að komast á
Sundance hefur því greinilega verið henni
dýrmæt enda mjög eftirsótt að komast á
háíðina sem bandaríski leikarinn Robert
Redford á mestallan heiðurinn af. Meðal
kappa sem hafa frumsýnt sínar myndir
þarna eru Quentin Tarantino en hann sló
í gegn á hátíðinni með Reservoir Dogs
og Steven Soderbergh með Sex, Lies
and Videotape. A Little Trip verður sýnd í
Premier-flokknum sem er utan keppni en
í honum eru sýndar myndir eftir leikstjóra
sem miklar vonir eru bundnar við og
myndir leikstjóra sem þegar hafa skapað
sér nafn.