Fréttablaðið - 30.12.2005, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 30.12.2005, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI VEÐRIÐ Í DAG Sími: 550 5000 FÖSTUDAGUR 30. desember 2005 — 353. tölublað — 5. árgangur FBL 1x9 forsíðukubbur Þökkum landsmönnum frábærar viðtökur HALLA VILHJÁLMSDÓTTIR Sótti snemma í sviðsljósið partíbrennsla • glamúr FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG WOYZECK Valin ein besta sýningin í London Leikstjórinn í skýjunum FÓLK 50 Fær hlébarða í afmælisgjöf María Pálsdóttir leikkona á von á góðri afmælisgjöf frá þriggja ára syni sínum. TÍMAMÓT 44 JÓN INGI SIGVALDASON Öryggið ofar öllu í meðferð flugelda áramót • matur Í MIÐJU BLAÐSINS Lét gamninn geisa Quentin Tarantino fór hamförum á blaða- mannafundi í gær og lét allt flakka. Hann vill gera víkingamynd. FÓLK 44 Pólitísk áramótasprengja Það mun mikið mæða á Hall- dóri Ásgrímssyni á næstu vikum og mánuðum, segir Birgir Guðmundsson, sem telur forsætisráð- herra dæmdan til pólitísks mótlætis. Í DAG 24 t í s k a á r a m ó t t í ð a r a n d i t ó n l i s t h e i l s a m a t u r s u d o k u SJÓ NV AR PS DA GS KR ÁI N 30 . d es em be r – 5. ja nú ar » á leið inn í nýtt ár Halla Vilhjálmsdóttir: Sótti snemma í sviðsljósið STJÖRNUSPÁ Allt árið 2006 ÁRAMÓT Girnilegir munnbitar 01 birta-forsíða 23.12.2005 13.08 Page 1 RIGNING EÐA SLYDDA á landinu sunnanverðu en úrkomulítið fyrir norð- an. Yfirleitt frostlaust með ströndum en frost til landsins. VEÐUR 4 24% 43% Fr é tt a b la › i› Fr é tt a b la › i› M b l. M b l. *Samkvæmt fjölmi›lakönnun Gallup í október 2005. Atvinnublað Morgunblaðsins Allt-atvinna. á sunnudegi Atvinnuleitin hefst í Fréttablaðinu! LESTUR MEÐAL 25-49 ÁRA VIÐSKIPTI Samningar á sölu 28 pró- senta hlutar Straums-Burðaráss í Íslandsbanka voru á lokastigi fyrir jól, en upp úr þeim slitnaði nú milli jóla og nýárs. Síðustu dagana fyrir jól var lögð lokahönd á samkomulag um sölu hlutarins til Þáttar, sem er í eigu Milestone undir forystu Karls Wernerssonar og Baugs, FL Group og Ólafs Ólafssonar, aðal- eiganda Samskipa, SÍF og Kers. Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins var samkomulag nánast tilbúið og var Ólafur tilbúinn að láta Straum hafa hluti í KB banka sem hluta greiðslu og hugsanlega eignir Kers, sem á meðal ann- ars olíufélagið Essó. Straumur átti einnig að fá hlutabréf sem greiðslu frá FL Group, meðal annars í KB banka. Samkvæmt heimildum varð ágreiningur um bréfin í KB banka til þess að upp úr viðræðunum slitnaði, í bili að minnsta kosti. Stjórn Straums vildi meira af bréfum í bankanum en FL Group var tilbúið að láta af hendi. Kaupendur töldu samninga í höfn og kom niðurstaða stjórnar Straums þeim á óvart. Straumur og Þáttur eru stærstu einstöku hluthafar í bankanum og er hlutur Þáttar um tuttugu pró- sent. Milestone á áttatíu prósent í Þætti, en Baugur tuttugu prósent. Fyrir utan eignina í Íslandsbanka er Þáttur eigandi 66 prósenta hlut- ar í Sjóvá. Vitað hefur verið um nokkurt skeið að áhugi er á að selja hlut Straums í bankanum og hafa nöfn þessara aðila oft komið upp í þeirri umræðu. Markaðsvirði hlutar Straums er ríflega sextíu milljarðar króna. Ekki er talið úti- lokað að viðræður hefjist að nýju eftir áramót. - hh Samningar um kaup Þáttar á 28 prósenta hlut Straums í Íslandsbanka: Viðræðum slitið vegna deilna um hlutabréf í KB banka SEÚL, AP Rannsóknarnefnd Seúl- háskóla greindi frá því í gær að allar n i ð u r s t ö ð u r vísindamanns- ins Hwang Woo-suk væru f a l s a ð a r . Hann sagðist á sínum tíma hafa tekist að þróa ellefu stofnfrumu- klasa sem nýst gætu þeim s j ú k l i n g u m sem erfðaefn- ið var úr. Heldur hefur fjarað undan Hwang að undanförnu. Orðspor hans beið mikinn hnekki í síðasta mánuði þegar upp komst að hann fékk lánuð egg úr starfsmönnum rannsóknar- stofu sinnar. Miklar vonir voru bundnar við að á grundvelli uppgötvana Hwang mætti þróa lækningar við ýmsum sjúkdómum, til dæmis Parkinson- veiki. Því eru fréttirnar um svikin töluvert áfall. ■ Suður-kóreskur vísindamaður: Falsaði allar niðurstöður STUTT VIÐ BAK HWANG Nokkrir stuðningsmenn Hwang komu saman fyrir utan háskólann í gær. Getum unnið alla titla Jeb Ivey, sem hefur farið á kostum með Njarðvík í vetur, segir Njarðvík hafa burði til að vinna alla titla í vetur. Hann er sáttur í Njarðvík eftir mögur ár með KFÍ og Fjölni þar sem hann vann enga titla. ÍÞRÓTTIR 46 LÖGREGLA Lögregla fann merki um umfangsmikla kannabisræktun í fyrrum húsnæði Júdógym við Einholt í Reykjavík þegar þar var gerð húsleit um miðjan dag í gær. Einn var hand- tekinn á staðnum og annar skömmu síðar annars staðar í bænum. Haukur Ólafsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni í Reykjavík, segir að á staðnum hafi fundist á annan tug rytjulegra kannabisplantna. „Allt ber þetta þess merki að þarna hafi verið einhver starfsemi. Mesta magnið var greinilega farið,“ segir hann. Upphafleg ástæða þess að lög- regla hafði afskipti af húsinu var tilkynning sem barst um grunsam- legar mannaferðir. „Svo vatt þetta svona upp á sig þegar farið var að skoða þessar mannaferðir, rétt upp úr klukkan þrjú í gær.“ Í gærkvöldi voru mennirnir tveir í yfirheyrslu og gerði Haukur ráð fyrir að umfang málsins yrði kannað. - óká Kannabisræktun í Reykjavík: Fundu rytjuleg- ar plöntur KJARAMÁL Litlar líkur eru á því að þing verði kallað saman til þess að setja einföld lög um frestun gildistöku úrskurðar Kjaradóms um launahækkun þingmanna, ráð- herra, forseta Íslands, dómara og nokkurra embættismanna. Stjórnarandstöðuflokkarnir standa fast við kröfu um að Alþingi verði kallað saman í dag eða á morgun eftir að Kjaradómur neitaði að breyta ákvörðun sinni. „Þingið gæti afgreitt mjög ein- föld lög um frestun launahækkana í tiltekinn tíma eða þess vegna um ótiltekinn tíma þangað til búið væri að endurskoða lögin og ákveða nýtt fyrirkomulag,“ segir Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna. Undir þetta tekur Ingi- björg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar. „Við viljum gera skýran greinarmun á starfi nefndar sem ætlað er að fara yfir skipan þessara mála til framtíðar og þessu tiltekna úrlausnarefni. Nefnd sem skipuð verður hefur ekkert með það að gera,“ segir Ingibjörg Sólrún. Þingflokkur Vinstri grænna gerir að skilyrði að þing komi saman áður en hann tilnefnir fulltrúa í þverpólítíska nefnd á vegum stjórn- valda sem ætlað er að endurskoða lög um Kjaradóm og kjaranefnd. Ríkisstjórnin hefur boðað forystu stjórnarandstöðuflokkanna á sinn fund fyrir hádegi í dag að loknum ríkisstjórnarfundi þar sem fjallað verður um málið. Geir H. Haarde utanríkisráð- herra hafnar setningu bráðabirgða- laga. „Þá væri nær að kalla saman þing,“ segir hann en boðar að ríkis- stjórnin haldi sínu striki og útfæri málið nánar á fundi ríkisstjórnar- innar í dag. Einar Oddur Kristjánsson, þing- maður Sjálfstæðisflokksins, hefur efasemdir um að kalla þing saman vegna málsins og telur að athuguðu máli tæknilega mögulegt að aftur- kalla launahækkanirnar í janúar. - jh / sjá síðu 6 Líkur á þingfundi fyrir áramót litlar Forsætisráðherra boðar forystu stjórnarandstöðuflokkanna á sinn fund eftir ríkisstjórnarfund í dag. Utanríkisráðherra er mótfallinn því að kalla þing saman fyrir áramót til að fresta launahækkunum þingmanna og ráðherra. GRIPINN GLÓÐVOLGUR Tveir menn voru í gær handteknir í tengslum við umfangsmikla kannabisræktun í fyrrum húsnæði Júdógym við Einholt í Reykjavík um miðjan dag í gær. Lögreglu hafði borist tilkynning um grunsamlegar mannaferðir í húsinu. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.