Fréttablaðið - 30.12.2005, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 30.12.2005, Blaðsíða 16
 30. december 2005 FRIDAY FRÉTTASKÝRING JÓHANN HAUKSSON johannh@frettabladid.is Heróín hefur hingað til ekki verið talið eitt af þeim fíkniefnum sem ástæða væri til að hafa áhyggjur af hér á landi enda úrval þess verið lítið sem ekkert og efnið verið mun dýrara en flest önnur efni á markaðnum. Þrátt fyrir að lögregla segi lítið af efninu í umferð er ýmislegt sem bendir til að raunin sé önnur. Hvað er heróín? Heróín er ávanabindandi fíkniefni sem unnið er úr morfíni, sem svo aftur er unnið úr fræjum valmúaplöntunnar asísku. Heróínnotkun er vaxandi vanda- mál í vestrænum löndum og gefa rann- sóknir til kynna að sífellt fleiri neytendur sjúgi það upp í nefið eða reyki efnið í stað þess að sprauta því eins og áður þar sem efnið er hreinna og betur unnið en var hér fyrr á tíð. Ýmsir telja hættuna minni við það en svo er ekki. Hvað áhrif hefur það? Áhrifin finnast fljótt eftir einn skammt og hverfa að nokkrum tímum liðnum. Líkaminn fyllist af orku. Húðin roðnar og munn- ur verður þurr. Eftir þessa fyrstu þeysireið upplifir neyt- andinn sljóleika enda sljóvgar efnið miðtaugakerfið. Sé um langvar- andi neyslu að ræða eru líkamleg einkenni mun alvarlegri. Æðar falla saman og sýking getur komið í hjarta og lifur. Öndunarerfiðleikar fylgja í kjölfarið og kvef og hálsbólga er algeng. Af hverju er það svona hættulegt? Fráhvarfseinkenni myndast strax eftir fyrsta skammt. Neytandi finnur um leið þörf fyrir annan skammt, verkir koma í bein og vöðva, svefnleysi er algengt og í verstu tilvikum fá menn niðurgang og uppköst. Hætti langtímaneytandi neyslunni skyndi- lega getur það dregið hann til dauða. FBL GREINING: HERÓÍN Vart til sterkara fíkniefniH blaelgar › Hefurflúsé› DV í dag DAGBLAÐIÐ VÍSIR 298. TBL. – 95. ÁRG. – VERÐ KR. 295 FÖSTUDAGUR 30. DESEMBER 2005 Áramótablað Dæmdur eiturlyfjasmyglari á „dauðahúsin“ í miðbænum Skemmtilegustu annálarnir 2005 EVA SÓLANSYRGÐI FÖÐURSINN Á JÓLUNUM Fór í glasafrjóvgun og missti móður sína Steinunn Valdís MYRTIR AF VINUM SÍNUM Eiður Smári íþróttamaður ársins Íslenska undrið í Chelsea, einu besta félagsliði veraldar, er að mati lesenda DV mesti íþróttamaður Íslendinga árið 2005. Eiður Smári Guðjohnsen þakkar fyrir sig í DV í dag: „Mér þykir afar vænt um þetta.“ Bls. 20-21 DAGBLAÐIÐ VÍSIR 296. TBL. – 95. ÁRG. – [MIÐVIKUDAGUR 28. DESEMBER 2005] VERÐ KR. 220 Sjö barna móðir jarðsett daginn fyrir Þorláksmessu Lést hálffertug frá nýfæddum tvíburum HAFRÚN HAFSTEINSDÓTTIR VILDI BÖRNUM SÍNUM ALLT GOTT EN HJARTAÐ GAF SIG Á AÐVENTUNNI Bls. 6 Bls. 10–11 – JÓHANN BRAUT UPP HURÐINA OG FANN ÞAU – GRUNAR AÐ ÞRIÐJI AÐILI EIGI HLUT AÐ MÁLI – LÖGREGLAN ÚTILOKAR EKKERT Heróínið drap Jón Inga og Ólöfu Lindu á jóladagNÁGRANNARNIRAFÞÖKKUÐU HERÓÍN OG LIFÐUVill rífa húsin og byggja verslunarmiðstöð Bls. 6 Bls. 22 Bls. 37 Árið 2005FRÉTTAANNÁLL DV Bls. 10–17 Gleðilegt ár ? MYRTIR AF VINUM SÍNUM Árið 2005 FRÉTTAANNÁLL DV helgar augl 29.12.2005 19:55 Page 3 Kröfur stjórnarandstöðunnar um að kalla þing saman í stutta stund í dag eða á morgun, gamlársdag, virðast í fljótu bragði vera raunhæfar. Geir H. Haarde, formaður Sjálf- stæðisflokksins, þvertekur fyrir að setja bráðabirgðalög um að fresta launahækkunum þingmanna, ráð- herra, dómara og nokkurra emb- ættismanna nú um áramótin. Nær væri þá að kalla þing saman að mati Geirs. Geir og forsætisráðherra ætla þrátt fyrir þetta að freista þess að halda sig við þá ákvörðun að koma á fót nefnd sem fær það verkefni að endurskoða lög um ákvörðun launa þingmanna og embættismanna. En hvernig á að leysa vandann um áramótin? Þingið til óþurftar Ætla má að tregðan við að kalla þing saman eigi að einhverju leyti rætur að rekja til ákveðinnar tog- streitu milli framkvæmdavaldsins og löggjafarvaldsins. Sérfróðir menn hafa þráfaldlega bent á mikið vald ríkisstjórna gagnvart löggjaf- arþinginu og að þær líti gjarnan á Alþingi sem afgreiðslustofnun og í versta falli þránd í götu valdboða sinna. Formenn stjórnarandstöðuflokk- anna hétu því í gær að afgreiða frestun ákvörðunar Kjaradóms um launahækkanir með einfaldri laga- setningu á stuttum fundi. Allt kom fyrir ekki. Ef til vill var það af sama meiði þegar stjórnarandstæðingar báru sig illa undan því að forsætisráð- herra hefði í raun ekki haft neitt samráð um skipan þverpólítískrar nefndar sem falið yrði að endur- skoða lögin um Kjaradóm og kjara- nefnd. Miklu frekar hefði verið um einhliða yfirlýsingar af hans hálfu að ræða. Launamisrétti rætt síðar Á stjórnarliðum og ráðherrum mátti heyra í gær að þeir kærðu sig lítið um að taka snerru við stjórnarand- stöðuna á þingfundi fyrir áramótin um gliðnun milli fátækra og ríkra, stórkostlegt launaskrið betur meg- andi stétta og fleira í þeim dúr. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, for- maður Samfylkingarinnar, þvertek- ur fyrir að stuttur þingfundur um frestun hefði leiðst út í slíka sálma. Steingrímur J. Sigfússon, formað- ur Vinstri grænna, tekur undir slíkt. „Sú umræða bíður þangað til í janúar.“ Um þetta segir Steingrímur raunar að niðurstaða Kjaradóms endurspegli ört vaxandi kjaramun í landinu. „Um þessi sömu áramót og úrskurður Kjaradóms tekur gildi eru stjórnvöld að færa tekjuhæsta fólkinu og mesta eignafólkinu í landinu stórkostlegar skattalækk- anir. Það snýst um margfalt hærri fjárhæðir en þær sem hér eiga í hlut og meta má sem gríðarlegar launahækkanir. Hér er ég að tala um niðurfellingu hátekjuskattsins og eignaskattsbreytingarnar sem gagnast vitanlega mest eignafólki. Þetta er heldur betur nýársgjöfin,“ segir Steingrímur. Nefndin Við ríkisstjórninni blasir að leysa þann hnút sem skapast um ára- mótin. Grétar Þorsteinsson, forseti Alþýðusambandsins, hefur litla trú á að nefnd sem endurskoða á lög um ákvörðun kjara þjóðkjörinna einstaklinga og dómara muni skipta sér af gengnum úrskurði sem tekur gildi 1. janúar. „Ég hef mjög tak- markaða trú á að niðurstaða þessar- ar nefndar verði afturvirk þegar til kastanna kemur. Ég hef afskaplega litla trú á að sú nefnd lækki laun þessa fólks,“ segir Grétar. Yfirlýsing þingflokks Vinstri grænna um þetta er skýr: „VG mun tilnefna fulltrúa í nefnd þá sem for- sætisráðherra hefur skýrt frá að hann hyggist skipa vegna nýlegs úrskurðar Kjaradóms. Þetta er að því gefnu að þing hafi áður komið saman, það er á morgun (í dag), til að afgreiða lög um frestun gildis- töku Kjaradóms frá 19. desember.“ „Við viljum gera skýran greinarmun á viðfangsefni umræddrar nefndar og þessu til- tekna úrlausnarefni sem við blasir um áramótin. Nefnd sem skipuð verður hefur ekkert með það að gera,“ sagði Ingibjörg Sólrún Gísla- dóttir eftir þingflokksfund Sam- fylkingarinnar í gær. Þess hefur verið farið á leit við Jón Sigurðsson, fyrrverandi ráð- herra og bankastjóra Norræna fjár- festingarbankans, að hann taki að sér formennsku í umræddri nefnd. Hann sat eitt sinn í Kjaradómi og er reyndur maður. Eftir því sem næst verður komist kærir hann sig ekki um að hafa afskipti af þeim úrskurði sem fjaðrafokinu veldur nú um áramótin, þótt hann kunni að vera til viðræðu um að skoða framtíðarskipan kjaramála æðstu embættismanna og þjóðkjörinna fulltrúa. JÓN SIGURÐSSON Orðaður við formennsku í nefnd sem endurskoðar lög um Kjara- dóm. INGIBJÖRG SÓLRÚN GÍSLADÓTTIR Einfalt og sjálfsagt að boða stuttan þingfund. STEINGRÍMUR J. SIGFÚSSON Tilnefnir í nefndina því aðeins að þing komi saman fyrst. GRÉTAR ÞORSTEINSSON Hefur enga trú á að nefndin leiðrétti hækkunina nú um áramótin.GEIR H. HAARDE Vill engin bráðabirgðalög. Ríkisstjórn neitar sér um aðstoð þings Vandann samfara gildistöku úrskurðar Kjaradóms um áramótin hefði mátt leysa með aðstoð þingsins. Ríkisstjórnin neitar sér um slíkt og boðar útfærslu á sínum lausnum í dag sem og samráð við stjórnarandstöðuna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.