Fréttablaðið - 30.12.2005, Blaðsíða 62
30. december 2005 FRIDAY50
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
STÓR HUMAR
HÖRPUSKEL
RISARÆKJUR
Sannkölluð tónlistarveisla verður
í útvarpi og sjónvarpi allra lands-
manna um áramótin. Þeir sem ekki
komust á stórtónleika Sigur Rósar í
Laugardalshöll hinn 27. nóvember
síðastliðinn, sem margir telja vera
bestu tónleika Íslandssögunnar, fá
sárabót þegar Rás 2 útvarpar upp-
töku frá tónleikunum á gamlársdag
frá klukkan 16.05 til klukkan 18.
Að sögn Ólafs Páls Gunnars-
sonar, verkefnisstjóra tónlistar á
Rás 2, eru tónleikarnir þeir einu
sem Sigur Rós gaf grænt ljós á
að færu í útvarp á heimsvísu úr
Takk-tónleikaferðalaginu, en fjöldi
útvarpsstöðva víðs vegar um heim-
inn óskaði árangurslaust eftir því
að mega hljóðrita tónleika Sigur
Rósar.
„Við á Rás 2 erum því afskap-
lega ánægð með að geta boðið
hlustendum okkar upp á Sigur Rós
á heimavelli á síðasta degi árs-
ins,“ segir Ólafur Páll og minnir
einnig á sjónvarpsútsendingu frá
stórtónleikum Rásar 2 á Menning-
arnótt sem endursýndir verða á
nýársnótt klukkan 01.45.
„Þeir tónleikar heppnuð-
ust með afbrigðum vel. Hátt í
hundrað þúsund manns hlýddu á
þessa fjölmennustu tónleika sem
haldnir hafa verið á Íslandi, en á
Hafnarbakkanum í sumar komu
fram Ellen Kristjánsdóttir ásamt
barnakór, Hjálmar, KK og Maggi
Eiríks, Í svörtum fötum og Tod-
mobile sem rak lestina áður en
flugeldasýning Orkuveitunnar
byrjaði með miklum látum,“ segir
Óli Palli, sem lofar fyrir hönd
Rásar 2 að rásin muni halda sínu
striki sem vinsælasta útvarpsstöð
landsins og halda áfram að leika
lögin við vinnuna í bland við aðra
góða hluti. ■
Gamla árið kvatt með Sigur Rós
JÓNSI Í STUÐI Með bogann á lofti á Takk-
tónleikunum frábæru í Höllinni.
Velgengni leikhópsins Vesturports
heldur áfram. Timaritið Time Out
í London valdi sýninguna Woyzeck
eina af níu bestu sýningum ársins
en blaðið er eitt mest lesna við-
burðablað Bretlands. Þetta er mik-
ill heiður fyrir Vesturport en fyrr
á þessu ári bar hópurinn sigur úr
býtum á leikhúshátíð í Moskvu með
Brim.
Gísli Örn Garðarsson, leikstjóri
Woyzeck, var staddur í London
þegar Frétta-
blaðið náði tali
af honum en þar
er hann að æfa
verkið Nights at the Circus hjá
Lyric Hammersmith-leikhúsinu.
Æfingarnar eru stífar; mæting
klukkan níu á morgnana og unnið
til klukkan tíu á kvöldin. „Það er
lærdómsríkt að vera hérna. Allt
gert á knappari tíma.“
Gísli Örn var að sjálfsögðu í
skýjunum með útnefningu Time
Out. „Þú getur rétt ímyndað þér,“
sagði hann kampakátur. „Við erum
þriðja sýningin í röðinni og ein-
hverjir hafa hvíslað því að mér
að við höfum því hreppt bronsið,“
segir hann og hlær. „Ég veit hins
sjálfur ekkert um hvort þeir hafi
raðað eftir sætum,“ viðurkennir
hann.
Gísli segir að sýningin hafi skil-
ið eftir sig spor í London og margir
tengi hana við Ísland. „Við erum
bara mjög glöð yfir þessu og það er
alltaf gaman að fá viðurkenningu á
því sem við erum að gera,“ útskýr-
ir hann en segist þó hafa báða
fætur á jörðinni. „Stundum gengur
vel og einhverjir eru ánægðir en
við höfum alltaf fengið alls konar
gagnrýni,“ bætir hann við og telur
jafnframt að þessi útnefning komi
íslensku leikhúsi á kortið í London.
Sýning Gísla verður frumsýnd
25. janúar og verður hann við
störf í höfuðborginni fram í apríl.
Eftir það segist hann ætla að koma
heim og stokka aðeins upp því
nóg sé fram undan. „Woyzeck fer
til Þýskalands í haust og Rómeó
og Júlía sömuleiðis næsta vor. Þá
höfum við verið beðin um að koma
með Woyzeck aftur til London,“
segir leikarinn og því greinilegt
að Vesturport er ekki að fara að
leggjast í kör. „Okkur langar líka
að gera bíómynd eftir Brimi en við
verðum fyrst að finna tíma til að
framkvæma allar hugmyndirnar.“
freyrgigja@frettabladid.is
WOYZECK: EIN AF BESTU SÝNINGUM ÁRSINS AÐ MATI TIME OUT
Útnefningin kemur ís-
lensku leikhúsi á kortið
WOYZECK Sýningin fór vel í Lundúnabúa en hún þykir ein af þeim bestu sem settar voru upp á árinu sem er að líða.
GÍSLI ÖRN
Frumsýnir Nights
at the Circus hjá
Lyric Hammersmith
leikhúsinu ásamt
Kneehigh-leik-
hópnum.
HRÓSIÐ
...fær Jón Atli Jónasson, sem
tilnefndur er fyrir Íslands hönd til
Norrænu leikskáldaverðlaunanna
2006. Tilnefninguna hlýtur hann
fyrir leikrit sitt Brim.
FRÉTTIR AF FÓLKI
Quentin Tarantino lenti á landinu í gær ásamt fríðu föruneyti og var í
miklu stuði. Upphaflega var gert ráð fyrir
að leikstjórinn kæmi 28. desember þar
sem hann langaði til eyða einum degi
hér á landi einn en hann hafði víst lofað
upp í ermina á sér með það. Ekki er
langt síðan Tarantino var hér á landi og
að sögn sjónarvotta var honum heilsað
eins og gömlum vini af tollvörðunum.
Tarantino snæddi morgunverð á hóteli
og vildi ekkert annað en vanilluskyr og
lýsi. Hann tekur hið síðarnefnda orðið
reglulega og ætlar að hafa með sér
einhverjar birgðir til Ameríku enda er
íslenskt lýsi þar illfáanlegt. Á leiðinni
til Reykjavíkur var stoppað til að fara í
snjókast enda er jörðin auð í Kaliforníu
að venju. Var hópurinn
eins og kálfar að
vori og varð
hryllingsmynda-
leikstjórinn Eli
Roth víst verst
úti en hann fékk
snjóbolta beint í
andlitið.
Um hver einustu jól, strax á jóladag,
er farið að ræða áramótin. Spurningin
hvað eigi að gera á gamlárs er einhvern
veginn það eina sem fólk finnur sér
að ræða. Það sem ég ætla að segja er:
VARÚÐ!!!
Ein áramótin hélt ég partí fyrir vinina
áður en haldið var á djammið. Mér tókst
að mynda kósí en jafnframt hátíðlega
stemningu heima með því að setja kerti
í hvern krók og kima íbúðarinnar. Síðan
mætti ein allskemmtilega hress vinkona
mín í nýja púffpilsinu sínu staðráðin í
því að verða ekki einmana það kvöldið.
Hún fór að spjalla við manninn sem hún
hafði verið að hita upp og ætlaði að
negla í þetta sinn. Hún hallaði sér yfir
hann til að hvísla einhverju að honum
og vera sexí í leiðinni. Þá fann hún
skyndilega skrítna lykt og leit í kringum
sig. Þá tók ég eftir hamförunum sem
höfðu átt sér stað, það var bál í öllum
bakhluta pilsins hennar og við fengum
sannkallaða einkaáramótabrennu
beinustu leið heim í stofu. Í móðursýk-
inni lamdi hún á rassinn á sér, snérist í
hring eins og hundur að elta rófuna á
sér en endaði með því að hlamma sér
á mitt stofugólfið. Hún missti ekki bara
kúlið á þessu augnabliki heldur líka
pilsið og gæjann. Með sárt ennið gekk
hún yfir stofugólfið og við fengum öll
að sjá fínu jólanærfötin. Eftir sjúklega
hláturskastsbylgju í partíinu fórum við
á skemmtistað, Kaupfélagið sem var og
hét, til að hitta fleira fólk. Ég, sem hlæ
iðulega mest að óförum annarra, fékk
líka minn skerf þetta kvöldið. Ungur og
afar drukkinn maður kom að tali við mig
í ákveðnum tilgangi. Til að undirstrika
áhuga sinn kveikti hann á kveikjaranum
sínum eftir að hafa gefið mér eld til að
skoða betur á mér beinabygginguna. Þar
sem ég var lítið spennt fyrir eldmeistar-
anum sneri ég mér undan og ætlaði að
forða mér. Það heppnaðist ekki betur en
svo að manninum tókst að kveikja eld í
hárinu á mér, sem var spennt upp með
milljón hárspennum og hálfum lítra af
hárlakki. Afar eldfimur varningur! Þá
gerði ég gestum skemmtistaðarins þann
greiða að færa þeim áramótabrennu í
partíið. Eftir að traust vinkona kom mér
til bjargar og slökkti bálið í hárinu á mér
hljóp ég niður á klósett til að athuga
hversu mikill skaði væri skeður þar sem
ég á ekki nógu mikið af hári til að mega
við svona uppákomum. Ég tók þann
pólinn í hæðina að líta á mig sem hetju
fyrir að hafa lifað þetta af frekar en að
verða vandræðaleg og láta
mig hverfa af skömm.
Með þetta að leiðarljósi
ætla ég að biðja ykkur
um að fara varlega
með eldinn um ára-
mótin og óska ykkur
gleðilegs nýs árs en
ég ætla að taka
mér stutt hlé frá
skrifum á nýja
árinu og safna
í fleiri skandala
til að deila með
ykkur.
REYKJAVÍKURNÆTUR HARPA PÉTURSDÓTTIR VILL AÐ VIÐ BREYTUM SÖGUNNI
Kátt hann brennur!
LÁRÉTT
2 starf 6 guð 8 kopar 9 geislahjúpur
11 dreifa 12 kryddblanda 14 mont
16 rykkorn 17 rotnun 18 viljugur 20
tveir eins 21 leikni.
LÓÐRÉTT
1 fituskán 3 tveir eins 4 þakíbúð 5
knæpa 7 mergð 10 urrdan 13 skarð
15 þvo 16 kraftur 19 vörumerki.
LAUSN
LÁRÉTT: 2 verk, 6 ra, 8 eir, 9 ára, 11 sá,
12 karrí, 14 grobb, 16 ar, 17 fúa, 18 fús,
20 ðð, 21 list.
LÓÐRÉTT: 1 brák, 3 ee, 4 risíbúð, 5
krá, 7 aragrúi, 10 arr, 13 rof, 15 baða,
16 afl, 19 ss.
E li Roth og Quentin Tarantino eru orðnir vægast sagt uppteknir af
íslenskri menningu og tóku meðal
annars með sér heim íslenska tónlist
fyrir tugi þúsunda. Þá voru þeir gallaðir
vel upp hjá 66° Norður og í Nonnabúð.
Eli segist vera einstaklega ánægður með
Dead-bolinn sinn úr Nonnabúð og þeir
Quentin spóki sig oft í Los Angeles í
íslensku fötunum sínum. Þannig hefur
það til dæmis ítrekað komið fyrir að
félagarnir hafi mætt hvor í sínu lagi
í veislur í kvikmyndaborginni, báðir í
Dead-bolum með 66° Norður húfurnar
sínar á hausnum. Þetta er nokkuð sem
leikkonur forðast eins og heitan eldinn
en þeim Tarantino og Roth finnst fátt
jafn skemmtilegt og að hittast eins
klæddir án þess að hafa stillt saman
strengi sína í þessu ómeðvitaða mark-
aðsátaki fyrir Nonnabúð og 66° Norður.
[ VEISTU SVARIÐ ]
1. Þórarinn Tyrfingsson.
2. Pink Floyd.
3. Fabio Capello.