Fréttablaðið - 30.12.2005, Page 4
4 30. december 2005 FRIDAY
LÖGREGLA Lögreglan í Keflavík og
á Keflavíkurflugvelli fundu 250
grömm af marijúana í fyrrakvöld.
Lögreglan komst á sporið þegar
höfð voru afskipti af fimmtugum
ökumanni. Við leit í bifreið hans
fundust 120 grömm af marijúana.
Á heimili mannsins í Reykja-
vík fannst í framhaldinu meira
af efninu ásamt kannabisfræjum
og rúmlega 100 þúsund krónum í
seðlum. Að auki fundust rúmlega
sextíu marijúanaplöntur í atvinnu-
húsnæði í Sandgerði ásamt tækj-
um til ræktunar.
Maðurinn, sem er grunaður
um ræktun og sölu efnanna, var
látinn laus eftir yfirheyrslur. - jse
Lögreglan í Keflavík:
Maður tekinn
með marijúana
BÆJARMÁL Gunnar I. Birgisson,
bæjarstjóri í Kópavogi, sækist
eftir því að leiða sjálfstæðis-
menn í Kópavogi í komandi bæj-
arstjórnarkosningum. Prófkjör
vegna kosninganna verður haldið
21. janúar næstkomandi.
Fjórir af fimm bæjarfulltrú-
um Sjálfstæðisflokksins hyggjast
gefa áfram kost á sér.
Gunnar hefur verið í leyfi
frá Alþingi í vetur vegna bæjar-
stjórastarfsins og segir hann
prófkjörið og kosningarnar í
vor munu leiða í ljós hvort hann
hverfi aftur til starfa á þingi eða
verði áfram í bæjarstjórastóln-
um. - æþe
Sjálfstæðismenn í Kópavogi:
Gunnar vill
leiða áfram
Marklaus hræðsluáróður Stjórn
Ungra vinstri grænna í Reykjavík hefur
lýst yfir afdráttarlausum stuðningi og
ánægju með þá kjarasamninga sem
Reykjavíkurborg gerði nýverið við
Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar og
Eflingu, þar sem lægstu laun voru hækk-
uð. Ung vinstri græn undrast einnig það
sem þau kalla gífuryrði ýmissa erindreka
Sjálfstæðisflokksins í tengslum við þetta
mál og kalla það marklausan hræðslu-
áróður.
STJÓRNMÁL
BRENNUR Áramótabrennurnar þetta
árið verða á tólf stöðum í höfuð-
borginni. Þá hefur Fylkisbrennan
verið færð til og ný brenna verður
á Ártúnsholti. Stærstu brennurn-
ar verða við Ægisíðu, á Geirsnefi,
Fylkisbrennan, sem nú verður við
Rauðavatn, og við Gufunes hjá
gömlu öskuhaugunum. Smærri
brennur verða í Skerjafirði, í
Suðurhlíð, vestan Laugarásvegar,
við Suðurfell, hjá Leirubakka, við
Kléberg á Kjalarnesi, Úlfarsfelli
og á Ártúnsholti sunnan Ártúns-
skóla.
Kveikt verður í bálköstum
klukkan 20.30. Staðsetningar á
korti er hægt að nálgast á vef
Reykjavíkurborgar.
Aðrar brennur á höfuðborgar-
svæðinu verða í Kópavogsdal,
við Arnarnesvog í Garðabæ, á
Valhúsahæð á Seltjarnarnesi, á
Ásvöllum í Hafnarfirði, á Bökk-
um á Álftanesi og á tjaldsvæðinu
við íþróttamiðstöðina að Varmá í
Mosfellsbæ. - æþe
Áramótabrennurnar:
Tólf brennur
í Reykjavík
BRENNA UM ÁRAMÓT Brennur verða á
mörgum stöðum á höfuðborgarsvæðinu á
gamlárskvöld.
SAMFÉLAGSMÁL „Við erum nokkuð
ánægð með útkomuna, sem virð-
ist leiða í ljós að flóttamönnunum
líður vel hér á landi þó ávallt sé
erfitt að meta vellíðan,“ segir
Árni Gunnarsson, formaður inn-
flytjendaráðs. Í gær voru kynntar
niðurstöður könnunar sem gerðar
voru fyrir ráðið á reynslu og við-
horfum flóttamanna hér á landi.
Þó voru nokkrir þættir sem
fara mættu betur í þessum mála-
flokki. Til dæmis svöruðu 76
prósent aðspurðra að menntun
þeirra nýttist ekki að fullu í starfi
þeirra hér. Því taldi aðeins um
fjórðungur þeirra sig fá vinnu
við hæfi. Flestir sögðu ástæðuna
vera skort á íslenskukunnáttu eða
að réttindi þeirra giltu ekki hér á
landi. „Einnig er oft svo að flótta-
menn hafa tapað pappírum sem
staðfesta réttindi þeirra,“ segir
Árni.
Einnig kom fram í viðtölum
við flóttamennina að þeir kysu
að íslenskukennarar, sem og þeir
sem veita þeim andlegan stuðn-
ing, töluðu þeirra tungumál. Þeim
þótti einnig upplýsingar um ýmsa
mikilvæga þætti þjóðlífsins ekki
nægilega aðgengilegar.
Samtals hefur 451 flóttamað-
ur komið til landsins frá því 1956
og eru þeir frá sjö löndum. Flest-
ir þeirra komu frá Víetnam en á
þessu ári komu sjö flóttamenn frá
Kosovo og 24 frá Kólumbíu.
- jse
Innflytjendaráð kynnir könnun um viðhorf flóttamanna:
Fjórðungur fær vinnu við hæfi
FORMAÐUR INNFLYTJENDARÁÐS Árni
segir nokkuð vel hafa til tekist í málefnum
flóttamanna hér á landi.
GENGIÐ
GENGI GJALDMIÐLA 29.12.2005
Gengisvísitala krónunnar
Bandaríkjadalur 63,47 63,77
Sterlingspund 109,13 109,67
Evra 75,15 75,57
Dönsk króna 10,075 10,133
Norsk króna 9,36 9,416
Sænsk króna 7,991 8,037
Japanskt jen 0,5378 0,541
SDR 90,63 91,17
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
KAUP SALA
105,7012
ÚKRAÍNA, AP Jarðgasfyrirtæki
Úkraínu lýsti því yfir í gær að
það hefði nægar gasbirgðir til að
sjá landinu fyrir húshitunarorku
fram á vorið þótt skrúfað yrði
fyrir gasinnflutning frá Rúss-
landi. Um þriðjungur þess gass
sem Úkraínumenn nota kemur frá
Rússlandi. Þrátt fyrir að æðstu
ráðamenn grannríkjanna tveggja
hefðu síðustu sólarhringa reynt að
leggja sitt af mörkum til að finna
lausn á harðvítugri deilu um verð
á jarðgasi sem rússneska gasút-
flutnings- og einokunarfyrirtæk-
ið Gazprom selur til Úkraínu var
engin lausn í sjónmáli í gær.
Gazprom hefur hótað að skrúfa
fyrir sölu á gasi til Úkraínu um
áramótin fallist Úkraínumenn
ekki á að verðið verði rúmlega
fjórfaldað, að sögn í því skyni að
færa það að heimsmarkaðverði.
Talsmenn Gazprom segja þá ráð-
stöfun nauðsynlegan lið í að laga
rekstur fyrirtækisins að alþjóð-
legum stöðlum þar sem nú er verið
að opna fyrir erlendar fjárfest-
ingar í hlutafé þess. Ráðamenn í
Úkraínu hafa hins vegar sagt að
þessi ráðstöfun sé ekkert annað
en pólitísk refsiaðgerð vegna þess
að í „appelsínugulu byltingunni“
fyrir ári komust til valda í Kíev
menn sem ekki vilja lúta Moskvu-
valdinu. „Þessi verðhækkun er
ögrun,“ sagði Viktor Jústsjenkó
Úkraínuforseti.
Gazprom sér einnig aðildar-
ríkjum Evrópusambandsins fyrir
um það bil helmingi alls jarðgass
sem þau nota. Langstærstur hluti
þess gass er fluttur um leiðslur
sem liggja um Úkraínu og því
hefur gasdeila Úkraínumanna
og Rússa valdið áhyggjum víða í
álfunni. Talsmenn Gazprom hafa
heitið því að deilan muni ekki
hafa áhrif á afhendingu gass til
annarra Evrópulanda en tals-
maður úkraínska gasfyrirtækis-
ins Neftogaz dró þá fullyrðingu
í efa.
Vladimír Pútín Rússlandsfor-
seti bauð Úkraínumönnum í gær
þriggja milljarða evra lán, and-
virði 225 milljarða króna, til að
hjálpa landinu að „standa undir
skuldum vegna breytinganna yfir
í markaðsverð á gasi,“ samkvæmt
því sem RIA-Novosti-fréttastofan
greindi frá. Talsmenn Úkraínu-
stjórnar segja það eðlilega kröfu
að þessi verðaðlögun fari fram
í smærri skrefum á nokkrum
árum; skyndileg margföldun gas-
verðs verði algert reiðarslag fyrir
úkraínskan iðnað.
audunn@frettabladid.is
Gasdeila enn í hnút
Ekkert samkomulag var enn í sjónmáli í gær í deilu Rússa og Úkraínumanna
um verð á jarðgasi frá Rússlandi. Rússar hafa hótað að skrúfa fyrir gassölu yfir
landamærin núna um áramótin nema margfalt verð komi fyrir það.
GASBIRGÐIR FRAM Á VOR Starfsmenn úkraínska gasfyrirtækisins Neftogaz vinna við gasdælustöð í Gutsulivske, um 700 kílómetra vestur
af höfuðborginni Kíev. Talsmaður fyrirtækisins sagði gasbirgðir í landinu nægar til að tryggja húshitun fram á sumar.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
LANDHELGISGÆSLAN Vélsleðamað-
urinn sem féll í gær niður um vök
á Lyngdalsheiði á Suðurlandi er á
batavegi.
Félagar mannsins náðu honum
upp úr ísvatninu, færðu hann úr
blautum fötunum í þurr og keyrðu
með hann til móts við björgunar-
sveitarmenn. Þyrla landhelgis-
gæslunnar flutti manninn á Land-
spítala - háskólasjúkrahús.
Maðurinn var mjög kaldur og
þrekaður en var þó að mestu búinn
að jafna sig þegar lent var með
hann í Reykjavík. Engir áverk-
ar voru á honum og talið að hann
myndi losna af spítalanum seinna
um kvöldið. - dac
Vélsleðamaður lenti í vök:
Þrekaður en
nú á batavegi
ÞYRLAN TF-LÍF SÆKIR VÉLSLEÐAMANN
Maður sem féll í vök er á batavegi.