Fréttablaðið - 30.12.2005, Page 6
6 30. december 2005 FRIDAY
Afgrei›slutími
Sparisjó›sins
um áramótin
Heimabanki og hra›bankar
Sparisjó›sins eru alltaf a›gengilegir
2. janúar 2006 – loka›
3. janúar 2006 – hef›bundinn afgrei›slutími
www.spar.is
BRUNI Maður bjargaði konu úr brenn-
andi íbúð við Bergþórugötu í fyrri-
nótt. Maðurinn, sem býr á annarri
hæð hússins, segist hafa orðið var
við mikla reykjarlykt um hálfeitt-
leytið og séð mikinn reyk leggja upp
af íbúð á jarðhæð hússins. Eftir að
hafa reynt árangurslaust að ná sam-
bandi við íbúa íbúðarinnar, sem er
lítil stúdíóíbúð sem reykinn lagði
frá, fann hann sér leið inn í íbúðina,
fann konuna sem þar bjó sofandi og
kom henni út. Því næst gerði hann
íbúa í stúdíóíbúð gegnt íbúðinni sem
kviknaði í viðvart.
Slökkvilið fékk útkall klukkan
01.40 og var komið á vettvang þrem-
ur mínútum síðar, útbúið tveimur
dælubílum og tíu slökkviliðsmönn-
um. Reykkafarar leituðu af sér
allan grun í íbúðunum tveimur á
jarðhæðinni og svo hófst slökkvi-
starf sem gekk vel að sögn Gunn-
ars Björgvinssonar, stöðvarstjóra
stoðdeildar slökkviliðs höfuðborgar-
svæðisins.
Íbúðin er talin gjörónýt og ein-
hverjar skemmdir urðu af völdum
reyks og sóts í íbúðinni gegnt henni
og í sameign hússins. Orsakir brun-
ans eru ókunnar að svo stöddu, en
málið er í rannsókn lögreglu.
Konan sem bjó í íbúðinni sem
brann var flutt á slysadeild vegna
reykeitrunar og hafði hún ekki verið
útskrifuð í gær þegar Fréttablaðið
hafði samband við bráðamóttökuna
í Fossvogi. Líðan hennar er stöðug,
að sögn vakthafandi læknis. - æþe
Eldsvoði í kjallaraíbúð við Bergþórugötu í fyrrinótt:
Konu bjargað úr brennandi íbúð
ELDUR Í ÍBÚÐ VIÐ BERGÞÓRUGÖTU Litlu
munaði að illa færi þegar kviknaði í lítilli
stúdíóíbúð.
MOSKVA, AP Rússnesk þingnefnd
sem farið hefur yfir harmleikinn í
þorpinu Beslan í héraðinu Norður-
Ossetíu í Rússlandi á síðasta ári
sakar yfirvöld löggæslunnar í
bænum um gáleysi. Þá er lögregla
sögð hafa virt að vettugi fyrirmæli
um að efla öryggi í skólum.
Þriggja daga umsátri her-
skárra múslima frá Tsjetsjeníu
um skólabyggingu í Beslan í sept-
ember á síðasta ári lauk með blóð-
baði. Rúmlega þrjú hundruð létu
lífið, meira en helmingurinn börn.
Hlutur yfirvalda í ástandinu sem
myndaðist verður rannsakaður
síðar að sögn formanns nefndar-
innar, Alexanders Torshin. - ht
Harmleikurinn í Beslan:
Yfirvöld sökuð
um gáleysi
SKIPULAGSMÁL „Þessi úrskurður
merkir að gamla skipulagið er
áfram í gildi þangað til annað
verður ákveðið. Það er síðan í
höndum samvinnunefndar mið-
hálendisins hvernig hún hagar
framhaldinu,“ segir Sigríður
Anna Þórðardóttir umhverfis-
ráðherra.
Með gamla skipulaginu og
gildandi lögum um raforkuver
er gert ráð fyrir Norðlingaöldu-
veitu við friðland Þjórsárvera
í samræmi við úrskurð Jóns
Kristjánssonar, setts umhverfis-
ráherra, fyrir þremur árum.
Óskar Bergsson, formaður
samvinnunefndar miðhálend-
isins, segir að með afgreiðslu
umhverfisráðherra sé ljóst að
nefndin fari með skipulags-
valdið á hálendinu. „Það er hins
vegar sérstakt að úrskurður
Jóns Kristjánssonar frá 2003
er bundinn í sérstökum lögum
um raforkuver. Við getum ekki
breytt lögum þótt við förum með
skipulagsmál á hálendinu. Þetta
þýðir að ef við ætlum að sam-
þykkja Norðlingaölduveitu verð-
um við að gera það í samræmi
við umræddan úrskurð Jóns
Kristjánssonar,“ segir Óskar.
Í breytingartillögum sínum
hafði samvinnunefndin ekki
gengið að ýtrustu kröfum Lands-
virkjunar um stærð Norðlinga-
ölduveitu og skert vinnslugetu
hennar um því sem næst fjórð-
ung. Þess í stað hafði nefndin
lagt til orkuvinnslusvæði á jarð-
hitasvæði við Hágöngur en það
jafnast á við helmingsafköst
Kárahnjúkavirkjunar.
Þetta þóttu vera grundvallar-
breytingar sem auglýsa hefði
þurft sérstaklega. „Ég komst í
grundvallaratriðum að sömu nið-
urstöðu og Skipulagsstofnun og
samþykkti ekki þann hluta sem
fól í sér grundvallarbreyting-
ar, þannig að gamla skipulagið
gildir og þar fyrir innan er gert
ráð fyrir lóninu umdeilda,“ segir
umhverfisáðherra.
Óskar segir að nú sé ákveðnu
ferli lokið og nú sé að bíða og sjá
hvort samvinnunefndinni berist
ný erindi frá framkvæmdaað-
ila eða sveitarfélögun miðað við
niðurstöðu ráðherra. „Megin-
atriði er að enn ríkir óvissa um
framtíð Þjórsárvera,“ segir
Óskar. johannh@frettabladid.is
NORÐLINGAALDA Horft upp Þjórsá í átt að
Hofsjökli.
Áfram óvissa um Þjórsárver
Umhverfisráðherra hafnar tillögum samvinnunefndar miðhálendisins um grundvallarbreytingar á skipu-
lagi sunnan Hofsjökuls. Úrskurðurinn heimilar ekki sjálfkrafa framkvæmdir við Norðlingaölduveitu þótt
eldra skipulag sé áfram í gildi. Óvissa ríkir áfram um stærð friðlands í Þjórsárverum.
BARNAGÆSLA „Fjölmargar hafa hætt
á árinu og mér vitandi hefur ekki
tekist að fylla þau skörð sem þær
skildu eftir sig,“ segir Helga Kristín
Sigurðardóttir, sem situr í stjórn
Barnavistunar, félags dagforeldra.
Mikill skortur er á dagforeldrum á
höfuðborgarsvæðinu og í nágranna-
sveitarfélögum og er töluverður
fjöldi foreldra úrræðalaus með börn
sín.
Helga Kristín, sem er ein af 150
dagforeldrum í Reykjavík, segir
símann ekki hafa stoppað síðustu
vikur og enginn vafi leiki á að marg-
ir foreldrar verði að gera sér að góðu
að sitja heima með börn sín þar sem
víða fáist ekki inni á leikskólum og
dagforeldrar séu fáir og flestir með
fullbókað. „Það hefur orðið fækkun
enda eru launin í þessu ekkert til
að hrópa húrra fyrir. Við fengum
reyndar hækkun á niðurgreiðslum
hér fyrr í vetur sem kom sér auð-
vitað vel en sú hækkun breytti litlu.
Nokkrar þeirra sem ætluðu sér að
hætta sáu sig um hönd en margar
fóru, enda er auðvelt að finna önnur
betur launuð störf í þjóðfélaginu
þessa dagana.“
Á heimasíðu menntasviðs Reykja-
víkurborgar eru tíu dagforeldrar
skráðir á svæði 101. Fréttablaðið
hefur heimildir fyrir að starfandi
séu þar aðeins sex eða sjö og þar af
er ein að hætta á næstunni. Flestir
dagforeldrar finnast í úthverfum, í
Grafarvogi og Breiðholti.
Regína Ásvaldsdóttir, sviðsstjóri
þjónustu- og rekstrarsviðs borgar-
innar, segir vissulega skort á dag-
foreldrum en vill ekki meina að
hann sé tilfinnanlegur. „Það er með
þessi störf eins og flest önnur slík að
þegar uppgangur er í þjóðfélaginu
er oft meira í boði annars staðar og
margir kjósa að nýta sér það.“ - aöe
Í FÁ HÚS AÐ VENDA Lokun deilda á leik-
skólum og almenn fækkun dagforeldra
í Reykjavík og víðar á höfuðborgarsvæð-
inu hefur haft í för með sér að margir
foreldrar verða að gera sér að góðu að
vera heima.
Skortur á dagforeldrum á öllu höfuðborgarsvæðinu:
Sárvantar dagforeldri
í höfuðborginni
ÓSKAR BERGS-
SON, FORMAÐUR
SAMVINNUNEFNDAR
MIÐHÁLENDISINS
„Skipulagsmálin eru
hjá nefndinni en
óvissa ríkir áfram um
Þjórsárver.“
SIGRÍÐUR ANNA
ÞÓRÐARDÓTTIR
UMHVERFISRÁÐ-
HERRA „Gamla
skipulagið verður
áfram í gildi þar
til annað verður
ákveðið.“
NORÐLINGAALDA Stærð Norðlingaöldulóns
og vinnslugeta ræðst af hæsta leyfilega
vatnsborði þess yfir sjávarmáli. Tveir metrar
til eða frá geta skipt miklu máli.
Kvóti á ísbjarnaveiðar Í fyrsta sinn
hafa stjórnvöld á Grænlandi ákveðið
að setja hömlur við því hversu margir
ísbirnir verða felldir af veiðimönnum
í landinu. Heimilt verður að veiða að
hámarki 150 hvítabirni á árinu 2006, að
því er greint er frá á fréttavef græn-
lenska útvarpsins, KNR. Veiðikvótinn
var ákveðinn með tilliti til meðalfjölda
felldra dýra á tímabilinu 1993-2002.
GRÆNLAND
TULKAREM, AP Lögregla í Palestínu
leitar ákaft breskrar konu á þrítugs-
aldri og foreldrum hennar en þeim
var rænt í bænum Rafah á Gaza-
ströndinni að kvöldi miðvikudags.
Konan hefur unnið við hjálparstörf
á svæðinu að undanförnu og voru
foreldrarnir í heimsókn hjá henni.
Þá sprengdi maður sprengju
sem hann var með innanklæða
við vegartálma í bænum Tulka-
rem á Vesturbakkanum síðdegis í
gær. Ísraelskur hermaður og tveir
Palestínumenn biðu bana. Varað
hafði verið við árásinni og því var
vegartálminn settur upp. Talið
er að samtökin Heilagt stríð hafi
staðið á bak við tilræðið. ■
Ólga í Palestínu:
Breskri fjöl-
skyldu rænt
FALLBYSSUSKOT Ísraelsher hefur komið upp
hlutlausu svæði í kringum Gaza-ströndina
til að koma í veg fyrir sprengjuárásir þaðan.
Svæðið er varið með linnulausri fallbyssu-
skothríð. fRÉTTABLAÐIÐ/AP
KJÖRKASSINN
Á að auka þjónustu við eldri
borgara?
Já 91%
Nei 9%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Var ákvörðun Kjaradóms um að
breyta ekki niðurstöðu sinni rétt?
Segðu skðun þína á Vísis.is
SJÁVARÚTVEGUR Stofnað verður
nýtt félag um rekstur landvinnslu
Brims á Akureyri og Grenivík
undir heitinu Útgerðarfélag Akur-
eyringa (ÚA),
líkt og félag-
ið hét áður
en það varð
hluti af Brims-
samsteypunni.
Guðmundur
Kristjánsson,
f o r s t j ó r i
Brims, kynnti í
gær starfsfólki
félagsins á
Akureyri breyt-
ingar er lúta
að skipulagi
og uppbygg-
ingu félagsins.
Markmiðið með
breytingunum
er að skerpa
línur í rekstrin-
um og gera einingar innan Brims
sjálfstæðari. „Starfsfólki í land-
vinnslunni á Akureyri eða Greni-
vík verður ekki sagt upp og sjó-
menn félagsins þurfa heldur ekki
að óttast um sín störf. Við ætlum
að endurnýja vinnslulínuna á
Akureyri og sækja fram af krafti
með stuðningi þess góða starfs-
fólks sem starfar hjá félaginu,“
segir Guðmundur. - kk
Skipulagsbreytingar hjá Brimi:
Engum verður
sagt upp
GUÐMUNDUR
KRISTJÁNSSON
Á fundinum í gær
upplýsti forstjóri
Brims að 478 millj-
óna króna hagnaður
hefði verið af rekstri
félagsins á fyrstu níu
mánuðum ársins.
FRÉTTABLAÐIÐ/KK