Fréttablaðið - 30.12.2005, Síða 12
30. december 2005 FRIDAY12
nær og fjær
„ORÐRÉTT“
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
SELTJARNARNES LINDARBRAUT 45 Björn St. Bergmann og Sólveig H. Kristinsdóttir. Mjög einfaldar en um leið listrænar skreytingar sem
gefa húsinu fallegan heildarsvip.
REYKJAVÍK URRIÐAKVÍSL 3 Eigendur eru Gréta Alfreðsdóttir og Smári Þ.
Ingvarsson. Ljósaskreytingarnar falla vel að útlínum hússins og ljósa-
myndirnar eru skemmtilegar.
Orkuveita Reykjavíkur veitti
í gær viðurkenningar fyrir
jólaljósaskreytingar á veitu-
svæðinu sínu. Eins og sjá má
af myndunum voru skreyt-
ingarnar sem verðlaunaðar
voru af ýmsu tagi og ekki
dugði magnið eitt til að hljóta
viðurkenningu. Ljósaskreyt-
ingum fjölgar ár frá ári og
átti dómnefnd í mestu vand-
ræðum með að velja úr. Með
myndunum fylgja umsagnir
dómnefndar.
GARÐABÆR MÓAFLÖT 23 Eigendur eru Hrafnkell Helgason og Sigrún
Aspelund. Fjölmörg há og fallega vaxin grenitré setja svip sinn á eldri
hverfi Garðabæjar og þetta tré er fallega skreytt.
Ljósin gera gæfumuninn
MOSFELLSBÆR RITUHÖFÐI 9 Eigendur eru Bryngeir Jónsson og
Helga Dögg Reynisdóttir. Ljósadýrðin nýtur sín vel á þessu húsi
og skreyting smekkleg.
KÓPAVOGUR HLÍÐARHVAMMUR 7 Eigendur eru Markús Ingason og Oddný Hólmsteinsdóttir. Mikil skreytigleði er í fyrirrúmi, hús og gróður
í garðinum mikið skreytt.
AKRANES LEYNISBRAUT 27 Eigendur eru
Eygló Tómasdóttir og Þorgils Sigurþórsson.
Sérlega skemmtilegar skreytingar, sem að
stórum hluta eru heimasmíðaðar.
Nú liggur vel á mér
„Það liggur fyrir að ég ræddi
við formann Kjaradóms um
þetta mál. Hann svaraði mér
með bréfi og við ræddum
saman. Það liggur fyrir.“
HALLDÓR ÁSGRÍMSSON FOR-
SÆTISRÁÐHERRA UM STÓRA
KJARADÓMSDMÁLIÐ Í MORGUN-
BLAÐINU.
Þá er bara að skrifa í
Moggann
„Ljósmyndarinn leit ekki við
mér eða öðrum almennum
tónleikagestum í kring-
um mig því við erum bara
almúginn sem enginn hefur
áhuga á að sjá í glanstíma-
riti enda ekki söluvæn vara.“
GUÐMUNDUR GUÐBJARNASON
Í GREIN Í MORGUNBLAÐINU UM
GAGNRÝNI Á HÁTÍÐARHLJÓMLEIKA
SVEITARINNAR.
Fiskbúðin Hafrún
Skipholti 70
Sími 553 0003
Fiskbúðin Vör
Höfðabakka 1
sími 587 5070
Fiskbúðin Árbjörg
Hringbraut 119
Sími 552 5070
Nýr
Skötuselur
Laxaflök
„Mér finnst þetta vera brandari og
maður spyr sig fyrst forsætisráðherra
sendir kjaradómi bréf og óskar eftir
að hann breyti sínum dómi hvort
hann geri slíkt hið sama við hæstarétt
og héraðsdóma,“ segir Grétar Mar
Jónsson, skipstjóri, útvarpsmaður og
varaþingmaður Frjálslynda flokksins
um stöðuna í kjaradómsmálinu.
Hann segir að líklega sé orðið of seint
að kalla þing saman þar sem það þurfi
helst að gera með sólarhrings fyrirvara
og laun, með hækkunum, verði greidd
út annan janúar.
Um úrskurð kjaradóms segir Grétar
Mar: „Kjaradómur vinnur bara eftir
þeim lögum sem um dóminn gilda.
Ef þeir hefðu breytt einhverju hefðu
þeir þar með sagt að þeir hafi gert
vitleysu. Ég tek því ofan fyrir kjaradómi
að halda sig við dóm sinn. Hins vegar
þarf að breyta lögunum um dóminn
svo hann sé ekki að elta hæstu laun í
landinu og miða útreikninga sína við
það.“
SJÓNARHÓLL
KJARADÓMSMÁLIÐ
Brandari
GRÉTAR MAR JÓNSSON SKIPSTJÓRI OG
ÚTVARPSMAÐUR
„Ég er nokkuð hress, það viðrar vel hér við
Djúpið miðað við árstíma. Hér er venjulega
snjóþungt en nú er ekki snjór á grund. Það eru
helst þessi póstmál hér við Djúpið sem gera
manni gramt í geði en ég hef þó trú á því að
þetta mál verði leyst farsællega.
Þó var einnig annað mál farið að valda mér
nokkrum áhyggjum en þá hafði ég fengið
vænan lambhrút frá Bassastöðum til kynbóta.
Þegar hingað var komið virtist hrúturinn hins
vegar ekki hafa nokkra náttúru til að sinna
sínu hlutverki. Í þrjá daga spókaði hann
sig um og leit ekki við ánum. Það var
frekar súrt í broti að hafa svo álitlegan
kynbótagrip hér á bænum sem ætlaði
svo ekki að verða að neinu gagni. Þá
kvað ég þetta:
Töltir um með tregasvip/ tárum
vætist klútur,/ Að horfa á þenn-
an góða grip / sem gagnast ei sem hrútur.
En svo var það eina nóttina að hann tók við sér
og þá var mér létt.“
En jólin hafa sennilega oftar
verið fjörugri hjá Indriða en
í ár því kona hans var fyrir
sunnan vegna sjúkra-
húslegu sonar hennar og
fóstursonar Indriða. „Hún
hefur alltaf staðið fyrir
skötuveislu á Þorláks-
messu en henni
verður frestað
þangað til frúin
kemur aftur.
Ég saknaði
þess vegna
skötunnar og
frúarinnar
nokkuð þessi jól en það verða bara þeim mun
betri litlu jól þegar hún kemur aftur. Þá verður
soðin skata og svo gerðar skötustöppur en sá er
siður okkar Vestfirðinga að stappa skötuna sem
afgangs verður og
setja í form.
Svo er
hún
sett í
frysti
og tekin fram við
ýmis tækifæri og þá
borðum við þetta
kalt. Þetta er afar
hollur biti,“ segir
bóndinn og er
greinilega farinn
að hlakka til litlu
jólanna.
HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? INDRIÐI AÐALSTEINSSON FRÁ SKJALDFÖNN VIÐ ÍSAFJARÐARDJÚP
Kynbótahrúturinn virtist náttúrulaus