Fréttablaðið - 30.12.2005, Qupperneq 31
FÖSTUDAGUR 30. desember 2005 5
��������
�����������������
����������� ��
���������
�� ����������������� ���������
F
A
B
R
IK
A
N
������������������������������������������
������������������������������������������������
Jói
Fel
Jón Ingi Sigvaldason fór í
sumar til Kína. Ferðin var
farin á vegum Landsbjargar
en tilgangurinn var að kanna
aðstæður og öryggismál í flug-
eldaverksmiðjum sem Lands-
björg á viðskipti við.
Flugeldaverksmiðjurnar eru allar
í Hunan-héraðinu sem frægt er
fyrir flugelda sína. Gerð þeirra er
aðal atvinnuvegurinn í Hunan og
yfir 70 prósent af öllum flugeldum
í heiminum eru framleiddir í hér-
aðinu. Verksmiðjurnar voru ekki
eins og Jón bjóst við. „Maður hefur
heyrt ýmislegt um slæman aðbún-
að verkamanna í Kína og þess hátt-
ar,“ segir Jón, „en þetta var allt
öðruvísi en ég bjóst við. Þetta var
bara eins og hérna heima.“
Jón hafði hálfpartinn búist við
börnum í þrælavinnu en annað
kom á daginn. „Öll öryggismál voru
í góðu lagi. Verksmiðjurnar eru
byggðar upp af mörgum húsum og
þau hús þar sem unnið er með púður
eru langt frá hinum og umkringd
sérstökum varnarveggjum,“ segir
Jón. „Þetta er gert til þess að koma
í veg fyrir keðjusprengingar og
stórbruna.“ Jóni þótti einnig mikið
til verklags Kínverjanna koma.
„Allt er gert í höndunum og þaul-
skipulagt,“ segir Jón. „Fólk gerir
sér ekki grein fyrir vinnunni sem
liggur að baki einum flugeldi.“
Jón var ekki einungis að
skoða öryggismál heldur líka
að kanna nýjungar. Meðal nýj-
unga eru kökur með nýstárlegum
útfærslum. Nú hefur líka orðið sú
breyting að fjölskyldupakkarnir
eru pakkaðir inn og allar vörur
merktar í verksmiðjunum. „Þetta
sparar björgunarsveitarfólkinu
okkar ómælda vinnu en áður fyrr
voru menn að í allan desember,“
segir Jón. Nú eru björgunarsveit-
armenn lausir við þessa kvöð og
geta notið þess að pakka inn jóla-
gjöfum fyrir fjölskyldu og vini.
Jón var mjög hrifinn af Kína og
kallar það fyrirheitna landið. „Ég
veit ekki um nokkurn mann sem
fer til Kína og fellur ekki fyrir
landinu,“ segir Jón. „Það verða
allir ástfangnir af Kína.“
Flugeldar skoðaðir á
fæðingarstað púðursins
Álfasögur- og söngur í Vestur-
bæjarlaug
Í dag kl. 17.30 verður haldin
skemmtun í Vesturbæjarlaug, á
vegum sunddeildar KR. Félagar
úr sunddeildinni synda Stjörnu-
ljósasund en það hefur verið
árlegur viðburður allt frá árinu
1985 þegar þeir Axel Árnason
og Albert Jakobsson, þáverandi
þjálfarar félagsins, tóku upp þann
sið að láta alla iðkendur félagsins
mæta milli jóla og nýárs og synda
nokkrar ferðir með stjörnuljós í
hendi.
Í ár mun Kristján Hreinsson
einnig flytja álfa- og tröllaljóð í
anda árstíðarinnar og boðið verð-
ur upp á harmonikkuleik á meðan
gestir gæða sér á piparkökum og
jólaöli að lokinni sundferð.
Allir eru hjartanlega vel-
komnir.
Stjörnuljósasund
Allir flugeldar eru unnir í höndunum í verksmiðjunum sem Landsbjörg verslar við. FRÉTTABLAÐIÐ/JÓN INGI SIGVALDASON
18%
38%
A
Í
S
/
n
o
t
í
F
Yfir 111% fleiri lesendur að
atvinnublaði Fréttablaðsins!
Um 150.000 lesendur
Vantar þig starfskraft?
Samkvæmt nýjustu fjölmiðlakönnun Gallup (okt. 2005) nærðu til rúmlega
tvöfalt fleiri Íslendinga á aldrinum 20 – 40 ára með því að auglýsa í
atvinnublaði Fréttablaðsins frekar en atvinnublaði Morgunblaðsins.
Könnunin sýnir að 38% af þeim lesa Allt – atvinnu, sem fylgir frítt með
Fréttablaðinu alla sunnudaga. Aðeins 18% lesa hins vegar atvinnublað
Morgunblaðsins og því eru 111% fleiri sem sjá auglýsinguna í Fréttablaðinu.
Þegar horft er á allar staðreyndir málsins ætti að vera einfalt að sjá hvar
borgar sig að auglýsa.
Hvar birtist auglýsingin þín?
– mest lesna atvinnublaðið