Fréttablaðið - 30.12.2005, Page 44

Fréttablaðið - 30.12.2005, Page 44
 30. desember 2005 FÖSTUDAGUR32 timamot@frettabladid.is María Pálsdóttir leikkona hefur lítið getað hugað að afmælishaldi að undanförnu vegna anna í vinnunni. Hún leikur í leikritinu Eldhúsi eftir máli sem frumsýnt var á Smíðaverkstæði Þjóðleik- hússins í gærkvöldi og eins og gengur hefur verkið átt hug hennar allan. „Þetta er mjög skemmti- legt verk sem Vala Þórsdótt- ir samdi og byggir á sögum Svövu Jakobsdóttur,“ segir María. „Undirtitillinn er: hversdagslegar hryllings- sögur, og í raun eru þetta magnaðar hryllingssögur en mjög skemmtilegar.“ Ágústa Skúladóttir leikstýr- ir og ásamt Maríu leika í verkinu þau Anio Freyja Järvelä, Kjartan Guðjóns- son, Margrét Vilhjálmsdótt- ir, Unnur Ösp Stefánsdóttir og Þórunn Lárusdóttir. María kann ágætlega við sig á Smíðaverkstæðinu, sem er í kjallara Þjóðleik- hússins. „Það lekur reyndar hressilega og í vatnsveðrinu um daginn þurfti að setja fötur undir bunurnar,“ segir María og hlær. María getur ekki haldið upp á afmælið sitt í dag því annir eru nokkrar. „Í dag fer ég á fyrsta samlestur á næsta verkefni og svo er önnur sýning á Eldhúsi eftir máli í kvöld.“ Hún vonast þó til að geta hóað saman nokkrum vinum á morgun, gamlársdag. Að hennar áliti fylgja því bæði kostir og gallar að eiga afmæli milli jóla og nýárs. „Stundum er maður þreyttur eftir jólin og að undirbúa áramótin og því lítil orka til afmælis- halds en á móti er ágætt að taka allan pakkann í einu; jól, afmæli og áramót og þá þarf ekki að hafa frek- ari áhyggjur af því.“ Hún viðurkennir þó fúslega að hafa stundum verið fúl þegar hún var krakki því þá gat hún ekki boðið bekkjar- systkinum sínum í veislu því öll voru þau í jólafríi. Þó engin verði veislan í dag býst María við að fá fínar afmælisgjafir frá körlunum sínum tveimur, eins og hún kallar eigin- manninn og þriggja ára son. „Ég veit hvað strákurinn ætlar að gefa mér. Hann er sniðugur og ætlar að gefa mér það sem hann langar mest í og það er hlébarði,“ segir María og hlær og bætir við að hún muni fúslega taka hlébarða inn á heimilið. ■ MARÍA PÁLSDÓTTIR LEIKKONA Annir dagsins koma í veg fyrir afmælisveisluhöld í dag en hún vonast til að geta hóað saman nokkrum vinum á morgun. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR MARÍA PÁLSDÓTTIR LEIKKONA: ER ÞRJÁTÍU OG FIMM ÁRA Í DAG Fær hlébarða í afmælisgjöf AFMÆLI Knútur Hallsson, fyrrverandi ráðuneytisstjóri, er 82 ára. Adda Bára Sigfúsdóttir veður- fræðingur er 79 ára. Frosti Bergsson fjárfestir er 57 ára. Björn Ingimarsson, sveitarstjóri á Þórshöfn, er 51 árs. Brynjar Valdimarsson snóker- maður er 38 ára. FÆDDUST ÞENNAN DAG 39 Rómverski keisarinn Titus. 1899 Helge Ingstad, norskur landkönnuður. 1937 Gordon Banks, breskur knattspyrnumaður. 1946 Patti Smith, bandarísk söngkona. 1957 Matt Lauer, bandarískur sjónvarpsmaður. 1975 Tiger Woods, bandarískur kylfingur. JARÐARFARIR 10.30 Anna Jóna Ragnarsdóttir, Blikahöfða 5, Mosfellsbæ, verður jarðsungin frá Foss- vogskirkju. 11.00 Minningarathöfn um Droplaugu Pálsdóttur frá Grænavatni, Espigerði 10, Reykjavík, fer fram í Bústaðakirkju. Hún verður jarðsett á Skútustöðum í Mývatnssveit föstudaginn 6. janúar. 13.00 Ingi Bergmann Karlsson, Aðallandi 11, verður jarð- sunginn frá Fossvogskirkju. 13.00 Margrét Jónsdóttir, Arnarhrauni 14, Hafnarfirði, verður jarðsungin frá Grens- áskirkju. 13.00 Sr. Ólafur Oddur Jónsson, sóknarprestur í Keflavík, verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju. 14.00 Davíð Stefánsson, bóndi á Fossum í Landbroti, verður jarðsunginn frá Prestbakka- kirkju á Síðu. 14.00 Kristrún Sigfríður Guðfinnsdóttir, Gerða- völlum 1, Grindavík, verður jarðsungin frá Hólskirkju í Bolungarvík. 14.00 Margrét Stefanía Hall- grímsdóttir, Laugarvegi 24, Siglufirði, verður jarðsungin frá Siglufjarðarkirkju. 15.00 Guðrún Guðlaugsdóttir, Nóatúni 24, Reykjavík, verð- ur jarðsungin frá Digranes- kirkju. 15.00 Jóhannes Kr. Magnússon, frá Bolungarvík, verður jarð- sunginn frá Aðventkirkjunni í Reykjavík. 15.00 Snorri Bjarnason, Flúðabakka 1, Blönduósi, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju. MERKISATBURÐIR 1880 Gengið er á ís úr Reykjavík í Engey og Viðey og upp á Kjalarnes. Þessi vetur hefur verið kallaður frostaveturinn mikli. 1887 Bríet Bjarnhéðinsdóttir flytur fyrirlestur í Góðtemplarahús- inu í Reykjavík um kjör og réttindi kvenna. 1903 Sex hundruð manns láta lífið í eldi sem kemur upp í leik- húsinu Iroquois í Chicago. 1935 Níu manns farast er eldur kom upp á jólatrésskemmt- un í samkomuhúsi ung- mennafélagsins í Keflavík. 1922 Sovétríkin eru stofnuð. 1993 Ísrael og Vatíkanið hefja stjórnmálasamband. Ástkær dóttir mín, móðir okkar, systir, tengdamóðir, Bjarnfríður H. Guðjónsdóttir (Fríða) Orrahólum 7, Reykjavík, lést á Landspítalanum við Hringbraut 24. desember. Útför fer fram frá Árbæjarkirkju 05. jan. kl. 13.00. Lára Hjartardóttir Ester Gísladóttir Haukur Barkarson Eyrún Helga Jónsdóttir Sigurður Sigurðsson Elva Rut Jónsdóttir Erna Ósk Guðjónsdóttir Þórdís M. Guðjónsdóttir Margeir Elentínusson Lára Samira Benjnouh Yann Le Pollotek Þórdís Nadía Óskarsdóttir og barnabörn. Ástkær faðir okkar og tengdafaðir, Pétur Sigurðsson frá Grundarfirði, lést þriðjudaginn 27. desember á Hrafnistu í Hafnarfirði. Jarðarförin verður auglýst síðar. Fyrir hönd afkomenda, Ingibjörg Pétursdóttir Magnús Karl Pétursson Halldóra Karlsdóttir Kristján Pétursson Erla Magnúsdóttir Sigrún Pétursdóttir Björn Ólafsson Sigurður Kr. Pétursson Helga Magnúsdóttir Sigþór Pétursson Colleen Mary Pétursson Ástkær faðir okkar, sonur, tengdafaðir, afi og bróðir, Guðbjartur Ingi Bjarnason Feigsdal, Ketildölum, Arnarfirði, lést að kvöldi jóladags. Fyrir hönd aðstandenda, Víðir Hólm Guðbjartsson Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, Jónas Tryggvi Gunnarsson frá Vík í Mýrdal, Kristnibraut 25, Reykjavík verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju, þriðjudaginn 3. janúar kl. 15.00. Helga Árnadóttir Ása J. Jónasdóttir Ove Hansen Kristín Jónasdóttir Ómar Hauksson Guðný Jónasdóttir Árni S. Sigurjónsson Margrét Jónasdóttir Ólafur Baldursson Ólöf Helga Jónasdóttir Valtýr Óskarsson Árni Jónasson barnabörn og langafabörn. TRYGVE LIE (1896-1968) LÉST ÞENNAN DAG. „Alvöru stjórnarerindreki er sá sem getur skorið nágranna sinn á háls án þess að hann taki eftir því.“ Trygve Lie var fyrsti aðalritari Sameinuðu þjóðanna. Á þessum degi árið 1958 áttu sér stað einhverjir blóðugustu bardagarnir í uppreisn kúbverskra skæruliða, undir forystu Fidels Castro, gegn ríkis- stjórn landsins. Bardagarnir höfðu staðið í tvo daga og um 3.000 manns höfðu særst eða látið lífið af völdum þeirra. Í bænum Santa Clara, í héraðinu Las Villas, börð- ust skæruliðar gegn hermönnum ríkisstjórnarinnar í hverfum bæjarins. Það var uppreisnarmönnum mjög mikilvægt að ná bænum á sitt vald enda stefndu þeir á að komast til höfuðborgarinnar sem var í næsta nágrenni. Her ríkisstjórnarinnar var mun fjölmenn- ari en liðsafli uppreisnarmanna en hins vegar stóð almenningur á bak við uppreisnarmennina og það átti sinn þátt í að þeir höfðu unnið marga bardaga gegn her ríkisstjórnarinnar. Aðeins nokkrum vikum fyrr voru uppreisnarmennirnir einangraðir í fjalla- héraði langt frá höfuðborginni en nú voru þeir stutt undan og komnir í góða aðstöðu á leið sinni þang- að. Auk þess að berjast í návígi við uppreisnarmenn- ina beitti herinn skriðdrek- um gegn þeim og orrustu- þotur hersins gerðu árás á þá. Einn af leiðtogum uppreisnarmannanna, læknirinn Ernesto „Che“ Gue- vara, óskaði eftir vopnahléi svo hægt væri að fjar- lægja lík fallinna af götum bæjarins. Því var hafnað af ríkisstjórninni og forseti landsins, Fulgencio Batista, ákvað í framhaldi að taka yfir stjórn hersins. Uppreisnarmenn náðu fljótlega yfirhöndinni í bardögunum og tveimur dögum síðar flúði Batista frá Kúbu og lifði það sem eftir var ævi sinnar í útlegð í Portúgal og á Spáni. Fidel Castro tók við völdum á Kúbu nokkru síðar og er enn við völd í dag. ÞETTA GERÐIST> 30. DESEMBER 1958 Blóðugir bardagar á Kúbu ANDLÁT Bjarnfríður (Fríða) H. Guðjóns- dóttir, Orrahólum 7, Reykjavík, lést á Landspítalanum við Hring- braut 24. desember. Elísabet Jóhanna Sigurbjörns- dóttir (Hanna Beta), Gnoðarvogi 20, Reykjavík, lést á Grensásdeild Landspítalans þriðjudaginn 27. desember. Friðfinnur Pálsson, Þríhyrningi, Hörgárdal, andaðist á Dvalar- heimilinu Hlíð þriðjudaginn 27. desember. Heiðar Þórnýr Þórðarson lést á Landspítalanum við Hringbraut mánudaginn 26. desember. María Jensen, Samtúni 28, Reykjavík, lést á Landspítalan- um í Fossvogi þriðjudaginn 27. desember. Pétur Sigurðsson frá Grundar- firði lést þriðjudaginn 27. desem- ber á Hrafnistu í Hafnarfirði. Tilkynningar um merkisatburði, stórafmæli, andlát og jarðarfarir í smáletursdálkinn hér að ofan má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 550 5000.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.