Fréttablaðið - 30.12.2005, Qupperneq 48
30. desember 2005 FÖSTUDAGUR36
menning@frettabladid.is
!
Stóra svið
SALKA VALKA
Su 8/1 kl. 20 Su 22/1 kl. 20
Fi 26/1 kl. 20
WOYZECK
Í kvöld kl. 21 Lau 7/1 kl. 20
Su 15/1 kl. 20 Lau 21/1 kl. 20
KALLI Á ÞAKINU
Su 8/1 kl. 14 Su 15/1 kl. 14
Lau 21/1 kl. 14 Su 22/1 kl. 14
CARMEN
Fi 12/1 kl. 20 FORS. miðav. 2.000- kr
Fö 13/1 kl. 20 FORS. miðav. 2.000- kr
Lau 14/1 kl. 20 FRUMSÝNING UPPSELT
Fi 19/1 kl. 20 Gul kort
Fö 20/1 kl. 20 Rauð kort
Fö 27/1 kl. 20 Græn Kort
Lau 28/1 kl. 20 Blá kort
Nýja svið/Litla svið
MANNTAFL
Su 8/1 kl. 20 Lau 14/1 kl. 20
SÍÐUSTU SÝNINGAR!
ALVEG BRILLJANT SKILNAÐUR
Í kvöld kl. 20 AUKASÝNING UPPSELT
BELGÍSKA KONGÓ
Lau 7/1 kl. 20 Su 15/1 kl. 20
Fö 20/1 kl. 20 Lau 28/1 kl. 20
GLÆPUR GEGN DISKÓINU
EFTIR GARY OWEN.
Í SAMSTARFI VIÐ STEYPIBAÐSFÉLAGIÐ STÚT
Fi 12/1 kl. 20 FRUMS. UPPS. Fö 13/1 kl. 20
Lau 21/1 kl. 20 Su 22/1 kl. 20
Naglinn
e. Jón Gnarr í samstarfi við Leikfélagið Regínu
Fö 20/1 kl. 20 FRUMSÝNING UPPSELT
Lau 21 /1 kl. 20 Fö 27/1 kl. 20
Lau 28/1 kl. 20
���������������������������������� ���������� ��������������������������� �����������
�������������������������������������������������������������
������������������������������������������
�������������������������������
���������������������������������������������������������������������������������������������
��������� ���������������������������������������������������������������
����������������������������� �������������������������������������������������
��� ��������� ������������������� ������������������������������������ ���������������
������������ �����������������������������������������
�
������������ �������������� �� �����������
Kl. 20.00
Aton frumflytur tónverk eftir þau
Önnu S. Þorvaldsdóttur, Guðmund
Stein Gunnarsson, Ólaf Björn Ólafs-
son og Charles Ross á áramótatón-
leikum sínum í Iðnó.
Áramótauppgjör menningarsmiðjunnar Populus
tremula á Akureyri verður að þessu sinni helg-
að skáldinu Magnúsi Þór Jónssyni, eða Megasi.
Fjallað verður um skáldið og lesið úr verkum þess,
gripið stuttlega niður í umfjöllun fræðimanna um
skáldskap Megasar og hvernig hann nálgast íslenska
menningararfinn í textum sínum.
Af nógu er að taka, því Megas hefur sent frá sér
þvílík ógrynni af textum að endast myndi í margra
kvölda umfjöllun.
Þrátt fyrir að kastljósinu verði einkum beint að
skáldinu Megasi verður tónlistin ekki langt undan.
Hljómsveit hússins ætlar að flytja nokkur af lögum
Megasar, en sú hljómsveit er skipuð þeim Kristjáni
Pétri Sigurðssyni, Arnari Tryggvasyni, Bárði Heiðari
Sigurðssyni, Atla Hafþórssyni og Guðmundi Agli
Erlendssyni. Gestaspilari með hljómsveitinni verður
Orri Einarsson trommuleikari.
Populus tremula er til húsa í kjallara Listasafns-
ins á Akureyri, í Listagilinu svonefnda þar sem hinar
ýmsu listgreinar hafa hreiðrað um sig.
Unnendur Megasar ættu ekki að láta sig vanta
á áramótauppgjörið sem hefst klukkan 22 í kvöld.
Enginn aðgangseyrir verður innheimtur og gestum er
að venju heimilt að hafa með sér malpoka.
Kveðskapur Megasar
Barokktónlist frá Englandi
verður í hávegum höfð á
tónleikum í Fríkirkjunni í
kvöld. Nýstofnaður tónlist-
arhópur, Reykjavík Barokk,
þreytir þar frumraun sína.
„Þetta verður skemmtileg blanda
af tónlist aðalsins og almúgans
í Bretlandi. Margt af þessu eru
hálfgerðir poppslagarar þess
tíma, bæði dansar og ballöður,“
segir Halla Steinunn Stefánsdótt-
ir barokkfiðluleikari, sem kemur
fram ásamt félögum sínum í
Reykjavík Barokk á tónleikum í
Fríkirkjunni í kvöld.
Auk Höllu Steinunnar, sem
leikur á barokkfiðlu, eru í hópnum
þau Arngeir H. Hauksson lútu-
leikari, Rebecca Austen-Brown
blokkflautuleikari og Eyjólfur
Eyjólfsson söngvari.
Eyjólfur hefur oft sungið bar-
okktónlist, nú síðast sem ein-
söngvari í Jólaóratóríu Bachs í
Hallgrímskirkju, og hljóðfæra-
leikararnir þrír hafa allir sérhæft
sig í flutningi gamallar tónlistar
á upprunaleg hljóðfæri.
Öll notast þau við sams konar
hljóðfæri og notuð voru á barokk-
tímanum, sem eru á ýmsan hátt
frábrugðin því sem nú tíðkast.
„Hvað fiðluna snertir þá er til
dæmis boginn öðruvísi og það
eru færri hár. Það er líka algengt
að maður stilli hljóðfærið aðeins
lægra þannig að tónninn verð-
ur afslappaðri. Svo eru notaðir
girnisstrengir í hljóðfærið.“
Halla Steinunn segir að allt
þetta eigi mjög vel við tónlist bar-
okktímans, því auðveldara verð-
ur að ná fram þeim léttleika sem
hæfir tónlistinni svo vel.
Hún segir að hljóðfæraleikn-
um fylgi sömuleiðis heilmikið
grúsk. Menn þurfi að setja sig
inn í samfélagshætti fyrri tíma
og kynna sér ýmsar fræðigreinar
sem tengist tónlistinni og tíðar-
andanum.
„Maður er til dæmis að setja
sig inn skreytilist og nótnaskrift
þessa tíma. Einnig er gott að vera
góður í tungumálum því hljóð-
færaleikarinn þarf oft að herma
eftir texta söngvarans. Þá þarf
að vita hvar áherslurnar lenda í
texta söngvarans og geta spilað
það á hljóðfærið. Maður getur
sagt að þetta tvinni saman áhuga-
mál sem eru tónlist og sagnfræði
og tungumál, þetta er alveg full-
komin blanda af þessu þrennu.“
Yfirskrift tónleikanna í Frí-
kirkjunni er „Puddings and Pies“,
sem vísar til þeirrar bresku jóla-
hefðar að bjóða upp á jólakökur
og jólabökur við öll mannamót
um hátíðarnar. Jafnframt er þessi
yfirskrift sótt í verk sem naut
mikilla vinsælda í Lundúnum á
sínum tíma.
Á tónleikunum verður flutt
barokktónlist frá Englandi sem
veitir góða innsýn í hið blóm-
lega tónlistarlíf Lundúnaborgar
á sautjándu öld. Auk vinsælla
alþýðuslagara frá þessum tíma
verða flutt söngverk eftir nokkra
af risum breskrar barokktónlist-
ar, þá John Blow, Henry Purcell
og J.H. Pepusch. Einnig hljómar
á tónleikunum hljóðfæratónlist
eftir Matthew Locke og Nicola
Matteis.
Popptónlist frá 17. öld
ARNGEIR H. HAUKSSON LÚTULEIKARI, REBECCA AUSTEN-BROWN BLOKKFLAUTULEIKARI, HALLA STEINUNN STEFÁNSDÓTTIR BAROKKFIÐLU-
LEIKARI OG EYJÓLFUR EYJÓLFSSON SÖNGVARI Þau ætla að gefa tónleikagestum í Fríkirkjunni innsýn í hið blómlega tónlistarlíf Lundúna-
borgar á sautjándu öld.
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
DESEMBER
27 28 29 30 31 1 2
Föstudagur
■ ■ TÓNLEIKAR
20.00 Tónlistarhópurinn Reykjavík
Barokk flytur barokktónlist frá
Englandi í Fríkirkjunni í Reykjavík.
20.00 Jóla- og nýárstónleikar
Atóns verða í Iðnó.
20.30 Kór Menntaskólans í
Reykjavík syngur jólasöngva í
Kristskirkju við Landakot. Stjórnandi
kórsins er Marteinn H. Friðriksson.
Einnig munu eldri kórfélagar syngja
nokkur lög og er Aron Axel Cortes
stjórnandi þeirra.
Karl Henry, Pétur Ben, Shadow
Parade, The Telepathetics og
hljómsveitin Ég á Gauknum.
■ ■ SKEMMTANIR
Alíslenskt klúbbakvöld verður á
Nasa. Fram koma Dj Danni, Funk
Harmony Park, Dr Mr & Mr
Handsome, Toybox og Grétar G.
■ ■ SAMKOMUR
17.00 Hin árlega Jólatrés-
skemmtun SÁÁ verður haldin að
Stangarhyl 4, í nýju húsnæði eldri
borgara. Hrókur alls fagnaðar sér
um tónlistina af sinni alkunnu snilld.
Kaffi og kökur í boði, allir krakkar fá
nammi og svo kemur jólasveinninn í
heimsókn.
22.00 Áramótauppgjör Populus
tremula á Akureyri er helgað skáld-
inu Megasi.
> Ekki missa af ...
... Jólaævintýri Hugleiks, sem
sýnt verður í Tjarnarbíói í dag í
næstsíðasta sinn.
... Manntafli, einleik Þórs
Tulinius í Borgarleikhúsinu, sem
saminn er upp úr sögu Stefans
Zweig.
... öðruvísi Vínartónleikum sem
verða í Íslensku óperunni 8.
janúar næstkomandi. Þar flytur
kammersveitin Ísafold tónlist
frá Vínarborg ásamt Ágúst
Ólafssyni baritónsöngvara.
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI