Fréttablaðið - 30.12.2005, Qupperneq 50
30. desember 2005 FÖSTUDAGUR38
tonlist@frettabladid.is
> plata vikunnar
ISOLÉE: WEAREMONSTERS
„Önnur breiðskífa Isolée er þægi-
legt ferðalag niður rafstrauminn.
Naumhyggjulegt ambient teknó
sem framkallar myndir í huga
hlustandans.“ BÖS
> popptextinn
„Takið eftir næsta
lagi sem hljómar
Það gæti verið
flott
Takið eftir næsta
lagi sem hljómar
Það gæti verið
gott“
HIÐ SKEMMTILEGA TAKIÐ EFTIR NÆSTA
LAGI!! AF ANNARRI PLÖTU ÉG, PLATA
ÁRSINS, SEM ER EINMITT TILNEFND SEM
PLATA ÁRSINS Á ÍSLENSKU TÓNLISTAR-
VERÐLAUNUNUM.
> Í SPILARANUM HJÁ RITSTJÓRNINNI
Ég: Plata ársins, Garðar Thor Cortes: Cortes, Ýmsir:
Hjálpum þeim, Karen Dalton: It´s So Hard to Tell Who´s
Going to Love You the Best og Sufjan Stevens: Illinois.
Hljómsveitin Pixies, sem hélt tvenna tónleika í
Kaplakrika á síðasta ári, er byrjuð að undirbúa
nýja hljóðversplötu. Síðasta plata sveitarinnar,
Trompe Le Monde, kom út árið 1993 og því eru
þetta afar góð tíðindi fyrir aðdáendur sveitarinn-
ar.
Tvö ár eru liðin síðan Pixies kom saman á
nýjan leik en fram að því hafði endurkoma sveit-
arinnar verið talin óhugsandi. Tónleikaferðalag
hennar um heiminn hefur gengið vonum fram-
ar og því kemur ekki á óvart að ný plata sé í
vændum.
Frank Black, forsprakki Pixies, staðfesti að
undirbúningur að plötunni væri hafinn í nýlegu
viðtali við Boston Globe. „Þetta er rétt en ég
verð að passa mig á því að semja góð lög. Við í
Pixies hugsum núna: „Hvað ef þessi plata verð-
ur ekki eins góð og þær gömlu?“ sagði Black.
Hinn 3. janúar er síðan væntanleg tvöföld
tónleikaplata með Pixies sem nefnist Hey - Live
Pixies. Var hún tekin upp á tónleikaferðalagi
sveitarinnar um Bretland og Bandaríkin og hefur
að geyma 28 slagara á borð við Here Comes
Your Man, Debaser, Monkey Gone to Heaven,
Gigantic og U-Mass.
Platan, sem er gefin út af Pixies, verður ein-
göngu seld á netinu og nú þegar geta áskrifend-
ur eMusic keypt lögin á undan öllum öðrum.
Tvær Pixies-plötur á leiðinni
Hljómsveitin Without
Gravity, sem áður hét
Tenderfoot, er hætt störf-
um. Upp úr rústum henn-
ar hefur verið stofnaður
dúettinn Bluebird með þá
Karl Henry Hákonarson
og Kristján Má Ólafsson
innanborðs.
Þeir Karl Henry og Kristján Már
voru áður saman í hljómsveitinni
Útópía. „Svona er þetta bara, leiðir
skilja,“ segir Karl Henry, fyrrver-
andi söngvari Without Gravity, um
endalok sveitarinnar. „Ég held ég
fari ekkert nánar í það. Menn vinna
misjafnlega saman.“
Undir nafninu Tenderfoot gaf
sveitin út eina plötu, Without
Gravity, á síðasta ári. Fékk hún
mjög góðar viðtökur og héldu
margir að hljómsveitin ætti eftir
að gera stóra hluti erlendis. Gerð-
ur var útgáfusamningur við breska
fyrirtækið One Little Indian og var
platan gefin út í Evrópu, Japan og
Bandaríkjunum við ágætar undir-
tektir, sér í lagi í Bandaríkjunum.
Það telst varla skrýtið enda hafði
tónlist sveitarinnar yfir sér róleg-
an og sveitalegan blæ, oftast nær
órafmagnaðan, þar sem angurvær
söngur Karls sveif yfir vötnunum.
Ekkert varð þó úr því ævintýri og
aðeins ein plata varð uppskeran
eftir þriggja ára samstarf.
Dúettinn Bluebird hefur þegar
spilað á frumsýningu heimildar-
myndarinnar Gargandi snilld í
London sem gekk frábærlega að
sögn Karls auk þess sem þeir félag-
ar eru á leið til Bandaríkjanna í
næstu viku. Útvarpsstöðin KFCW
í Los Angeles mun taka upp tón-
leika auk þess sem sveitin spilar
hjá WFMU í New Jersey. Einnig eru
nokkrir tónleikar fyrirhugaðir þar í
landi.
Fyrstu tónleikar Bluebird voru
haldnir á Búðum í byrjum desem-
ber en tónleikar dúettsins á Gauki á
Stöng í kvöld, þar sem fleiri sveitir
koma fram, eru þeir fyrstu á höfuð-
borgarsvæðinu. „Það er gaman að
takast á við eitthvað nýtt. Annars
er ég ekkert að taka neina u-beygju
í músíkinni. Ég er áfram í rólegum
kassagítarleik, það er minn heima-
völlur,“ segir Karl um nýju hljóm-
sveitina.
Karl spilaði í gærkvöldi ásamt
fleirum á tónleikum til minningar
um bandaríska tónlistarmanninn
Elliott Smith. „Ég hef hlustað á
hann lengi og orðið fyrir miklum
áhrifum frá honum. Það er mikið af
brilljant stöffi sem hann gerði en ég
fíla betur það sem hann gerði fyrr á
ferlinum,“ segir hann.
Bluebird hefur gert samning við
One Little Indian og með honum
segist Karl vera að halda þeim
kyndli á lofti sem Without Gravity
skildi eftir sig. Fyrsta plata Blue-
bird er væntanleg um mitt næsta ár
en upptökur hefjast á næstunni.
freyr@frettabladid.is
Bluebird stofnuð úr
rústum Without Gravity
Karl Henry Hákonarson, til hægri, og Kristján Már Ólafsson skipa sveitina Bluebird.
FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
Ladytron: Witching Hour
„Þriðja breiðskífa Ladytron er bæði tap og
sigur. Hún er ekki nægilega fjölbreytt til þess
að halda samningi þeirra við útgáfurisann
Island, en nægilega metnaðarfull til þess að
liðsmenn haldi höfði upp úr vatni.“
BÖS
Leikhópurinn Á senunni:
Kabarett
„Þórunn Lárusdóttir stendur upp úr á plötu
sem er ágætis minjagripur um sýninguna en
hefur takmarkað gildi ein og sér.“
VG
Mugison: A Little Trip
„Smekkleg plata sem stendur vel fyrir sínu
ein og sér, og líklega besta kvikmyndatónlist
Íslendings til þessa.“
VG
Ýmsir: Úr vísnabók heimsins
„Hér er á ferðinni algjör perla sem heillar
hvern mann upp úr skónum. Platan rennur
ljúflega í gegn og erfitt er að brosa ekki út í
annað við að heyra barnslegar raddir syngja
fallegar vísurnar.“
BG
KK og Ellen: Jólin eru að
koma
„Falleg jólaplata sem jafnvel þeir sem þjást af
jólaóþoli geta sætt sig við.“
VG
Sign: Thank God For Silence
„A Little Bit er langbesta lag þessarar þriðju
plötu Sign. Hin lögin eru flest hver lítt eftir-
minnileg og bara alls ekki nógu grípandi.“
FB
Sveppi, Nylon, Jónsi o.fl.:
Jólaskraut
„Jólaskrautið á örugglega eftir að koma fólki í
réttu stemninguna mitt í allri jólaösinni. Friðrik
Ómar stendur upp úr en fast á hæla hans
kemur Heiða. Sveppi hefði mátt missa sín.“
FB
Svala: Bird of Freedom
„Það er bjart yfir þessari nýjustu plötu Svölu.
Um helmingur plötunnar er í fínu lagi og þar
sannast að Svala er hæfileikaríkur tónlistar-
maður.“
FB
Hjálmar: Hjálmar
„Allir Hjálmarnir komast vel frá sínu á þessari
samnefndri plötu sveitarinnar en stjarna
Sigurðar Guðmundssonar skín þó skærast. Frá-
bær plata sem allir ættu að eiga í safni sínu.“
BG
Freyr Bjarnason, Birgir Örn Steinarsson
Borghildur Gunnarsdóttir, Valur Gunnarsson.
SMS
UM NÝJUSTU PLÖTURNAR
Rokksveitin Sonic Youth, sem
hélt eftirminnilega tónleika hér á
landi fyrr á árinu, er að undirbúa
nýja plötu.
Upptökur eru hafnar í Sear
Sound-hljóðverinu þar sem plöt-
urnar Sister og Experimental Jet
Set, Trash and No Star voru tekn-
ar upp ásamt plötu forsprakkans
Thurston Moore, Psychic Hearts.
Á meðal laga sem hafa verið
tekin upp eru Pink Steam, Do You
Believe in Rapture?, Or og Sleep-
in’ Around. Platan er væntanleg
einhvern tímann á næsta ári en
síðasta plata Sonic Youth, Sonic
Nurse, kom út á síðasta ári.
Ný plata á
næsta ári
SONIC YOUTH Rokksveitin tilraunakennda
gefur út nýja plötu á næsta ári.
Mike Skinner, eða The Streets eins
og hann kallar sig, vill að rappar-
inn Snoop Dogg og Gwen Stefani
syngi á sinni þriðju plötu.
Platan nefnist The Hardest
Way to Make an Easy Living og
er væntanleg á næsta ári. Skinner
telur að þátttaka þeirra á plötunni
myndi hjálpa sér að slá í gegn í
Bandaríkjunum. „Það gæti verið
erfitt að fá þau fyrir þessa plötu
en ég næ þeim þá bara fyrir næstu
plötu á eftir,“ sagði hann. ■
Vill fá Snoop
og Gwen
THE STREETS Rapparinn Mike Skinner vill
að Snoop Dogg og Gwen Stefani syngi á
sinni nýjustu plötu.
af flví besta!
Brot
Dunilin gerir flér kleift a› töfra fram glæsilega servíettuskreytingu
í takt vi› tilefni›. Fjölbreytt litaúrval au›veldar flér a› ná fram
fleirri stemningu sem flú leitar eftir.
Í verslunum liggur frammi bæklingur frá
Duni flar sem finna má fjölmargar hugmyndir
a› servíettubrotum og bor›skreytingum.
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
/
N
M
18
8
3
5