Fréttablaðið - 30.12.2005, Page 58

Fréttablaðið - 30.12.2005, Page 58
46 30. december 2005 FRIDAY sport@frettabladid.is HVAÐ? HVENÆR? HVAR? DESEMBER 27 28 29 30 31 1 2 Föstudagur ■ ■ LEIKIR  19.15 Njarðvík og Keflavíkmætast í Iceland Express-deild karla í körfu- bolta í Njarðvík. ■ ■ SJÓNVARP  18.00 Íþróttaspjallið á Sýn.  18.12 Sportið á Sýn. Farið verður yfir íþróttafréttir dagsins.  18.30 Gilette-sportpakkinn á Sýn.  19.00 Forsetabikarinn 2005 á Sýn. Bandaríska golflandsliðið mætir stjörnuliði alþjóðlegra kylfinga. Áður á dagskrá í september.  20.00 Motorworld á Sýn.  20.30 NFL-tilþrif á Sýn. Tippaðu á næsta sölustað eða á 1x2.is fyrir kl. 14 á laugardag – aðeins 10 krónur röðin! H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA KÖRFUBOLTI „Ég sé ekki eftir því að hafa komið til Njarðvíkur. Liðinu hefur vegnað vel og ég er búinn að vinna minn fyrsta titil á Íslandi, sem var frábært. Ég held að við séum með lið sem geti verið í baráttunni um alla þá titla sem eru eftir,“ segir Jeb Ivey, sem kom til Njarðvíkur fyrir tímabilið í ár eftir að hafa spilað frábærlega með Fjölni í fyrra. Fjölnir hafði hug á því að halda Ivey í sínum röðum í ár en eftir að reglum um fjölda Bandaríkja- manna í liðum hér á landi var breytt á árinu var ljóst að Ivey myndi þurfa að skipta um lið. „Ég bjóst alltaf við því að Fjölnir myndi fá stóran Kana en ekki bak- vörð eins og mig,“ segir Ivey. Forráðamenn Njarðvíkur voru ekki lengi að bregðast við og segir Ivey að skipti hans til Njarðvíkur hafi borið fljótt að. „Þeir hringdu í mig og spurðu mig hvort ég væri til í að spila með þeim á næsta tímabili. Og ég sagði já. Það var svo einfalt.“ Einar Árni Jóhannsson, þjálf- ari Njarðvíkur, segist lengi hafa rennt hýru auga til Ivey. „Hann var þessi leikmaður sem okkur vantaði síðasta vetur, leikmaður sem getur tekið af skarið þegar á þarf að halda. Hann er mikill fengur fyrir liðið,“ segir Einar. Leiktíðin í ár er sú þriðja í röð sem Ivey spilar hér á landi. Hann kom fyrst til landsins árið 2003 og spilaði framan af með KFÍ á Ísa- firði áður en hann þurfti að snúa heim til Bandaríkjanna í janúar vegna sýkingar í maga þar hann gekkst undir aðgerð og langa endurhæfingu í kjölfarið. Hann sneri aftur til Íslands og var aðal- maðurinn í spútnikliði Fjölnis í fyrra áður en hann hélt til Njarð- víkur í ár. Spurður hvar honum líki best að vera, Ísafirði, Reykja- vík eða Njarðvík, segist hann ekki geta gert upp á milli tveggja síðastnefndu bæjanna. „Ég verð að setja Ísafjörð í síðasta sætið í þessum flokki,“ segir Ivey og hlær. „Bærinn er náttúrlega mjög einangraður en ég átti frábærar stundir þar og sé alls ekki eftir þeim tíma. En hér í Njarðvík líður mér nánast eins og sé ennþá í Reykjavík því það er ekki svo langt á milli, þrátt fyrir að margir Íslendingar haldi öðru fram,“ segir Ivey og brosir. Ivey býr í innan við mínútu göngufjarlægð frá íþróttahús- inu í Njarðvík og þar eyðir hann stórum hluta dagsins, ýmist við að æfa sjálfur eða að þjálfa yngri leikmenn Njarðvíkur. „Ég þjálfa fjórtán og sextán ára strákana hjá Njarðvík og hef mjög gaman að því,“ segir Ivey, sem þjálfaði einnig yngri flokka hjá KFÍ og Fjölni þegar hann var þar. Njarðvík mætir Keflavík í topp- slag Iceland Express-deildarinnar í Ljónagryfjunni í kvöld í hatrömm- um grannaslag eins og þeir gerast bestir. Ivey kveðst hlakka mikið til leiksins og býst við því að stemn- ingin verði gríðarleg. „Ég er hóflega bjartsýnn en ef við spilum eins og við eigum að okkur vinnum við. Keflavík er mjög gott lið og eitt af þremur liðum fyrir utan okkur sem ég tel að verði í baráttu um titilinn,“ segir Ivey. vignir@frettabladid.is Njarðvík getur farið alla leið í ár Jeb Ivey hefur spilað afar vel með Njarðvíkingum í Iceland Express-deildinni í ár, þriðja liðinu sem hann spilar með á Íslandi á þremur árum. Hann telur sig nú vera í liði sem geti orðið Íslandsmeistari. FYRSTI TITILLINN Jeb Ivey sést hér á góðri stund með samherjum sínum Agli Jónassyni og Ragnari Ragnarssyni eftir að Njarðvík hafði unnið Hópbílabikarinn í ár. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Emil Hallfreðsson, hafnfirski knatt- spyrnumaðurinn sem verið hefur í herbúðum Tottenham síðasta árið, hefur verið lánaður til sænska úrvalsdeildar- liðsins Malmö til eins árs. Emil heldur til Svíþjóðar strax eftir áramót og fer í æfingaferð með liðinu til Suður-Afríku 7. janúar næstkomandi. Útsendarar frá Malmö sáu til Emils í U-21 árs landsleik Svía og Íslendinga ytra í október þar sem íslenska liðið spilaði frábærlega og sigraði 4-1. „Mér gekk mjög vel í þeim leik og þeir komu síðan og fylgdust með mér í leik með varaliðinu hjá Tottenham. Eftir það fóru þeir að ræða við Totten- ham um að fá mig lánaðan,“ sagði Emil við Fréttablaðið í gær. Emil kveðst mjög sáttur við að vera lánaður til Malmö og segir það nauðsyn- legt skref til að ná markmiðum sínum. „Ég verð að gera þetta til að halda áfram að bæta mig sem fótboltamaður og ná sæti í A-landsliðinu. Ég var búinn að tala við forráðamenn Tottenham um að vera lánaður og þeir tóku strax mjög vel í það. Með þessu skrefi fæ ég meiri reynslu og spila alvöru leiki með aðal- liði,“ segir Emil, sem hing- að til hefur aðeins fengið að spreyta sig með vara- liði Tottenham. Emil kveðst lítið vita um sænska boltann, annað en það sem sænskur vinur hans og samherji hjá Tottenham, Erik Edman, hafi sagt honum. „Hann segir mér að Malmö sé stærsta félagið í Svíþjóð og mælti sér- staklega með því að færi þangað,“ s e g i r Emil, en Malmö hafnaði í 5. sæti sænsku úrvals- deildarinnar á síðustu leiktíð, 12 stigum á eftir meisturum Djurgården. „Það var að mér skilst algjör skandall og liðið ætlar sér stóra hluti á næstu leik- tíð. En mér líst mjög vel á þetta og ég hlakka til að fá að spila alvöru leiki.“ EMIL HALLFREÐSSON: LÁNAÐUR FRÁ TOTTENHAM TIL MALMÖ Í EITT ÁR Nauðsynlegt að spila alvöru leiki Tap í Asturias Íslenska kvennalandsliðið í hand- knattleik tapaði fyrir Asturias, 23-22, í kynningarleik á Spáni á miðvikudag. Guðrún Drífa var atkvæðamest í íslenska landsliðinu með tíu mörk. > Ótrúlegt met Frank Lampard lék ekki með Chelsea gegn Manchester City á miðvikudag en það var fyrsti leikurinn sem hann spilar ekki með Chelsea í deildinni síðan 13. október 2001. Lamp- ard var búinn að leika 164 deildarleiki í röð fyrir Chelsea. David James átti gamla metið sem var 159 leikir og hann stefnir hraðbyri á að endurheimta það enda búinn að spila 74 leiki í röð. KÖRFUBOLTI KR sýndi gríðarlegan karakter þegar liðið lagði Grinda- vík á heimavelli í gær, 82-81. Grindavíkurliðið var borið uppi af tveim mönnum - Johnson og Páli Axeli - en liðsheildin var sterkari hjá heimamönnum og þeir voru alltaf inni í leiknum þótt Bandaríkjamaðurinn Westley væri með í fyrri hálfleik og KR hefði þar að auki hvað eftir annað gefið Grindvíkingum boltann og auðveldar körfur. Hinn sautján ára gamli Brynj- ar Þór Björnsson sneri leiknum fyrir KR undir lokin með frábær- um körfum og skoraði stigið sem að lokum skildi liðin að. Fannar Ólafsson var líka sterkur undir lokin en annars var það samheldn- in og liðsheildin sem færði KR- ingum sigurinn í stórskemmtileg- um leik sem var vel sóttur. - hbg Grindavík sótti ekki gull í greipar KR: Baráttusigur KR-inga JEREMIAH JOHNSON Átti góðan leik í gær fyrir Grindavík en það dugði ekki til. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓLIceland Express-deild karla: KR-GRINDAVÍK 82-81 Stig KR: Omari Westley 21, Brynjar Þór Björnsson 20, Fannar Ólafsson 14, Skarphéðinn Ingason 11, Steinar Kaldal 10, Pálmi Freyr Sigurgeirsson 4, Ell- ert Arnarson 2. Stig Grindavíkur: Jeremiah Johnson 28, Páll Axel Vilbergsson 22, Nedzad Biberovic 13, Þorleifur Ólafsson 11, Páll Kristinsson 6, Helgi Jónas Guð- finnsson 1. SKALLAGRÍMUR-FJÖLNIR 99-83 HAUKAR-HÖTTUR 76-85 HAMAR/SELFOSS-ÍR 72-95 ÞÓR AK.-SNÆFELL 72-74 ÚRSLIT GÆRDAGSINS

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.