Tíminn - 19.12.1976, Blaðsíða 1
ELDUR I FLOSA IS 15
gébé Rvík. — í fyrrinótt
kom upp eldur í vélar-
rúmi Flosa ÍS 15, er
skipið var statt sunnan
við Eystra Horn, en
skipið var að koma úr
söluferðfrá Þýzkalandi.
Skipverjum tókst sjálf-
um að slökkva eldinn
eftir rúma klukkustund
og enginn slasaðist.
tókst að ráða niðurlögum hans
Eldsupptök eru enn ó-
kunn og skemmdir
munu ekki hafa verið
mjög miklar.
Timinn fékk þær upplýsing-
ar hjó tilkynningaskyldunni i
gærmorgun, að það hefði verið
ki. 04:42 á laugardagsmorgun
að Flosi tiikynnti loftskeyta-
stöðinni á Höfn i Hornafirði,
að eldur væri laus i véiarrúmi
skipsins. Kl. 04:55 lagði ms.
Hvanney af stað frá Horna-
firði á möts við Flosa og hafði
slökkvitæki meðferðis. Nes-
kaupstaöarradió náði sam-
bandi við varðskip, sem var
inni á Norðfjarðarflóa og fór
það þcgar i stað til móts við
Flosa.
Þegar klukkan var tiu min-
útur yfir fimm á laugardags-
morgun, þá tilkynnti skip-
stjóri Flosa, að skipverjum
hefði sjálfum tekizt að ráða
niðurlögum eldsins, og klukk-
an rúmlega sex um morgun-
inn hélt FIosi áfram ferð sinni
til Fáskrúðsfjaröar, en þang-
að hefur skipið vcrið nýlega
selt.
Timinn ræddi við útgerðar-
mann Flosa, Berg Hallgrims-
son og sagðist hann litlar upp-
lýsingar hafa enn, nema að
enginn hefði slasazt og að
skemmdir væru litlar. — Ég
hef enn ekkert heyrt um hver
eldsupptök voru, en FIosi er
væntanlegur hingað til Fá-
skrúösfjarðar um eða upp úr
hádegi i dag, sagði Bergur.
Skv. upplýsingum frá til-
kynningaskyldunni, voru öll
skip á þeim slóðum sem Flosi
var á, kölluð upp til aö athuga
hvert væri nálægast, en það
voru flest togarar sem voru of
djúpt úti til að geta orðið að
liði.
Ólæti við
Tónabæ
gébé Rvik — Mikil ólæti og fylleri var i höfuð-
borginni i fyrrinótt. Lögreglan var m.a. kölluð til
aðstoðar við dyraverði I Tónabæ, þar sem mikill
fjöldi unglinga var fyrir utan. Ungur piltur réðst
þar á lögregluþjón, sem þó sakaði ekki, en
pilturinn fékk að gista fangageymslur lögregl-
unnar. Fimm rúður voru brotnar I Verzluninni
Sunnukjör i Skaftahlíð, og talið að unglingar úr
Tónabæ hafi verið þar að verki. Arás var gerð á
dyraverði Tjarnabúöar og þrir menn handtekn-
ir. Brotizt var inn i bifreiö i Brautarholti og náö-
ust fjórir piltar sem að þvi stóðu og voru fluttir á
upptökuheimiliö. Auk þessa voru fieiri
smáþjófnaðir, slagsmál og mörg útköll vegna
drykkjuláta.
Gæzluvarðhalds-
úrskurðurinn:
Formgallar
ástæðanfyrir
seinkun
málsins
gébé Rvik — t gærmorgun var tekinn fyrir i
Ilæstarétti gæzluvarðhaldsúrskuröurinn,
sem réttargæzlumaður höfðaði fyrir hönd
leigubifreiðarstjórans, sem handtekinn var I
Vogum þann 7. desember, s.l. og úrskurðaður
i gæzluvaröhald sama dag. Hæstiréttur hafði
ekki lokið störfum þegar Timinn fór í prentun
i gærdag.
Hæstiréttur fékk gögnin varðandi áfrýjun
gæzluvarðhaldsins, i hendur þann 13. desem-
ber.
Astæðan fyrir þvi að dregizt hefur svo lengi
að Hæstiréttur tæki þetta mál fyrir, er sú, að
samkvæmt lögum um opinber mál, eiga mál-
skjöl að berast réttinum i fimm eintökum,
eitt fyrir hvern dómara, en þau bárust aðeins
i einu eintaki. Þrátt fyrir itrekanir, bárust
Hæstarétti ekki hin nauðsynlegu eintök fyrr
en s.l. fimmtudag, og var þvi ekki hægt að
taka málið fyrir fyrr.
*
Aætlunarstaðir:
Bíldudalur-Blönduós-Búðardalui
Flateyri-Gjögur-Hólmavík
Hvammstangi-Rif-Reykhólar
Sigluf jörður-Stykkishólmur
Súgandaf jörður
Sjúkra- og leiguflug
um allt land .4?'*'
' Símar: iL ,
2-60-60 oq 2-60-66
BARÐA
BRYNJUR
LANDVELAR H F
288. tolublao — Sunnudagur 19. desember—60. árgangur
Siðumúla 21 — Simi 6-44-43