Tíminn - 19.12.1976, Síða 23

Tíminn - 19.12.1976, Síða 23
Sunnudagur 19. desember 1976 23 sjonvarp SUNNUDAGUR I9.desember 1976 16.00 Húsbændur og hjú. Breskur myndaflokkur. 7. þáttur. Miskunnsami Sam- verjinn. Þýöandi Kristmann Eiösson. 17.00 Mannlifiö. Lifsvenjur. Lýst er breytingum sem oröiö hafa i þjóðfélagshátt- um á undanförnum áratug- um og viðhorfum manna til þeirra. Sýnt er fram á hætt- una, sem er þvi samfara aö maöurinn spilli umhverfi sinu og raski eðlilegu jafn- vægi i náttúrunni. Þýðandi og þulur Óskar Ingimars- son. 18.00 Stundin okkar. Sýndur verður annar þáttur myndaflokksins um Kalla i trénu, þá verður önnur mynd um Hilmu og loka- þátturinn um Molda mold- vörpu. Siðan er sjötti og sið- asti þátturinn um Komm- óðukarlinn, litiö verður inn til Pésa, sem er einn heima, og loks verður sýnt föndur. Umsjónarmenn Hermann Ragnar Stefánsson og Sig- riður Margrét Guðmunds- dóttir. Stjórn upptöku Krist- in Pálsdóttir. 19.10 Enska knattspyrnan. Kynnir Bjarni Felixson. Hlé. 20.00 Fréttir og veöur. 20.25 Auglýsingar og dagskrá. 20.35 Munir og minjar. Byggöasafniö i Skógum — síöari hluti.Horfið er aftur i timann og dvalist meðal heimilisfólks i baðstofu á is- lenskum sveitabæ. Fylgst er með störfum þess og farið með bónda i smiðju. Þulur Ómar Ragnarsson. Um- sjónarmaður Rúnar Gunn- arsson. 21.10 Saga Adams-fjölskyld- unnar. Bandariskur fram- haldsmyndaflokkur. 7. þátt- ur. John Quincy Adams, sendifulltrúi. Efni sjötta þáttar: John Adams eldri er kjörinn forseti Bandarikj- anna 1797. Englendingar og Frakkar eiga i styrjöld, og minnstu munar, að Banda- rikjamenn dragist i strið gegn Frökkum. Adams tekst að afstýra þvi, og við það fara vinsældir hans dvinandi. Hann nær ekki endurkjöri. Adams verður fyrir öðru á- falli, þegar Charles, sonur hans, deyr aðeins þritugur aö aldri. Hann ákveður að setjast i helgan stein. Þýð- andi Dóra Hafsteinsdóttir. 22.10 Frá Listahátið 1976. MIK-söngflokkurinn frá Grænlandi leikur. Þýðandi Dóra Hafsteinsdóttir. Stjórn upptöku Tage Ammendrup. 22.30 Aö kvöldi dags. Pjetur Maack, cand. theol., flytur hugvekju. 22.40 Dagskrárlok. MÁNUDAGUR 20. desember 1976 20.00 Fréttir og veður. 20.30. Auglýsingar og dag- skrá. 20.40 tþróttir. Umsjónarmað- ur Bjarni Felixson. 21.20 Hátiöadagskrá Sjón- varpsins.Kynning á jóla- og áramótadagskránni. Um- sjónarmaður Elinborg Stefánsdóttir. Stjórn upp- töku Egill Eðvarðsson. 21.50 Gerviásýnd fasismans. Heimildamynd um Musso- lini og fasistatimabilið á ítaliu. Myndirnar tóku fas- istar sjálfir á sinum tima, en óhætt mun áð fullyrða að þær segi aðra sögu nú en ætlast var til. Myndinni lýk- ur með innrás Itala i Eþiópiu. Þýðendur Elisabet Hangartner og Gylfi Páls- son, og er hann jafnframt þulur. (Nordvision — Danska sjónvarpiö) 22.30 Dagskrárlok. Hinrik konungur VIII og konur hans sex Eftir Paul Rival lega efniskenndur. Hinrik tók að riða út aftur og skjóta af hinum langa boga. Hann fann ekki til þreytu, fékk ekki einu sinni höfuðverk. Hann bað lækni sinn að halda sér í hæfilegri fjarlægð, yfirgaf skriftaföður sinn, lét Katrínu eina ásamt dótturinni, þær gátu iðkað sínar bænir. Hann flutti til annarrar hallar, gerði boð fyrir Wolsey og sendi hraðboða eftir önnu. Eftir allar skelfingarnar fannst honum Anna frábærari en nokkru sinni áður. Hinrik var varla viss um hvort hann væri enn á jörðinni, eða hvort hann væri kominn til ódáinsakra, þar, sem konur tóku á sig gervi guðdómsins. En það var sama hversu Ijúf og blíð Anna var honum, hún var stöð- ugt hin ósnortna mey, sem enn varðveitti dulúð sína. Blíðuhót önnu voru eins og maður gat hugsað sér hjá álf- konu eða skógardís, sem sótti þrótt sinn í safa trjánna, hún var töfrandi en varla mennsk. Hinrik strauk hár hennar, vanga og likama, hún veitti honum allt, nema hinn einfalda lokaþátt, sem fullnægir og veitir frið. Lokabarátta Wolseys. (1528-1530) Páfalegur fulltrúi, sem fer sér hægt. ' Koma Campeggio, kardinála var nú yf irvofandi. Hinrik ráðlagði Önnu að hverfa heim til Hever. Hún varð stór- móðguð,svo aðtil mála kom að hann skammaðist sín fyr- ir hana. Hinn óvéfengjanlegi hreinleiki hennar gæti ork- aðtvímælis, og enn hræddari var hún vegna þess að Hin- rik ætlaði sér að neita þeim um að hittast á hverju kvöldi. Hún óttaðist að Wolsey gripi þá tækifærið og fengi kon- ungi aðra konu, sem ef til vill hefði róandi áhrif á hann og rifjaði þannig upp yfir honum blessun friðsælla til- finninga. En þegar hún fór að hugsa sig um, komst hún að þeirri niðurstöðu að ef til vill væri tímabært að reyna, hversu mikil tök hún hefði, jafnvel fjarverandi. Hún gerði gys að Hinrik fyrir kjarkleysi og smámunalega varúð. Síðan fór hún, til að njóta haustilmsins að Hever. Að lokum kom hinn ellihrumi Campeggio, Hinrik tók á móti honum, með mikilli viðhöfn, og auðsveipur eins og hlýðinn sonur. Einu sinni enn, sáu Lundúnabúar hinn virðulega páfakross, prestur einn hélt krossinum á lofti, sá reið múldýri. Campeggio blessaði lýðinn af hinu mesta örlæti. i fylgd með kardinálanum var sonur hans, hávaxinn piltur, sem studdi föður sinn, en Campeggio stakk við. Sonur kardinálans var skilgetinn, Campeggio hafði ekki unnið hin heilögu heit fyrr en hann var orðinn aldraður. Hann hafði orðið sárhryggur, er hann missti konu sína. Áður en Campeggio gerðist kirkjunnar maður hafði hann verið lagaprófessor, um tuttugu ára skeið. Hann var því vel hæfur, til að fella réttlátan dóm. En hann hraðaði ekki málinu, frekar en Wolsey. Þessi gamli maður virtist telja sig hafa eiiífðina á valdi sínu, hann var mótfallinn fIjótfærnislegum yfirlýsingum. Hann vildi kynna sér málið f rá sjónarmiði beggja aðila. Hinrik taldi þarflaust að ræða við Katrínu, en Campeggiotaldi það áríðandi. Hann vonaði að geta komið málinu í kring með mildum fortölum, Katrín var þó aðeins kona. Cam- peggio heimsótti Katrínu og spurði hana hvort hún gæti ekki hugsað sér að yfirgefa heiminn og taka klaustur- heit. Gat hún gert ráð f yrir betri f ra.mtíð? Hún væri orð- in öldruð og gat ekki f ramar alið börn né notið ásta. Guð var tvímælalaust að opna henni klausturdyrnar. Cam- peggio lýsti af eigin raun, dásemdum trúarlífsins, hann lýsti því, sem skjóli þeirra, sem voru viðkvæmir og von- sviknir. Katrínu fannst italinn ofdirfskufullur. Henni fannst ólíku saman að jafna, þar sem um var að ræða annars vegar réttan og sléttan lagaprófessor og hins vegar drottningu og spænska erfðaprinsessu. Katrín svaraði því til að hún mundi skrýðast nunnuslæðu um leið og Hinrik gengi í klaustur, en slíku gat Campeggio ekki lofað, þrátt fyrir alla sína samningalipurðog Katrín neitaði að láta undan. Campeggio fékk sér liðsstyrk, hann kom aftur til Katrínar, ásamt Wolsey og f jórum biskupum. Katrín lét þá fara erindisleysu og var ánægð með. Hinrik gerði boð fyrir Campeggio. Hinrik sagði: „Ef Katrín er f ús að gerast nunna, er ég reiðubúinn að verða munkur, við vinnum þá bæði klausturheitið. Seinna getur svo hinn heilagi faðir leyst mig f rá minu heiti. Þá verður hún bundin sínu heiti, en ég verð f rjáls, og þar, sem Eng- land verður að eignast krúnuerf ingja, mun ég auðvitað velja mér nýja brúði, en vitanlega með leyfi páfa." Campeggio fannst þessi uppástunga bera vott um hreinlyndi, en of flókin í framkvæmd og framar öllu óvirðuleg. Hanntaldi það óráðlegt að einvaldsherra léki opinberlega slíkan skrípaleik. Hinrik sagði þá: „Ég tek mér þá til fyrirmyndar hina helgu menn Gamla testa- mentisins. Ég hef oft lesið um það í biblíunni, að Drott- inn leyfði ættfeðrunum að eiga margar konur samtímis. Til dæmis þegar Sara var orðin gömul og gat ekki alið börn tók Abraham Hagar sem hjákonu, og hún ól honum son. Jakob átti tvær lögmætar eiginkonur, sem þar að auki voru sytur, hann bætti svo við sig tveim hjákonum. Hann hefur sjálfsagt verið afar þróttmikill. Frá þessu fólki erusvokomnar hinar tólf ættkvíslir ísraels. Davíð átti f jölda eiginkvenna, sömuleiðis Salómon, sem átti heilt kvennabúr, og þetta var grundvöllurinn að, upp- runa sjálfs frelsarans. Því skyldi ég þá ekki eiga tvær eiginkonur? Á aðeins að fara eftir kenningum biblíunn- ar, þegar hún bannar, en ekki þegar hún leyfir? Katrín gæti eftirleiðis verið hin viðurkennda drottning, en Anna gæti alið mér son. Við gætum öll lifað í sátt og samlyndi." Compeggio lét í Ijósi undrun, þegar hann hafði hlýtt á málflutning Hinriks, en þá minnti Hinrik hann á að hinn frægi Lúther, sem þegar á allt var litið, var bæði lærður maður og fróður, leyfði mönnum, sem áttu konur, er gátu ekki alið börn, að fara til annarra kvenna og geta börn við þeim. Slíkt leyfði Lúther einnig konum við sömu aðstæður. Hinrik sagðist álíta það synd að neita körlum jafnt sem konum að eignast af kvæmi og koma þannig i veg fyrir að sálu gæddar verur yrðu til. Þessu svaraði Compeggio stuttlega: „En Lúther er villutrúarmaður." Því svaraði Hinrik ekki, en hann hugleiddi, hvort villutrú hefði ekki sínar góðu hliðar. Katrin er rekin á brott í fyrsta sinn Það var mikið skrafað. Á hverju götuhorni lét fólk í Ijós hneykslun sína yfir því að þessi lítilsiglda stúlka leyfði séraðgera uppistand innan konungsf jölskyldunn- ar og reyna að bola sjálfri drottningunni frá. ófríðum konum og barnlausum fannst sérstaklega að sér vegið. Hinrik kallaði saman nokkra aðalsmenn og framámenn, meðal Lundúnarbúa. Hann hélt yf ir þeim langa ræðu um siðgæði, þar sem hann útskýrði að sambúð hans og drottningar væri syndsamleg og bannfærð samkvæmt öllum helgilögum, og að hann væri búinnað búa við þessa villu í tuttugu ár. Hinrik sagði að þetta ástand mætti ekki

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.