Eintak - 19.05.1994, Blaðsíða 13
Öll verð í þessari auglýsingu er miðuð við gildandi verðlista.
RENAULT
Bílaumboðið hf.
Krókhálsi 1 ■ Reykjavík ■ Sími 686633
RENAULT
CEYMIÐ AUGLÝSINGUNA
1.980.000,-
með skráningu og
ryðvörn með 8 ára
ryðvarnarábyrgð.
vT.ð innra búnaði er Safrane eins og lúxusbíl
sæmir. í mælaborðinu er aksturstölva og úti-
hitamælir, auk talandi upplýsingatölvu. Sætin
eru vel hönnuð og klædd fallegu áklæði eins
og innréttingin í heild, stýrishjólið leðurklætt.
Bíllinn er hljóðlátur svo af ber, þannig að hljóm-
gæði fjarstýrða Blaupunkt útvarpsins njóta sin
til fulls.
RENAULT
Hvíld og vellíðan!
Vélin
í Safrane er 2165 cc 140 ha, 12 ventla, snúningsvægi 182 Nm v. 4500 sn.mín. Þetta gefur
hröðun 0-100 á 11,9 sekúndum (með 4 gíra sjálfskiptingu) og 196 km hámarkshraða. Áætluð
eyðsla er þó aðeins á bilinu 7,2 1 til 9,2 1 á hverja 100 km. ABS hemlalæsivörn er staðalbúnaður,
svo og íjarstýrðar samlæsingar í hurðum og hraðastillir (cruise control).
Frá
„2.659.000,-
með skráningu og ryðvörn með 8 ára
ryðvarnarábyrgð.
- Reynsluaktu Renault - Vel þess virði
tilkomu Renault Safrane sýndu Renault
verksmiðjurnar frönsku enn einu sinni að sá metn-
aður að gera Renault bílana að bestu bílum í heimi
situr ekki við orðin tóm. í Renault Safrane samein-
ast frábær hönnun og fyrirmyndar tækni.
Í^fírbragð bílsins í heild ber það með sér að þetta
er lúxusbíll. Ekki er þó slakað á öryggiskröfunum
á Safrane fremur en öðrum Renault bílum: stigvax-
andi fyrirstaða krumpusvæða framan og aftan og
hámarks styrkleiki káetu, ásamt sérstökum styrking-
um í hliðum og líknarbelg í stýri, tryggja ökumanni
og farþegum hámarks öryggi ef óhapp verður ekki
umflúið.
„Ef við lítum til „samkeppnisaðilanna” er Safrane
mjög rúmgóður og sérlega vel fer um farþega í aftur-
sæti á langleiðum, og þaðjrótt framsæti hafi verið
rennt í aftarlega stöðu. ... A fyrstu metrunum kem-
ur strax í ljós hve hljóðlátur bíllinn er í venjulegum
akstri. Nær ekkert vélarhljóð heyrist og veghljóð
og vindgnauð er í lágmarki (Jóhannes Reykdal, DV
bílar 24.7.93).
RENAULT
Fer á kostum!
^arangursrými er einstaklega gott 1 þessum bíl. í 4x4 bílnum er
farangursrými aftan við sæti hvorki meira né minna en 534 lítrar.
Þegar aftursætið er lagt niður verður rýmið 1575 lítrar.
^enault 21 Nevada 4x4 er kjörinn bíll fyrir þá sem vilja komast
leiðar sinnar með þægindum þó færð sé misjöfn. - Renault 21 Nevada
sjálfskiptur er kjörinn fyrir þá sem hafa stóra fjölskyldu en vilja samt
hafa rúmt um sig.
l5in þrautreyndasta gerðin frá Renault er Renault
21 Nevada, traustur ferðabíll sem fáanlegur er sem
5 manna bíll með tengjanlegu fjórhjóladrifi og læstu
mismunadrifi, eða sem sjö manna framdrifínn með
sjálfskiptingu. Vélin er 2200 cc, 110 hö.
Aksturseiginleikum 21 Nevada er við brugðið og
leitun að bíl sem er jafn stöðugur á vegi. Það er
meðal annars vegna þess að það er óvenju langt á
milli fram- og afturása á þessum bíl, sem jafnframt
gerir það að verkum að íjöðrunin verður enn mýkri
en ella, auk þess sem breiddin á aftursætisbekknum
nýtist til fulls, vegna þess að stokkurinn yfir aftur-
hjólunum lendir fyrir aftan aftursætið.
2200 cc vélin er, eins og aðrar vélar frá Renault,
þekkt fyrir snerpu og gott snúningsvægi.
/S'parneytni vélarinnar er líka við brugðið: meðal-
eyðsla samkvæmt Evrópustaðli er gefrn aðeins 9 1.
pr. 100 km (4x4 bíllinn), sem er afbragðs gott fyrir
bíl af þessari stærð.
,,j5íllinn er prýðilega stinnur og laus við dúanda, en samtímis
ákaflega þýður, einkum við smágerðari ójöfnur á veginum, svo sem
þvottabretti. Það finnst varla. Það er einna helst að stóru, íhvolfu
holurnar finnist. Þetta gefur bílnum mikinn stöðugleika” (S.H.H.
DV bílar, 27. 1. 1990).
FIMMTUDAGUR 19. MAÍ1994
13