Eintak

Tölublað

Eintak - 19.05.1994, Blaðsíða 33

Eintak - 19.05.1994, Blaðsíða 33
flflH Steingrímur Eyfjörð Kristmundsson Tungutal er bænamál og mig langaði til að setja upp að- stöðu fyrír syndafyrírgefn- Listrænn bæi og brunaliðsíl Næstkomandi laugardag verður opnuð sýning á íslenskri samtíma- list á Kjarvalsstöðum og ber hún yf- irskriftina Skúlptúr, skúlptúr, skúlptúr. Sýningin hefur það mark- mið að bregða ljósi á íslenska skúlptúrlist dagsins í dag og í henni taka þátt 30 listamenn sem komið hafa í kjölfar hinnar svokölluðu SÚM kynslóðar og endurnýjað hugmyndir þjóðarinnar um skúlp- túrlistina. Það sem einkennir listsköpun þessara listamanna er samruni ólíkra listhugmynda og meðvituð endurskoðun á þekktum liststefn- um. Almennt er þó hægt að segja að meirihluti þeirra vinni með fundna hluti sem teknir eru úr sínu upp- runalega samhengi og gefur það hlutunum nýja merkingu, ýmist út á eigin verðleika eða með tengslum við aðra hluti. Þessi umskipti byggja ýmist á fagurfræðilegum, táknfræðilegum eða heimspekileg- um forsendum. Hugmyndin er að sýningin dragi fram í dagsljósið nýjar hugmyndir og áherslur í höggmyndalist, þar sem athyglinni er sérstaklega beint að nýjum merkingarsviðum skúlptúrsins og nýju hlutverki rýmisins. Eftirtaldir listamenn taka þátt í sýningunni: Svava Björnsdóttir, Haraldur Jónsson, Þóra Sigurð- ardóttir, Ásta Ólafsdóttir, Daníel Magnússon, Guðrún Hrönn Ragnarsdóttir, Ólafur S. Gísla- son, Kristinn G. Harðarson, Þór- dís Alda Sigurðardóttir, Anna Líndal, Guðjón Ketilsson, Stein- grímur Eyfjörð Kristmundsson, Þorvaldur Þorsteinsson, Ólöf Nordal, Hlynur Helgason, Rúrí, Bryndís Snæbjörnsdóttir, Stef- án Jónsson, Finnbogi Péturs- son, Margrét Magnúsdóttir, Erla Þórarinsdóttir, Ragnheiður Hrafnkelsdóttir, Ivar Valgarðs- son, Brynhildur Þorgeirsdóttir, Sólveig Aðalsteinsdóttir, Finna Birna Steinsson, Steinunn Þór- arinsdóttir, Halldór Ásgeirsson og Anna Eyjólfsdóttir. Verk Steingríms Eyfjörð Krist- mundssonar á án efa eftir að vekja athygli en það er sérhannaður bænaklefi sem er þeirrar náttúru gerður af hendi listamannsins að hann segir að þeir sem reka nefið inn í hann koma ekki samir út aft- ur. Steingrímur útskýrði verk sitt fyrir blaðamanni EINTAKS Af hverju ert þú með bœnaklefa ú þessari sýningu? „Tæknilega séð þá lít ég á mig sem teiknara. Klefinn er rýmisút- gáfa af teikningu. „Camera Obsc- ura“ var teiknivél sem jafnvel má líta á sem fyrsta skrefið að sýndar- rými. Segja má að sýndarrými sé „Camera Obscura effect" af heim- inum. Ég hafði í upphafi hugsað mér að lagsins að slökkva hættulega elda í hvaða formi sem þeir birtast." Af verkum Steingríms og Þor- valdar má dæma að hér sé sérstak- lega athyglisverð sýning á ferðinni og að miklar breytingar hafi átt sér stað í íslenskri skúlptúrgerð á und- anförnum misserum. © fyrir biðstöðu slökkviliðsins, þess- ari vakt sem veit ekki fremur en við hvenær og hvar hennar er næst þörf,“ segir Þorvaldur. Þessi íbúð er góður fulltrúi að mínu mati fyrir þeirra vinnu sem fer að mestu leyti fram í biðstöðu. Við undirbúning, æfingar og eftirlit. fbúðin er sí- en menn geta hugsanlega snúið upp á samlíkinguna og líkt slökkvi- liðinu við opinbera stofriun sem slekkur elda sem gætu reynst hættulegir í samfélaginu. Það er hins vegar ekki grundvöllurinn fyr- ir verkinu. Því ber þó ekki að neita að það er eðlileg viðleitni samfé- Blóð Krists - Bænaklefi og heimurinn á hvolfi sýna í Galleri 11 og rýmið átti að vera fyllt af orðum byggðum á tungutali, þá hefði ég fært herberg- ið inn á þessa sýningu en sú hug- mynd þróaðist áfram og tók sér mynd í þessum klefa.“ En hvað kemur bœnin málinu við? „Tungutal er bænamál og mig langaði til að setja upp aðstöðu fyr- ir syndafyrirgefningu. Stærð klef- ans er annars vegar miðuð við sturtuklefa og að hann þrengi að, þannig að fólk sem fer inn í klefann mun nálgast sjálft sig. Á veggjunum er texti og tákn sem eru teiknuð í nokkrum lögum og gefa þrívíddar- áhrif. Um leið og þátttakandinn finnur fyrir þrengingunni þá getur hann víkkað sig út, inn í orðið. Upprunaleg fýrirmynd verksins er herbergi í Keisarahöllinni í Vínar- borg þar sem loftið er hækkað með fjarvíddaráhrifum. Textinn á veggj- um bænaklefans er hugsaður sem lofgjörð.“ Þorvaldur Þorsteinsson á einnig umfangsmikið verk á sýningunni en það er 50 fm íbúð sem reykkaf- arar slökkviliðsins nota við æfingar sínar. Hann segir þetta vera í fýrsta sinn sem hann sýni innísetningu hér á landi en hann hefur gert nokkur slík verk erlendis. „Hugmyndin að baki þessu verki var sú að finna leið til að gera grein breytileg þannig að þegar reykkaf- arar fara inn í hana vita þeir ekkert hvað bíður þeirra og þar af leiðandi gæti hún verið hvar sem er á þeirra svæði. fbúðin er hönnuð af slökkviliðs- mönnunum sjálfum og er venju- lega í kjallara slökkvistöðvarinnar. Eðli íbúðarinnar er að hún á heima hvar sem er og er því fulltrúi fyrir allt íbúðarhúsnæði á Reykjavíkur- svæðinu.“ Af hverju valdir þú að vinna með slökkviliðið? „Slökkviliðið er ein af þeim fáu stofnunum, ef ekki sú eina, sem er hafin yfir pólitík eða gagnrýni. Það er sama hvaða stjórnkerfi er við lýði, hvort það er einræði eða harð- ræði, alltaf slekkur slökkviliðið eld án sérstakra tengsla við ákveðna hagsmunaaðila. Það má sjá samlíkingu með reyk- kafaranum, sem fer inn á svæði með takmarkaðar loffbirgðir í leit að fórnarlömbum eða öðru sem hann veit ekki hvað er, og lista- mönnum sem standa frammi fýrir nýjum verkefnum og áhorfendum sem koma á þessa sýningu og vita ekki við hverju þeir eiga að búast.“ Ertu þá líka að fjalla um þann pólitíska ramma sem er sniðinn í kringum listina í þjóðfélaginu? „Eg vil ekkert segja um það núna Bænaklefinn er „sturtuklefi" þar sem Ijós Drottins baðar sýningargestinn og hann hreinsast af syndum sínum fyrir blóð Krists. Þegar sýningargestir fara inn í klefann snýst heimurinn á hvolf og öll gildi fara úr skorðum. Viska verður að heimsku og heimska verður að visku. Hinir vitru og voldugu fá kinnroða. 1. Hæð á inngangi klefans er 101 cm. Þriggja ára bam gengur upprétt inn - táknmynd auðmýktar og bamslegrar einlægni. 2. Jesús tólf ára Lúk. 2:41 -51 3. Hinn fyrri Adam - Gamli sáttmálinn 4. Efe. 6:10-20 Alvæpni Guðs 5. Helgidómur á himni og jörðu - Heb. 9:14 6. „Camera Obscura"* gerð af Ijósopi sem sýnir heiminn á hvolfi inn í klefanum 7. Heimurinn á hvolfi eins og endurvarp í „Camera Obscura" -1. Kor. 1:26-31 8. Hinn nýi Adam - Tala Jesú er 888 (hæð á borði inni í bænaklefa 33 cm - Kristur var krossfestur 33 ára) - Rom. 10:9 Nýi sáttmálinn 9. Syndafyrirgefningarsturta - Blóð Krists - Matt. 26:28 10. Hin einafórn - Heb. 10:1-18 * Camera Obscura er lokað rými sem virkar eins og Ijósmyndavél. (gegnum Ijósop kemur geisli sem endurvarpar mynd á hvolfi af því sem sést í gegnum opið. Myndin kemur fram á veggnum gagnstætt opinu. Þorvaldur Þorsteinsson "Þessi íbúð er góður fulltrúi að mínu mati fyrir þeirra vinnu sem fer að mestu leyti fram i bið- stöðu." EINAR MEÐ OLLUM Vitandi að ég þyrfti fljótlega að fara upp aftur eftir meira lofti í lungun afréð ég að gægjast inn. Var eitthvað þarna? Betur má ef duga skal flaug strax í gegn- um hugann. Ekki skyldi ég guggna þótt eitthvað torkennilegt mætti mér þar sem ég þreytti mitt fyrsta kafsund í áraraðir. Ég ákvað að nálgast þetta. Þetta iíktist helst logandi hnetti með einhverri stál- kúlu sem fór inn og út úr hnettinum að vild. Ég hafði bara séð svona á vídeói. Þarna Ijóslifandi í styttuformi var maðurinn sem leiddi rússnesku bylt- inguna. Ég stundi: vodka!!! .4:-. ■ FIMMTUDAGUR 19. MAÍ1994 33

x

Eintak

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eintak
https://timarit.is/publication/309

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.