Eintak

Tölublað

Eintak - 19.05.1994, Blaðsíða 18

Eintak - 19.05.1994, Blaðsíða 18
+ UEIKKONA „Fyrir mig var skólinn rosalega erfiður og mjög ósanngjarn að mörgu leyti." Hilmir Snær Guðnason LEIKARI „ Við fáum meiri al- hliða þjálfun eþ margir erlendir leik- listarnemendur og fáum að kynnast ólíkum formum íéik Hstarjnnar en til að mynda er í leiklism ■ Guðlaug Elísabet Olafsdóttir LEIKKONA Viö purfum þessi fjögur í að prófa okkur áfram, ge mistök og læra af þeim\ hann og það var ekkert gert i pví þó að alíir sæju hvað væri að gerast.“ Þeir Ari og Þröstur Leó segjast báðir vera sannfærðir um að skól- inn hafi breyst mikið til batnaðar frá því að þeir voru í honum. Þröst- ur sem útskrifaðist 1985 tekur þátt í lokaverkefni Nemendaleikhússins sem gestaleikari í leikritinu Sumar- gestir. Hann segir að það sé æðislegt að koma inn í Nemendaleikhúsið á ný og hann líti á það sem nokkurs konar endurhæfmgu íyrir sig. Það væri kannski ráð að senda þá leik- ara sem eiga það til að festast í ákveðnum karakterum í endurhæf- ingu? Nemendaleikhúsið er reyndar nokkuð sérstakt fyrirbæri og aðdá- unarvert hversu öflugt það er. 1 vet- ur hafa verið settar upp þrjár sýn- ingar, hver annarri betri og lét hin rómaði gagnrýnandi, Súsanna Svavarsdóttir, þau orð falla um Draum á Jónsmessunótt sem Nem- endaleikhúsið sýndi í haust, að sú sýning væri sú besta sem byðist í ís- lensku leikhúsi. Gísli er stoltur af Nemendaleikhúsinu og segir að víðast hvar á Norðurlöndunum setji nemendur aðeins upp eina sýningu í nemendaleikhúsi á með- an þær eru þrjár hér. Værum bara að leika þjóna „Ég verð svo reiður þegar ég heyri gamla leikara lýsa því yfir að þetta sé of langt nám, að það ætti að útskrifa eftir þrjú ár, sleppa Nem- endaleikhúsinu og leyfa nemend- um að reyna sig í alvöru leikhúsun- um strax,“ segir Benedikt. „Ef það væri ekki nemendaleikhús, hvar hefðum við þá fengið almennileg hlutverk til að spreyta okkur á? Ef við hefðum ekki fengið að sýna okkur í bitastæðum hlutverkum í nemendaleikhúsi værum við bara að leika þjóna og þess háttar í stóru leikhúsunum.“ Ekki er hægt að segja að nem- endur verði einangraðir hér á Is- landi því námsferðir til útlanda eru fastir liðir. Sumir kunna að segja að það sé nauðsynlegt fyrir leiklistar- nemendur en spurningin er hvort það sé eitthvað nauðsynlegra fyrir leiklistarnemendur frekar en aðra nemendur? I ár kom hópur frá Leiklistarháskólanum í Malmö í vikuheimsókn í Leiklistarskólann og þökkuðu þau fyrir sig með því að bjóða 2. bekk skólans í heim- sókn til Svíþjóðar í haust. Náin samvinna er við skólann í Malmö og eru þessi nemendaskipti, sem margir segja vera einn af hápunkt- unum í náminu, orðinn fastur liður í skólastarfinu. Þriðji bekkur Leiklistarskólans er núna staddur í París og Berlín og fór áður á leiklistarhátíð í Osló. Út- skriftarhópurinn er svo á leið á leiklistarhátíð í Stokkhólmi með Drauminn sem þau sýndu í vetur við miklar vinsældir. Það er auðvitað frábært að hægt sé að fara í svona námsferðir og nemendur fái tækifæri til að sjá hvar þeir standi miðað við leik- systkini sín sunnar í Evrópu. Þriðji bekkurinn hlaut mikið lof fyrir Hamlet sem þau sýndu á leiklistar- hátíðinni í Osló. Þessi þriðji bekkur er reyndar nokkuð athyglisverður því í honum eru bara fimm nem- endur. Var svo einhver að tala um að fjölga í bekkjunum? Gísli segist ekki kunna skýringu á því af hverju bekkurinn sé svona fámennur enda var hann ekki kominn til starfa þegar sá bekkur var tekinn inn í skólann. Ætli hafi verið svona lítið um framúrskarandi nemendur? Það þykir mér ótrúlegt þar sem þeir átta sem venjulega komast inn eru yfirleitt hlaðnir hæfileikum og Gísli sagði við mig að á hverju ári þyrfti að hverfa frá fólk sem hefði bull- andi hæfileika. Nefndin ákvað sem sagt að taka ekki inn svokölluð jað- artilfelli sem hafa oft reynst þeir leikarar sem lifa af þegar til kemur. Edda Heiðrún Backman sem átti sæti í dómnefnd þetta árið varðist allra fregna. Á að banna nemendum að taka að sér hlutverk utan skólans? Það er ábyggilega ekkert grín að vera í fimm manna bekk, sérstak- lega með tilliti til þess hve vinnan við nemendaleikhús er oft mikil en þá sjá nemendur sjálfir um að hanna leikmynd, reka miðasölu og fleira sem snýr að leikhússtarfi. Þessi vinna er auðvitað bara hluti af náminu og í mörgum tilfellum undirbúningurinn fyrir það sem koma skal, þar sem það er sífellt að færast í aukana að leikarar verði að skapa sér vinnu sjálfir í frjálsum leikhópum og þvíumlíku. Það vakti töluverða athygli fyrr í vetur þegar Friðrik Þór Friðriks- son leitaði eftir því að fá Pálínu Jónsdóttur, nemanda í þriðja bekk Leiklistarskólans, til að leika eitt aðalhlutverkið í mynd sinni, Cold Fever. Pálína þóttíst sjá þarna ágætt tælkifærí fyrir sig sem leikkonu en ffékk ekki leyfi ffrá skólayfirvöidum tíi að taka að sér híutverkið. Gísli segir að ekki hafi verið möguleiki að leyfa Pálínu að taka þessu hlutverki með svona stuttum fyrirvara þar sem hún átti að taka þátt í sýningu á vegum skólans nokkrum vikum síðar og fjarvera hennar hefði rask- að kennslu í skólanum heilmikið. Nemendum hefur frá upphafi verið bannað að taka að sér hlut- verk utan skólans meðan á námi stendur og þykir mörgum óréttlátt að skerða frelsi nemenda á þennan hátt. „Mér fannst þetta vera mjög óréttlátt á meðan ég var í skólanum en núna sé ég að það er gott að leyfa nemendum að vera í næði“ segir Haiidóra. „Ef nemandi tekur að sér hutverk utan skóia og mistekst, er fóik ffljótt að stimpia hann iélegan ieikara.“ Guðlaug Elísabet Ólafsdóttir sem er í útskriftarhópnum er á sama máli. „Við þurfum þessi fjög- ur ár til að prófa okkur áfram, gera mistök og læra af þeim.“ Þröstur Leó er einnig mótfallinn því að nemendur taki að sér utanaðkom- andi hlutverk. „Það á ekki að mis- muna nemendum þannig og gefa sumum tækifæri á meðan þeir eru enn í skólanum en öðrum ekki.“ „Nemendur geta komið fram með sínar óskir ef það er eitthvað sem þeir vilja breyta og það er hlustað á okkur,“ segir Sigrún ÓI- afsdóttir. Ari Matthíasson segir aft- ur á móti að það hafi ekki verið hlustað á sig! „Ég fór og talaði við stjórnendur skólans um ýmislegt sem mér fannst að mætti breyta en það var ekki hlustað á mig. Aftur á móti er ég ánægður með að margt af því sem ég var að gagnrýna breyttist strax ári seinna og það má segja að ég hafi verið ánægður með skólann að mestu leyti.“ Eitt er það sem ekki hefur tekið breytingum, þrátt fyrir að hafa ver- ið gagnrýnt af nemendum í gegn- um árin og það er vægi kvikmynda- leiks í náminu. Eina kennslan í kvikmyndaleik er í þrjár vikur á þriðja ári í skólanum. Þannig að þótt Leiklistarskólinn standi framar en margir erlendir skólar á vissum sviðum stendur hann aftar á þessu sviði en flestir aðrir leiklistarskólar í heiminum. Það er staðreynd að það er annað að leika fyrir framan kvikmyndavél en á sviði. Nálægðin og áherslurnar eru allt aðrar. Gísli segir ástæðuna fýrir því að kvik- myndaleikurinn hafi ekki meira vægi í náminu vera þá að skólinn sé það lítill að hann geti ekki farið inn á sérsvið heldur reyni að veita al- hliða menntun. Þarf kannski ekki að læra kvikmyndaleik? Geta allir leikið í bíómyndum ef leikstjórinn er nógu góður? Óskar Jónasson sagði í viðtali við tímaritið sáluga, Kvikmyndir, að Björn Jörundur sem fór með aðalhlptverkið í mynd Oskars, Sódóma Reykjavík, en er ómenntaður leikari, hafi verið mesf „professionai“ af öllum á svæðinu. I Sódómu lék einnig einn okkar allra besti kvikmyndaleikari, Eggert Þor- leifsson, en hefur heldur ekki stundað leiklistarnám. Þröstur Guðbjartsson sem er menntaður úr Leiklistarskóla íslands og lék Ella í áðurnefndri kvikmynd segist hafa fundið mun á því að vinna með menntuðum og ómenntuðum leik- urum. Undirbúningsvinnan og persónusköpunin hafi verið mun betri hjá þeim lærðu. Hverjir komast inn? Inntökuprófið er saga út af fyrir sig og um það má alltaf deila. Þeir sem ekki komast inn eða hafa eitt- hvað á móti skólanum af einhverj- um ástæðum, segja að þetta sé bara klíka. Leikararnir segja að svo sé ekki. Sigrún Ólafsdóttir segir að hún hefði ekki komist inn ef um klíku hefði verið að ræða. Leikara- barnið Benedikt segist aldrei hafa fundið fyrir umtali um klíkuskap í sambandi við sjálfan sig þrátt fýrir að hann tengist leikhúsinu í gegn- um foreldra sína, þau Erling Gíslason og Brynju Benedikts- dóttur. „Ef eitthvað er held ég að það sé erfiðara fyrir leikarabörn að komast inn því inntökunefndin er svo hrædd um að láta saka sig um klíkuskap.“ Flestir viðurkenna að inntöku- nefnd geti og hafi gert mistök á báða bóga en starf nefndarinnar er að sjálfsögðu mjög erfitt. Eftir að hver og einn umsækjandi hefur far- ið með eintal eru valdir úr 60 sem fá að fara í áframhaldandi próf. Þeir eyða dagstund saman í litlum hóp- um og framkvæma ýmsar spunaæf- ingar, líkamsæfingar og fleiri æf- ingar sem sýna næmi og hæfileika viðkomandi til sköpunar og leik- túlkunar. Þeir þrjátíu sem komast áfram fara svo í enn ítarlegra próf í sama dúr og eftir það eru valdir sextán umsækjendur sem prófaðir eru í eina viku. Að lokum eru átta sem komast inn í skólann. I inntökunefnd sitja fimm manns. Einn leikari, einn leikstjóri, einn kvikmyndaleikstjóri, einn kennari og skólastjóri skólans. Út- skriftarbekkur Leiklistarskólans hefur verið að berjast fýrir því að fulltrúi eldri nemenda sitji einnig í nefndinni en fordæmi fyrir því er að finna í mörgum erlendum skól- um. Benedikt segir að þau eigi alveg eins heima þar eins og einhverjir kvikmyndaleikstjórar sem venju- lega séu alveg vonlausir leikaraleik- stjórar og hafi aldrei kynnst leik- húsi nema sem áhorfendur. Lárus Ýmir Óskarsson sem setið hefur í inntökunefndinni fyrir hönd kvikmyndaleikstjóra og einn- ig séð uin kennslu í kvikntynda- vinnu í skólanum segist ekki ein- blína á hvort nemandi komi til með að taka sig vel út fyrir framan kvik- myndavél heldur reyni aðeins að sjá hvort viðkomandi sé efnilegur leik- ari, hvort sem er á sviði eða í bíó. Hann viðurkennir að það megi auka vægi kvikmyndaleiksins og segir að það sem hann vilji gera í því sé að láta nemendur gera sjón- varpsverkefni sem yrði tekið til al- mennra sýninga. Hefurþú rétta útlitið? Flestir þeir sem farið höfðu í gegnum prófið töldu það vera nokkuð réttlátt og ítarlegra en þekkist víðast hvar erlendis. Gísli skólastjóri segir að sérstaða skólans meðal annarra leiklistarskóla felist ekki síst í því hversu ítarlegt inn- tökuprófið sé enda sé það eina prófið sem nemendur fari í gegn- um meðan á námi stendur. Aðeins sé stuðst við umsagnir kennara og hafi þurft að vísa nemendum frá skóla vegna vanrækslu í einstaka tilvikum. Stærsta prófið sé svo auð- vitað lífið sem tekur við þegar nám- inu í skólanum lýkur og þær við- tökur sem viðkomandi fær hjá al- menningi séu besti dómurinn. Gisii vísar á bug öllum ásökunum um að inntökunefnd leiti eftir ákveðnum týpum og að sumir komist ekki inn í skólann aff þeirri ástæðu einni að þeir hafi ekki rétta útlitið. Hann segir að það standi nemendum heldur ekki fyrir þrifum að vera orðnir of mótaðir íeikarar þegar þeir fari í prófið en sú afsökun heyrist alltaf öðru hverju hjá þeim sem komast ekki inn. Skipt er um meðlimi í inntöku- nefndinni á hverju ári og kann það að vera ástæðan fýrir því að sumir umækjendur komast eitt árið í 16 manna hópinn og svo ekki nema í 60 manna hópinn ári seinna, eða öfugt. Auðvitað er það einnig háð því hvernig viðkomandi er upp- lagður. Hæfileikar eru ekki fast ástand heldur eru þeir háðir að- stæðum að miklu leyti. Það er einn- ig erfitt að setja einhverja mælistiku á hæfileika og því er starf inntöku- nefndar síður en svo öfundsvert. Inntökunefnd reynir að gera þeim sem komast inn grein fyrir því hvað það hafi verið sem olli því að þau voru í hópi þeirra útvöldu. Það væri kannski nær að skýra þeim átta sem detta úr sextán manna hópnum hvað hafi vantað upp á til að þau geti bætt sig fyrir næsta próf að ári liðnu? Halldóra Björnsdóttir segir að öll gagnrýni, bæði neikvæð og jákvæð, mætti vera markvissari og of seint sé byrj- að að benda nemendum á hvað þeir þurfi að bæta. Svo við höldum okkur við inn- tökuprófið þá hefur SÚ hugmynd komið upp að taka inn tuttugu, jafnvel þrjátíu manna hóp á fyrsta árið en hieypa svo aðeins átta upp á annað árið. Nemendur væru þá felldir á milli ára, en sú að- ferð var einmitt notuð í gamla Þjóðleikhússkólanum sem var starfandi á árunum 1950-1969. Eftir árið ætti að vera nokkuð Ijóst hverj- ir hefðu hæfileika til að verða góðir leikarar og hverjir yrðu aldrei neitt annað en meðaljónar í leiklistinni. Vissulega væri blóðugt að komast ekki áfram eftir eins árs prófraun en nám er alltaf nám og enginn tap- ar á því að læra og þroska sig. Það er ekki allt búið þótt maður sé ekki einn afátta. Að vera einn af hundrað og þremur sem ekki komust inn þýðir ekki endiiega að viðkomandi sé ómögulegur ieikari. Það þyðir einfald- lega að hann hafi ekki hrifið ínntöku- nefndina með útgeislun sinni og hæfileikum. Það er misjafnt hvað virkar á inntökunefndina frá ári til árs, þannig að það sakar ekki að reyna aftur. Svo má líka líta í eig- in barm og velta fyrir sér hvort það sé raunverulega í leiklistinni sem hæfileikarnir og áhuginn liggja. Getur virkilega verið að einlægu leikhúsástríðufólki hafi Ijölgað um tæplega helming frá árinu 1991 þeg- ar rúmlega fimmtíu manns fóru í inntökuprófið? Eða eins og Bene- dikt Erlingsson orðaði það: „Það er voða flott að vera leiklistarnemi á barnum. En hefur fólk raunveru- legan áhuga á náminu?" Það er málið. Veit fólk hvað hvað það er að fara út í? © 18 FIMMTUDAGUR 19. MAÍ1994 “j"

x

Eintak

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eintak
https://timarit.is/publication/309

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.