Eintak - 19.05.1994, Blaðsíða 4
4
Fimmtudagurinn 12. maí
Mér sýnist á öllu aö forystumenn í þessum
flokki sem ég hef gefið alla starfsorku
mína, ætli að fara í þessar kosningar án
minnar aðstoðar. Ég hringdi í Kjartan í dag
og las fyrir hann grein sem ég ætlaði að
senda í Moggann. Hann sagði mér að bíða
með það. Ég ákvað að taka upp þráðinn og
halda áfram að skrifa lesendabréf til stuðn-
ings R-listanum. Ég hef ákveðið að kalla
mig Báru.
© Tvíburarnir til liðs við Skagamenn © Jóhann Sigmarsson veltir aftur bíl Friðriks Þórs
© Ágúst Gylfasonfer til Vals eflið hans kemst ekki upp í aðra deild í Sviss
Islands- og bikar-
meistarar Skaga-
manna renna
hýru auga til Hol-
lands þessa dag-
ana. Þar eru tví-
burabræðurnir Arnar og Bjarki
Gunnlaugssynir í atvinnumennsku
hjá Feyenoord. Arnari og Bjarka
hefur lítið gengið að sanna sig og
fá tækifæri með liði félagsins og
vilja fara burt. Feyenoord hefur
sagst vilja endurnýja samninginn en
lána Bjarka í eitt ár til annarrar
deildar félags en það líkar bræðr-
unum ekki. Þeir vilja spila saman
og segjast frekar koma heim og
spila með Skagamönnum en I hol-
lensku annarri deildinni. Miðað við
frammistöðu þeirra bræðra sum-
arið 1992 væri það mikill
hvalreki fyrir Skagamenn
og martröð fyrir önnur fé-
lög því lítinn tíma tæki J (
fyrir þá að verða lögleg-
ir...
■ ms«
vikmyndagerðar-
maðurinn Jóhann
igmarsson komst
heldur betur í hann krappan um
daginn. Hann hafði fengið bíl
kollega síns, Fridriks Þórs
Fridrikssonar, lánaðan
meðan Frikki skrapp
til Cannes en
lenti í því að
velta bílnum
iti á hringtorgi.
íj Jonna sakaði
til allrar guðs lif-
andi lukku ekki og
heldur ekki stúlku
sem var farþegi í bíln-
um. Þetta er ekki í
fyrsta sinn sem Jonni
lendir í slysi á bíl Frikka
því það gerðist einnig
fyrir tveimur árum
síðan. Þá var hann
, að vinna að Vegg-
fóðri með Júlíusi
' Kemp og átti sú
mynd eftir að gera
mikla lukku. Það er
því mál manna að >
slysið um daginn sé
góður fyrirboði fyrir gengi
myndarinnar sem Jonni vinnur nú
að en hún heitir Ein stór fjöl-
skylda...
Það skýrist um helgina hvort
Valsmaðurinn snjalli, Ágúst
Gylfason, leikur með Vals-
mönnum í sumar. Lið hans í sviss-
nesku þriðju deildinni er nú I úrslita-
keppni og fer að ráðast hvort það
kemst upp úr henni. Ef það tekst
vilja þeir halda Ágústi áfram og þar
með verður erfitt ef ekki ómögulegt
fyrir hann að koma heim og spila
með Val i sumar. Ef liðið nær ekki
að komast upp kemur hann eftir
helgi til landsins. Það er því Ijóst
með hverjum Valsmenn halda um
helgina...
Föstudagurinn lf. maí
Ég hafði sofnað út frá skrifum í gærkvöldi
og þegar ég vaknaði fannst mér ég eigin-
lega frekar ve.ra Bára en sá sem ég hef ver-
ið hingað til. í það minnsta eyddi ég degin-
um í að upphugsa sniðug trix fyrir kosn-
ingabaráttu R-listans. Ég hripaði nokkur
niður, skrifaði Bára undir og sendi það á
kosningaskrifstofu listans. Meðal annars
ábendingar um að reyna að draga Heim-
dellinga inn I kosningabaráttuna. Þaö lið
drepur allar kosningar sem þeir nálgast.
Landlæknir vill ekkert segja um hvenær sprautum og
nálum verður dreift ókeypis til sprautufíkla.
Laugardagurinn 14. maí
Ég varð fokvondur þegar ég sá fólskulega
árás á Alfreð Þorsteinsson í auglýsingu
sjálfstæðismanna I Mogganum. Hvernig
dirfist þessum mönnum að blanda Alfreð
inn í kosningabaráttu okkar R-listamanna?
Auðvitað er hann á listanum en það þýðir
ekki að hann sé fulltrúi fyrir Alfreð Por-
steinsson. Hann er fyrst og fremst fulltrúi
okkar R-listamanna. Hvað hann hafi gert í
nafni Framsóknarflokksins einhvern tím-
ann I fyrndinni kemur málinu ekki við. Það
er framtíðin sem við erum að hugsa um.
Ég skrifaði lesendahréf um máliö og tók
eftir hversu örugga og hreina rithönd ég
hef þegar ég skrifa Bára. Ég bætti einni
lykkju I B-ið.
Sunnudagurinn 25. mai
Ég áttaði mig á því um kaffileytið að ég hef
ekki hugsað til Davíðs Oddssonar I þrjá
daga. I raun hefur mér verið hjartanlega
sama hvar hann heldur sig, hverja hann
umgengst og hverja hann hittir. Mér líður
betur hugsandi um eitthvað annað. Kjartan
hringdi óvænt um kvöldmatarleytið en ég
sagðist vera upptekinn og mætti ekki vera
að því að tala við hann. Ég sat síðan við sí-
mann fram eftir nóttu en hann hringdi ekki
aftur.
Mánudagurinn l6. maí
Ég var hálf andvaka í alla nótt. Mér leið illa.
Mér fannst eins og ég væri að svíkja ein-
hvern sem ég ætti frekar að sýna skilning
og hlýju. Ég er allur orðinn svo meyr. Ég
veit ekki hvað þetta er. Kannski eru þetta
áhrif frá því að vera vinstrimaður I nokkra
daga. Kannski eru þeir svona að innan. En
ef til vill er þetta bara samviskan mín og
kannski þekki ég hana bara ekki betur en
svo að ég verð andvaka þegar ég heyri í
henni. Og kannski er það þannig með ann-
að fólk.
Þriðjudagurinn 2/. maí
Ég reyndi að skrifa enn eitt lesendabréf en
komst að því að ég er orðinn leiður á þess-
ari Báru. Öllu hennar nöldri um lélega fé-
lagslega þjónustu í Reykjavík og pexi um
að borgin styddi ekki fyrirtækin nóg., Bjakk.
Ég hef ógeð á þessum skoðunum. í raun
hef ég ógeð á Sjálfstæðisflokknum I
Reykjavík sem í raun yrði kallaður sósíal-
ískur flokkur í Bandaríkjunum eða öðru
siðmenntuðu ríki. Ég ákvað að reyna að
hrista af mér ásðkn þessarar Báru. Ég fór á
kosningaskrifstofu sjálfstæðismanna á
Vesturgötu, át randalín og lét Hvatarkerl-
ingarnar peppa mig upp.
Miðvikudagurinn 18. maí
Hvern hitti ég ekki þegar ég var að labba
yfir Lækjargötuna I hádeginu annan en
Davíð minn Oddsson. Og hann heyrði I
mér þegar ég kallaði og beið fyrir utan bíl-
inn sinn á meðan ég hljóp til hans. Hann
sagði: „Hvað segirðu kallinn?" Og ég ætl-
aöi að fara aö segja honum af nokkrum
bókum og greinum sem ég er með I smíð-
um og skjóta að honum einstaka hugmynd
þegar hann sagði: „Þarf að rjúka" og var
farinn. Blessaður kallinn. Alltaf að vinna.
maöur o
Irfláti
v:. 1 ■■
Fyrir viku var birt grein í
eintaki um skæðan lifrar-
bólgufaraldur sem herjar á ís-
lenska sprautufíkla en í fyrra-
dag var haldinn blaðamanna-
fundur um málið í sjúkrastöð
SÁÁ í Síðumúla. Á fundinum
lagði Þórarinn Tyrfingsson,
yfirlæknir á Vogi, fram sam-
antekt um fjölda sprautufikla
sem leitað hafa meðferðar hjá
SÁÁ á undanförnum árum.
Þar kom fram að með inn-
flutningi á amfetamíni árið
1983 skapaðist grundvöilur
fyrir að sprautufíklar yrðu til á
Íslandi og næstu árin jókst
neyslan jafnt og þétt fram til
ársins 1986. Árið 1987
greindust hins vegar
minna en 100 ný til-
felli og í kjölfarið var
dregin sú ályktun að
sprautunotkun meðal
eiturlyfjaneytenda
væri í rénum. Árið
1992 var ljóst að
ástandíð færi hins vegar versn-
andi og í skýrslu Þórarins kom
fram að á árunum 1991 til 1993
hefðu 307 sprautufíklar leitað
sér aðstoðar hjá SÁÁ. Hann
staðfesti að ekki væri ofætlað í
EINTAKI í síðustu viku að
fjöldi virkra sprautufíkla á fs-
landi séu um 300 talsins, þótt
ómögulegt sé að segja ná-
kvæmlega til um þá tölu.
Arthur Löve, læknir á
rannsóknarstofu í veirufræði á
Landspítalanum, sagði að úr
152 blóðsýnum sem hefðu ver-
ið rannsökuð hefðu 95 greinst
með lifrarbólgu C smit eða 63
prósent.
NAFNSPJALD VIKL/NNAR
Einhvern veginn hefur maður á tilfinningunni að þegar ís-
lenska kvikmyndasamsteypan var stofnuð hafi nafn fyrir-
tækisins verið valið með ákveðinn húmor i huga. íslenska
kvikmyndasamsteypan er framleiðsiufyrirtækið sem gerir
myndir Friðriks Þórs Friðrikssonar en kvikmyndagerð
hér á landi hefur verið rekin meira af áhuga en miklu fjár-
magni eins og skilja mætti af nafni fyrirtækisins. Nafnið er
svo voldugt að i rauninni dyggði ráðhús Reykjavikur vart til
að hýsa það en staðreyndin er sú að Samsteypan hefur
höfuðstöðvar sinar undir hanabjálka I gömlu húsi að Suður-
götu 14, sem er að visu í nágrenni við ráðhúsið, og í nokkr-
um skúrum í kring.
Það er Ari Kristinsson kvikmyndagerðarmaður sem á
Fyrst var vart við lifr-
arbólgu C hér á landi
eftir árið 1990 en smit-
leiðir hennar eru hinar
sömu og alnæmis. Það
er því ljóst að áróður
heilbrigðisyfirvalda fyrir
vörnum gegn alnæmi
hefúr ekki haft tilætluð
áhrif innan hóps
sprautufíkla og ef al-
næmi berst inn í hann
mun það hafa ófyrirsjá-
anlegar afleiðingar í för
með sér. Þórarinn Tyr-
fingsson telur að fjöldi
nýrra alnæmistilfella
færi á stuttum tíma upp
í 30 manns og ekki
ÍCELANDIC FILM CORPOKATION
ÍSilN'.kA KVIKMVNB.tó.vMSTKVl’A* tií
nafnspjald vikunnar og þar er hann titlaður Managing
Director sem útleggst væntanlega sem framkvæmdasjóri á
vorri tungu. Ari á ekki hvað minnstan þátt í velgengni
mynda fyrirtækisins þvi í raun er hann fyrirtaks kvikmynda-
tökumaður með framkvæmdastjómina í rassvasanum.
Nafnspjaldið hæfir vel fyrirtækinu og Ara, því það er eins
og leikmynd I anda Hollywood. Erlendir kvikmyndamógúlar
gleypa örugglega agnið eins og kvikmyndaáhorfendur út
um allan heim láta glepjast af tálmyndum draumaverk-
smiðjunnar. Á nafnspjaldinu er haldið uppi þeirri hefð sem
Einar Benediktsson skapaði þegar hann hugðist selja
norðurljósin úr landi.
myndi langt um líða þar
til sú tala margfaldaðist.
Því til staðfestingar kom
fram í máli fundarmanna
að tólf manns hefðu smit-
ast sama kvöldið af lifrar-
s bólgu C í partýi á Hverf-
isgötu.
Mun meiri aukning
á sprautunotkun hef-
ur verið meðal
kvenna undanfarin
þ'rjú ár og meðalaldur
þeirra kvenna sem
sprauta sig reglulega
og leituðu meðferðar
á Vogi í fyrra var 24.5
ár á meðan meðalald-
ur karlanna var 32 ár.
Þórarinn sagðist hafa
verulegar áhyggjur af
þessu því áberandi
þekkingarleysi á notk-
un getnaðarvarna
væri meðal kvenkyns
sprautufíkla og því
/ eintaki ísíðustu viku var fjallað
um sama mál og á fundi
landlæknis á þriðjudag;
hættunnar á að alnæmisveiran
kæmist inn fhóp
sprautusjúklinga.
gætu þær reynst stórhættuleg-
ir smitberar alnæmis þegar
það stingur sér niður innan
hópsins.
Ólafur Ólafsson, land-
læknir, segir að fyrir níu árum
hafi verið lögð fram sú tillaga
við heilbrigðisyfirvöld að nál-
um og sprautum yrði dreift
ókeypis tÚ sprautufíkla en því
erindi verið hafnað. Hann tel-
ur að í ljósi reynslunnar frá
þeim stöðum sem reynt hafa
þessa aðferð í baráttunni gegn
alnæmi sé tímabært að athuga
þetta mál aftur. Þegar blaða-
maður eintaks spurði hve-
nær hann hygðist leggja fram
þessa tillögu sína vildi hann
ekkert fullyrða um það. Á
meðan er „aðeins tímaspurs-
mál hvenær alnæmistiifellum
fjölgar stórlega," eins og Har-
aldur Briem, yfirlæknir á
Borgarspítalanum, orðar það.
L/NDARLEQ
VERÖLD
HILMARS
ARNAR
Afnýju lífi
Ég hef svo lengi sem ég hef munað eftir mér verið
áhugamaður um nýtt líf. Það hefur alla tíð verið ljóst að
ég er á rangri hillu í lífinu, fullur af ýmsum skapgerðar-
brestum sem þyrfti að lagfæra, yfirfullur af ónýttri sköp-
unargáfu og svo gjörsamlega á skjön við allt sem kallast
praktískt peningavit að afleiðingarnar eru stöðugt sam-
neyti við ýmiss konar glæpalýð, lögverndaðan og lærðan
jafnt sem amatör en effektífan, sem verður oft og einatt
til þess að nútíð og framtíð eru undirlögð í því að bæta
upp óraunsæja fortíð og það versta er að þetta heldur
alltaf áfram og áffarn. Ég hef ekki tölu á andvökunóttun-
um þar sem ég hef legið og reynt að leita lausna á vand-
anum, —ókei ég veit að það er offramleiðsla á lögfræð-
ingum og ég geri mitt besta til að kjósa Flokkinn til þess
að koma sem flestum á þing eða i stjórnunarstöður, en
það hlýtur að verða eitthvað affall og það er nokkuð ljóst
að hluti af námi þeirra gengur út á það hvernig eigi að
ofsækja mig á sem öflugastan hátt. Og það að þykjast
vera listamaður á landinu ísa er að ganga inn í erkitýpu
Sölva Helgasonar og maður er tilneyddur til að
hrökklast bæ af bæ í leit að ölmusu sem er úthlutað í
jöfnu hlutfalli við það hvað maður getur talað illa um
fólkið á næsta bæ og helst þarf maður að vera með aum-
ingja á bakinu.
Það er ekki fúrða þó maður vilji breyta til. I gegnum
tíðina hef ég laumast til að lesa flestar sjálfshjálparbækur
sem hafa verið gefnar út og ég er orðinn sérfræðingur í
Auðvitund, eða Prosperity Consciousness, sem gengur
aðallega út á það að verða ríkur með því að skrifa bækur
um fýrirbærið handa fíflum eins og mér. Ég hef pælt í
Sjálfsrekstri eða Self Management, en gallinn er sá að all-
ir þeir sem ég díla við eiga nýju útgáfuna með viðaukan-
um þannig að ég enda alltaf í mínus því að Samninga-
færni mín, eða Negotiating Skills, er ekki alveg í takt við
tímann, eða Up to Date. Ef ég væri umboðsmaður minn
myndi ég reka sjálfan mig.
Ég hef reynt Jákvæðar Staðhæfingar, eða Positive Aff-
irmation, sem gengur út á það að telja sjálfúm sér trú um
að veröldin sé ekki táradalur og að allt reddist og John
heitinn Lennon hefur gert J.S., eða P.A. möntruna
ódauðlega í einum texta sinna þar sem segir: Every Day
in Every Way I Am Getting Better and Iietter. Það er
verst að sjálfstortímandi, undirmeðvitund mín bætir
alltaf við: Hverja nátt á sérhvern hátt fer allt til fjandans.
—Og það sem undirmeðvitundin ákveður það gerist. Þá
hef ég reynt að taka undirmeðvitundina föstum tökum
og endurforrita hana. Til þess eru ýmis ráð: fjöldinn all-
ur af Ameríkönum hefur sest niður og fúndið út hvernig
megi Endurskapa Yfirburði, eða How to Recreate Excel-
lence. Þeir sýna hvernig á að selja Eskimóum ísskápa og
hvernig maður á að varast það að flytja kaffi inn tii Bras-
ilíu. Það slæma er að ég hef engan áhuga á því að selja
neinum neitt og að ég tilheyri þjóð sem fer með harðfisk,
hangikjöt og Opal með sér til Mallorca. Þeir kenna enn-
ffernur Umrömmun, eða Reframing, sem er tækni not-
uð til þess að sjá hluti í nýju ljósi eða frá nýju sjónar-
homi. Þar er gjarnan vitnað í gamla Taóistann sem eign-
aðist ótrúlega fallegan fola og nágrannarnir sögðu allir
sem einn: Hvílík gæfa! Við sjáum til, sagði gamli Taóist-
inn og stuttu síðar strauk folinn. Hvílík ógæfa, æptu ná-
grannarnir en gamli Taóistinn svaraði einungis: Við sjá-
um til. Þá kom héraðshöfðinginn og gerði öll hross upp-
tæk út af herleiðangri sem hann var að fara í og daginn
eftir mætti Blesi aftur á svæðið. Hvílík gæfa, emjuðu ná-
grannarnir hálf fúlir. Við sjáum til, sagði Herra T. Dag-
inn þar á eftir brá sonur Taóistans sér á hestbak en Blesi
var baldinn og sonurinn datt af baki og fótbrotnaði. Hví-
lík ógæfa, ískraði í nágrönnunum og Taóistinn svaraði
bara með þessu gamla góða Við sjáum til. Daginn eftir
mætti héraðshöfðinginn og skráði alla unga og full-
hrausta menn með sér í herleiðangur þar sem þeir síðar
féllu allir sem einn. Ég hef reynt að Umramma líf mitt út
frá Taóísku innsæi en yfirleitt með hörmulegum árangri:
Það er kominn tími til þess að setja sumardekk á bílinn.
Við sjáum til. Meiriháttar Mistök, eða Big Mistake, eins
og Arnold sagði í The Last Action Hero. Komdu til Can-
nes að hitta áhrifafólk, það verða samningar, koníak,
kampavín og fleira sem byrjar á stafinum K, eða there
will be Cognac, Champagne and other things starting
with the letter C. Við sjáum til.
Hérna sit ég hafandi misst af Clint Eastwood og
Catherine Deneuve. Framtíðin gengur út á fortíðina
og ég þarf að redda betri tækni til að breyta lífi mínu. Við
sjáum til. ©
4
FIMMTUDAGUR 19. MAI 1994 -j"