Tíminn - 25.02.1977, Page 5
Föstudagur 25. febrúar 1977
lllWI'l
5
Bandaríkj amenn auka
fiskneyzlu sína
gébé Reykjavík — Hér á landi eru
þessa dagana staddir fulltrúar
bandarlska fyrirtækisins North
Atlantic Seafood Association, en
að þessu fyrirtæki standa eftirtal-
in lönd: ísland, Danmörk, Græn-
land, Kanada og Noregur.
Verkefni NASA er aö annast
upplýsingaþjónustu og auglýsing-
ar á fiskafurðum frá fyrrnefndum
löndum, og að sögn fulltrúanna
hefur auglýsingaherferö þeirra
borið þann árangur, að fiskneyzla
jókst I Bandarikjunum um 16% á
siðasta ári. Tólf hundruö þúsund
dollurum hefur verið eytt I fyrr-
nefnda herferð, sem nú er aö hefj-
a sitt þriðja ár. Þar af hefur ís-
land lagt fram 440 þúsund doll-
ara,.Auglýsingaherferðin miðast
við það að fá Bandarikjamenn til
að neyta fremur fisks en kjöts.
'
SIGLFIRÐ-
INGAR IÐN-
ASTIR VIÐ
SUNDIÐ
FJ-Reykjavik — Siglfirðing-
ar virðast mestu sundgarpar
landsins af yfirliti mennta-
málaráðuneytisins um að-
sókn að sundstöðum i
kaupstöðum árið 1975 aö
ráða. Sundsókn Siglfirðinga
á hvern ibúa var þá 13,31
skipti, Reykvikingar komu
næstir með 11,94 skipti,
Sauðkræklingar með 11,57 og
Akureyringar með 11,03.
Næstir á eftir Akureyring-
um komu Húsvikingar með
9.78 skipti, þá Isfirðingar
með 8,19, Njarðvikingar
með 7,88, Eskfirðingar með
6,62 og Ólafsfirðingar með
6,36. Meö yfir sex skipti voru
einnig Akurnesingar, en
aðsókn var minnst, 2,37
skipti á hvern ibúa Dalvikur.
-
Akureyri:
Þrjú af
fjórum
tilboðum
undir
kostnað-
aráætlun
K.S.-Akureyri — Hitaveita
Akureyrar bauð út verk fyrir
skömmu við að byggja
undirstöður aðalaðveituæðar
frá Laugalandi til Akureyr-
ar. Tilboð bárust frá fjórum
aðilum, og voru þrjú þeirra
töluvert undir áætluðu kostn-
aöarverði. Lægsta tilboöið
var frá Norðurverki h.f. og
hljóðaði það upp á 15,5
milljónir kr. en þaö er 23%
undir áætluðu veröi, sem er
röskar tuttugu milljónir kr.
Hita veitunefnd hefur
ákveðið að taka tilboði
Norðurverks hf. Þá hefur
verið ákveöið að bjóða út
1008 sleða undir aðveituæð,
auk forsteyptra brunna,
sem verða 55 talsins. Þá
hafa og verið lagðar fram
frumteikningar að væntan-
legri aðaldælustöð að
Ytra-Laugalandi, sem Svan-
ur Eiriksson arkitekt hefur
unniö.
-
•••WMMÍÍMiíf
Timínner
í peningar f
f Auglýsicf S
: í Tímanum f
MiMiMMilMÍMMMMiMMÍilÍ
Eins og fram hefur komið I
Timanum áður, hefur oröið mikil
hækkun á fiskblokk I Bandarikj-
unum að undanförnu og er hvert
pund nú selt á 95 cent, en til
viðmiðunar má taka það fram, að
á slöasta ári var verðið 80 cent og
árið 1970 var það aðeins 32 cent.
A slðastliðnu ári fluttu íslend-
ingar alls 85 milljónir punda af
fiski til Bandarlkjanna, Kanada
61 milljón punda, Danmörk og
Grænland 56 millj. punda og Nor-
egur 42 millj. punda.
Samband Isl. samvinnufélaga
er aðili að fyrrnefndum samtök-
um NASA og lagði fram á slðasta
ári til þeirra, alls 45 þús. dollara.
Verðjöfnunarsjóður lagði hins
vega fram 55 þús. dollara. Sölu
miðstöð hraðfrystihúsanna er
hins vegar ekki I samtökum
þessum.
I dag áætla fulltrúar NASA
viðræður við forráðamenn I SÍS
og viðskiptaráðuneytinu um
framhald auglýsingaherferðar
þeirra
Þetta er merki samtakanna
NASA, sem er þegar orðiö vel
þekkt hjá hinum svokölluöu „fish
and chips” veitingastöðum I
Bandarikjunum, en þeir skjóta nú
upp kollinum þar I vaxandi mæli.
Tíma-myndin
LJOSM: GUNNAR
óskar að róða:
Útlitsteiknara
(lay-out mann)
Blaðamann
Upplýsingar hjá ritstjórum
Útboð
Tilboð óskast I að reka niður stálþil við Grófarbryggju og
ganga frá þvi á hefðbundinn hátt, steypa og koma fyrir
akkerisplötum, fyila að þiiinu, steypa kantbita með poll-
um og- niðurföllum, leggja frárennslislögn og ganga frá
yfirborði fyllingar undir malbik.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri Frikirkjuveg 3,
Reykjavik, gegn 5.000 skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 8. marz kl.
14.00 e.h.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 — Sími 25800 -